Morgunblaðið - 07.10.1997, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 45
i Skákmót
Taflfélags
Reykjavíkur
TAFLFÉLAG Reykjavíkur heldur sitt
fyrsta Mánaðaratskákmót í dag,
i þriðjudaginn 7. október. Teflt verður
þijá þriðjudaga í októbermánuði og
verður dagskrá samkvæmt eftirfar-
| andi töflu:
1.-2. umferð þriðjudag 7. október
kl. 20-22, 3.-5. umferð þriðjudag 14.
október kl. 20-23 og 6.-7. umferð
þriðjudag 21. október kl. 20-22.
Ef næg þátttaka fæst verður skipt
í lokaða 8 manna flokka eftir atskák-
stigum, en annars verður teflt í einum
opnum flokki samkvæmt Monrad
j kerfi. Þátttökugjöld verða: Félags-
menn T.R. 16 ára og eldri: 1.000
kr., 16 ára og eldri en ekki í T.R.:
1.500 kr., félagsmenn T.R. undir 16
’ ára: 500 kr. og yngri en 16 ára en
ekki í T.R.: 800 kr. Verðlaun verða:
Verðlaunabikarar fyrir þijú efstu
sætin og peningaverðlaun kr. 6.000
fyrir sigurvegarann.
Mánaðarskákmótin eru liður í áætl-
un Taflfélags Reykjavíkur til að höfða
til fjölskyldufólks og fleiri sem hafa
, lítinn tíma til að stunda skák. I sept-
ember var haldið mánaðarkappskák-
mót og þar fór Páll Agnar Þórarins-
Ison með sigur úr býtum í A-flokki
með 3,5 vinninga af 5 og hærri Buc-
holz-stig en Sigurður Daði Sigfússon
og Jón Árna Halldórsson, segir í
fréttatilkynningu.
Málstofa um
einkavæðingu
] heilbrigðis-
l þjónustu
BSRB efnir til málstofu undir yfir-
skriftinni Einkavæðing heilbrigðis-
þjónustunnar miðvikudaginn 8. októ-
ber kl. 17-19 í húsnæði BSRB,
Grettisgötu 89.
„Tilefni málstofunnar er að stór
hópur sérfræðilækna hefur sagt upp
samningum við Tryggingastofnun og
þeir sem leita þurfa þjónustu þeiira
þurfa að greiða þjónustuna að fullu.
I tengslum við fréttir af þessari deilu
sérfræðinga Tryggingastofnunar
ríkisins upphófst umræða um að taka
hér upp einkaheilbrigðistryggingar
að bandarískri fyrirmynd. Þá vekja
niðurstöður könnunar sem félagsvís-
indastofnun gerði fyrir starfsfólk
heilbrigðisstofnana mikla athygli en
furðu stórt hlutfall svarenda vildi að
j hér yrðu reist einkasjúkrahús til hlið-
ar við almenna heilbrigðiskerfið,"
segir í fréttatilkynningu.
Frummælendur á fundinum verða
Árni Björnsson, fyrrverandi yfir-
læknir, Árni Mathiesen, alþingismað-
ur, Margrét Frímannsdóttir, formað-
ur Alþýðubandalagsins og Sigurður
Björnsson, formaður sérfræðilækna.
Fundarstjóri verður Björg Eva Er-
lendsdóttir, útvarpsfréttamaður.
Málstofan er öllum opin.
I LEIÐRÉTT
Jóna Gróa er borgarfulltrúi
SKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík hefur beðið Morg-
unblaðið um birtingu á eftirfar-
andi leiðréttingu:
„í fréttatilkynningu frá Sjálf-
stæðisflokknum sl. laugardag þar
sem endanlegur framboðslisti
vegna komandi prófkjörs sjálf-
I stæðismanna var birtur urðu þau
| mistök að starfsheiti Jónu Gróu
I Sigurðardóttur var sagt vera hús-
' móðir. Jóna Gróa er borgarfulltrúi
og er það hennar starfheiti. Þetta
tilkynnist hér með og óskast leið-
rétt.“
Ályktun frá Einholtsskóla
í ályktun frá kennurum í Einholts-
skóla sem birtist sl. laugardag
. læddist inn villa en þar sagði:
' „...óþolandi umræða um vinnusvik
I séu að hrekja fólk úr landi“. í
j staðinn fyrir landi átti að vera
starfi og er beðist velvirðingar á
mistökunum.
Bandalag kvenna í
Hafnarfirði 25 ára
Hátíðarfund-
ur í Víði-
staðakirkju
BANDLAG kvenna í Hafnarfirði
hefur gefið 150.000 kr. til kaupa
á tæki til sýnatöku og/eða fjar-
læginga á æxlum í brjóstum.
Handlækningadeild Landspít-
alans leitaði til Kvenfélagasam-
bands íslands um kaup á tækinu,
en áætlaður kostnaður við það
er um 20 milljónir króna. Kvenfé-
lagasamband íslands hyggst
safna um 5 milljónum til kaupa
á tækinu. Söfnunin er enn í gangi
en Jýkur nú á haustdögum.
1 tilefni 25 ára afmælis Banda-
lags kvenna í Hafnarfirði verður
hátiðarfundur í Víðistaðakirkju
laugardaginn 11. október. Helgi-
stund verður í kirkjunni kl. 11 í
umsjón Brynhildar Ó. Sigurðar-
dóttur, djákna. Síðan verður
snæddur hádegisverður í Skút-
unni.
ERNA S. Mathiesen, formaður
Bandalags kvenna í Hafnar-
firði, t.h., afhendir söfnunarf-
éð gjaldkera KÍ, Jónínu St.
Steingrímsdóttur.
Að honum loknum verður
haldið í rútuferð um Hafnarfjörð
undir leiðsögn og meðal annars
verður Barböru-styttan í Kap-
elluhrauni skoðuð og systurnar
í Kamelklaustrinu heimsóttar.
Allar konur eru velkomnar og
þátttaka tilkynnist til stjórnar
kvenna.
Notkun að-
gerðarann-
sókna við
markaðsmál
VETRARSTARF ARFÍ hefst mið-
vikudaginn 8. október með því að
Jón Sch. Thorsteinsson segir frá
notkun aðgerðarannsókna við mark-
aðsmál. Jón er nú markaðs- og sölu-
stjóri Sólar-Víkings hf. en var áður
framleiðslustjóri.
Fyrirlesturinn verður á léttum
nótum og fjallar m.a. um þau miklu
viðbrigði sem urðu þegar fram-
leiðslustjóra var kastað úr öryggi
framleiðstjórnunar í hringiðu mark-
aðsmála, segir í fréttatilkynningu.
Fundurinn verður haldinn í Lög-
bergi, stofu 101, miðvikudaginn 8.
október kl. 16.30-18.
Fyrirlestur
um misþroska
FYRSTI fyrirlestur nýs starfsárs
Foreldrafélags misþroska barna
verður haldinn miðvikudaginn 8.
október í safnaðarheimili Háteigs-
kirkju við Háteigsveg kl. 20.30.
Umræðuefnið verður: Misþroski,
hvað er til ráða? Kristján M. Magn-
ússon sálfræðingur á Ákureyri ræðir
um hvað fagfólk og foreldrar geta
gert þegar þeir fá misþroska barn
upp í hendurnar. Hann mun einnig
segja frá nýjum bókum á íslensku
um misþroska, sem hann er að gefa
út og ætlaðar eru bæði foreldrum
og öðru fagfólki.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Málstofa
á Bifröst
FYRSTA málstofa Samvinnuhá-
skólans á þessu hausti verður hald-
in á morgun miðvikudaginn 8. októ-
ber og fjallar um áhrif upplýsinga-
tækninnar í atvinnulífinu. Máls-
hefjandi er Frosti Siguijónsson, for-
stjóri Nýheija, og nefnir hann fyrir-
lestur sinn: „Byltir upplýsingatækn-
in samstarfi í fyrirtækjum?“
Málstofan fer fram í Hátíðarsal
Samvinnuháskólans á Bifröst og
hefst kl. 15.30. Eru allir boðnir
velkomnir.
íslensk erfðagreining ehf
Göngudeild sykursjúkra barna og unglinga
Sjúkrahúsi Reykjavíkur
Rannsókn á erfðum insúlínháðrar sykursýki
Á íslandi eru um það bil 400 einstaklingar
með insúlínháða sykursýki.
Göngudeild sykursjúkra barna og unglinga á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur og (slensk erfðagreining ehf. standa fyrir
rannsókn á erfðum sykursýki og leita nú eftir þátttöku
fleiri einstaklinga með insúlínháða sykursýki.
Með rannsóknunum vonumst við til að geta fundið þá
erfðaþœtti sem stuðla að sykursýki og þar með komist
nœr hinni raunverulegu orsök sjúkdómsins. Slík þekking
er grundvöllur þess að koma megi í veg fyrir sykursýki.
Allar upplýsingar um sjúklinga og skyldmenni þeirra
verða meðhöndlaðar af fullum trúnaði.
Ef þú ert með insúlínháða sykursýki og
hefur áhuga á að taka þátt í rannsókninni,
biðjum við þig að hringja í síma
570-1900 milli kl. 9:30 og 16:30.