Morgunblaðið - 18.10.1997, Side 60
80 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
140 den Remede sokkabuxur
Átt þú við
fótavandamál
að stríða?
Láttu
REMEDE 140
sjúkranuddsokka-
buxumar
leysa vandann.
mmhg = kvikasilfur á mm
OROBLU
6)\
..í KOLAPORTINU
islenska handverks-
og hugvitssýningin
kl. 11:00-17:00
Inngangseyrir á sýninguna er
kr. 300,- fyrir 13 ára og eldri.
thailensku
IÐIR
Opin laugardag og sunnudag
Grœnu básarnir við
Miðstrœti eru stútfullir
af nýrri thailenskri vöru
á einstöku verðí.
Laser geislarnir komnir
aftiir á verði frá kr. 4900,-
Laserpennar á kr. 7900,-
Eitt mesta úrval landsins
á Spice Girl bolum.
Úrval af sólgleraugum og
lesgleraugum frá kr. 290,-
Útskornar trévörur og
vatnabuffalóhorn frá
norður Thailandi.
Úrval af lyklakippum
fyrir safnara.
Rock bolir í miklu úrvali
Princess Diana er nu
komin á boli
Úrval T-bola í XXXL
Fótboltabolir og búningar
frá flestum enskum liðum
Glæsilegir herra pólóbotir
á einstöku verði.
Bæði stutt- og langerma
Póstkröfusími 898-3998
Kvöldsími 588-9227
SÉRSTAKUR AFSL*TTM^jÁS4Vj.
dog fyrir þó i
rHaffðu samband og íi« £««*
tryggðu þér pfáss i síma 39/ 39vV
________ NÆSTU HELGI
Opið laugardqgq og sunnudaga kl. 11-17
ffofgmiÞlaMb
- kjarni málsins!
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Rótgróið
kynjamisrétti
VIÐ vinkonurnar lásum í
Morgunblaðinu sunnudag-
inn 12. október greinina
„Næturmenningin í dags-
ljósi“. í þeirri grein ofbauð
okkur að talað væri um
þær konur sem eiga
homma að vini sem
hommahækjur. Hvemig
stendur á að um þannig
vinskap sé farið svona
niðrandi orðum? En hvað
með stráka sem eiga vin-
konur sem eru lesbíur? Eru
þeir þá ekki lesbíuhækjur.
Þama kemur fram gamla
rótgróna kynjamisréttið.
Fordómarnir í samfélaginu
gagnvart samkynhneigð-
um era nógu miklir þó að
ekki sé verið að gefa í skyn
að samkynhneigðir karl-
menn geti ekki gert grein-
armun á sönnum vinum
og þeim sem sækja í þá
einungis út af kynhneigð
þeirra. Einnig gefur grein-
in til kynna að flöldinn all-
ur af gagnkynhneigðum
konum fari bara á
skemmtistaðinn 22 til að
leita sér að hommavinum.
Með þessu er búið að
stimpla allar konur sem
sækja 22 sem homma-
hækjur. Svipað og fólk
hefur löngum velt fyrir sér
hvort maður væri samkyn-
hneigður eða tvíkyn-
hneigður þar sem maður
stundar þennan stað.
Hingað til hefur það ekki
angrað okkur en homma-
hækja er stimpill sem
fæstar konur vilja á sig fá.
Þegar öllu er á botninn
hvoift þá eigum við að
vinna að því að útrýma
fordómum en ekki ýta und-
ir þá.
Elín og Karen.
Slæm þjónusta
ÉG FÓR í verslun Þ. Þor-
grímsson í Ármúla fyrir
viku síðan. Var þar að
kaupa baðþiljur á baðið hjá
mér. Þegar ég verslaði hjá
þeim í búðinni fékk ég
mjög góða þjónustu. Ég
fékk síðan menn til að setja
þetta upp fýrir mig á bað-
ið. Þá segja þeir mér það
að það sé galli í þiljunum
á tveimur stöðum. Ég hafði
stax samband við verslun-
ina og talaði þar við yfir-
mann. Hann bað um að fá
að tala við mennina sem
vom að vinna hjá mér og
fékk hann það, þeir sögðu
honum eins og var að
þama væri galli. Hann
sýndi þeim ekkert nema
leiðindi í símanum og tal-
aði ég þá sjálfur við hann
en hann var bara með há-
vaða og leiðinda framkomu
og tók allt illa upp. Ég tel
að þetta sé mjög slæm
framkoma hjá yfirmanni
fyrirtækis að koma þannig
fram við viðskiptavini. Ég
hringdi síðan seinna í hann
aftur til að athuga hvað
hann ætlaði að gera í þessu
máli en hann skellti þá
símanum á mig. En plöt-
urnar sem ég fékk voru
þær síðustu og ekki verða
til nýjar fyrr en næsta
sending kemur og baðher-
bergið hjá mér er allt á
öðram endanum.
Hafliði Helgason.
Vantar námskeið
ER ekki einhvers staðar á
öllum þessum líkamsrækt-
arstöðvum námskeið í
gangi fyrir þá sem em 20
kg eða meira of þungir.
Það vantar meira af nám-
skeiðum fýrir okkur sem
erum of þung.
Björg Geirsdóttir.
Fyrirspurn
um matvæli
HVAR er hægt að fá stik-
ilsber eða stikilsberjasultu
og hvar get ég fengið pip-
arrót, næpur, uxahala,
medisterpylsur og reyktan
ál? Hvernig stendur á því
að sumar vömr fást aðeins
í skamman tíma og svo
þegar maður ætlar að
kaupa þær næst þá fást
þær ekki?
Sigriður Johnsen.
SKAK
Umsjön Margeir
Pétursson
SVARTUR leikur og vinnur
STAÐAN kom upp í
undanrásum Evrópu-
keppni taflfélaga nú í
haust. Finninn
Lehtivara (2.370),
Barbican, Englandi, var
með hvítt, en Frakkinn
Manuel Apicella
(2.500) hafði svart og
átti leik. Hvítur lék síð-
ast 18. Hfl-bl og taldi
sig vera að þvinga fram
jafntefli, en reyndin var
önnur:
18. - Hxa4! 19. Hxb2
- Hxal+ 20. Bfl -
Bh3 21. Hxb4 - b5 22.
Dd3 - Hxfl+ 23. Dxfl -
Bxfl 24. Kxfl - Hd8 25.
Ke2 - Kf8 og með peð
yfir og tvö samstæð frípeð
í hróksendataflinu vann
svartur örugglega.
Síðar í haust fara úrslit
í Evrópukeppni skákfélaga
fram í Khasan í Rússlandi.
Taflfélagið Hellir tryggði
sér þátttökurétt þar með
frækinni frammistöðu í
Frakklandi um daginn. Það
verða aðeins átta sveitir í
úrsiitunum, þ.á m. tvær frá
Israel og ein ensk, en sveit-
ir frá fyrmm Sovétlýðveld-
um ættu að vera sigur-
stranglegastar.
Frí á Norræna VISA
bikarmótinu I dag.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
EFTIR klúður í sögnum,
þarf sagnhafi svolitla
heppni og góða tækni til að
bjarga andlitinu. Hann er
staddur í sjö spöðum og
þarf að glíma við tvö vanda-
mál: Hið fyrra er fjarvera
trompdrottningarinnar, en
hið síðara skortur á slögum:
Norður
♦ Á82
7 K1032
♦ 4
♦ ÁG962
Vestur Austur
♦ 9 ♦ D743
7 G7 IIIIH 7 D9865
♦ D9765 111111 ♦ G102
♦ D10843 ♦ 7
Suður
♦ KG1065
7 Á4
♦ ÁK83
♦ K5
Útspil: Laufþristur.
Fýrsti slagurinn fæst á
laufníu blinds: Svo leggur
sagnhafi niður spaðaás og
lætur áttuna svífa yfir til
vesturs. Hún heldur, sem
em góðu fréttimar, en
vondu fréttimar em þær að
austur á fjórlit. Þá verður
að spila trompi öðra sinni
úr borði, sem þýðir að ekki
er hægt að trompa tígul.
Eftir tvær trompumferðir í
viðbót og laufkóng, er stað-
an þessi: Norður ♦ - 7 K1032 ♦ 4 ♦ ÁG
Vestur Austur
♦ - ♦ -
7 G7 llllll 9 D986
♦ D97 111111 ♦ G102
♦ DIO ♦ - Suður ♦ 6 7 Á4 ♦ ÁK83 ♦ -
Síðasta trompið er tekið
ogsíðan ÁK í hjarta. Vestur
neyðist til að fara niður á
tvo tígla, en síðan þvingar
laufásinn austur í rauðu lit-
unum. Tíguláttan verður
úrsiitaslagurinn.
Víkveiji skrifar...
HVENÆR halda seljendur vöru
og þjónustu eiginlega að jólin
séu? Það er engu likara en að að-
ventan sé byrjuð, ef marka má
auglýsingar kaupahéðna. Á mið-
vikudag auglýsti verzlunin Völu-
steinn-Tómstund á heilli síðu í
Morgunblaðinu: „Jólavörurnar
komnar".
Síðastliðinn sunnudag auglýsti
Hótel Loftleiðir jólahlaðborð, sem
að vísu er ekki byijað að bjóða fyrr
en 21. nóvember en hótelið sér samt
ástæðu til að óska viðskiptavinum
sínum gleðilegra jóla (hinn 12. októ-
ber!) og auglýsa undir slagorðinu
.jólaheimur út af fyrir sig“.
Það sama er uppi á teningnum
í Ikea, þar sem Víkveiji kom um
miðja vikuna, þ.e. 15. október. Þar
var þá búið að raða upp skreyttum
jólatijám skammt frá útgöngudyr-
unum undir yfirskriftinni ,jólin
koma.“
xxx
ÍKVERJI óskar þess heitt og
innilega að markaðs- og aug-
lýsingastjórarnir, sem halda greini-
lega nú um miðjan október að jólin
séu alveg að koma, kæmu þegar í
stað saman í sínum eigin .jólaheimi
út af fyrir sig“, helzt einhvers stað-
ar langt uppi á hálendinu, og leyfðu
okkur hinum að vera í friði fyrir
jólaauglýsingaglamrinu að minnsta
kosti fram að aðventu, þannig að
við verðum ekki búin að fá okkur
fullsödd af öllu jólaglingrinu þeirra
loksins þegar jólin sjálf koma.
xxx
ATVINNUÁUGLÝSING í Morg-
unblaðinu á þriðjudag segir
talsverða sögu um launakjör kenn-
ara. Einholtsskóli, sérskóli fyrir
13-16 ára unglinga, óskar eftir
kennara til starfa. I auglýsingunni
kemur fram að æskilegt sé að við-
komandi hafi tveggja ára fram-
haldsnám í sérkennslu. Því miður
sé ekki hægt að bjóða yfirvinnu eða
aukagreiðslur. Starfið er sagt mjög
kreíjandi en þó gefandi fyrir kenn-
ara, sem hafi gaman af að vinna
með unglingum. Meðal æskilegra
kosta kennarans eru góð þekking
á tölvum, gott skap, hugmynda-
auðgi og þolinmæði.
Síðan eru launin tilgreind. Ein-
holtsskóli getur boðið kennara með
B.Ed. próf, þ.e. þriggja ára háskóla-
nám að baki, 77.970 krónur á mán-
uði. Sérkennara með 14 ára starfs-
reynslu, a.m.k. fimm ára háskóla-
nám og 20 einingar í námskeiðum
að baki er hins vegar hægt að bjóða
heilar 106.759 krónur!
Miðað við að launakröfur skrif-
stofu- og afgreiðsiufólks á almenn-
um vinnumarkaði eru sagðar vera
a.m.k. 150.000 krónur nú um
stundir fyrir störf sem ekki kreíjast
háskólamenntunar, jafnvel ekki
stúdentsprófs, er ekki að furða þótt
flótti sé úr kennarastéttinni.
XXX
SLÍKUR flótti á sér reyndar stað
í fleiri löndum. Hins vegar er
athyglisvert að sjá hvernig brugðizt
er við, t.d. í Bretlandi. Þar eru laun
kennara talsvert hærri en hér. Engu
að síður hefur stofnunin, sem hefur
yfirumsjón með kennaramenntun
þar í landi, nú efnt til auglýsinga-
herferðar, sem kosta mun 10 millj-
ónir punda, eða milljarð íslenzkra
króna, til að laða ungt fólk að kenn-
araháskólunum. Frægt fólk á borð
við Tony Blair forsætisráðherra,
poppstjörnuna Skin og fræði- og
sjónvarpsmanninn Sir David Atten-
borough mun koma fram í auglýs-
ingum og tala um uppáhaldskenn-
arann sinn og hvað það skipti miklu
máli að hafa góða kennara. Eru
íslenzk menntamálayfirvöld opin
fyrir hugmyndum af þessu tagi?