Morgunblaðið - 07.10.1997, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 29
Evrópuvika o g Evrópu-
ráð gegn krabbameini
KRABBAMEIN er
sjúkdómur sem herjað
getur á hvern sem er,
hvar sem er, hvenær
sem er. í Evrópu er
talið að krabbamein
snerti um þriðjung
Evrópubúa einhvern
tímann á ævinni og
leiði þar til dauða
fjórða hvers manns.
Framkvæmdastj órn
Evrópusambandsins
ýtti úr vör verkefninu
„Evrópa gegn
krabbameini" árið
1987. Tilgangur þess
er og hefur verið að
styðja fjölþjóðlegar
aðgerðir gegn krabbameinum og
hafa áhrif á útbreiðslu þeirra.
Þriðja krabbameinsáætlunin,
1996 til 2000, leggur áherslu á
fjögur meginsvið, þ.e. krabba-
meinsvarnir, krabbameinsleit og
snemmbæra uppgvötun meina,
þjálfun heilbrigðisstarfsfólks og
stuðning við krabbameinsrann-
sóknir. Aætlunin er sú fyrsta, eftir
að Evrópusambandið tók heilsu-
vernd inn í sáttmála sinn 1993.
Sáttmálinn gerir ráð fyrir að heil-
brigðissjónarmið skuli í heiðri höfð
við pólitískar ákvarðanir og aðrar
stjórnvaldsákvarðanir Evrópusam-
bandsins.
Við hlið krabbameinsáætlunar-
innar er einnig unnið að öðrum
heilbrigðisverkefnum
tengdum eyðni, eitur-
lyfjafaraldrinum og
almennri heilsuefl-
ingu. EFTA-löndin, ís-
land, Noregur og Lic-
htenstein hafa gerst
aðilar að þessum verk-
efnum Evrópusam-
bandsins. Frjálst flæði
fólks, vöru og þjónustu
kallar á ný vandamál,
einnig heilbrigðis-
vandamál sem stund-
um er erfitt að sjá fyr-
ir. Sjúkdómsvarnir og
heilsuefling hafa þess
vegna orðið að þýðing-
armiklum þætti á
svæði EES samningsins. Ætla má
að samstarf þjóðanna auki heilsuf-
arslegt öryggi þegnanna.
Stærsta einstaka heilbrigðisverk-
efni Evrópusambandisns er þriðja
áætlunin gegn krabbameini. Verk-
efnum hennar er ætlað að efla vit-
und heilbrigðisstarfsfólks og al-
mennings um orsakir krabbameins
og krabbameinsvemd. Evrópu-
krabbameinsskrá er eitt verkefni
og neysluvenjurannsók annað með
þátttöku um 270.000 sjálfboðaliða
til að kanna fylgni krabbameins við
tilteknar neysluvenjur. Gæði við
krabbameinseftirlit, rannsóknir og
meðferð er einnig umfangsmikið
verkefni og miðlun upplýsinga í því
sambandi. Meðal verkefna er einnig
að hafa frumkvæði að löggjöf varð-
andi tóbak, s.s. um tjöru og nikotín-
magn og önnur aukaefni í tóbaki,
merkingar á tóbaksvörum, bann á
tóbaksauglýsingum og reykingum
á opinberum stöðum. Nokkuð öflug-
ur stuðningur fer til tóbaksvama,
eins og „Evrópunetið til reykinga-
vama“ og „Evrópunet æskufólks
gegn reykingum og tóbaki" em
dæmi um.
Auk þess að veita styrki til ein-
í þessari viku er ætlunin
að vekja fólk í löndum
Evrópusambandsins, ís-
landi og Noregi, til um-
hugsunar um krabba-
mein, segir Skúli Thor-
oddsen, og e.t.v. að-
gerða gegn hugsanleg-
um meinum.
stakra verkefna sem samræmast
markmiðum áætlunarinnar, beitir
Evrópusambandið sér árlega fyrir
sérstakri viku í októbermánuði,
„Evrópuviku gegn krabbameini.“ I
þessari viku er ætlunin að vekja
fólk í löndum Evrópusambandsins,
íslandi og Noregi, til umhugsunar
um krabbamein og e.t.v. aðgerða
gegn hugsanlegum meinum, áður
en það kann að vera um seinan.
Evrópuvikan gegn krabbameini
er haldin í samvinnu við heilbrigð-
isráðuneyti aðildarþjóðanna og
krabbameinsfélögin. ísland tekur
nú í fyrsta skipti þátt í vikunni en
kjörorð hennar að þessu sinni,
„ijúfum þögnina - ræðum um
krabbamein" höfðar til hulunnar
sem legháls- og bijóstakrabbamein
í konum er stundum slegin. Konur
eru þess vegna hvattar til að kynna
sér þema vikunnar, því þekking
dregur úr ótta og fordómum.
Evrópuvikan er iðulega notuð til
frekari útfærslu á einhverju ráði
sem fjallað er um í „Evrópuráðum
gegn krabbameini," en það eru tíu
einföld ráð um hvemig hver og einn
getur minnkað líkur á að krabba-
mein þróist hjá sér og hvað beri
að gera til að reyna að uppgvöta
vágestinn í tíma. Þetta er afar mik-
ilvægt vegna þess að talið er að
krabbameinstengd dauðsföll megi í
um 70% tilvika rekja til þess lífs-
stíls sem fólk velur sér. M.ö.o. heilsa
mín er að verulegu leyti undir mér
sjálfum komin.
Hér fer á eftir þýðing mín á
þessum „Evrópuráðum," með ósk
um að þátttaka íslands í „Evrópu-
viku gegn krabbameini“ skili
hvetju okkar um sig nokkrum
skrefum í átt til betri heilsu, sé
það á okkar valdi.
Evrópuráð gegn krabbameini
Komast má hjá vissum tegund-
um krabbameins með heilbrigðum
lífsstíl;
1. Reyktu ekki. Reykingafólk
ætti að reyna að hætta reykingum
sem fyrst og reykja ekki í nærveru
annarra. Ef þú reykir ekki, ekki
byija á því.
2. Ef þú neytir áfengis; bjórs,
víns eða sterkra drykkja, dragðu
úr neyslunni.
3. Neyttu meira ferskra ávaxta
og grænmetis, daglega, ásamt
trefjaríkri kornfæðu.
4. Forðastu ofþyngd og hreyfðu
þig meira. Takmarkaðu neyslu
fituríkrar fæðu.
5. Forðastu langvarandi sólböð.
Komdu í veg fyrir sólbruna, sér-
staklega hjá börnum.
6. Fylgdu settum reglum um
umgengni við þekkt krabbameins-
valdandi efni og farðu eftir heil-
brigðis- og öryggisleiðbeiningum
varðandi slík efni.
Hægt er að komast fyrir mörg
krabbamein, ef þau uppgvötast
nógu tímanlega.
7. Leitaðu læknis ef þú finnur
fyrir hnúð eða þú tekur eftir sári
sem ekki grær (jafnvel í munni),
fæðingarbletti sem breytist í lögun
og lit, eða óeðlilegum blæðingum.
8. Leitaðu læknis ef þú hefur
stöðugan hósta eða hæsi, ef breyt-
ingar verða á hægða- eða þvagláts-
venjum og ef þú léttist óeðlilega
og án skýringa.
Konur athugi sérstaklega
9. Þú ættir að láta taka legháls-
sýni reglulega, taka þátt í skipu-
lagðri leit að forstigum vegna leg-
hálskrabbameins.
10. Þú ættir að skoða bijóstin
á þér reglulega. Ef þú ert yfir
fimmtugu, ættir þú að taka þátt í
skipulagðri bijóstaröntgenmynda-
töku Krabbameinsfélagsins.
Höfundur starfar sem
sérfræðingur hj&
framkvæmdasijórn
Evrópusambandsins á vegum
beilbrigðisráðuneytisins.
Skúli
Thoroddsen
Æf\ KENNARAHÁSKÓII ÍSIANDS
LESTRARMIÐSTÖÐ
Auglýsing um námskeið
Stafsetningarnámskeið
Námskeið fyrir framhaldsskólanema, fullorðna með
lestrarörðugleika og þá sem voru lengi að ná tökum á lestri
verður haldið 13. október - 3. desember.
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum
kl. 18:00-19:00. Nægi þátttaka í tvö námskeið verður
það endurtekið sömu daga kl. 19:00-20:00.
Kennari er Baldur Sigurðsson lektor í Kennaraháskóla Islands.
Nánari upplýsingar eru veittar næstu daga frá 14:00 til 16:00 í
síma 510 3702.
Frábær fyrirtæki
Kertaverksmiðja, framleiðir t.d. kerti úr
náttúruvænu hunangsvaxi um 30 mót fylgja,
hægt að vera með um 100 mismunandi kerti.
Kjörið til flutnings út á land.
Þekkt bóka- og ritfangaverslun á einstaklega
góðum stað. Besti tíminn framundan. Á
þessum tíma er best að kaupa slíka fyrirtæki.
Skemmtilegt starf fyrir t.d. samhent hjón.
Snyrtivöruverslun á góðum stað vaxandi
viðskipti, umboð fylgja. Frábær tími
framundan, frábært verð.
Myndbandaleiga um 3500 spólur vel staðsett í
austurborginni, nýtt tölvukerfi og nýlegar
innréttingar. Góð kjör í boði.
Góður söluturn með vídeóleigu um 5000
spólur, gott tölvukerfi. Góð velta.
6. Til leigu húsnæði undir söluturn í
verslunarmiðstöð í Breiðholti.
Upplýsingar á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAN
SUOURVERI
SIMAR 581 2040 OG 581 4755, REVNIR ÞORGRlMSSON.
Kiputin óJxvujanletfi:
Sésia
PétuA,<PówUHMxwi
ÍJjOuJiÓU
Hlj msveit Geirmundar
Valtýssonar leikur fyrir dansi.
föstudaginn 17. og
laugardaginn 18. október.
Hinir landskunnu, síkótu og fróbæru skagfírsku söngvarar:
«9?ú$ið
opnah kl. 19:00 fyrir matargesti.
Skemmtun hefst kl. 20:00.
Verö: Kr. 4.500 matur og skemmtun
Kr. 1.800 á skemmtun og dansleik.
Kr. 1.000 á dansleik.
HÓm jjJAND
Siml 568-7111-Fax 568-5018.
Miðasala opin daglega kl. 13-17.
Vinsamlega pantið timanlega.
..áÍATSEÐILL
Koníakslöguö sjáuarréttasúpa.
Sinnepshjúpabur lambauöðui
meb smjörsteiktum jaröeplum,
grænmeti og skógarsueppasósu.
Heimalagaöur konfektis meö
Mozartsúkkulaöisósu.
.((jlwsi/vyusli ,s/i('i>mitisl(«U(/' /(««/,si«,s - (c.sfr/ /sltcntnili/i/'uf/ur/n/> mj ,s//c/n/nfi/c(j((,sf(r/6//sid