Morgunblaðið - 18.10.1997, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Olíuslysið á Seyðisfirði er talið mun umfangsmeira en í fyrstu var ætlað
VILMUNDUR Þorgrímsson æðarbóndi hefur reynt að bjarga fuglum eftir megni.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Seyðisflrði. Morgunblaðið.
KOMIÐ hefur í ljós að umfang
olíumengunarinnar í Seyðisfirði er
mun meira en menn töldu í fyrstu.
Olía er í smábátahöfninni og út
með fjörunni sunnan fjarðar. Mikið
af æðarfugli, sem orðið hefur fyrir
olíunni, hefur skriðið upp í Hólm-
ann í hjarta bæjarins og er að
veslast upp þar. Dauðir fuglar
fljóta í sjónum og hálfdauðir fuglar
ganga jafnvel um götur bæjarins.
Engin hreinsun hefur verið
reynd og bíða menn þess að olían
gufi upp og brotni niður og að sjáv-
arföll og veðrun eyði menguninni.
Hálfdauðir fuglar
ganga um götur
Hafnaryfírvöld, heilbrigðisyfirvöld
og bæjaryfirvöld ætla að fylgjast
með þróun mála.
Lítið hægt að gera
fuglum til bjargar
Vilmundur Þorgrímsson æðar-
bóndi hefur reynt að bjarga fuglum
eftir megni. Hann segir þó litið
hægt að gera til að bjarga lífi
þeirra náist ekki til þeirra mjög
fljótt eftir að þeir verða fyrir meng-
un. Þegar olían kemst i fiður blotn-
ar fuglinn allur og getur ekki hald-
ið á sér hita og leitar hann því á
land til þess að þorna. í raun byrj-
ar hann þegar að svelta því allur
tíminn fer í að reyna að þurrka
sér og þrífa. Brunasár myndast á
húð fuglanna og ætisleit leggst af.
Margir fuglar drepast einnig vegna
þess að þeir éta olíumengaðan sand
og fjörudýr í fjörunni sem veldur
brunasárum á innyflum þeirra.
Engin formleg kæra hefur borist
til lögreglunnar en hún rannsakar
málið og að því loknu verður tekin
ákvörðun um hvort opinberir aðilar
ákæri í málinu.
Olögleg
möskva-
stærð á
Patreks-
firði
VARÐSKIPIÐ Óðinn stóð tvo
báta að meintum ólöglegum
netaveiðum á Patreksfirði í
fyrradag. Möskvar í netum
mældust of smáir og reglur
um merkingu veiðarfæra voru
ekki í heiðri hafðar.
Að sögn Landhelgisgæsl-
unnar voru bátarnir Kristín
Finnbogadóttir BA 95 og Ás-
borg BA 84 að netaveiðum á
Patreksfirði á svæði þar sem
möskvastæð í þorskanetum á
að vera sex tommur. Möskvar
í netum Kristínar reyndust
5SA“ en möskvar í netum Ás-
borgar 5“ og ö'/z". Að auki
voru netin ekki merkt á þann
hátt sem áskilið er og einnig
segir Landhelgisgæslan að
ýmsu hafi verið áfátt við bún-
að bátanna, atvinnuréttindi og
lögskráningu skipshafnar á
Ásborgu og atvinnuréttindi
vélstjóra á Kristínu Finnboga-
dóttur.
Bátunum var gert að sigla
inn til hafnar og fól Landhelg-
isgæslan sýslumanninum á
Patreksfirði að annast fram-
hald málsins.
Þrjár sprenging
ar í stað einnar
Starfsmenn utanríkisráðuneytis til fundar í Peking
Bendir til sátta-
vilja Kínasljórnar
RÖÐ sérkennilegra tilviljana
olli því að í stað einnar spreng-
ingar sem átti að vera á dag-
skrá Finns Ingólfssonar iðnað-
arráðherra síðastliðinn
fimmtudag urðu sprenging-
arnar þennan dag þrjár. Ekki
var þó um dínamítsprengingar
að ræða í öll skiptin.
Iðnaðarráðherra hafði
verið boðið af Fossvirki hf.
að sprengja fyrsta haftið í
aðrennslisgöngum Sultar-
tangavirkjunar á fimmtudag.
Ráðherrann fór á bil sinum
austur fyrir fjall. Vildi ekki
betur til en svo að það sprakk
á þjólbarða bílsins. Tafðist
af þeim sökum nokkuð að
sprengt yrði í aðrennslis-
göngunum.
Sprengiefnaflutningar
Við allt verkið verða notuð
um 800 tonn af sprengiefni og
standa yf ir talsverðir flutning-
ar af þeim sökum frá Reykja-
vík til Sultartanga. Þorsteinn
Hilmarsson, blaðafulltrúi
Landsvirkjunar, var á leið
austur fyrir fjall um svipað
leyti til að vera við sprenging-
una. Honum segist svo frá að
skammt frá Skeiðaafleggjar-
anum á þjóðvegi 1 hafi hann
ásamt fleiri fulltrúum Lands-
virkjunar lent í humátt á eftir
tveimur flutningabílum með
sprengiefni. Á undan bOunum
var lögreglubU ekið með yós-
merkjum og aftan við þá
slökkvibU.
Þorsteinn segir að skyndi-
lega hafi hvellsprungið á öðr-
um flutningabUnum þannig að
hjólbarðinn tættist í sundur og
aurbretti losnaði af flutninga-
bílnum. Engum varð meint af
þessu og bílstjórinn hafði fullt
vald á flutningabílnum enda
var ekið varlega með sprengi-
farminn.
TVEIR starfsmenn utanríkisráðu-
neytisins halda í dag til Kína til
fundar með ráðamönnum í Peking
í því skyni að bæta samskipti ríkj-
anna eftir hótanir kínverskra yfir-
valda í kjölfar heimsóknar Liens
Chans, varaforseta Tævans, hing-
að til lands í síðustu viku.
Kvaðst Halldór Ásgrímsson
telja það eitt að þessi fundur
myndi eiga sér stað vera vísbend-
ingu um að Kínverjar séu reiðu-
búnir til að koma til móts við ís-
lendinga að nýju eftir að andað
hefur köldu í samskiptum ríkj-
anna.
„Við höfum verið í sambandi við
Kínverja undanfama daga og rætt
þessi mál við þá,“ sagði Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra í
gær. „Það er sameiginleg niður-
staða (slenska og kínverska utan-
ríkisráðuneytisins að efnt verði tii
fundar í Peking um okkar sam-
skipti.“
Starfsmennimir tveir eru Helgi
Ágústsson ráðuneytisstjóri og Jón
Egill Egilsson, skrifstofustjóri
aljóðaskrifstofu utanríkisráðuneyt-
isins.
Freista þess að koma á
eðiUegum samskiptum
„Þeirra umboð hljóðar upp á það
að fara yfir stefnu okkar gagnvart
Kína og útskýra okkar sjónarmið
í því sambandi og hlusta um leið
á þeirra sjónarmið og freista þess
að koma á eðlilegum samskiptum
milli þjóðanna á nýjan leik,“ sagði
Halldór. „Það hefur verið farið
yfír þessi sjónarmið áður undan-
fama daga, en það hefur ekki átt
sér stað um þau neinn fundur milli
ráðuneytanna.“
í opinbemm yfirlýsingum Kín-
veija og leiðaraskrifum hafa ekki
konnð fram nein merki um þýðu.
í leiðara í dagblaðinu China Daily,
sem kemur út á ensku, sagði i
upphafi vikunnar að íslendingar
hefðu gengið of langt þegar Davíð
Oddsson hitti Lien þrátt fyrir mót-
mæli Kínveija og Tang Guoqiang,
talsmaður kínverska utanríkis-
ráðuneytisins, ítrekaði á fimmtu-
dag að íslendingar yrðu að taka
afleiðingum gerða sinna. Halldór
kvaðst hins vegar greina ákveðinn
vilja Kínveija til að bæta samskipt-
in að nýju.
„Við teljum að fundurinn sé í
sjálfu sér vísbending um það að
slíkur vilji sé fyrir hendi, en ég
skal ekkert fullyrða um árangur
hans,“ sagði Halldór. „Okkur er
fullkunnugt um þessa yfirlýsingu
[taismanns kínverska utanríkis-
ráðuneytisins] en okkur er ekki
ljóst við hvað er átt.“
Þegar varaforseti Tævans kom
til íslands aflýstu Kínveijar við-
skiptafundi með fulltrúa Silfur-
túns, en síðan hefur ekki verið
skýrt frá neinum beinum aðgerð-
um stjómarinnar í Peking gegn
íslenskum fyrirtækjum, þótt ítrek-
að hafi verið sagt að ekki yrði lát-
ið sitja við orðin tóm. Halldór sagði
að hins vegar hefði komið fram
breytt viðmót.
Hefur hægt á öllum
samskiptum
„Það er alveg ljóst að það hefur
hægt mjög á öllum samskiptum,"
sagði Halldór. „Þar á meðal er
undirbúningur viðskipta. Við höf-
um hins vegar lagt áherslu á fijáls
viðskipti og teljum óeðlilegt að
hindra þau af pólitískum ástæð-
um.“
íslensk stjórnvöld hafa undan-
farin ár lagt áherslu á að efla sam-
skiptin við Kína og í þeim tilgangi
var meðal annars opnað sendiráð
í Peking fyrir tveimur árum. Hall-
dór kvaðst telja að Kínveijar hefðu
ekki komið til móts við íslendinga
sem skyldi á þeim tíma.
„Við höfum stutt inngöngu Kína
í Alþjóðaviðskiptastofnunina og
höfum ekki hugsað okkur að
breyta stefnunni í því sambandi,
en það er alveg ljóst að við höfum
orðið fyrir miklum vonbrigðum
með það hvað lítil aukning hefur
orðið á viðskiptum Kína við okkur
í kjölfar þeirra miklu samskipta,
sem hafa átt sér stað,“ sagði ráð-
herrann. „Við teljum hins vegar
að við höfum lagt okkur mjög fram
um að auka viðskipti við þá.“
Ósáttur við margt
í máli Kínveija
Halldór kvaðst einnig mjög
ósáttur við margt, sem komið hefði
fram í málflutningi kínverskra
ráðamanna undanfarið.
„Viðbrögð Kínverja hafa verið
mjög hörð í öllum tilvikum," sagði
hann. „En ég tel hins vegar að
hluti af þeirra viðbrögðum byggist
á miklum misskilningi."
Bæði Davíð Oddsson og Halldór
hafa lagt á það áherslu að kvöld-
verður forsætisráðherra og vara-
forseta Tævans bæri ekki vitni
breyttu sambandi íslands og Kína
annars vegar og íslands og Tæ-
vans hins vegar. íslendingar væru
í stjórnmálasambandi við Kín-
verska alþýðulýðveldið, en ekki
Tævan. J