Morgunblaðið - 18.10.1997, Page 1
96 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
237. TBL. 85. ARG.
LAUGARDAGUR 18. OKTOBER 1997
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sigurreifir uppreisnarmenn
ræna og rupla í Kongó
Nairobi, Pointe Noire. Reuters.
UPPREISNARMENN í Kongó fögnuðu í gær
sigri yfir stuðningsmönnum Pascals Lissouba
forseta eftir fjögurra mánaða blóðsúthellingar og
fóru ránshendi um höfuðborgina, Brazzaville, og
olíuborgina Pointe Noire.
Meðan starfsmenn Rauða krossins fjarlægðu
lík af götunum óku vopnaðir uppreisnarmenn um
borgirnar á stolnum bflum og hlóðu í þá ísskáp-
um, sjónvörpum, húsgögnum og heimilistækjum
sem þeir rændu.
Fregnir hermdu ennfremur í gær að a.m.k. níu
franskir borgarar, þeirra á meðal nokkur börn,
hefðu orðið innlyksa í bæ nálægt einu af vígjum
Lissouba í suðurhluta landsins. Erlendur kaup-
sýslumaður, sem rekur leiguflugfélag í Kongó,
sagði ræðismann Frakklands hafa óskað eftir
flugvél til að sækja fólkið en herinn hefði ekki
viljað heimila flug til bæjarins vegna átaka í
grenndinni.
Denis Sassou Nguesso, sem var leiðtogi marx-
istastjórnar Kongó á árunum 1979-92, lýsti yfir
sigri í stríðinu í fyrradag eftir fjögurra mánaða
átök milli stuðningsmanna hans og hersveita Liss-
ouba forseta. Ekki var vitað í gær um dvalarstað
Lissouba, fyrsta þjóðkjörna forsetans í Kongó.
Salim Ahmed Salim, framkvæmdastjóri Ein-
ingarsamtaka Afríku, OAU, lét í gær í ljós miklar
áhyggjur af stríðinu í Kongó og hvatti alla stríðs-
aðilana til að „binda enda á blóðsúthellingarnar
og þjáningarnar sem stríðið hefur valdið saklaus-
um borgurum". Hann hvatti einnig til þess að all-
ir erlendir hermenn og málaliðar yrðu fluttir frá
landinu og skoraði á nágrannaríkin að kjmda ekki
undir frekari átökum.
Salim vísaði þar einkum til stjórnvalda í
Angóla, sem sendu hersveitir til Kongó til að að-
stoða hersveitir Sassou. Oryggisráð Sameinuðu
þjóðanna hefur einnig skorað á nágrannaríkin að
taka ekki þátt í stríðinu.
Vill fríverslun
um alla Ameríku
Opna skjöl
um fjölda-
morð í París
verðum við áskoruninni sem við
okkur blasir," sagði Clinton.
Menem sammála
Bandaríkjaforseti varaði við ein-
angrunarhyggju og sagði nánari ein-
ingu í þágu heimsálfunnar allrar og
þjóðanna sem þar byggju. Tilgangur
ferðar hans um ríki rómönsku Am-
eríku í vikunni hefur öðrum þræði
verið sá að hvetja til þess að tollar
og önnur viðskiptahöft yrðu afnum-
in.
Carlos Menem Argentínuforseti
var viðstaddur fundinn og virtist
taka undir sjónarmið gests síns.
Vinstrisinnar voru hins vegar ekki
jafnhrifnir af komu Clintons eða
boðskap hans því þeir efndu í fyrra-
kvöld til óeirða í Buenos Aires,
brutu rúður í bönkum og opinberum
byggingum og köstuðu inn
eldsprengjum. Oeirðalögi'egla braut
mótmælin á bak aftur. Talsmenn
Hvíta hússins reyndu að gera lítið
úr mótmælunum og sögðu andstöðu
við Bandaríkin og allt bandarískt á
hröðu undanhaldi.
Reuters
CLINTON Bandaríkjaforseti flytur ræðu sína á fundi með argentínskum viðskiptajöfrum. Carlos Menem
Argentínuforseti veitir orðum gests síns athygli, og virtist síðar taka undir sjónarmið hans.
FJÖLDAMORÐANNA í París
1961 var minnst á útifundi í
gær. Á skiltinu segir að
Maurice Papon lögregluforingi
beri ábyrgð á morðunum.
Buenos Aires. Reuters.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
sagðist á fundi með argentínskum
viðskiptajöfrum og fyrirtækjafor-
stjórum í Buenos Aires í gær vera
reiðubúinn að hefja viðræður um
myndun fríverslunarsvæðis Amer-
íkuríkja.
Clinton sagði „bylgju breytinga“
fara um gjörvalla heimsbyggðina.
„Við lifum á tímum einstakra tæki-
færa, upplýsinga-, fjarskipta- og
tæknibyltinga sem fært hafa þjóðir
okkar hverja nær annarri og skapað
nýja möguleika. Nýtum okkur þá og
París. Reuters.
FRANSKA stjórnin hefur ákveðið
að aflétta 60 ára leynd af skjölum
sem varða morð á rúmlega 200 Al-
sírmönnum í París 17. október
1961 vegna fullyrðinga Maurice
Papons, meints samverkamanns
nasista í seinna stríðinu, að lög-
reglan hefði hvergi komið þar
nærri. Hann var lögreglustjóri
Parísar þegar morðin áttu sér stað.
Morðin bundu enda á fyrirferð-
armikil mótmæli Frelsisfylkingar
Alsir (FLN) á götum Parísar. Lög-
reglumaður, sem tók þátt í morð-
unum, leysti frá skjóðunni í vikurit-
inu L’Express í vikunni og sagði að
Papon hefði heitið lögreglunni
vernd fyrir lögsókn. „Við fórum
upp á efri hæðir húsa og skutum á
allt kvikt. Það var viðbjóðslegur
hryllingur. Mannaveiðarnar stóðu í
um tvær stundir, þetta var skelfi-
leg aðgerð,“ sagði hann.
■ Síðasti draugur/24
Áfengissýki
í genum
Kennedya?
New York. Reuters.
ROBERT Kennedy yngri, bróð-
ursonur fyrrverandi Bandaríkja-
forseta, segir í sjónvarpsviðtali
að sér finnist „að mörgu leyti
sem ég hafí verið fæddur alkó-
hólisti“, og að áfengissýkin liggi í
erfðavísum Kennedyfjölskyld-
unnar.
í sjónvarpsþættinum 60 mín-
útur, sem CBS sendir út á
sunnudag,, er einnig rætt við
þingmanninn Joseph, bróður Ro-
berts, og segir hann frá „skelfi-
legu“, meintu ástarsambandi
eins bræðra þeirra, Michaels, við
táningsstúlku. Robert segir frá
baráttu sinni við áfengissýki og
eiturlyfjafíkn. í þættinum er
einnig rætt við systur þeirra,
Kathleen Kennedy Townsend og
Kerry Kennedy Cuomo og bræð-
uma Max og Christopher. Segja
talsmenn CBS að aldi-ei hafi svo
margir „Kennedyar" af þriðju
kynslóð komið saman til sjón-
varpsviðtals.
Fylg'i SPD
og CDU
hnífjafnt
Bonn. Reuters.
FLOKKUR Helmuts Kohls, kansl-
ara Þýskalands, Kristilegir
demókratar (CDU), hefur saxað á
forskot stjómarandstöðuflokksins,
Sósíaldemókrata (SPD) og er nú
hverfandi munur á fylgi flokkanna.
Er þetta niðurstaða skoðanakönnun-
ar sem gerð var opinber í gær.
Samkvæmt niðurstöðum könnun-
arinnar, sem gerð vai' fyrir sjón-
varpsstöðina ZDF, myndi SPD fá 38
af hundraði atkvæða yrði kosið á
sunnudag, og CDU myndi einnig fá
38% fylgi. I sambærilegri könnun í
síðasta mánuði hafði SPD 39% fylgi
og 40% í ágúst. Fylgi CDU var 37% í
september og 36% í ágúst.
Kohl vill sitja til 2002
Systurflokkur CDU í Bæjaralandi
gagnrýndi Kohl í gær fyrir að hafa
ekki haft samráð við flokkinn áður
en hann tilkynnti að hann hygðist
sitja áfram í kanslaraembættinu til
ársins 2002. Kohl sagði í vikunni, að
hann myndi gegna embætti út kjör-
tímabilið sigraði flokkurinn í kom-
andi kosningum.
--------------
Andmælir
styttri
vinnuviku
Brussel. Reuters.
MARTIN Bangemann, sem fer með
iðnaðarmál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, gagnrýndi í
gær þau áform franskra og ítalskra
stjórnvalda að stytta vinnuvikuna.
Bangemann sagðist ekki skilja
hvemig stjórnmálamenn gætu sagt
að meginmarkmið þeirra væri að
draga úr atvinnuleysinu og boða um
leið lagasetningu sem sagan hefði
sýnt að stuðlaði að auknu atvinnu-
leysi og hindraði hagvöxt.
Lionel Jospin, forsætisráðherra
Frakklands, skýrði í vikunni sem leið
frá áformum um lög sem kveða á um
að vinnuvikan verði stytt í 35 stundir
úr 39 í janúar árið 2000. Romano
Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, af-
stýrði stjórnarkreppu fyrr í vikunni
með því að fallast á kröfu kommún-
ista um að vinnuvikan yrði stytt í 35
stundir ekki síðar en árið 2001.