Morgunblaðið - 18.10.1997, Page 20
20 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Framkvæmdastjóri alþjóðadeildar Bundesbank um EMU
Valkostir íslendinga
skýrast fyrst árið 1999
SPURNINGUNNI um það hvaða kjör íslendingum
munu bjóðast til að tryggja hagsmuni sína í geng-
is- og geningamálum eftir að flest stærstu viðskipta-
landa íslands sameinast um nýjan gjaldmiðil, evró-
ið, er vonlaust að svara fyrr en eftir að Efnahags-
og myntbandalag Evrópu, EMU, er orðið að veru-
leika. Þetta sagði Dr. Bemd Goos, framkvæmda-
stjóri alþjóðadeildar þýzka seðlabankans Bundes-
bank, í samtali við Morgunblaðið. Hann hélt í gær
erindi á vegum Þýzk-íslenzka verzlunarráðsins um
stöðu og þróun efnahagsmála í Þýzkalandi og um
EMU, en um næstu áramót skýrist hvaða lönd
uppfylla hin efnahagslegu skilyrði fyrir aðild að því.
Dr. Goos hóf erindi sitt á því að óska íslending-
um til hamingju með stöðu þeirra í efnahagsmálum,
þar sem honum sýndist þeir vera í þeirri öfunds-
verðu stöðu að uppfylla öll hin ströngu efnahags-
legu skilyrði sem sett eru fyrir stofnaðild að mynt-
bandalaginu. Það væri keppikefli allra Evrópusam-
bandslandanna að ná þessu takmarki, sem þau
ættu þó flest í erfiðleikum að ná, Þýzkaland þar
með talið.
Hann sagði efnahagsörðugleikana sem Þýzka-
land ætti við að etja nú að mestu leyti hægt að
rekja til sameiningar Austur- og Vestur-Þýzka-
lands. Hún hefði reynzt dýr. En dr. Goos benti á
fleiri galla á efnahagsástandinu í Þýzkalandi og
öðrum Evrópulöndum, sem þyrfti að bæta úr áður
en EMU yrði hleypt af stokkunum, ef vei ætti að
standa að því.
Morgunblaðið/Kristinn
KRISTÍN Hjálmtýsdóttir, framkvæmda-
stjóri Þýzk-íslenzka verzlunarráðsins, og
dr. Bernd Goos, framkvæmdastjóri alþjóða-
deildar þýzka seðlabankans, Bundesbank.
Skortur á sveigjanleika
Þessir gallar felast að sögn Goos fyrst og fremst
í skorti á sveigjanleika vinnumarkaðarins og fleiri
vanköntum sem hefta hagkerfí þessara væntan-
legu aðildarlanda EMU. Að ekki skyldi takast
að taka þessi vandamál föstum tökum lofaði ekki
góðu um horfurnar á stöðugleika innan mynt-
bandalagsins, og lítill stöðugleiki geti stefnt lífs-
líkum þess í hættu, sagði Goos. Hann sagði þó
allt benda til þess á þessari stundu að EMU verði
að veruleika á tilsettum tíma, 1. janúar 1999.
Helzta áhyggjuefnið í aðdraganda EMU felst
að mati Goos ekki fyrst og fremst í verðbólgu-
hættu, heldur í skorti á kerfísumbótum. Þær telur
hann mest aðkallandi. Ef EMU eigi að verka vel
sé nauðsynlegt að aðildarríki EMU stilli hagkerfí
sín betur saman. Að gera slíkar umbætur er þó
ekki verkefni bankamanna heldur stjómmála-
manna. Og það verða stjórnmálamenn sem taka
um það ákvörðun í maí á næsta ári hvaða ríki
verða með í EMU frá upphafi.
ERM viðhaldið fyrir „utangarðsríkin“
Aðspurður um hvað yrði um þau ESB-ríki sem
ekki yrðu þátttakendur í EMU frá upphafi sagði
Goos að þegar væri ákveðið að þeim byðist að
halda áfram þátttöku í Gengissamstarfí Evrópu,
ERM, sem ætti að gera þeim kleift að halda gengi
sinna gjaldmiðla stöðugu gagnvart evróinu. Þessi
ríki myndu heldur ekki standa alveg utan við
ákvarðanatöku í peningamálum, þar sem stefnu-
mótun í peningamálum yrði eftir sem áður rædd
á fundum fjármálaráðherra ESB-ríkjanna. Það
væri hins vegar of snemmt, sagði Goos, að fara
fram á að svör fengjust við því hvort aðildarríkjum
Evrópska efnahagssvæðisins, Noregi og íslandi,
byðist að tengjast evróinu á svipaðan hátt og
ESB-ríkjunum sem áfram stæðu utan við hinn
sameiginlega gjaldmiðil.
Samskip Inc. í
Bandaríkjunum
Ný vöru-
dreifing-
armiðstöð í
Norfolk
SAMSKIP Inc. opnar í dag nýja
vörudreifingarmiðstöð fyriritæk-
isins í Norfolk í Bandaríkjunum.
Þegar hafa náðst samningar við
amerísk stórfyrirtæki um þjónustu
og er húsið nánast fullnýtt.
í frétt frá Samskipum kemur
fram að vörudreifingarmiðstöðin
er 7 þúsund fermetra stálgrind-
arhús sérhannað tU móttöku og
hleðslu á vörum úr flutningabílum,
lestum og gámum, Húsið er full-
búið nýjustu tækjum og búnaði til
geymslu og dreifingar vöru. Húsið
mun stórbæta samkeppnisstöðu
Samskipa á svæðinu og býður upp
á vandaðri vörumeðferð og aukin
gæði í hleðslu gáma til Islands.
„Húsið er nyög vel staðsett með
tilliti til vega- og lestakerfis í
Bandaríkunum og meginhluti
starfsemi þessarar nýju vörudreif-
ingarmiðstöðvar er lagerhald og
dreifing fyrir amerísk fyrirtæki á
svæðinu."
Samskip Inc. er rúmlega
tveggja ára gamalt dótturfyrir-
tæki Samskipa og er fram-
kvæmdastjóri þess Reynir Gísla-
son. H'á Samskip Inc. og dóttur-
fyrirtæki þess, BM International
Transport, starfa samtals 9 manns.
Endurgreiðsla virðisaukaskatts til ferðamanna
Verslað fyrir
460 milljónir
ERLENDIR ferðamenn fengu end-
urgreiddan virðisaukaskatt af 460
milljóna króna innkaupum á Is-
landi fyrstu níu mánuði ársins.
Ólíkt undanförnum árum voru það
Bandaríkjamenn sem hafa verslað
mest í ár en á eftir þeim koma
Þjóðveijar og Norðurlandabúar.
Líkt og áður er hlutur ullarinnar
stærstur í innkaupum erlendra
ferðamanna, eða 65,43%. Bækur
eru næstar í röðinni með 5,99% og
íþrótta- og útivistarvörur 5,74%.
í frétt frá Europe Tax-free
Shopping á Islandi kemur fram að
samkvæmt könnunum er gerðar
voru í sumar fara einungis 10%
af heildareyðslu ferðamanna hér á
landi í verslun samanborið við 25%
í Evrópu. „Með aukinni kynningu
má auðveldlega markaðssetja
Reykjavík sem verslunarborg þar
sem höfuðborg okkar býður upp á
hagstætt vöruverð og mjög að-
gengileg verslunarsvæði."
Útsala í Fríhöfninni
VEL gengur að selja upp lager
Fríhafnarinnar á úrum og skart-
gripum en um næstu áramót verð-
ur hætt að selja þessar vörur í
Fríhöfninni.
Undanfarið hefur verið útsala á
úrum og skartgripum í Fríhöfninni
og að sögn Guðmundar Vigfússon-
ar starfsmanns Fríhafnarinnar á
Keflavíkurflugvelli er mikill hluti
lagersins uppseldur en verðmæti
hans nam um 25 milljónum króna.
Meðal þeirra sem hafa keypt hluta
af lager Fríhafnarinnar er Sævar
Jónsson, eigandi verslunarinnar
Leonardo, en um næstu áramót
munu Leonard ehf. og Crystal ehf.
opna gjafavöruverslun og tvær
verslanir með úr, klukkur og skart-
gripi í flugstöðinni. Um Tag-Heur
og Breitling úrabirgðir Fríhafnar-
innar var að ræða en þau eru
meðal þeirra vörumerkja sem nýju
verslanimar í Flugstöðinni munu
hafa til sölu.
Það rými sem hingað til hefur
verið nýtt undir úr og skartgripi í
Fríhöfninni verður frá næstu ára-
mótum notað undir sjálfsafgreiðslu
á ilmvötnum og annarri snyrtivöru.
Forsljórinn datt
í lukkupottinn
Los Angeles. Reuter.
HLUTABREF í Occidental Pet-
roleum Corp. seljast illa, en stjórn-
arformaður fyrirtækisins datt í
lukupottinn.
Occidential segir að þar sem
fyrirtækið hafi viljað lækka árs-
laun Ray Irani stjórnarformanns
og tengja þau frammistöðu fyrir-
tækisins muni hann fá eingreiðslu
upp á 95 milljónir dollara.
Þar með segir félagið að hægt
verði að lækka árslaun Iranis úr
1,9 milljónum dollara í 1,2 milljón-
ir dollara.
Occidental neitar að gefa upp
hvaða öðrum sparnaði verði náð
fram með eingreiðslunni.
NÝ VÖRUDREIFINGARMIÐSTÖÐ Samskipa í Norfolk í Bandaríkjunum
Innkaup um
sjónvarp það sem
koma skal?
London. Reuters.
SJ ÓNV ARPSTÆKI fremur en flókn-
ar og dýrar PC-tölvur verða notaðar
í framtíðinni til að panta vörur til
heimilsþarfa, orlofsferðir og kvik-
myndir, samkvæmt nýrri könnun.
Tölvukubbum verður komið fyrir
í sjónvarpstækjum til að gera þeim
kleift að taka við stafrænum merkj-
um og slík tæki verða algeng á vest-
rænum heimilum áður en langt um
líður.
Skýrsluna samdi upplýsinga- tækni
og fjarskiptahópur sem kallar sig
Ovum. í skýrslunni segir að rúmlega
50 milljónir sjónvarpstækja muni geta
notað alnetið fyrir árslok 2005.
Ovum gerir ráð fyrir að 100 millj-
ónir manna muni geta náð alnetinu
með öðrum nettengdum tækjum en
PC-tölvum fyrir árið 2005. Nettengd
sjónvarpstæki verða rúmur helming-
ur, en önnur nettengd tæki munu
vinna á samkvæmt skýrslunni.
Aðrir keppinautar verða nettölvur,
sem byggja á eigin minni, símar með
skjám og „upplýsingatæki," sem
munu að vissu marki geta veitt upp-
lýsingar um úrslit kappleikja, upp-
skriftir og fleira.
Rannsókn Ovums náði til markaða
í Evrópu, Norður-Ameríku, Hong
Kong, Japan og Singapore.
Stóraukin viðskipti um netið
Mörg stærstu fyrirtæki heims bú-
ast við stórauknum viðskiptum um
netið - svokölluðum rafeinda- eða
tölvuviðskiptum.
Samkvæmt nýlegri skýrslu tækni-
legs ráðgjafafyrirtaekis, Datamonitor,
munu 64.000 evrópsk og 173.000
bandarísk fyrirtæki stunda bein tölvu-
viðskipti um netið fyrir árslok 2000.
í lok þessa árs munu 600 fyrirtæki
í Evrópu og 1.500 í Bandaríkjunum
stunda slík viðskipti.
Útgjöld til þess eins að koma upp
kerfum til að geta stundað rafeinda-
viðskipti munu nema meira en 35
milljörðum dollara árið 2000 saman-
borið við 2,5 milljarða 1998 að sögn
Datamonitor.
Námskeið
um alþjóð-
legt mat á
lánshæfi
Á VEGUM Endurmenntunar-
stofnunar HÍ verður haldið
námskeið um alþjóðlegt mat á
lánshæfi (credit rating) þann
24. október.
Fyrirlesarar á námskeiðinu
eru Ian Centis, sérfræðingur
hjá Nomura Bank í London,
en hann starfaði áður hjá
matsfélaginu IBCA í London,
Ólafur ísleifsson, fram-
kvæmdastjóri alþjóðasviðs
Seðlabanka íslands, og Brynj-
ólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbanka ís-
lands.
Fjallað verður um aðferðir
við mat á lánshæfi, með sér-
stakri áherslu á Ijármálastofn-
anir en einnig varðandi fyrir-
tæki almennt. Hvemig er stað-
ið að slíku mati og hver er
þýðing þess inn á við og út á
við; mat á lánshæfi íslands og
áhrif þess. Námskeiðið er ætl-
að stjórnendum og sérfræðing-
um í fjármálastofnunum og í
stærri fyrirtækjum.