Morgunblaðið - 18.10.1997, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Skipuleggjendur beggja sjávarútvegssýninga vilja Laugardalshöll 1.-4. september 1999
Erindin lögð
fyrir stjórn ÍTR
eftir helgi
BÁÐIR þeir aðilar, sem nú skipu-
leggja sjávarútvegssýningar í
Reykjavík, hafa sótt um áð fá
Laugardalshöll undir sýningarnar
dagana 1.-4. september árið 1999.
Umsóknirnar verða báðar lagðar
fram á fundi stjórnar íþrótta- og
Trust disklingar á frábæru tilboði!
Tveir pakkar á verði eins -
10 stk. í pakka
Hámarlí 5 pakkar á mann
tómstundaráðs á mánudaginn.
Sýningar ehf., framkvæmdarað-
ili sjávarútvegssýningarinnar Fish-
Tech ísland ’99, hefur ákveðið að
halda sýninguna dagana 1.-4.
september 1999 í stað 5.-8. maí
það ár, eins og áður var stefnt að.
Samkvæmt upplýsingum frá fyrir-
tækinu var gerð skoðanakönnun
meðal sýnenda, þar sem meðal
annars var spurt hvor mánuðurinn,
maí eða september, hentaði sjávar-
útvegssýningu betur. Að sögn
skipuleggjenda sýningarinnar var
spurningalisti sendur út um síðastl-
iðna helgi og strax á mánudag var
kominn mikill fjöldi svara og taldi
yfirgnæfandi meirihluti svarenda
september henta betur til sýningar-
haldsins. Strax og það var ljóst
ákváðu forráðamenn Sýninga ehf.
að breyta tímasetningunni. Byijað
var að taka við þátttökutilkynning-
um á FishTech ísland ’99 fyrir
nokkrum dögum og nú þegar hefur
fjöldi fyrirtækja bókað þátttöku í
sýningunni, segir í fréttatilkynn-
ingu frá Sýningum ehf.
Hafa óskað eftir
stuðningi borgarsljóra
Barni Þór Jónsson, umboðsaðili
Nexus Media, á ekki von á því að
grundvöllur sé fyrir neinni sam-
vinnu við skipuleggjendur FishTech
úr því sem komið er. „Við erum
komnir með undirskriftalista frá
öllum stærstu fyrirtækjunum, sem
hafa verið á sjávarútvegssýning-
Canon LBP-660 m'Nýtt
Windows geislaprentari
600x600 dpi upplausn
6 bls/mín
100 blaða arkamatari
kr. 27.900
unni okkar, sem segir að ef við
færum sýninguna okkar aftur til
september 1999, muni þau sýna á
sýningunni okkar, en ekki hjá öðr-
um. Meðal þessarra fyrirtækja eru
Marel og Hampiðjan, sem eru
stærstu aðilar innan Samtaka iðn-
aðarins, sem eru samtök sem skrif-
að hafa undir samstarf við hina
sýnenduma. Einnig eru á þessum
undirskriftalista fyrirtæki á borð
við Sæplast, Póls, ísfell og mörg
fleiri.“
Bjarni Þór sagðist enga ástæðu
hafa til að ætla annað en Laugar-
dalshöllin yrði þeirra í byijun sept-
ember 1999. „Við höfum skrifað
borgarstjóra bréf og óskað eftir
hennar stuðningi, bendum þar m.a.
á að við höfum alltaf verið með
sýninguna í september á þriggja
ára fresti frá árinu 1984 og við
gerum ráð fyrir því að það verði
metið þegar farið verður að bera
saman tvær umsóknir með sömu
dagsetningum. Og þó að við gerð-
um tilraun með að færa sýninguna
fram um eitt ár, þá er okkur það
ljóst að það er ekki það sem sýnend-
ur vilja. Þeir vilja halda rútínunni.
Til að koma til móts við þeirra ósk-
ir, treystum við því að borgin leigi
okkur Höllina á þessum tíma,“
sagði Bjarni Þór.
Ahöfn norsks
rannsóknarskips
Grunuð um
að selja afla
á„svörtu“
Tromsö. Morgnnblaðið.
ÁHÖFNIN á norsku rannsóknar-
skipi, sem tilheyrir hafrannsóknar-
stofunni í Bergen liggur undir grun
um að hafa reynt að selja fisk ólög-
lega. Fiskverkandi í Finnmörku í
Norður-Noregi tilkynnti að sér
hefðu verið boðin fjögur tonn af
þorski á „svörtum markaði".
Tromsö-blaðið Nordlys greindi
frá því fyrir helgi að áhöfnin á
yngsta og stærsta rannsóknarskip-
inu Johan Hjort sé grunuð um að
hafa reynt að selja fjögur tonn af
þorski að verðmæti 400-500 þús-
und til fiskverkanda í Finnmörku
með því skilyrði að salan væri „án
reiknings".
Bætt eftirlit og
hertar refsiaðgerðir
Málið kemur sér að sjálfsögðu
mjög illa fyrir norsk yfirvöld þar sem
þau hafa á undanförnum árum reynt
að bæta eftirlit og herða refsingar
fyrir veiðiþjófnað. Fjölmargir dómar
hafa þegar fallið, allt frá milljóna
króna sektum niður í örfárra fiska
upptöku. Ein ástæða þess að Norð-
menn leggja svo mikla áherslu á
skilvirkt og nákvæmt eftirlit er ein-
mitt að gera vísindamönnum kleift
að draga ályktanir af nákvæmari
upplýsingum. Það skýtur því skökku
við að afli ransóknarskipsins sé boð-
inn til sölu á svörtum markaði.
Fiskverkandinn, sem tilboðið
fékk, tilkynnti um málið og segir
blaðið frá því að norska lögreglan
vinni nú í málinu þar sem áhafnar-
meðlimir hafi neitað öllum sakar-
giftum.
_.. .Tölvukjör
Tolvu.-
verslun
heimilanna
Opið til kl. 16:00
alla laugardaga!
Fuafenl 5 - Slml 533 2323
tolvukjor@ítn.is
DAGSKRA
18.10. '97
Tæknival Skeifunni
kl. 10.30-11.30:
Grunnkennsla
á Internetið.
: Tæknival Hafnarfiröi
kl. 12.30-13.30:
; Grunnkennsla
: á Internetið.
TæknivaE
Veriö velkomm!
.
vegna breytinga
30% afsláttur
Fataskápar, skenkar, borðstofuborð, rúm, stólar,
myndir, kistur, borðbúnaður o.fl.
LOpið sunnudag frá kl. 13-17 J
Attítktófitn
Austurstræti 8