Morgunblaðið - 07.10.1997, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 07.10.1997, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ Pabbi var ávallt tilbúinn að rétta mönnum hjálparhönd og hann vildi allt fyrir okkur gera, það skipti eigi hvað við báðum um, ef eitthvað þurfti að gera þá var hann reiðubú- inn. Það var ekki sjaldan sem hann var að hjálpa okkur systkinunum eða 'vinum að flísaleggja, mála eða þvíumlíkt enda fór þar maður sem þekktur var fyrir vel unnin störf á sínu sviði. Hvað sem þú tókst þér fyrir hendur gerðir þú vel, þú varst afbragðs múrari, íþróttamaður og hagyrðingur mikill. Nú þegar komið er að kveðju- stundinni er leitun að góðum orðum sem ná að lýsa því hvað okkur býr í hjartastað, þegar okkur systkinun- um verður hugsað til þín, elsku pabbi. Þó virðist aðeins eitt orð bera af yfir önnur sem náð gætu að lýsa þínum innra manni, þú varst einfaldlega góður maður. Við erum þakklát fýrir að hafa kynnst þér og átt samleið með þér og við biðjum algóðan Guð að fylgja þér og leiða á þeirri vegferð, sem þú ert nú lagður út í. Elsku pabbi, við vonum að þú hafir það gott og að þér líði vel og sért með ömmu, afa og Þórarni frænda. Við munum ávallt minnast góðu stundanna sem við áttum sam- an og þú munt ætíð vera í huga okkar. Við söknum þín. Birkir, Hólmfríður, Baldur og Þórarinn. Mánudaginn 6. október 1997 var jarðsettur vinur okkar og frændi Guðni Jónsson múrari. Það er alltaf jafnerfitt þegar er tilkynnt er um andlát vinar eða ættingja, en þegar okkur barst fréttin um veikindi Guðna Jónssonar varð manni hverft við. Einungis nokkrum dögum áður hafði hann komið uppá verkstæði og verið að segja að ekkert biti á sig og jafnaldrar hans væru mun verr á sig komnir. En veikindi gera ekki boð á undan sér og svo var einnig nú, en Guðni veiktist mánu- dagskvöldið 29.september og var látinn á miðvikudagsmorgun. Guðni var múrari að mennt og var fagmaður góður og bera verk hans þess glöggt vitni. Það var fyrst þegar við byggðum í Rimasíðunni sem Guðni kom til að vinna fyrir okkur við múrverk og ætíð síðan höfum við getað leitað til hans þeg- ar múrverk og flísalögn er annars vegar. Þegar við skiptum um hús í október 1995 var nánast eins og Guðni fylgdi með í kaupunum en hann hafði verið múrarameistari hjá Jóni Dan bróður þegar hann byggði Hvammshlíð 5. Frá fyrsta degi í nýja húsinu var Guðni meira og minna hjá okkur við vinnu, allt þar til lokaáfanganum var náð þeg- ar við kláruðum að flísaleggja sval- irnar daginn fyrir 40 ára afmæli mitt sem var 4. ágúst síðastliðinn. í afmælinu fór Guðni á kostum og var að sjálfsögðu einn af síðustu gestunum sem fóru, enda vorum við búnir að tala mikið um afmælis- daginn sem lokadag framkvæmda í bih að minnsta kosti. Á þessum tíma kynntist ég Guðna mjög vel og fann hvað hann hugsaði hlýtt til allra, aldrei talaði hann illa um nokkurn mann og ætíð var viðkvæðið hjá honum að hann hefði það gott. Guðni var ein- staklega þægilegur í umgengni og fór mjög lítið fyrir honum. Á hinn bóginn hafði hann gaman af gríninu og ófáar eru þær stökurnar sem hann hefur hent fram ýmist á ómúraða veggina eða á afrit reikn- inga ef svo bar undir. Aðaláhuga- mál Guðna var fótbolti enda var hann góður fótboltamaður á sínum yngri árum og var meðal annars í landsliðinu um tíma. Þótti honum því ekki leiðinlegt að ræða málin við Jóa son okkar 7 ára sem er á kafí í öllu sem að fótbolta snýr og gátu þeir rabbað saman um leik- menn og lið oft og iðulega. Oft settust þeir félagar niður við sjón- varpið eftir erfiðan vinnudag og horfðu á fótbolta saman. Ekki varð síður hlýtt á milli Guðna og Ágúst- ar þriggja ára sonar okkar, sem átti það þó til að velgja honum við vinnuna t.d með því að berja hamri í blauta steypu eða bleyta í kalk- inu, en alltaf hló Guðni og tók þessu með jafnaðargeði. Öll þau handtök sem eftir hann liggja á neðri hæð- inn og f heita pottinum sem hann gerði verða okkar minnismerki um frændann sem við munum ætíð sakna. Með þessum fátæklegu kveðju- orðum viljum við heiðra minningu um góðan dreng og sendum ætt- ingjum hans og börnum innilegar samúðarkveðjur. Einnig senda krakkarnir í Hvammshlíð, Hulda, Freyja, Jóhann, Ágúst og Gústi kveðjur til minningar um Guðna frænda. Guðmundur og Eva. ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 39 J. MINNINGAR ! + Svanberg Finn- bogason fædd- ist í Hvammi, Dýra- firði, 28. júlí 1929. Hann lést á sjúkra- húsinu á Akranesi 28. september síð- astliðinn. Hann var sonur Finnboga Júliusar Lárusson- ar og konu hans Ágústu Þorbjargar Guðjónsdóttur, sem bæði eru látin. Svanberg kvæntist eftirlif- andi eiginkonu sinni 21. desember 1963 Kristínu Minn- ey Pétursdóttur, fædd 5. júní 1937. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru 1) Aðalheiður Lilja, f. 4. apríl 1957, gift Ey- þór Stanley Eyþórssyni, fædd- ur 26. desember 1955, þau eiga fjögur börn og eitt barnabarn. 2) Rafn Elvar, fæddur 7. júlí 1958, giftur Sigríði Þórdísi Reynisdóttur, fædd 18. febrúar 1968, eiga þau þijá syni. 3) Sigurður Pétur, fæddur 9. mars 1960, giftur Stefaníu Guð- mundu Sigurðar- dóttur, fædd 9. desember 1964 og eiga þau þrjú börn. 4) Sigurbjörn, fæddur 18. júlí 1973. Útför Svanbergs Finnboga- sonar fer fram frá Akranes- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. SVANBERG FINNBOGASON Ég kveð þig, pabbi minn, með söknuð í hjarta. Mig óraði ekki fyrir því, síðast þegar þú keyrðir mig niður í Akra- borg, að ég væri að kveðja þig hinsta sinni. Það var mér mikið áfall að frétta að þú værir dáinn, þú, þessi yndis- legi maður sem mér þótti svo vænt um. Þú varst alltaf reiðubúinn að gera allt fyrir mig, það varst þú sem kenndir mér að þekkja stafina og þú kenndir mér líka margt ann- að sem mun nýtast mér í lífínu. Ósjaldan fórum við saman inn í fjárhús, þar sem alltaf var nóg að gera. Ég lét oft eins og mér leidd- ist þetta brölt, en innst inni hafði ég lúmskt gaman af þessu öllu saman. Þú hugsaðir eins vel um kindurnar þínar og nokkrum manni mögulegt er, enda hlýddu þær eng- um nema þér. Þær eiga örugglega eftir að sakna þín eins og öll við hin. Þú varst þannig maður að engum gat annað en þótt vænt um þig. Ég mun aldrei gleyma þér, ég mun ávallt geyma minninguna um þig í bijósti mínu, minninguna um ástkæran föður minn. Guð blessi þig. Brátt líður lífs á daginn, mín lífssól dregst í æginn, er varir mig þess minnst. Dagsmörkin ég veit eigi. Mun eigi halla að degi og komið nærri kvöldi hinzt? Kveðja, þinn sonur Sigurbjörn Svanbergsson. Elsku Svanberg minn, þegar ég kynntist þér fyrir átján árum sá ég strax að þú hafðir góðan mann að geyma. Þú varst alltaf svo Handrit afmælis- og minningargreina skuiu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld I úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins i bréfasima 5691115, eða á netfang þess þess (minning@mbl.is) — vinsam- legast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasiðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega llnuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sin en ekki stutt- nefni undir greinunum. hæglátur og blíður. Barnabörnum þínum gafst þú allt hið góða, enda hændust þau fljótt að afa Svanna, eins og þau kölluðu þig alltaf. Það rifjast upp fyrir mér þegar ég bjó hjá þér í eitt ár með sonardóttur þína, hana Kristínu Minney. Þú varst henni svo góður afí, og stund- um, áður en þú fórst til vinnu, komstu upp í herbergi, bara til þess að athuga með hana eða til þess að taka hana aðeins í fangið. Enda var hún mikil afastelpa. Þú varst okkur ávallt hjálplegur ef okkur vantaði barnapössun eða einhverja aðra hjálp. En það er oft stutt á milli lífs og dauða. Ekki hafði mig órað fýrir því þegar þú hringdir í Pétur son þinn og baðst um hjálp við að koma lömbunum í hús, og afabömin þín Davíð og Karen Gréta vildu ólm fara með og hjálpa afa, að úr þessari ferð ættir þú ekki afturkvæmt. Þau eru þakklát fyrir að hafa getað verið hjá þér síðasta daginn. Við eigum öll eftir að sakna þín sárt, það er mikill missir að eins hjartagóðum manni og þú varst. Þú varst mér yndislegur tengdapabbi. Elsku Svanberg minn, takk fyrir öll árin, sem voru þó allt of fá. Dagur líður, fagur, fríður, flýgur tíðin i aldaskaut. Daggeislar hníga, stjömumar stíga stillt nú og milt upp á himinbraut. Streymir niður náð og friður, nú er búin öll dagsins þraut. (V. Briem) Kveðja, þín tengdadóttir, Stefanía. V LEGSTEINAR Graníí' HELLUHRAUN 14 220 HAFNARFJÖRÐUR SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629 ARNI AÐALSTEINSSON + Árni Aðalsteinsson fæddist í Reykjavík 20. júní 1951. Hann lést á Reyðarfirði 22. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Reyðar- fjarðarkirkju 1. október. Mánudaginn 22. september barst mér sú sorglega frétt að pabbi minn væri látinn. Þá fór ég að riija upp samveru- stundir okkar sem voru fáar en góð- ar. Sú samverustund sem er mér kærust í minningunni er þegar hann hélt upp á 45 ára afmælið sitt. Þá bauð hann okkur öllum systkinunum í veiðikofa fýrir austan. Þar vorum við yfír helgi. Þetta var mjög skemmtilegur tími og við systkinin áttum góða stund með pabba okkar og Helgu konunni hans. Elsku amma og afi, Hjalli, Ásta og Óli. Sorg ykkar er mikil og bið ég algóðan Guð að gefa ykkur styrk til þess að ganga í gegnum sorg ykkar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku Helga, Margrét Sigríður, Guðlaug, Benjamín, Ágúst Páll, Almar, Árný og Aron, megi Guð gefa okkur styrk til þess að ganga í gegnum sorg okkar, því missir okkar er mikill. Guð geymi þig, elsku pabbi minn. Þín dóttir, Anna Margrét. Ityustfagnafluf Uivals-fðlte y f i f 6 0 i) i H o y i: I il i i Fimmtudaginn 16. október verður skemmtikvöld Úrvals-fólks í Súlnasal Hótel Sögu kl. 18:30, húsið opnar kl. 18:00. h 11 c u a i) ii i iii ii Iii ii 111 • Rjómalöguð kjúklinga- og sellerísúpa. • Logandi lamb að hætti hússins. • Konfektterta með vanilluískremi/kaffi. rjíilöioyií s h c m m i i a u i o i • Sönghópur frá Kvennakór Reykjavíkur undir stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur. • (slandsmeistarar í flokki 8-9 ára Stefán Claesen og Erna Halldórsdóttir sýna Suður-ameríska dansa. • Bryndís Halldórsdóttir og Hany Hadaya sýna Argentínskan tangó. • Danshópur frá Sigvalda. • Karlakórinn Kátir karlar. Fjöldi glæsilegra ferðavinninga í boði. undir stjórn Sigvalda. Hljómsveit Hjördísar Geirs sér umfjöriðtil kl. 01:00. lUioasalaogboiðapantanii hjá Rebekku og Valdísi á skrifstofu Úrvals-Útsýnar i Lágmúla 4, frá 9:00-17:00, í sima 569 9300. Verö aðeins 2.350 kr. Miðinn gildir sem happdrættismiði. ^ÚRVAL-IÍTSÝN Lágmúla 4: sfmi 569 9300, grœni númer: 800 6300, Hafnarfirði: sími 565 2366, Keflavík: sími 421 1353, Selfossi: sfmi 482 1666, Akureyri: sfmi 462 5000 - og bjá umboðsmönnum um land allt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.