Morgunblaðið - 18.10.1997, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997 33
verkjadeyfandi hlið efnisins sé
rannsökuð.
Ungliðar stjórnarflokksins P.P.
vilja ekki gera mun á vægum efn-
um og sterkum eins og sósíalistar.
Þeir eru á móti allri neyslu opin-
berlega sem í einrúmi. Ráð þeirra
eru að ofsækja sölumenn og með-
höndla neytandann sem sjúkling.
Þeir eru andvígir allri neyslu
hvort heldur grass eða heróíns.
En því miður líta fæstir neytendur
á sig sem sjúklinga. Þeir, sem eru
sjúkir, eru yfirleitt hinn heróín-
sjúki sjáanlegi minnihuti götunn-
ar. Þeir hafa margir valið þetta
markvisst sjálfir því það tekur
tíma að verða háður efninu. Ef
heróínið væri ekki til staðar væru
þeir kannski í einhverri annarri
andþjóðfélagslegri stöðu.
Þótt tíð og langvarandi kanna-
bisneysla leiði í mörgum tilvikum
til sljóleika, sinnuleysis, gleymni
og framtaksleysis er ekki tekist á
um hollustuna. Ekki þarf að fjöl-
yrða um það að neysla ameftamíns
og kókaíns í óhófi getur stórskað-
að persónuleikann. Sterk hugvíkk-
unarefni eins og LSD eiga það til
að kalla fram geðklofa.
Fylgjendur neyslu geta beitt
svipuðum rökum og fyrir lögleið-
ingu fóstureyðinga. Þótt þær séu
ekki æskilegar ráði konur yfir lík-
ama sínum og þeir sem neyta
bannaðra efna ráða þá hvað þeir
gera við líkama sinn. Bannið var
auðvitað pólitískt á sínum tíma
þar sem efnin hentuðu ekki lífsstíl
iðnvæddu landanna. Yfirvöld voru
hrædd um að neytendur tækju
upp þá letilifnaðarhætti þar sem
hefð er fyrir neyslu kannabis.
Þessi nýi lífsstíll fylgdi gagn-
menningu sem ógnaði samfélag-
inu á sínum tíma. Fjöldi ungs
fólks yfirgaf kerfið til að leita á
náðir hugvíkkunar þótt flestir hafi
komið aftur. En ýmislegt breytt-
ist þó.
Fíkniefnaneysla hefur líka sín-
ar jákvæðu hliðar. Þessi öld og sú
síðasta væru mun fátækari af list-
um, bókmenntum og hugvísund-
um ef efnin hefðu ekki verið til.
Svo ekki sé talað um fjöldamenn-
ingu á síðari hluta þessarar aldar
með tilheyrandi menningarkimum
og gagnmenningu. A síðustu öld
var neyslan frekar meðal lokaðra
hópa bóhema og listamanna, efnin
urðu ekki vandamál fyrr en þau
urðu vinsæl.
Heróín í
Andalúsíu
Ákveðið hefur verið að gefa
heróín ólæknandi eiturfíklum f
Andalúsíu. Margir óttast að þetta
sé fyi-sta skrefið til lögleiðingar
sterkari efna. José Manuel Rod-
ríguez, sem sér um eiturlyfjamál í
Andalúsíu, segir að ekki sé verið
að gera tilraun með lögleiðingu
eða stíga fyrsta skrefið. Þetta sé
aðeins ákvörðun um að gefa heróín
til takmarkaðs fjölda fíkla sem
engin meðferðarúrræði hafa dugað
á hingað til. Auk þess séu þeir allir
með sjúkdóma tengda neyslunni
eins og alnæmi og lifrarbólgu.
Þetta er aðeins tæknileg aðgerð en
ekki stefnumörkun.
En Rodríguez er samt fylgjandi
því að hefja umræðu um að einn
möguleiki til að stemma stigu við
vandamálinu sé lögleiðing. Sam-
kvæmt skoðanakönnun eru yfir
sextíu prósent andvíg lögleiðingu
en Rodríguez segir að fólk haldi að
baráttan gegn eiturlyfjum eigi að
fara fram með valdbeitingu vegna
þess að það sé vant því úr sjón-
varpinu.
„Við eigum að ræða það hvort
valdbeitingin hafi leitt til árangurs
hingað til eða hvort við viljum færa
vandamálið til heilbrigðiskerfisins
sem væri afleiðing lögleiðingar. A
þessu er engin allsherjarlausn en
málin verður að ræða,“ segir
Rodríquez.
Af einhverjum ástæðum hvílir
bannhelgi yfir þeirri umræðu í
sumum smærri samfélögum.
IMEYTENDUR
Strumpar í pasta
NÚ ER komið á
markað pasta
sem er í laginu
eins og strump-
ar. Strumparnir
halda lögun
sinni við suðu.
Strumpa-
pastað er
framleitt af ít-
alska pastaframleiðandanum
Delverde. Pastað
er í 250 g pokum
og fæst nú þegar
í verslunum Hag-
kaups í Kringlu og
Skeifu.
Innflytjandi er
Heildverlsun H.
Lárussonar & Co.
FaHafeni lí
sími 5B1 SlEl
Dpið mánud.-fostud. 1018 • Laugardaga 1016
^^eeley’s
(Z/BmmEB
únnii itiERfu
Nýtt
Morgunblaðið/Emilía
KATRÍN í Föndurkofanum ásamt Sveinbirni Marion, syni sínum.
Fr r;r-
Kjúklingarn-
ir runnu út
KJÚKLINGAR sem boðnir voru til
sölu á 398 krónur kílóið í verslunum
Hagkaups á fimmtudag voru búnir
klukkan fjögur um daginn. Til sölu
voru tuttugu tonn af kjúklingum
sem, að sögn Oskars Magnússonar,
forstjóra Hagkaups, var talið að
myndu endast fram á kvöld eða svo
lengi sem verslanirnar eru hafðar
opnar. Segir Óskar að ailt tiltækt
starfsfólk hefði verið á vakt. Hveij-
um viðskiptavini var einungis heim-
ilt að kaupa þrjá kjúklinga og segir
Óskar að það hafi mælst vel fyrir
hjá viðskiptavinum enda hafi það
verið auglýst fyrirfram.
f gær, föstudag, voru tíu tonn
af unghænum í boði í verslunum
Hagkaups. Kílóverðið var 98 krónur
og voru að hámarki þijár unghænur
seldar hveijum viðskiptavini.
Föndur við
Rauðhóla
SKAMMT frá Rauðhólum, utan
þéttbýlisins í höfuðborginni, er
lítil verslun í litlum kofa. Við hlið-
ina á dyrum kofans situr þreyttur
og höfuðlaus karl, úttroðinn af
heyi. Þegar fram líða stundir fær
hann skilti í hendurnar þar sem
viðskiptavinir, sem sífellt fer
fjölgandi, eru boðnir velkomnir.
Innan dyra ræður aftur á móti
ríkjum Katrín Gísladóttir en hún
opnaði verslunina sína, Föndur-
kofann, um verslunarmannahelg-
ina í sumar.
„Ég hef alltaf haft gaman af
föndri,“ segir Katrín og þegar
betur er að gáð sést að margt af
því sem er til sölu í Föndurkofan-
um eru hlutir sem hún hefur sjálf
búið til. Faðir hennar, Gísli Sig-
urðsson, hefur smíðað og málað
ýmsa hluti sem eru til sölu sem
og eiginkona hans, Inga Holdö,
sem málar á muni sem Katrín
hefur flutt inn frá Kanada. Þá
hefur eiginmaður Katrínar, Svein-
björn Guðjohnsen, smíðað ýmsa
hluti svo sem hillur, fuglahús og
hús með gati á botninum en í það
eru settir ruslapokar. Ruslapok-
arnir eru síðan dregnir út um gat-
ið eftir þörfum. Vörurnar eru flest-
ar í stíl sem kalla má amerískan
sveitastíl en hann er, að sögn
Katrínar, ættaður frá Amish fólk-
inu í Bandaríkjunum.
Við þjóðveginn
En hvernig stendur á að hún
opnaði verslun utan þéttbýlis og
við þjóðveginn?
„Eg fór í vor með manninum
mínum til Kanada en þar er mikið
um vörur af þessu tagi,“ segir
Katrín og bætir við til útskýringar
að þau hjón reki einnig sölu með
varahluti í bíla og þess vegna hafi
hann átt erindi til Kanada. „Þar
eru víða svona kofar við veginn
þar sem konur selja það sem þær
hafa verið að föndra yfir vetur-
inn.“ Það varð síðan úr að Katrín
fór að dæmi kanadísku kvenn-
anna.
Auk tilbúinna muna eru til sölu
í Föndurkofanum allir mögulegir
smáhlutir til föndurgerðar. Katrín
flytur þá sjálf inn frá Kanada auk
ýmissa föndurmuna sem fólk getur
sett saman sjálft og málað eftir
sínu höfði. Katrín býður viðskipta-
vinum sínum einnig að mála hlut-
ina fyrir þá. Þá geta viðskiptavin-
ir borið fram eigin óskir um hluti,
svo sem hillur og hús, sem Svein-
björn smíðar síðan en þau hjón eru
með ágæta smíðaaðstöðu í ná-
grenninu. „Við reynum að fram-
kvæma það sem fólki dettur í
hug. Það kom til dæmis hingað
kona sem vildi fá ósköp venjulegan
kassa og hann smíðaði Sveinbjörn
fyrir hana. Önnur kona kom með
spýtu sem hún vildi láta saga til
fyrir sig en hún hafði ekki fundið
neinn sem á bandsög." Og Katrín
er greinilega við flestu búin því
nú dregur hún undan búðarborð-
inu forláta borvél. Hún kemur oft
í góðar þarfir þegar hún hjálpar
viðskiptavinum sínum.
Föndurkofinn, sem er að Sól-
nesi við Suðurlandsveg, er opinn
frá klukkan 13 til 18 alla daga
vikunnar og upp úr næstu mán-
aðamótum verður haft opið til
klukkan 22 á miðvikudagskvöld-
um að auki.
ÚRVALIÐ í Föndurkofanum er ótrúlega mikið
þó að plássið sé ekki stórt.
Agætu íöndrarar. það er ókegpis hjá okkur.
SýnikEnnsla í
skrEytingum að
FaKafeni 14
laugardaginn. 18. aktóber kl.12-16.
Þú kemur með gamla kransinn,
körfuna eða uppáhalds blóma-
pottinn og uið hjálpum þér
að setja saman fallega
skregtingu.
Innritun í síma 5812121 og á staðnum.