Morgunblaðið - 18.10.1997, Side 66
66 LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
r
Leikritið Gailerí Njála
BRETARNIR Simon Ratcliff og Fel-
ix Buxton hafa vakið athygli síðustu
' tvö árin undir nafninu Basement
Jaxx. Þeir kumpánar semja tónlist,
‘ þeyta skífum, endurhljóðblanda lög
; annarra og reka hljómplötuútgáfuna
. Atlantic Jaxx. Landsmenn þekkja þá
líklegast best fyrir lögin Samba Mag-
ic, sem náð hefur vinsældum hér ári
eftir að það vakti athygli erlendis og
Flylife. Liðsmenn Basement Jaxx eru
nýkomnir til landsins og hyggjast
þeyta skífum á skemmtistaðnum
Tunglinu í kvöld. Blaðamaður hitti þá
yfir málsverði og eftir hefðbundnar
umræður um Björk og Bláa lónið
spurði hann þá út í „four deck mbdng“
og annað sem honum þótti áhugavert.
Hvað er Basement Jaxx?
Simon: Við erum fyrst og fremst
framleiðendur, (producers) eða í
raun framleiðendur sem þeyta skif-
um og langar til að vera tónlistar-
menn, við erum núna að vinna að
fyrstu breiðskífu okkar hjá XL
Records og eftir u.þ.b. mánuð kemur
út safnplata frá Atlantic Jaxx þar
sem gefin verða út okkar bestu lög
hingað til.
Notið þið Atlantic Jaxx fyrir
Basement Jaxx eða gefið þið út aðra
listamenn?
Felix: Nei, við höfum einnig gefið
út Ronnie Richards og Belo
Horizonti með The Heartists og
nýlega gerðum við samning við
reggaesöngvara sem kemur
hvergi nálægt house tónlist en
svo höfum við aftur á móti
endurhljóðblandað hann með
klúbbaspilun í huga, annars
erum við svo til hættir að
endurhljóðblanda tónlist
fyrir aðra, viljum frekar
einbeita okkur að eigin
tóniist, sérstaklega núna
þegar við þurfum að ein-
beita okkur að plötunni.
Símon: Það þýðir ekki
að vera að endurhljóð-
blanda tónlist hugsaða
fyrir dansstaði þar sem
allt þarf að vera kraft-
mikið og hratt og
reyna líka að vera að
semja sína eigin tón-
list því hugsunin í danstón-
listinni smitast yfir í það sem maður
sjálfur er að gera, maður missir ein-
beitinguna. Við viljum ii-ekar einbeita
okkur að plötunni og sjá hvað við
komumst langt með tónlistina.
Hvað er „four deck mixing"?
Felix: Við vitum það varla sjálfir,
við munum komast að því á laugar-
daginn, það er í raun bara við tveir,
hvor með sitt plötuspilaraparið að
þeyta skífum.
Skapast engin spenna eða sam-
keppni á milli ykkar þegar þið eruð
báðir að þeyta skífum í einu?
Simon: (brosir) Nei, við spilum fyr-
ir áheyrendur en ekki á móti hvor
öðrum, trúum á það að ná markmið-
um okkar með friðsamlegum hætti.
Felix: Við erum á sömu bylgju-
lengd svo við hjálpumst að og byggj-
um upp spennu saman, ég tek stund-
um upp míkrafón en það er þó enginn
meginþáttur í framkomu okkar, í
framtíðinni munum við færa þetta yf-
ir í tónleikahald, verðum með áslátt-
arleikara, sambasöngkonur og sitt-
hvað fleira. Við höfum ekki enn hald-
ið tónleika ; og höfum í raun ekki
ákveðið endanlega hvemig það verð-
ur, en það verður næsta skrefið hjá
okkur, að sjá hvort við stöndumst
samanburð við rokkhljómsveitimar.
Ætlið þið að skoða næturlífið hér
um helgina?
Felix: Já, við verðum auðvitað á
Tunglinu á laugardaginn og ætlum
svo að skoða okkur um í
Reykjavík.
Utvarpsþáttur í
einu hlutverki
STEFAN
Sturla Sigurjónsson
leikur rútubílstjórann og listamanninn
sem hlustar á útvarpsþáttinn
ásamt áhorfendum.
LEIKSÝNINGIN Gallerí Njála er í
fullum undirbúningi fyrir frumsýn-
inguna sem verður í byrjun
nóvember í Borgarleikhús-
inu. í vikunni var leikinn út-
varpsþátturinn í vikulokin
þar sem þjóðkunnir einstak-
lingar voru í aðalhlutverki. Það
vom borgarstjórinn í Reykja-
vík; Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, Arni Þórarinsson rithöfundur,
Arni Johnsen alþingismaður og
Kolfinna Baldvinsdóttir sagn-
fræðingur sem voru gestir þáttar-
ins að þessu sinni. Útvarpsþáttur-
inn var tekinn upp í Útvarpshúsinu
og stjórnandi hans var að venju
Þröstur Haraldsson. „Eg er með
handrit og er bara viljalaust verk-
færi í höndunum á þeim. Þetta er
bara smábrot úr þætti,“ sagði
Þröstur sem í venjulegum þætti
hefur annars konar og eigið handrit
sér við hlið.
Að sögn Hlínar Agnarsdóttur,
leikstjóra og höfundar verksins, er
útvarpsþátturinn aðeins eitt atriði
af þeim tólf sem leikritið byggist á.
„Eitt atriðið heitir „í vikulokin" og
er útvarpsþátturinn í vikulokin á
rás 1. Þá leikur útvarpið aðalhlut-
verkið og leikarinn verður hlustandi
eins og áhorfendur. Við erum hérna
af því að við viljum að þetta hljómi
ósvikið. Þröstur Haraldsson er með
þáttinn í vikulokin og stjórnar hon-
um líka fyi-ir okkur. Þetta er ákveð-
ið stílbragð sem maður getur beitt
með því að taka þetta inn sem ann-
an miðil á leiksviðið,“ sagði Hlín um
uppátækið. Að hennar sögn var leit-
að eftir því að fá þekktar raddir til
að taka þátt í þættinum svo leikhús-
gestir þekktu raddirnar sem eru að
ræða þetta ákveðna mál sem snertir
mjög mikið líf aðalper-
sónunnar.
„Það er bara gamall
draumur að rætast,"
sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri
um hlutverk sitt í leikritinu. „Það er
spurning hvort ég er ekki fullgömul
til að skipta algerlega um ævistarf.
Það er ýmislegt líkt með stjórnmál-
um og leiklistinni því menn eru
alltaf að hluta til að sviðsetja.“
Borgarstjórinn sagðist ekki vera
vanur því að fara eftir handritum í
útvarpsþáttum og því síður að lesa
texta sem ekki væri frumsaminn.
Ingibjörg Sólrún þvertók fyrir að
vera taugaóstyrk enda væri ekki
um frumraun hennar að ræða. „Eg
hef bæði verið í þættinum áður og
svo hef ég náttúrlega leikið," sagði
borgarstjórinn rétt fyrir upptök-
una.
Stefán Sturla Sigurjónsson og
Sigrún Gylfason leika aðalhlutverk-
in í leikritinu en auk þeirra lánuðu
Gunnar Eyjólfsson og Kristbjörg
Kjeld raddir sínar í leiksýninguna
og lásu nokkrar dramatískar setn-
ingar úr Njálu. Stefán Sturla átti
upphaflegu hugmyndina að ieikrit-
inu og var því beðinn um að útskýra
hlutverk útvai'psþáttarins í verkinu.
„Það er ekkert útvarpstæki á svið-
inu en þetta berst til eyrna eins og
úr úrvarpstæki. Útvarpið er bara
einn af miðlunum sem nútímamað-
urinn elst upp við og er bara ein af
tilviljunum sem raðast
upp og í lok verkins
kemur svo niðurstaða.
Við lögðum upp með það
í byrjun að reyna að láta
listformin, hvernig sem
þau era: leikhús, tónlist, myndlist
eða útvarp, mynda eina heild. Það
væri því ekki endilega leikhúsið sem
leiddi áfram heldur myndaði þetta
eina skemmtilega heild. Með þetta
lögðum við Hlín af stað fyrir tveim-
ur árum. Hún hló nú að mér þegar
ég bað hana fyrst að vinna þetta
verk. Að búa til fámenna sýningu
sem væri unnin upp úr Njálu!“
Gamall
draumur
borgarstjóra
Útsölustaðir:
Clara Kringlu — Slgurboginn Laugavegi — Oculus Austurstræti — Holts Apótek — Vesturbæjar Apótek — Gullbrá Nóatúni -
Apótek Kópavogs — Apótek Garðabæjar — Andorra Hafnarfirði — Apótek Keflavíkur — Bjarg Akranesi — Apótek Borgarness -
Krisma (safirði — Amaró Akureyri — Hilma Húsavík — Hafnar Apótek Hornafirði — Snyrtihúsið Selfossi — Apótek Grindavíkur.
Morgunblaðið/Kristinn
ÚTVARPSÞÁTTURINN tekinn upp. Borgarstjór-
inn, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáttastjórnandinn
Þröstur Haraldsson, Kolfinna Baldvinsdóttir, Árni
Þórarinsson og leikstjórinn Hlín Agnarsdóttir.
% afsláttur!!
ára afmœli!!
í tilefniaf ára afmœliGullhallarinnar
18. október nmnuni við veita
■siJ% afslátt
'lépiit* ÍHtikkfo t/ttrtt
af öllurn vörum
Notit) tœkifœrið og ventlið jálagjafirnar snernrna.
<8*tt
Laueavegi 49
Simi: 551 7742 ng 561 7740
Basement Jaxx í Tunglinu
Kraftmikil og
hröð tónlist