Morgunblaðið - 07.10.1997, Síða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997
MIIMNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
GUÐMUNDUR FREYR HALLDÓRSSON,
Faxatúní 16,
Garðabæ,
verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ
fimmtudaginn 9. október kl. 15.00.
Aagot Emilsdóttir,
Emilía Guðmundsdóttir,
Guðmundur Freyr Guðmundsson, Linda Magnúsdóttir,
Hafdís Óskarsdóttir,
Kristín Stefánsdóttir,
Kristján Ásgeirsson
og barnabörn.
Hilmir Guðmundssson,
Hlynur Guðmundsson,
Ólafur Ingþórsson,
Ágústa Ingþórsdóttir,
t
Elskulegur sonur, stjúpsonur, bróöir og
mágur,
SKÚLI JÓHANN GUÐMUNDSSON,
Frostafold 135,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn
9. október kl. 13.30.
Kristín Skúladóttir, Jónas Björnsson,
Birna Jónasdóttir, Pétur Gunnarsson,
og aðrir vandamenn.
+
Elskulegur faðir minn og tengdafaðir,
GUÐMUNDUR VIGFÚSSON
skipstjóri,
frá Holti,
í Vestmannaeyjum,
andaðist á heimli sínu Hrafnistu, Hafnarfirði,
aðfaranótti mánudagsins 6. október.
Erla Guðmundsdóttir, Stefán V. Þorsteinsson.
+
Faðir okkar,
VIKTOR BJÖRNSSON
frá Akranesi,
lést á sjúkradeild Hrafnistu, Hafnarfirði, laugar-
daginn 4. október sl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóna Viktorsdóttir,
Þóra Viktorsdóttir,
Alfreð Viktorsson.
+
Elskuleg eiginkona mín,
HALLBJÖRG BJARNADÓTTIR,
Laugavegi 62,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 28. september sl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þakka auðsýnda samúð.
Jens Jörgen Fischer Nielsen.
KARL
LÚÐVÍKSSON
+ Karl Lúðvíksson
fæddist á Norð-
firði 27. september
1908. Hann lést á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur í Fossvogi 28.
september síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru hjónin Lúðvík
S. Sigurðsson út-
gerðarmaður og
Ingibjörg Þorláks-
dóttir húsmóðir í
Lúðvíkshúsi, Nes-
kaupstað. Systkini
Karls voru Lovísa
(1897-1980), Gunn-
björg (1900, lést
sama ár), Þuríður Karólina
(1899-1921), Þorlákur (1901-
1962), Sigríður (1903-1991), Sig-
urður (1904-1990), Dagmar
(1905-1997), Bjarni (1907-1982),
Margrét (1911-1997), Georg
(1913-1979).
Karl kvæntist 27. mars 1943
Svanhildi J. Þorsteinsdóttur,
Móðurbróðir minn, Karl Lúðvíks-
son, er horfinn sjónum 89 ára að
aldri. Svo vel, sem hann var á sig
kominn fyrir nokkrum mánuðum,
hefði fæstum komið til hugar, að
brottfarardagur hans úr þessari til-
veru væri skammt undan. Hann var
gjarnan álitinn 10-20 árum yngri
en almanakið sagði til um. Það var
gæfa hans að fá að lifa lífinu við
góða heilsu næstum alla sina ævi-
daga.
Karl var sonur hjónanna Ingi-
bjargar Þorláksdóttur f. 1875, og
Lúðvíks Sigurðar Sigurðssonar út-
gerðarmanns og kaupmanns á Nes-
kaupstað, f. 1866. Lúðvík var Aust-
firðingur að ætt, en Ingibjörg ættuð
af Suðurnesjum. Karl ólst því upp
við sjávarsíðuna á þeim árum, þegar
íslenzkt atvinnulíf var að taka sína
fyrstu fjörkippi eftir margra alda
ládeyðu. Foreldrar hans voru afar
samtaka í lífsbaráttunni, þar sem
ráðdeild, útsjónarsemi og dugnaður
héldust í hendur. Lífsbjörgin var
sótt bæði á sjó og landi. Ekki aðeins
ráku þau hjónin útgerð fiskibáta
heldur og búskap inni í sveitinni. í
stórum hópi systkina, sem snemma
lærðu að vinna, hjálpuðust allir að.
Lúðvík, faðir Karls hafði á sínum
tíma farið fótgangandi norður í
Eyjafjörð til náms í Möðruvallaskóla.
Og Karl, sem mjög fór að ráðum
föður síns, hélt þegar námi í barna-
skólanum á Neskaupstað var iokið
norður í Eyjafjörð til náms í Gagn-
fræða- og menntaskólanum á Akur-
eyri. Þaðan lá síðan leiðin suður til
Reykjavíkur til náms í lyfjafræði.
Eftir á að hyggja furðaði Karl sig á
því, hversu snemma með honum
vaknaði sú hugmynd að verða apó-
tekari. Að hans sögn hafði þó enginn
orðið til að benda honum á einmitt
það lífsstarf. Og jafnframt lét hann
þau orð falla, að naumast hefði hann
getað valið sér atvinnu, er betur
hefði átt við hann.
Karl Lúðvíksson var glæsilegur
maður á velli og einstakt snyrti-
menni. En áberandi þættir í skap-
höfn hans voru einbeitni, kapp og
dugnaður. Ekki fyrir löngu sýndi
hann mér bréf, sem faðir hans skrif-
aði honum austan af fjörðum, þegar
hann var á við nám norður í Eyja-
firði. Þar gaf faðir syni sínum heil-
fædd 16. nóv. 1916 í
Reykjavík, dáin 22.
nóv. 1989. Börn
þeirra voru íjögur:
1) Lúðvik, f. 11. maí
1943, flugmaður, var
kvæntur Hrafnhildi
Helgadóttur, synir
þeirra tveir, Lúðvík
lést af slysförum 17.
jan. 1975. 2) Anna
Þóra, f. 27. ágúst
1946, myndlistar-
kona, hún á tvær
dætur, sambýlismað-
ur Magni Hjálmars-
son. 3) Sigurður, f.
18. jan. 1951, við-
skiptafr., kv. Guðrúnu Hlín Þór-
arinsdóttur, börn þeirra eru
fimm. 4) Ingibjörg, f. 6. apríl
1958, félagsfræðingur, börn
hennar eru tvö. Barnaböm Karls
eru ellefu og bamabamaböm sjö.
Útför Karls fer fram frá Há-
teigskirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
ræði. Tvennt áleit hann skipta meg-
inmáli, en það var að gæta heilsunn-
ar og hafa fjárhaginn í lagi. Ekki
verður annað sagt en að Karl hafi
gert þau orð að vörðum við veginn.
Að loknu námi á Akureyri réðst
hann sem lærlingur í Reykjavík-
urapóteki og að loknu þriggja ára
námi þar lauk hann fyrri hluta prófi
í lyfjafræði 1933 og starfaði síðan
sem aðstoðarlyijafræðingur fram á
árið 1935. Að svo búnu hélt hann
til síðari hluta náms í lyfjafræðinga-
skóianum í Kaupmannahöfn. Þar
sem annars staðar sótti hann nám
sitt af kappi og lauk burtfararprófi
1937 með frábærum vitnisburði.
Strax að því loknu hélt hann heim
til íslands og réðst til starfa í Lauga-
vegsapóteki. Starfaði hann þar
1937-39, er hann hóf aftur störf í
Reykjavíkurapóteki og var þar allt
til 1952, er hann stofnaði eigið apó-
tek. A þessum árum valdist Karl til
ábyrgðarstarfa í stéttarfélagi sínu.
Hann var formaður félags lyfjafræð-
inga í fjögur ár. Þar naut skapfestu
hans og atfylgis, enda náði hann
fram mikium kjarabótum til handa
starfsfélögum sínum.
Árið 1943 festi Karl ráð sitt og
kvæntist Svanhildi Þorsteinsdóttur
og varð hjónaband þeirra einkar far-
sælt. Hún var falleg, sérstaklega
biíðlynd og bókelsk kona, sem bjó
eiginmanni sínum og börnum glæsi-
legt heimili. Börnin urðu fjögur,
Lúðvík, sem gerðist flugmaður, en
fórst 1975, Anna Þóra, mynd- og
veflistarkona, Sigurður, viðskipta-
fræðingur, og Ingibjörg, félagsráð-
gjafi. Svanhildur andaðist 1989 og
saknaði Karl hennar mjög. Má segja,
að hann hafi ekki notið sín til fulls
eftir hennar dag.
Starfsvettvangur Karls Lúðvíks-
sonar var ekki aðeins innan veggja
apóteka, heldur varð hann snemma
frumkvöðull í atvinnulífinu. Það var
styrkur hans - og stundum veikleiki
- að vera afar fljótur að taka ákvarð-
anir. M.a. kom hann sér upp vísi að
verksmiðju í bílskúrnum heima hjá
sér við Egilsgötu. Mátti oft heyra í
kyrrð kvöldins taktbundinn slátt
töfluvélanna. Þess vegna hafði Karl,
löngu áður en hann fékk leyfi fyrir
apóteki, margfaldar mánaðartekjur
af þeirri vinnu, sem stunduð var í
+
Innilegar þakkir til ykkar allra er sýnduð okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS I. ZÓFONIASSONAR,
Kópavogsbraut 1A,
Kópavogi.
Ólöf S. Jónsdóttir, Stefán Lárusson,
Einar Jónsson, Soffía Guðrún Ágústsdóttir,
Sigurður B. Jónsson, Sólrún Hafsteinsdóttir,
Brynjólfur Jónsson, Ingibjörg J. Gunnlaugsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hugheilar þakkir sendum við þeim sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
sonar okkar, föður og bróður,
GUÐNA RAGNARS ÓLAFSSONAR.
Guð blessi ykkur öll.
Jónasína Þ. Guðnadóttir, Ólafur Magnússon,
Húnbogi Birna Björnsdóttir,
Njörður Sigurðsson
systkini og fjölskyldur.
bílskúrnum. Þessi ár urðu og tími
frumkvæðis og athafna um ýmis
konar rekstur. Og eftir að Karl
stofnsetti eigið apótek 1952, magn-
aðist vitaskuld efnahagsleg upp-
sveifla hans stórlega. Aldrei skuld-
aði hann í bönkum og seldi m.a.
bílinn sinn til að ijármagna húsbygg-
ingu undir apótekið að Háteigsvegi
1 og fór á hjóli næstu árin. Og auk
þess májaði hann sjálfur húsið að
innan. Ósérhlífni var lykillinn að
velgengni hans. Hann varð maður-
inn, sem hafði getuna og lét ekki
standa við orðin tóm. Á næstu árum
stofnaði hann ýmis fyrirtæki, svo
sem Pharmaco hf. 1956 og var aða-
leigandi þess um nokkurra ára skeið,
Flugelda sf. 1959, Innréttingahúsið
hf. 1978 og Hjól og Vagna hf. 1979,
auk þess að hann tók þátt í stofnun
Fiskeldis hf. á Húsavík 1980 og átti
verzlunina Bristol í Bankastræti.
Lífsgildi Karls Lúðvíkssonar voru
fá en óhagganleg og voru í sífellu
endurtekin. M.a. deildi hann með
Nóbelsverðlaunahafanum Linus
Pauling óbilandi trú á lækningar-
mátt C-vítamíns. Oft heyrði ég hann
segja, að í apótekinu hjá sér jafnað-
ist ekkert meðal á við C-vítamín.
Góð heilsa þessara tveggja manna
fram á háan aldur sýnist hafa stað-
fest kenningu þeirra.
Það hefur verið skemmtilegt að
fá að kynnast Karli Lúðvíkssyni og
skapferli manns, sem alltaf vissi
hvað hann vildi og þurfti aldrei að
burðast með efasemdir. En atorku-
miklir einstaklingar koma að leiðar-
enda eins og hinir, sem minna hafa
fengið af lífskraftinum í vöggugjöf.
Á skilnaðarstund votta ég börnum
Karls og öðrum ástvinum hans inni-
lega hluttekningu.
Sigurður Gizurarson.
Þegar ég hitti Karl Lúðvíksson
apótekara fylltist hann ávallt eld-
móði þegar hann ræddi um fyrstu
árin sín við lyijagerð. Skipti það
ekki máli hvar það var. Hugur at-
hafnamannsins reikaði oft aftur í
tímann og var ævistarfið honum
ávallt hugieikið.
Karl átti fjögur börn. Sonur hans,
Lúðvík Karlsson, lést um aldur fram
í þyrluslysinu við Kjaiarnes. Hann
var heimsmaður. Fráfall hans var
mikið áfall fyrir Karl og íjölskyldu
hans.
Tengsl mín við fjölskylduna hófust
er Anna Þóra dóttir hans var með
mér í Laugarnesskóla en vinátta okk-
ar hefur staðið síðan. Anna Þóra
hefur fengist við listsköpun og náð
góðum árangri. Hún er ein fremsta
veflistakona landsins og hefur haldið
fjölda sýninga víða um heim.
Dóttir Karls, Ingibjörg, hefur
starfað sem félagsráðgjafi hjá Fé-
lagsmálastofnun Reykjavíkurborg-
ar. Sigurður, sonur Karls, er við-
skiptafræðingur og hefur verið föður
sínum til aðstoðar síðustu árin.
Bestu stundir Karls síðustu árin
voru við Elliðavatn þar sem hann
átti bústað sinn, Lynghól. Þar var
ávallt nóg að starfa við ræktun sem
var honum ávallt hugleikin.
Athafnamaðurinn Karl Lúðvíks-
son var einn af þeim íslendingum
sem beittu sér fyrir nýjungum er
lögðu grunn að því nútíma þjóðfé-
lagi sem við búum við í dag. Fyrir-
hyggja og vinnusemi voru aðals-
merki þessa ágæta manns. Ég sendi
börnum og barnabörnum Karls inni-
legustu samúðarkveðjur.
Jóhann Briem.
• Fleiri minningargreinar um
Karl Lúðvíksson bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
H Erfidrykkjur
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Sími 562 0200 ..
LIIIIIIIIIIIl