Morgunblaðið - 07.10.1997, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 47
' Viðskiptabannið
Frá Grími Hákonarsyni:
VIÐSKIPTABANNIÐ á Kúbu á sér
fáa málsvara manna á meðal. Þegar
Sameinuðu þjóðirnar þinguðu síðast
um málið greiddu tvö ríki atkvæði
með viðskiptabanninu, - Bandarík-
in og vinir þeirra í ísrael. Fyrir þá
i sem ekki vita, þá settu Bandaríkin
I viðskiptabann á Kúbu árið 1960
eftir að þar hafði farið fram sósíal-
ísk bylting sem gerði út um banda-
rísk ítök í landinu. Erfitt er að finna
hugmyndafræðilega réttlætingu
fyrir viðskiptabanninu. Hún verður
allavega ekki fundin í orðagjálfri
Clintons forseta og annarra hægri-
manna um nauðsyn „fijálsra við-
skipta“ og enn síður í kenningum
um útbreiðslu heimskommúnismans
I 6 árum eftir lok kalda stríðsins.
Réttlæting fyrir viðskiptabanninu
er hvergi hægt að finna í heimi
mannlegrar skynsemi.
Viðskiptabannið hefur víðtæk
áhrif á efnahagslíf Kúbu. Það að
geta ekki átt viðskipti við ná-
grannaþjóð sem er stærsta fram-
leiðslu- og viðskiptaþjóð í heimi
hlýtur að segja sitt. Nauðsynjar sem
annars væri hægt að sækja 60
mílna vegalengd þarf að ferja alla
I leið frá Evrópu og jafnvel Asíu. Sem
I dæmi kostar það helmingi meira
að kaupa 1 tonn af mjólkurdufti í
Evrópu en væri það keypt í Banda-
ríkjunum. Viðskiptabannið orsakar
ekki bara mjög óhagstæð viðskipti
fyrir Kúbu heldur einnig skort á
ýmsum lífsnauðsynjum. Vatns-
veitukerfið er í rúst vegna skorts á
varahlutum, sem eru bara fram-
leiddir í Bandaríkjunum og veldur
það því að 72% alls drykkjarvatns
* á Kúbu eru ódrekkandi sökum
I mengunar. Skortur er á ýmsum
nauðsynlegum lyfjum, eins og lyfj-
um gegn krabbameini og hjarta-
kvillum, sem veldur því að tugir
manna látast úr þessum sjúkdómum
árlega. Bandaríkjamenn beita öllum
mögulegum ráðum til þess bijóta
niður byltinguna og nýta til þess
ítök sín á heimsmarkaðnum. Oft
1 hefur það komið fyrir að fyrirtæki,
| sem hafa viljað eiga viðskipti við
g Kúbu, hafi hætt við vegna þrýstings
* frá Bandaríkjunum.
A síðasta ári var samþykkt lög-
gjöf á bandaríska þinginu, kennd
við öldungadeildarþingmennina
Helms og Burton, þar sem boðaðar
eru hertar viðskiptaþvinganir gegn
Kúbu, Lýbíu og Iran (allt lönd sem
hafa þjóðnýtt bandarískar eignir).
Löggjöfin veitir Bandaríkjunum
sjálfskipað leyfi til að refsa þeim
aðilum sem eiga viðskipti við þessi
lönd. Yfirlýst rök fyrir þessum að-
gerðum eru þau að verið sé að refsa
Iran og Lýbíu fyrir stuðning þeirra
við hryðjuverkastarfsemi og Kúbu
fyrir að virða ekki leikreglur lýð-
ræðisins. Alheimslögreglu-hystería
Bandaríkjanna hefur aldrei verið
trúverðug, og verður það síður hér.
í fyrsta lagi eru bandarískir aðilar
langstærstu vopnaframleiðendur í
heimi og taka því óbeinan þátt í
öllu vopnaskaki sem fram fer í
heiminum. í öðru lagi styðja þeir
hryðjuverkastarfsemi í sínu heima-
landi á sama hátt og Líbýa og íran
gera, þ.e. láta hana afskiptalausa.
Frá því árið 1959 þegar byltingin
á Kúbu hófst, hefur hópur kúban-
skra útlaga (eignamenn og aðrir
andbyltingarsinnar) safnast saman
í Miami á Flórída og staðið fyrir
skipulagðri skemmdarverkastarf-
semi á kúbönsku þjóðfélagi. Árið
1961 gerðu þeir innrás á Kúbu og
nutu til þess liðsinnis Bandaríkja-
hers, en sú innrás fór algjörlega
út um þúfur. Síðan þá hafa verið
framin skemmdarverk með reglu-
legu millibili á Kúbu og frá því í
apríl á þessu ári hafa átt sér stað
9 sprengjutilræði sem rekja má til
útlaga á Miami.
Eins og áður sagði eru yfirlýst
rök Bandaríkjanna fyrir viðskipta-
banninu þau að með því sé verið
að vinna hugsjónum vestræns lýð-
ræðis brautargengi á Kúbu. Getur
það orðið meiri þversögn en þegar
ráðamenn þjóðar, sem býr við
„tveggja flokka einræði" og 40%
fólks nýta sér kosningaréttinn,
reyna að segja öðrum þjóðum hvað
lýðræði sé? Hugtakið lýðræði er
flókið og verður aldrei skilið aðeins
á einn veg. Að mínu mati er mikil-
vægasta lýðræðið efnalegt lýðræði
þar sem allir menn hafa jafnan rétt
á húsnæði, fæði, menntun og heil-
brigðisþjónustu, svo eitthvað sé
nefnt. Við þannig lýðræðisaðstæður
er val á mönnum til þingsetu aðeins
formsatriði. Á Kúbu er aðeins þriðj-
ungur kjörinna þingmanna í komm-
áKúbu
únistaflokknum og afgangurinn er
einstaklingar óháðir flokkum. Þar
er höfuðáhersla lögð á efnalegt lýð-
ræði enda er meirihluti almennings
hlynntur sósíalískri stefnu stjórn-
valda. í Bandaríkjunum er langt frá
því að vera efnalegt lýðræði þar sem
40 milljónir manna lifa undir fá-
tækramörkum, eða um 15% þjóðar-
innar, og pappakassahverfí eru orð-
in hluti af menningunni. (Þetta er
sérlega kaldhæðnislegt fyrir þær
sakir að Bandaríkin eru efnuðustu
ríki heims en Kúba er fátækt þriðja-
heimsland). Lýðræði á þeim bæ er
að kjósa á milli tveggja hægriflokka
sem hafa jafn lítinn áhuga á því
að tryggja velferð almennings.
Bandaríkin eru eins og illkynja
æxli sem sýgur til sín auðlindir jarð-
arsamfélagsins og þakkar fyrir sig
með hroka. En allir hugsandi menn
vita að þetta æxli er hægt að fjar-
læga. Það hefur sýnt sig i sögunni
að þrýstingur frá almenningi getur
oft verið þungamiðja breytinga.
Miðvikudaginn 8. október verða
haldin mótmæli um allan heim gegn
viðskiptabanninu á Kúbu, sem eru
um leið mótmæli gegn heimsvalda-
stefnu Bandaríkjanna. Mótmælin
eru heiðruð minningu Ernesto Che
Guevara sem lét lífíð í baráttu sinni
gegn heimsvaldastefnunni í Bólivíu
hinn 8. október árið 1967 (fyrir 30
árum). Hér á landi hefur verið boð-
að til útifundar á Ingólfstorgi kl.
18 og síðan verður ameríska sendi-
ráðið í Túngötu heimsótt, og hús-
ráðanda afhent ályktun fundarins.
Sjáumst í kröfugöngu
GRÍMUR HÁKONARSON
nemi,
Kársnesbraut 99, Kópavogi.
I
I
<
I
<
(
(
(
I
I
I
Málstofa BSRB
fiinkti'/dHni
Miðvikudaginn 8. október kl. 17 -19
Grettisgötu 89, 4. hæð
F rummælendur:
Ámi Bjömsson, fv. yfirlæknir,
Árni Mathiesen, alþingismaður,
Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðubandalagsins,
Sigurður Bjömsson, formaður sérfræðilækna.
Fundarstjóri:
Björg Eva Erlendsdóttir.
Allir velkomnir
x
QífurCcgt úrvdl
u n g car n <d f ct tn cab ar
i Mexx
ESPPvlT
SIEMENS
Við færum þér gleðitíðindi:
Þvottur og þurrkun
á kjallaraverði!
Á meöan birgðir endast færðu nú hjá okkur
Siemens þvottavél og þurrkara á verði sem
kætir geð þitt og fær þig til að skælbrosa framan
í heiminn. Sláðu til og skelltu þér á parið.
WM 20820SN
Þvottavél, tekur 4,5 kg, einföld
í notkun, hefur öll nauðsynleg
kerfi, 800 sn. þrepavinding,
ryðfrítt stál í belg og tromlu,
sjálfstæður hitastillir.
Þú þarft ekki að hugsa þig um,
- þú kaupirhana þessa.
49.800
kr. stgr.
WT 21000EU
Þurrkari, tekur 5 kg, einfaldur í
notkun, fyrir útblástur í gegnum
barka sem fylgir með, snýst í
báðar áttir, stáltromla, hlífðar-
hnappur fyrir viðkvæmt tau.
Það erekki spurning,-þú
kaupir hann þennan og sparar
stóran pening.
29.800
kr. stgr.
Umboðsmenn
um land allt.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 5113000