Morgunblaðið - 18.10.1997, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
Smásagnasafn verðlaunað
Morgunblaðið/Þorkell
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri afhenti Elínu Ebbu
Gunnarsdóttur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
fyrir árið 1997 í mótttöku í Höfða.
BÓKMENNTAVERÐLAUN Tóm-
asar Guðmundssonar fyrir árið
1997 voru afhent í Höfða í gær.
Verðlaunin hlaut Elín Ebba Gunn-
arsdóttir fyrir smásagnasafnið
Sumar sögur.
Þetta er í annað sinn sem Reykja-
vikurborg efnir til samkeppni um
bókmenntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar. Árið 1994 komu þau
í hlut Helga Ingólfssonar fyrir skáld-
söguna Letrað í vindinn. í dómnefnd
sátu Anton Helgi Jónsson, skipaður
af Rithöfundarsambandinu, Stein-
unn Jóhannesdóttir, fyrir hönd
menningarmálanefndar Reykjavík-
ur, og Dagný Kristjánsdóttir, skipuð
af Reykjavíkurborg, sem jafnframt
var formaður nefndarinnar.
Heimavinnandi höfundur
Tuttugu og eitt handrit barst í
samkeppnina og sagði Dagný mörg
þeirra framúrskarandi. Það hefði
glatt dómnefndina sérstaklega þar
sem mönnum væri tíðrætt um hvað
íslenskar nútímabókmenntir væru
lélegar og óbærilega leiðinlegar.
Um verðlaunahandritið Sumar sög-
ur sagði Dagný að smásögurnar
tólf, sem allar tengdust innbyrðis,
lýstu hugsunum venjulegs fólks þar
sem leitast væri við að komast af
með sem fæst orð.
Elín Ebba Gunnarsdóttir er
heimavinnandi. Hún hefur fengist
við skáldskap í 5 ár og aldrei unn-
ið til verðlauna áður. Elín segir
smásögurnar heilla sig mest í
augnablikinu en auk þess hefur
hún fengist við ljóðlist. „Ljóðið er.
Þetta langar mig til að færa upp
á smásöguna. Ég læt söguna ráða
og í skrifum mínum er enginn fyrir-
fram ákveðinn rammi. Smásaga
er.“
Morgunblaðið/Kristinn
KRISTINN Guðjónsson, formaður AFS á íslandi, og Petrína
Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri AFS á Islandi, Pat Moody, frá
alþjóðaskrifstofu AFS í New York, og Juan Rodriguez, fram-
kvæmdastjóri AFS i Ecuador.
40 ára afmæli AFS á íslandi
Fjarlægðir og andstæð-
ur mest spennandi
Á ÁRI hverju fara yfir 100 ís-
lensk ungmenni til ársdvalar í
öðru landi á vegum skiptinema-
samtakanna AFS. Þau eru ekki
aðeins gestir eða ferðamenn í
nýja landinu heldur eignast þau
nýja „fjölskyldu", læra nýtt
tungumál, ganga i skóla, kynnast
framandi menningu og snúa svo
heim dýrmætri reynslu ríkari. I
kvöld er haldið upp á 40 ára af-
mæli AFS á íslandi á Hótel Borg
en á þessu ári er jafnframt hald-
ið upp á að fimmtiu ár eru liðin
frá stofnun alþjóðasamtaka AFS.
í tilefni af afmæli AFS á ís-
landi eru hér staddir tveir er-
lendir gestir, Pat Moody, frá al-
þjóðaskrifstofu AFS í New York,
og Juan Rodriguez, fram-
kvæmdastjóri AFS í Ecuador,
en samtökin þar fagna fimmtíu
ára afmæli á næsta ári. Að sögn
Rodriguez hafa AFS í Ecuador
tekið á móti íslenskum nemum í
um fimmtán ár og nú koma þang-
að að jafnaði fimm til sex íslensk-
ir nemendur á ári hverju. Og á
næsta sumri er ráðgert að fyrstu
nemendurnir frá Ecuador komi
til ársdvalar á íslandi.
Islensku nemendurnir eru
meðal þeirra sem fara hvað víð-
ast um heiminn sem skiptinemar,
að sögn Pat Moody. Hún segist
reyndar hafa orðið vör við auk-
inn áhuga á Islandi meðal skipti-
nema á síðustu árum, það þyki
framandi og forvitnilegt.
Um þriðjungur íslenskra
skiptinema fer til S-Ameríku
Petrína Ásgeirsdóttir, fram-
kvæmdastjóri AFS á íslandi, seg-
ir áberandi hversu margir Is-
lendingar fari til Suður-Ameríku
og að mjög náið samstarf hafi
komist á við þann heimshluta.
Nærri lætur að þriðjungur þeirra
sem fara út nú fari til Suður-
Ameríku. „Og krakkarnir sem
koma þaðan til íslands spjara sig
yfirleitt mjög vel hér og eru
mjög ánægðir," segir hún. Um
ástæðu þessa getur Kristinn Guð-
jónsson, formaður AFS á íslandi,
sér þess til að það séu fjarlægð-
imar og andstæðurnar sem séu
mest spennandi, og ólík menning.
„Ungt fólk er líka farið að hugsa
um hvað það fær út úr náminu.
Það hefur enskuna og sér að það
getur verið stór kostur að læra
annað tungumál. Og þá er
spænskan auðvitað mjög spenn-
andi,“ segir hann.
Þúsund manns í Sam-
tökum um þjóðareign
Almennur
fundur á
Stapa
UM EITT þúsund manns hafa nú
gengið til liðs við Samtök um þjóð-
areign, sem hafa á stefnuskrá sinni
að tryggja öllum íslenskum þegn-
um jafnan rétt til þess að hagnýta
auðlindir íslenskrar efnahagslög-
sögu. Samtökin hafa í huga að efna
til funda víða um land til að kynna
markmið sín og safna liði. Þau
hafa nú opnað skrifstofu að Braut-
arholti 4 í Reykjavík.
Fyrsti almenni fundurinn utan
stofnfundar, sem haldinn var í síð-
ustu viku, verður haldinn í Stapa,
Reykjanesbæ, sunnudaginn 19.
október kl. 14. „Búast má við miklu
ijölmenni á fundinn í Stapa vegna
almennrar reiði Suðurnesjamanna
með kvótabraskið í ljósi síðustu
kaupa á kvóta frá Suðurnesjum,"
segjr í frétt frá samtökunum.
Á fyrirhuguðum fundum sam-
takanna mæta stjórnarmenn þeirra
og skýra málstaðinn. „Flutt verða
stutt framsöguerindi og fundar-
menn óspart hvattir til að láta í
ljós hug sinn. Samtök um þjóðar-
eign eru grasrótarsamtök og leggja
mikið upp úr því að fá fram vilja
fólksins," segir ennfremur í frétt-
inni.
-----» » ♦
Afmæli Styrks
haldið hátíðlegt
STYRKUR, samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra
minnast þess með hátíðarfundi á
mánudag 20. október að þann dag
eru tíu ár síðan samtökin voru
stofnuð.
Fundurinn er í húsi Krabba-
meinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í
Reykjavík og hefst kl. 20.30.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra flytur stutt ávarp,
Kuran Swing leikur létt lög og
Skólakór Mosfellsbæjar syngur.
Boðið verður upp á hátíðarhlað-
borð. í frétt frá samtökunum segir
að félagsmenn séu hvattir til að
fjölmenna og taka með sér gesti.
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 13
SAMSTAÐA
TIL SIGURS
Veljum
Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson
borgarfulltrúa
í 2. sæti listans.
Prófkjör
Sjálfstæðisflokksins
24.—25. október 1997
Kosningaskrifstofa
í Borgartúni 33 (austurhlið).
Opið kl. 16—19 daglega
en laugardag og
sunnudag kl. 14—19.
Sími 552 2123.