Morgunblaðið - 07.10.1997, Page 29

Morgunblaðið - 07.10.1997, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 29 Evrópuvika o g Evrópu- ráð gegn krabbameini KRABBAMEIN er sjúkdómur sem herjað getur á hvern sem er, hvar sem er, hvenær sem er. í Evrópu er talið að krabbamein snerti um þriðjung Evrópubúa einhvern tímann á ævinni og leiði þar til dauða fjórða hvers manns. Framkvæmdastj órn Evrópusambandsins ýtti úr vör verkefninu „Evrópa gegn krabbameini" árið 1987. Tilgangur þess er og hefur verið að styðja fjölþjóðlegar aðgerðir gegn krabbameinum og hafa áhrif á útbreiðslu þeirra. Þriðja krabbameinsáætlunin, 1996 til 2000, leggur áherslu á fjögur meginsvið, þ.e. krabba- meinsvarnir, krabbameinsleit og snemmbæra uppgvötun meina, þjálfun heilbrigðisstarfsfólks og stuðning við krabbameinsrann- sóknir. Aætlunin er sú fyrsta, eftir að Evrópusambandið tók heilsu- vernd inn í sáttmála sinn 1993. Sáttmálinn gerir ráð fyrir að heil- brigðissjónarmið skuli í heiðri höfð við pólitískar ákvarðanir og aðrar stjórnvaldsákvarðanir Evrópusam- bandsins. Við hlið krabbameinsáætlunar- innar er einnig unnið að öðrum heilbrigðisverkefnum tengdum eyðni, eitur- lyfjafaraldrinum og almennri heilsuefl- ingu. EFTA-löndin, ís- land, Noregur og Lic- htenstein hafa gerst aðilar að þessum verk- efnum Evrópusam- bandsins. Frjálst flæði fólks, vöru og þjónustu kallar á ný vandamál, einnig heilbrigðis- vandamál sem stund- um er erfitt að sjá fyr- ir. Sjúkdómsvarnir og heilsuefling hafa þess vegna orðið að þýðing- armiklum þætti á svæði EES samningsins. Ætla má að samstarf þjóðanna auki heilsuf- arslegt öryggi þegnanna. Stærsta einstaka heilbrigðisverk- efni Evrópusambandisns er þriðja áætlunin gegn krabbameini. Verk- efnum hennar er ætlað að efla vit- und heilbrigðisstarfsfólks og al- mennings um orsakir krabbameins og krabbameinsvemd. Evrópu- krabbameinsskrá er eitt verkefni og neysluvenjurannsók annað með þátttöku um 270.000 sjálfboðaliða til að kanna fylgni krabbameins við tilteknar neysluvenjur. Gæði við krabbameinseftirlit, rannsóknir og meðferð er einnig umfangsmikið verkefni og miðlun upplýsinga í því sambandi. Meðal verkefna er einnig að hafa frumkvæði að löggjöf varð- andi tóbak, s.s. um tjöru og nikotín- magn og önnur aukaefni í tóbaki, merkingar á tóbaksvörum, bann á tóbaksauglýsingum og reykingum á opinberum stöðum. Nokkuð öflug- ur stuðningur fer til tóbaksvama, eins og „Evrópunetið til reykinga- vama“ og „Evrópunet æskufólks gegn reykingum og tóbaki" em dæmi um. Auk þess að veita styrki til ein- í þessari viku er ætlunin að vekja fólk í löndum Evrópusambandsins, ís- landi og Noregi, til um- hugsunar um krabba- mein, segir Skúli Thor- oddsen, og e.t.v. að- gerða gegn hugsanleg- um meinum. stakra verkefna sem samræmast markmiðum áætlunarinnar, beitir Evrópusambandið sér árlega fyrir sérstakri viku í októbermánuði, „Evrópuviku gegn krabbameini.“ I þessari viku er ætlunin að vekja fólk í löndum Evrópusambandsins, íslandi og Noregi, til umhugsunar um krabbamein og e.t.v. aðgerða gegn hugsanlegum meinum, áður en það kann að vera um seinan. Evrópuvikan gegn krabbameini er haldin í samvinnu við heilbrigð- isráðuneyti aðildarþjóðanna og krabbameinsfélögin. ísland tekur nú í fyrsta skipti þátt í vikunni en kjörorð hennar að þessu sinni, „ijúfum þögnina - ræðum um krabbamein" höfðar til hulunnar sem legháls- og bijóstakrabbamein í konum er stundum slegin. Konur eru þess vegna hvattar til að kynna sér þema vikunnar, því þekking dregur úr ótta og fordómum. Evrópuvikan er iðulega notuð til frekari útfærslu á einhverju ráði sem fjallað er um í „Evrópuráðum gegn krabbameini," en það eru tíu einföld ráð um hvemig hver og einn getur minnkað líkur á að krabba- mein þróist hjá sér og hvað beri að gera til að reyna að uppgvöta vágestinn í tíma. Þetta er afar mik- ilvægt vegna þess að talið er að krabbameinstengd dauðsföll megi í um 70% tilvika rekja til þess lífs- stíls sem fólk velur sér. M.ö.o. heilsa mín er að verulegu leyti undir mér sjálfum komin. Hér fer á eftir þýðing mín á þessum „Evrópuráðum," með ósk um að þátttaka íslands í „Evrópu- viku gegn krabbameini“ skili hvetju okkar um sig nokkrum skrefum í átt til betri heilsu, sé það á okkar valdi. Evrópuráð gegn krabbameini Komast má hjá vissum tegund- um krabbameins með heilbrigðum lífsstíl; 1. Reyktu ekki. Reykingafólk ætti að reyna að hætta reykingum sem fyrst og reykja ekki í nærveru annarra. Ef þú reykir ekki, ekki byija á því. 2. Ef þú neytir áfengis; bjórs, víns eða sterkra drykkja, dragðu úr neyslunni. 3. Neyttu meira ferskra ávaxta og grænmetis, daglega, ásamt trefjaríkri kornfæðu. 4. Forðastu ofþyngd og hreyfðu þig meira. Takmarkaðu neyslu fituríkrar fæðu. 5. Forðastu langvarandi sólböð. Komdu í veg fyrir sólbruna, sér- staklega hjá börnum. 6. Fylgdu settum reglum um umgengni við þekkt krabbameins- valdandi efni og farðu eftir heil- brigðis- og öryggisleiðbeiningum varðandi slík efni. Hægt er að komast fyrir mörg krabbamein, ef þau uppgvötast nógu tímanlega. 7. Leitaðu læknis ef þú finnur fyrir hnúð eða þú tekur eftir sári sem ekki grær (jafnvel í munni), fæðingarbletti sem breytist í lögun og lit, eða óeðlilegum blæðingum. 8. Leitaðu læknis ef þú hefur stöðugan hósta eða hæsi, ef breyt- ingar verða á hægða- eða þvagláts- venjum og ef þú léttist óeðlilega og án skýringa. Konur athugi sérstaklega 9. Þú ættir að láta taka legháls- sýni reglulega, taka þátt í skipu- lagðri leit að forstigum vegna leg- hálskrabbameins. 10. Þú ættir að skoða bijóstin á þér reglulega. Ef þú ert yfir fimmtugu, ættir þú að taka þátt í skipulagðri bijóstaröntgenmynda- töku Krabbameinsfélagsins. Höfundur starfar sem sérfræðingur hj& framkvæmdasijórn Evrópusambandsins á vegum beilbrigðisráðuneytisins. Skúli Thoroddsen Æf\ KENNARAHÁSKÓII ÍSIANDS LESTRARMIÐSTÖÐ Auglýsing um námskeið Stafsetningarnámskeið Námskeið fyrir framhaldsskólanema, fullorðna með lestrarörðugleika og þá sem voru lengi að ná tökum á lestri verður haldið 13. október - 3. desember. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 18:00-19:00. Nægi þátttaka í tvö námskeið verður það endurtekið sömu daga kl. 19:00-20:00. Kennari er Baldur Sigurðsson lektor í Kennaraháskóla Islands. Nánari upplýsingar eru veittar næstu daga frá 14:00 til 16:00 í síma 510 3702. Frábær fyrirtæki Kertaverksmiðja, framleiðir t.d. kerti úr náttúruvænu hunangsvaxi um 30 mót fylgja, hægt að vera með um 100 mismunandi kerti. Kjörið til flutnings út á land. Þekkt bóka- og ritfangaverslun á einstaklega góðum stað. Besti tíminn framundan. Á þessum tíma er best að kaupa slíka fyrirtæki. Skemmtilegt starf fyrir t.d. samhent hjón. Snyrtivöruverslun á góðum stað vaxandi viðskipti, umboð fylgja. Frábær tími framundan, frábært verð. Myndbandaleiga um 3500 spólur vel staðsett í austurborginni, nýtt tölvukerfi og nýlegar innréttingar. Góð kjör í boði. Góður söluturn með vídeóleigu um 5000 spólur, gott tölvukerfi. Góð velta. 6. Til leigu húsnæði undir söluturn í verslunarmiðstöð í Breiðholti. Upplýsingar á skrifstofunni. F.YRIRTÆKIASALAN SUOURVERI SIMAR 581 2040 OG 581 4755, REVNIR ÞORGRlMSSON. Kiputin óJxvujanletfi: Sésia PétuA,<PówUHMxwi ÍJjOuJiÓU Hlj msveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi. föstudaginn 17. og laugardaginn 18. október. Hinir landskunnu, síkótu og fróbæru skagfírsku söngvarar: «9?ú$ið opnah kl. 19:00 fyrir matargesti. Skemmtun hefst kl. 20:00. Verö: Kr. 4.500 matur og skemmtun Kr. 1.800 á skemmtun og dansleik. Kr. 1.000 á dansleik. HÓm jjJAND Siml 568-7111-Fax 568-5018. Miðasala opin daglega kl. 13-17. Vinsamlega pantið timanlega. ..áÍATSEÐILL Koníakslöguö sjáuarréttasúpa. Sinnepshjúpabur lambauöðui meb smjörsteiktum jaröeplum, grænmeti og skógarsueppasósu. Heimalagaöur konfektis meö Mozartsúkkulaöisósu. .((jlwsi/vyusli ,s/i('i>mitisl(«U(/' /(««/,si«,s - (c.sfr/ /sltcntnili/i/'uf/ur/n/> mj ,s//c/n/nfi/c(j((,sf(r/6//sid

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.