Morgunblaðið - 18.10.1997, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Handtaka veld-
ur spennu milli
Kóreuríkja
Seoul. Reuters.
NORÐUR-kóreskir hermenn hand-
sömuðu í gær tvo suður-kóreska
bændur á hlutlausu belti milli
Kóreuríkjanna tveggja.
Samkvæmt síðustu fréttum höfðu
Norður-Kóreumenn ekki látið bænd-
uma lausa og friðargæslusveitir
Sameinuðu þjóðanna, sem hafa eft-
irlit með hlutlausa beltinu, sögðust
vera að rannsaka málið og ræða við
her Norður-Kóreu.
í yfirlýsingu frá friðargæslusveit-
unum sagði að tólf norður-kóreskir
hermenn hefðu farið yflr markalínu,
sem skiptir hlutlausa beltinu milli
ríkjanna, og numið á brott tvo suð-
ur-kóreska bændur á hrísgijónaakri
norðanaustan við þorpið Taesong-
dong. Bændumir eru feðgar og búa
báðir í Taesong-dong, sem hefur
einnig verið nefnt „Friðarþorpið".
Kim Young-sam, forseti Suður-
Kóreu, fylgdist með málinu en vildi
ekki tjá sig um það, að sögn tals-
manns hans. „Verði mönnunum
sleppt strax er þetta ekkert vanda-
mál. Verði þeir hins vegar teknir
til Norður-Kóreu gæti þetta ástand
staðið lengi,“ sagði talsmaðurinn.
Sjónvarpsstöð í Suður-Kóreu
sagði að fimm Suður-Kóreumenn
hefðu verið á hrísgijónaakrinum
innan hlutlausa beltsins, sem er
fjögurra km breitt. Tveir þeirra
hefðu farið að tína akrana og norð-
ur-kóreskir verðir handsamað þá
skammt frá markalínunni.
Hersveit sneri við
Suður-Kóreuher sendi hersveit
inn á hlutlausa beltið skömmu eftir
atvikið en hún sneri við þar sem
ekkert benti til frekari ögrana af
hálfu Norður-Kóreumanna.
Mikil spenna hefur verið við
landamæri ríkjanna og þar eru að
öllum líkindum fleiri vopn en á
nokkrum öðrum landamærum í
heiminum. Suður-Kóreumenn skutu
norður-kóreskan hermann til bana
í síðasta mánuði þegar hann fór
yfir markalínuna. Norður-kóreskir
hermenn vörpuðu einnig sprengjum
á suður-kóreska varðstöð í júlí í ein-
um mestu átökum sem blossað hafa
upp á landamærunum.
Neyðarleg atvik í Indlandsheimsókn Bretadrottningar
Spenna í samskiptum
stjórnar o g drottningar
Cochin, London. Reuters. The Daily Telegraph.
TALSMENN Elísabetar Breta-
drottningar reyna nú með öllum
ráðum að firra drottningu ábyrgð
á röð neyðarlegra uppákoma í
tengslum við för hennar til Pakist-
ans og Indlands. Þá hafa stjórn-
völd, með Tony Blair forsætisráð-
herra í broddi fylkingar, gert til-
raun til að gera lítið úr þeirri
spennu sem virðist komin upp i
samskiptum stjórnarinnar og kon-
ungsfjölskyldunnar.
Heimsókn drottningar, sem hef-
ur staðið í tíu daga, hefur vakið
umtal og deilur frá fyrsta degi.
Deilt hefur verið um meint um-
mæli Robins Cook utanríkisráð-
herra, sem fylgdi drottningu hluta
ferðarinnar, um Kasmír-hérað, um
hvort drottningin hafi tekið nógu
sterkt til orða er hún baðst afsök-
unar fyrir hönd þjóðar sinnar á
fjöldamorði breskra hermanna á
óbreyttum indverskum borgurum
í Amritsar 1919 og hvort að leyfa
hefði átt drottningu að halda tvær
ræður sama daginn.
Cook neitar því að hafa boðið
opinberlega aðstoð Breta við að
miðla málum í deilum Indveija og
Pakistana um Kasmír-hérað en
pakistönsk blöð höfðu það eftir
honum á mánudag. Sama dag
hvatti drottning þjóðirnar til að
ná sáttum um héraðið, en hvort
tveggja vakti litla hrifningu á Ind-
landi, þar sem mörgum þótti hinir
gömlu nýlenduherrar vera að
skipta sér af innanríkismálum.
A miðvikudag baðst drottning
afsökunar á fjöldamorðinu í Am-
ritsar en sumum þótti ekki nóg
að gert, auk þess sem Filippus
drottningarmaður varpaði skugga
á afsökunarbeiðnina er hann dró
íefa fjölda þeirra sem myrtir voru.
Á fimmtudagskvöld var hætt við
ræðu drottningar við hátíðar-
kvöldverð á síðustu stundu og því
borið við að hún hefði haldið aðra
ræðu um daginn. Við sama tæki-
færi voru veisluboð til nokkurra
breskra stjómarerindreka aftur-
kölluð.
Óheppileg tímasetning
Drottning og utanríkisráðu-
neytið hafa lagt á það áherslu að
allar ræður drottningar og siða-
reglur hafi verið samþykktar í
utanríkisráðuneytinu breska fyrir
heimsóknina. Þykir bresku blöð-
unum sem Cook hafi komið sjálf-
um sér og drottningu í vanda með
óvarkárum yfirlýsingum beggja
auk þess sem þau segja „ofurvið-
kvæmni Indverja" ekki hafa bætt
úr skák. Cook hefur hins vegar
látið að því liggja að tímasetning
heimsóknarinnar hafi verið
óheppileg en hún var ákveðin í tíð
stjómar íhaldsflokksins.
Mýfluga að úlfalda?
Á fimmtudag fyrirskipaði Blair
ráðhermm sínum að leggja
áherslu á hina jákvæðu þætti
heimsóknar drottningar og sagði
fjölmiðla vera að gera úlfalda úr
mýflugu. Hafa talsmenn drottn-
ingar séð sig knúna til að lýsa því
yfir að hún gagnrýni ekki bresk
stjórnvöld fyrir undirbúning og
skipulagningu ferðarinnar.
Drottning sé fyllilega sátt við þær
ráðleggingar sem hún hafi fengið
hjá ráðuneytinu.
Guggen-
heimsafn-
ið opnað
ÞAÐ stirnir á þak Guggen-
heim-safnsins, sem verður opn-
að formlega í Bilbao í Baska-
landi á Spáni í dag. Byggingin
hefur vakið geysilega athygli
enda farnar ótroðnar slóðir í
hönnun arkitektsins, Frank
Gehrys, og risu harðar deilur
um útlit hússins og einnig stað-
setningu þess. Kostnaður við
byggingu safnsins nemur alls
sem svarar sex milljörðum ís-
lenskra króna og hefur ýmsum
þótt nóg um. Tilraunir skæru-
liða aðskilnaðarhreyfingar
Baska, ETA, til að koma fyrir
sprengju við innganginn mis-
tókust fyrr í vikunni en þær
kostuðu lögreglumann, sem
kom í veg fyrir það, lífið. Hafa
öryggisráðstafanir verið hert-
ar mjög vegna þessa en margt
fyrirfólk verður viðstatt opn-
unina í dag, m.a. spænsku kon-
ungshjónin.
Reuters
Aukin trú fjármálamark-
aða á EMU-áformunum
London. Reuters.
ÁFORM um sameiginlegan gjald-
miðil Evrópusambandsríkjanna
hafa nú komizt yfir mikilvægar
sálfræðilegar og huglægar hindran-
ir, að mati hagfræðinga og sérfræð-
inga, sem verzla á fjármálamörkuð-
um. Aldrei hafa fleiri haft trú á að
Efnahags- og myntbandalag Evr-
ópu (EMU) verði að veruleika í árs-
byijun 1999 og það endurspeglast
í því að ró ríkir nú á fjármálamörk-
uðunum og fyrirtæki og ríkisstjórn-
ir hafa hraðað undirbúningi sínum
fyrir upptöku evrósins.
Að mati sérfræðinga skýrir eng-
inn einn atburður þá almennu til-
finningu að af myntbandalaginu
verði, heldur frekar nokkrir nýlegir
viðburðir.
• Staða Helmuts Kohl, kanzlara
Þýzkalands, hefur styrkzt og hvorki
hefur komið til uppstokkunar í
stjórn hans né afsagnar kanzlar-
ans, sem sumir spáðu. Kohl er einn
helzti stuðningsmaður EMU og
hyggst sitja út næsta kjörtímabil,
fái flokkur hans nægilegt kjörfylgi.
• Litið er á nýlega ákvörðun fjár-
málaráðherra ESB, um að ákveða
á komandi vori á hvaða gengi
gjaldmiðlum væntanlegra EMU-
ríkja verði læst saman, sem hröðun
EMU-ferlisins. Að vissu leyti felur
ákvörðunin í sér að í raun verði
myntbandalag tekið upp nokkrum
mánuðum á undan áætlun.
• Merki um jákvæðari afstöðu nýrr-
ar ríkisstjómar í Bretlandi til EMU
hafa einnig ýtt undir bjartsýni. Litið
er á það sem raunverulegan mögu-
leika að Bretland taki upp evróið
ekki löngu eftir 1999 og hefur það
orðið til þess að brezk fyrirtæki
hafa hraðað undirbúningi sínum fyr-
ir myntbandalag. Þetta hefur aukið
trú manna í öðrum ESB-ríkjum á
að EMU verði að veruleika.
• Stjómarkreppan á Ítalíu breytti
litlu um þá trú manna að EMU-
áformin gangi eftir og að Ítalía
verði í hópi stofnríkjanna. Sérfræð-
ingar segja að fyrir ári hefði stjóm-
arkreppa sennilega vakið mjög nei-
kvæð viðbrögð markaðarins, en í
síðustu viku voru þau varla merkj-
anleg.
• Samræming stefnu seðlabanka
væntanlegra EMU-ríkja er þegar
hafin. Ákvörðun þýzka seðlabank-
ans um að hækka vexti var fremur
vegna EMU-áformanna en vegna
aðstæðna innanlands. Aðrir seðla-
bankar í ríkjum, sem búizt er við
að verði í EMU, hafa fylgt í kjölfar-
ið og búizt er við að á næstu 14
mánuðum muni þeir samræma
stefnu sínu og leitast við að halda
skammtímavöxtum á bilinu 4-5%.
Sú staðreynd að þýzki seðlabank-
inn, sem oft hefur gagnrýnt EMU-
áformin, tók þessa stefnu, er túlkuð
sem eitt mest sannfærandi merkið
um að evróið muni halda innreið
sína á réttum tíma.
• Málamiðlun Frakklands og
Þýzkalands um þátt stjómmála-
manna í mótun efnahagsstefnu í
EMU og samkomulag ríkjanna um
óformlegt EMU-ráð fjármálaráð-
herra hefur fært mönnum heim
sanninn um að samrunaþróunin í
Evrópu haldi enn áfram, að þessu
sinni á stjórnmálasviðinu.
Sérfræðingar segja að þessir
þættir útiloki ekki að eitthvert ófyr-
irséð áfall verði til þess að EMU
verði ekki hleypt af stokkunum í
janúar 1999. Hins vegar segja þeir
að teknir saman stuðli þeir að því
að hraða þróun, sem verði æ erfið-
ara að snúa við.