Morgunblaðið - 07.10.1997, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 25
Veitingarekst-
ur á kostnað
menningar?
Styr stendur um tillögu borgarstjóra að
rekstraraðilum Iðnós. Hulda Stefánsdóttir
kynnti sér gagnrýni listamanna og ræddi
við borgarstjóra og framkvæmdastjóra
Leikfélags íslands.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
SKIPTAR skoðanir eru um tillögfu að rekstrarfyrirkomulagi Iðnós
og þykir sumum sem áhersla á veitingarekstur skyggi á menning-
arstarfsemi þessa sögufræga húss.
BORGARSTJÓRI hefur mælt með
því að gengið verði til samstarfs við
Leikfélag Islands og veitingastaðinn
Við Tjörnina um rekstur Iðnós.
Borgarráð frestaði afgreiðslu tillög-
unar á fundi sínum sl. miðvikudag
en hún verður tekin fyrir á fundi
borgarráðs í dag. Flugfélagið Loftur
hefur sent erindi til borgarráðs þar
sem farið er fram á að borgin kaupi
leikhúsið Loftkastalann og geri í
framhaldi af því langtímaleigusamn-
ing við núverandi eigendur og
rekstraraðila, Flugfélagið Loft. Er
það álit aðstandenda leikfélagsins
að með þeim hætti megi jafna sam-
keppnisaðstöðu Loftkastalans við
aðra frjálsa leikhópa eins og Leikfé-
lag Reykjavíkur og væntanlega
Leikfélag Islands. Bandalag íslensk-
ar listamanna, BÍL, hefur sent frá
sér ályktun þar sem gagnrýnt er
fyrirkomulag rekstursins og spurt
hvort ekki hefði verið nær að ráða
sjálfstæðan listrænan stjórnanda að
húsinu og láta veitingarekstur liggja
á milli hluta.
Markmið borgarinnar með end-
urbyggingu Iðnó er að framvegis
verði þar lifandi og fjölsótt menning-
arstarfsemi sem taki til sem flestra
þátta menningar, lista og fræða sem
hæfi sögu hússins og byggingar-
gerð. Veitingastarfseminni er ætlað
að renna fjárhagslegum stoðum und-
ir menningarstarfsemina þannig að
reksturinn komist af án annars
fjárstuðnings borgarinnar en sem
felst í því að leggja húsið til endur-
gjaldslaust. Húsið er afhent fullfrá-
gengið en án lausra muna og búnað-
ar í eldhúsi, sölum og á sviði. Sam-
ráðsnefnd skipuð einum fulltrúa
borgarinnar, einum fulltrúa BÍL og
einum fulltrúa rekstraraðila mun
fylgjast með að starfsemi hússins sé
í samræmi við skilmálana. Þyki
meirihluta nefndarinnar ástæða til
getur hann farið fram á við Reykja-
víkurborg að samningum verði rift
og hefur borgin þá skuldbundið sig
til að leysa til sín þann búnað sem
rekstraraðilinn hefur fjárfest í.
Fyrir borgarráði liggur erindi frá
Flugfélaginu Lofti þar sem óskað
er eftir viðræðum við borgaryfirvöld
um kaup borgarinnar á leikhúsinu
Loftkastalanum en áætlað söluverð
eignarinnar er 185 milljónir. Þá er
farið fram á að borgin geri í fram-
haldi af kaupunum langtímaleigu-
samning við Flugfélagið Loft um
rekstur hússins. í bréfi Harðar Þor-
steinssonar, framkvæmdastjóra
Flugfélagsins Lofts ehf., segir m.a.
„Þar sem svo virðist sem borgaryf-
irvöld líti á það sem sitt hlutverk
að skapa fijálsum leikhópum að-
stöðu og starfsgrundvöll er það ósk
okkar að fá að sitja við sama borð
og starfa á jafnréttisgrundvelli við
aðra leikhópa í borginni."
Óeðlileg samkeppnisstaða
Hörður segir að aðstandendur
Loftkastalans vilji með erindi sínu
vekja athygli á því með hvaða hætti
menningarstarfsemi er rekin á Is-
landi. „Við erum ekki að gagnrýna
að fjármunir skuli vera veittir til
menningarstarfsemi heldur hvernig
þessir fjármunir dreifast," segir
Hörður. „Yfir hálfum milljarði er
varið til leikhússtarfsemi af al-
mannafé ár hvert og þar virðast
geðþóttaákvarðanir ráða ferðinni.
Við lögðum fram tillögur um full-
mótaðan rekstur sem miðaðist að
því að samnýta krafta okkar og
reynslu af bæði leikhús- og veitinga-
húsarekstri og teljum að rekstrar-
grundvöllur okkar hafi verið mjög
sterkur. Ætlun borgarinnar virðist
hins vegar fyrst og fremst hafa ver-
ið veitingahúsarekstur og fyrst og
síðast er það því veitingahúsið Við
Tjörnina sem er að fá Iðnó.“ Hörður
tekur það fram að þeir Loftkastala-
menn hafi ekkert út á Leikfélag ís-
lands að setja, sýningar þess hafi
verið með ágætum. Skoðun þeirra
sé hins vegar sú að eðlilegra hefði
verið að leikhúsfólki með meiri
reynslu hefði verið falinn reksturinn.
Byrjað á öfugum enda
Bandalag íslenskra listamanna
hefur sent frá sér ályktun þar sem
fram kemur að það hafi þegar legið
fyrir hvaða aðili tæki að sér veitinga-
rekstur þegar viðræður við um-
sóknaraðila að listrænni starfsemi
hófust og sá aðili hafi þar með gegnt
lykilaðstöðu í viðræðunum og í raun
getað valið sér samstarfsaðila úr
listalífinu. í ályktun BÍL segir m.a.:
„Það er og hefur ætíð verið skoðun
stjórnar Bandalags ísl. listamanna
að aðeins skuli samið við einn aðila
um rekstur starfseminnar í Iðnó og
þá til ákveðins tíma í senn. Sá aðili
skuli koma af vettvangi listalífsins
og hafa óskorað vald til þess að laga
væntanlegan veitingarekstur í hús-
inu að þeirri starfsemi sem hann
hefur sjálfur á hendi. Eins og málin
liggja nú fyrir er hins vegar í raun
verið að ganga til samninga við tvo
óskylda aðila sem eiga mjög ólíkra
hagsmuna að gæta.“
Hjálmar H. Ragnarsson, forseti
Bandalags ísl. listamanna, segir
gagnrýnina beinast að því sam-
bandsleysi í stjórnkerfi borgarinnar
sem fram hafi komið í vinnubrögðum
borgarinnar að málefnum Iðnós. Svo
virðist sem sjónarmiðum BÍL hafi
verið vikið til hliðar og að ákvarðan-
ir hafi verið teknar án samráðs við
þá aðila sem mesta reynslu og þekk-
ingu hafí á sviði menningarstarfsemi
í borginni. Samskipti borgaryfir-
valda við BÍL hafi verið lítil og kom-
ið seint til, þrátt fyrir að greinar-
gerð með hugmyndum Bandalagsins
hafi legið fyrir allt frá árinu 1992
og að borgaryfirvöldum hafi ítrekað
verið bent á þær hugmyndir. Gagn-
rýni Bandalagsins lýtur að veitinga-
rekstri í Iðnó og Hjálmar segir skil-
mála borgarinnar að öðru leyti vera
með ágætum. „Tillaga okkar á sín-
um tíma miðaðist að því að Iðnó
yrði sannkallað menningarhús þar
sem boðið yrði upp á fjölbreytta og
framsækna menningarstarfsemi,
ekki einungis leikhús heldur hús
undir menningargrasrótina í land-
inu. Ef Iðnó er orðið svona fínt veit-
ingahús er erfitt að bjóða upp á rót-
tæka og framsækna menningardag-
skrá.“ Fimm aðilar af ellefu umsækj-
endum voru kvaddir til viðræðna við
borgina í vor. „Þar af var einn aðili
úr veitingarekstri. í raun og veru
var því verið að stilla aðilum úr lista-
lífinu upp andspænis þessum veit-
ingaaðila og þeim gert að koma sér
saman við hann um reksturinn. Það
er því kannski ekki alveg tilviljun
að það skuli vera aðilinn með
minnstu reynsluna sem náði samn-
ingum við veitingarekandann. Hefði
ekki farið betur á því að ráða listræn-
an stjórnanda að húsinu og láta
hans síðan um að ákvarða veitinga-
rekstur í húsinu?" spyr Hjálmar.
„Þetta er eins og ef kaffiterían á
Kjarvalsstöðum færi að hafa áhrif á
listræna starfsemi safnsins." Annað
atriði skilmálanna sem Bandalagið
gagnrýnir lýtur einnig að veitinga-
rekstri hússins. Hjálmar segir að það
hversu veitingarekanda er gert að
fjárfesta í miklum búnaði í húsinu
geri samráðsnefndinni erfitt fyrir
með riftun samnings ef til þess
kæmi. „Borgin þyrfti þá að leysa til
sín miklar eignir og það munu menn
ekki vera tilbúnir að gera þegar frá
líður. Við teljum því að borgin þyrfti
að eiga húsið með tilheyrandi bún-
aði til að halda óskertu valdi yfir
starfseminni," segir Hjálmar.
Hugmyndir í samræmi við
tillögu BÍL
Breki Karlsson, framkvæmda-
stjóri Leikfélags íslands, hafnar því
að reynsluleysi hái aðstandendum
félagsins því þrátt fyrir ungan aldur
hafi þeir staðið að uppsetningu fjöl-
margra leikrita og söngleikja sem
notið hafi hylli almennings. „Við
erum okkur meðvitandi um þá
ábyrgð sem fylgir Iðnó og ætlum
að standa undir henni." Breki segist
undarandi á viðbrögðum BÍL þar
sem tillaga félagsins að starfsemi í
Iðnó frá árinu 1992 hafi nánast ver-
ið samhljóða tillögu Leikfélags ís-
lands. Breki segir að hugmyndir
þeirra miðist að því að Iðnó verði
„iðandi menningarhús," þar verði
ekki einungis boðið upp á leikhús
heldur dans, söng, tónlist og mynd-
list. Varðandi gagnrýni í þá veru að
nær hefði verið að ráða fram-
kvæmdastjóra að Iðnó en ekki einn
fijálsu leikhópanna segir Breki að
Leikfélag íslands standi næst því
að vera hlutlaust, þar vinni ungur
aldur með meðlimum félagsins.
„Umræðan einkennist svolítið af
óþarfa áhyggjum fyrirfram sem er
í sjálfu sér ekki óeðlilegt því Iðnó
skipar stóran sess í hjarta fólks.
Sjálfsagt hefði alltaf staðið styr um
þessi mál, hver svo sem tillaga borg-
arstjóra hefði orðið.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri segir að vegna uppbygging-
ar starfseminar í Iðnó hafi það orðið
að liggja fyrir í upphafi með hvaða
sniði veitingarekstur í húsinu yrði.
„Hugmyndir veitingaaðilans hugn-
uðust nefndinni þegar vel en erfið-
ara var að velja á milli hugmynda
sem fram komu um listræna starf-
semi hússins sem margar hveijar
voru mjög frambærilegar." Hún seg-
ir hugmyndir um starfsemi í Iðnó
alltaf hafa miðast að því að þar
færi saman menningar- og veitinga-
rekstur. Þessi hugmynd hafi einnig
verið sett fram af Bandalagi ísl.
listamannna á sínum tíma. „Það er
ekki rétt sem fram kemur í ályktun
Bandalagsins að það eigi að semja
við tvo aðila um rekstur hússins. Það
á að semja við einn aðila, þ.e. veit-
ingahúsið Við Tjörnina og Leikfélag
íslands sem mynda eitt rekstrarfélag
sín á rnilli." Ingibjörg_ Sólrún segir
að sér virðist sem BÍL gefi sér í
ályktun sinni að samingurinn við
rekstraraðilann, með tilheyrandi
skilmálum borgarinnar, muni ekki
halda. „Við höfum fulla trú á þessum
aðila sem valinn hefur verið og von-
um að með því fáist farsæl lausn
og að þarna verði starfsemi sem
borgin hefur lagt upp með og skil-
málar kveða á um,“ segir Ingibjörg
Sólrún. „Aðstandendur Leikfélags
íslands eru vissulega ungir að árum
en þeir eru ekki reynslulausir og
hugmyndir þeirra eru góðar. Ég legg
auk þess áherslu á það að ekki er
um að ræða að Leikfélag íslands
starfræki eigið leikhús í Iðnó, heldur
er þess hlutverk að reka hús þar sem
allir þættir menningarlífsins eiga
aðkomu og geta notið sín. Þess er
að skipuleggja og reka en ekki að
framleiða sjálft allt það menningar-
efni sem á boðstólum verður." Ingi-
björg Sólrún hittir í dag aðstandend-
ur Flugfélagsins Lofts vegna erindis
sem þeir hafa sent borginni. Hún
segir gagnrýni aðstandenda Loftk-
astalans koma nokkuð á óvart þar
sem þeir hafi ekki gert neinar at-
hugasemdir við skilmálana í umsókn
sinni að rekstri Iðnós.
Sp arnaðarráð
McDonald ’s
Austurstræti 20
Suðurlandsbraut 56 TÍMABUNDIÐ VERÐ