Morgunblaðið - 21.10.1997, Síða 1

Morgunblaðið - 21.10.1997, Síða 1
100 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 239. TBL. 85. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Gordon Brown reynir að eyða óvissu um EMU-stefnu Stjórnin gagnrýnd fyrir hringlanda Reuters Krefjast svara í Alsír ÖRYGGISSVEITIR hafa hert að- gerðir gegn skæruliðum í Alsír en sveitarstjórnarkosningar hefj- ast þar á fimmtudag. Um helgina myrtu félagar í herskáum sam- tökum heittrúarmanna 21 óbreyttan borgara en öryggis- sveitir skutu 12 skæruliða í fyrir- sát í kjölfarið. Um 65.000 manns hafa látið líf- ið í ofbeldisöldunni sem gengið hefur yfir Alsír frá því að eftir að stjórnvöld aflýstu kosningum ár- ið 1992 af ótta við stórsigur heit- trúarmanna. í gær leysti lög- regla upp mótmælagöngu fólks sem krafðist upplýsinga um af- drif ættingja sem horfið hafa sporlaust. Saka mannréttinda- samtök stjórnvöld um að standa að baki mannshvörfunum. Þessi kona hélt uppi mynd ættingja sem ekkert hefur spurst til í nokkur ár. Lundúnum. Reuters. GORDON Brown, fjármálaráð- herra Bretlands, gaf í gær í skyn að ekkert yrði af aðild Bretlands að Efnahags- og myntbandalagi Evr- ópu, EMU, í bráð, en orðrómur hafði á síðustu vikum gefið tilefni til að ætla að ríkisstjórn Verkamanna- flokksins hygðist stefna að EMU- aðild litlu síðar en því verður hleypt af stokkunum. Brown sagði að snemmbúin EMU-aðild landsins væri mjög ólíkleg og áður en af henni gæti orðið yrði Bretland að njóta nokkurra ára stöðugleika- tímabils. Fjármálamarkaðirnir brugðust hart við þessum orðum ráðherrans og sérfræðingar í fjármálaheimin- um gagnrýndu Brown fyrir hringl- andahátt með stefnu stjómvalda í viðkyæmu og mikilvægu málefni. „Eg hef ítrekað sagt að mjög ólíklegt sé að Bretland verði með frá upphafi,“ sagði Brown í ræðu sem hann hélt yfir kauphallar- starfsmönnum í Lundúnum, þar sem hann kynnti nýtt kauphallar- viðskiptakerfi. „Ef við gerumst ekki aðilar 1999 þarf Bretland á stöðugleikatímabili án spákaupmennsku [með brezka pundið] að halda, á meðan Bretland reynir að standast efnahagsprófin fimm sem ég hef lagt drög að,“ sagði Brown. Við þessi orð ráðherrans tók vísi- tala brezka verðbréfamarkaðarins djúpa dýfu. Vísitalan hafði hækkað á síðustu vikum vegna orðróms um að ríkisstjórn Tonys Blairs hygðist koma Bretlandi í EMU mjög fljót- lega eftir 1999. „Stöndum ekki í veginum" Tony Blair forsætisráðherra tjáði Helmut Kohl, kanzlara Þýzkalands, í gær að hvað svo sem Bretar ákvæðu að gera varðandi þátttöku í EMU, væri það ekki ætlun þeirra að standa á nokkum hátt í veginum fyrir því að aðrar Evrópuþjóðir taki sig saman og láti verða af mynt- bandalaginu áður en Bretar telja þátttöku tímabæra. Blair fullvissaði Kohl um þetta í framhaldi af gagnrýninni sem stjórn hans hefur orðið fyrir vegna óvissunnar um EMU-stefnuna. ■ Snemmbúin aðild/22 Alþjóðahvalveiðiráð Varað við innbyrðis átökum Mónakó. Reuters. RAINIER fursti af Mónakó gagn- rýndi aðildarríki Alþjóðahvalveiði- ráðsins (IWC) fyrir innbyrðis átök er hann setti 49. ársfund ráðsins í gær og sagði ágreining þeirra geta leitt til þess að samtökin splundrist. Sjálfur sagðist furstinn andvígur hvalveiðum og sagði, að Mónakó myndi um alla ókomna framtíð leggjast gegn hvalveiðum í atvinnuskyni. Ágreiningur er í ráðinu um hvort aflétta eigi hvalveiðibanni frá 1982 eða festa það í sessi til framtíðar. Japanir og Norðmenn vilja aflétta banninu á hvalategundum á borð við hrefnu sem mælingar benda til að sé gnótt af. Langflest hinna að- ildarríkjanna 39 eru andvíg hval- veiðum í atvinnuskyni og er talið að hatrammar deilur muni verða um þær á ársfundinum. Irar hafa nú freistað þess að rjúfa sjálfhelduna og lagt fram málamiðlunartillögu sem gengur út á að takmarkaðar strandveiðar verði leyfðar til innanlandsneyslu gegn því að veiðar á úthöfunum verði bannaðar og einnig vísinda- veiðar. Búist er við að tillaga Ira lífgi upp á umræðurnar en fæstir gera ráð fyrir að hún nái fram að ganga. Irar eru taldir hafa ríki Evrópu- sambandsins (ESB) á bak við sig og Norðmenn og Bretar hafa lýst stuðningi við markmið tillögunnar en með ýmsum fyrirvörum þó. Á óvart hefur komið að alþjóð- legu nátturuverndarsamtökin World Wildlife Fund hafa lýst stuðningi við írsku tillöguna. Telja þau það einu leiðina til þess að end- urreisa tiltrú hvalveiðiráðsins. Reuters Krefjast afsagnar forsætisráðherra Bangkok. Reuters. A verði í Brazza- ville ÁSTANDIÐ í Brazzaville, höfuð- borg Kongó, er sagt vera að færast í eðlilegt horf eftir fimm mánaða bldðug átök. Enn ganga menn þó um ruplandi og ræn- andi og á það ekki síst við um liðsmenn Cobra-sveita Denis Sassous Nguessos, sem kom Pascal Lissouba frá völdum í síðustu viku. Hefur valdataka hans dregist þess vegna. Þessir Cobra-menn héldu uppi eftirliti í miðri höfuðborginni í gær. ■ Lissouba fiúinn/23 ÞUSUNDIR manna gengu í gær um götur höfuðborgar Tælands og kröfðust afsagnar forsætisráðherr- ans, Chavalit Yongchaiyudh, sem þeir segja að hafi mistekist að leysa efnahagsvanda landsins. Þá hefur þrýstingur aukist mjög á hann að stokka þegar upp í ríkisstjórninni en fjármálaráðherra Tælands, Thanong Bidaya, sagði af sér í gær. Chavalit vildi ekki tjá sig um kröfur mótmælenda en sat á daglöngum, lokuðum fundi með ráðgjöfum sínum. Hann hét upp- stokkun á ríkisstjórninni í síðasta mánuði er vantrauststillaga á hana var felld. Hins vegar hefur sú upp- stokkun dregist og gætir mikillar óvissu um hana. Hennar gætti ekki síst á fjármálamörkuðum þar sem hlutabréf féllu um þrjú prósentu- stig í gær. Baht, gjaldmiðill Tælands, hefur fallið um 40% frá því í júlíbyrjun. Mótmælendur voru flestir úr hópi mennta- og kaupsýslumanna. Talsmaður hersins hét því að ekki yrðu höfð afskipti af kröfugöngun- um en herinn hefur staðið fyrir 17 valdaránum og valdaránstilraunum frá því að einveldi var afnumið í Tælandi. Mið-Austurlönd Ross orðvar Ramallah á Vesturbakkanum. Reuters. DENNIS Ross, sáttafulltrúi Banda- ríkjanna í Mið-Austurlöndum, var orðvar að loknum fundi ísraelskra og palestínskra embættismanna í gær og sagði að meta þyrfti árangur frið- arumleitana fyrir botni Miðjarðar- hafs í athöfnum, ekki aðeins í orðum. Ross hafði milligöngu um fund Davids Levys, utanríkisráðherra ísraels, og Mahmouds Abbas, aðal- samningamanns Frelsissamtaka Pal- estínu (PLO), og var það þáttur í til- raunum til að flýta störfum nefnda sem báðir aðilar eiga sæti í og fjalla um atriði sem enn er ágreiningur um frá bráðabirgðasamkomulaginu er gert var 1995. Hafa Palestínumenn kvartað und- an því að ekkert hafi áunnist á nefndafundum undanfarinn hálfan mánuð. Israelar fullyrða hins vegar að á fundum nefndanna hafi náðst „umtalsverður árangur". -------------- Rafbylgju- held föt Tókýó. Reuters. JAPANSKIR fataframleiðendur eru nú að leggja síðustu hönd á fatnað sem á að veija menn fyrir rafsegulbylgjum sem tölvur, far- símar og sjónvörp senda frá sér. Efasemdarmenn telja hins vegar að fötin komi að Iitiu gagni þar sem höfuðið sé óvarið. Fötin endurspegla auknar áhyggjur manua af áhrifum raf- segulbylgna á líkamann. Að sjá eru þau eins og hver önnur jakka- fót og dragtir en í efnið er ofinn örmjór silfurhúðaður nælonþráður sem á að endurvarpa allt að 99% bylgnanna sem margir telja skað- legar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.