Morgunblaðið - 21.10.1997, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 55
'iFicW ★★★
AS MBL OHT Rás2 OJ Bylgjar
MY BEST FRIEND’S
BRÚÐKAUP besta vinar míns
velkomnir
wmmmmmmm
VERSLANIRNAR 10-11 voru með tvö lið í keppninni.
ALVORU BIO! anpolby
STAFRÆNT
HLJÓÐKERFI í
ÖLLUM SÖLUM!
ST/FRKTfl T Iflinm MRJ
Tuker
1 HX
DIGITAI.
Samuel L,
Jackson*
T\\boö
mk
M. 300
Sýnd kl. 5 og
ARNAR Unnarsson, fyrirliði Morgunblaðsins, hampar verðlaunabikarnum. Við hlið hans
eru Ingi Gíslason, Jón Kristján Ólason, Vignir Arason, Pétur Blöndal og ívar Páll Jónsson.
►HIÐ ÁRLEGA knatt-
spyrnumót SÁÁ, „Fótbolti
gegn fíkniefnum", var hald-
ið á gervigrasvellinum í
Laugardal um helgina. Tíu
lið tóku þátt í keppninni og
bar Morgunblaðið sigur úr
býtum. Sigraði það lið Navis
í úrslitaleik með níu mörk-
um gegn einu. Lið lögfræð-
inga hafnaði í þriðja sæti
eftir sigur á Tæknivali.
Þetta er í þriðja skipti
sem mótið er haldið og renn-
ur ágóðinn til knattspyrnu-
félags SÁÁ. Það vann ut-
andeildakeppnina fyrir
þremur árum og liefur
keppt í fjórðu deildinni und-
anfarin tvö sumur með
ágætum árangri. Helsta
markmið félagsins er að
skapa verkefni fyrir yngri
strákana í SÁÁ sem geta
verið þeim stökkpallur inn í
heilbrigða lifnaðarhætti.
Þess má geta að um síðustu
helgi hélt SÁÁ upp á 20 ára
afmæli félagsins.
Morgunblaðið/Ásdís
LIÐIN sem höfnuðu í þremur efstu sætunum. í aftari röð til vinstri er lið Navis, til hægri er lið lögfræðinga og lið Morgunblaðsins er í fremstu röð.
Fótboltí gegn fíkniefnum
► SPENNUMYNDIN „Kiss the
Girls“ var frumsýnd í Bandaríkj-
unum 3. október, það er að segja
alls staðar nema í Virginíú-fylki.
Framleiðendur myndarinnar,
Paramount, og stjórnendur RC-
kvikmyndaliúsakeðjunnar, sem
sýna myndina á austurströndinni,
hafa ákveðið að virða athuga-
semdir frá almenningi í Virginíu
■seni-fórfram að það að myiulin ,
Skáldskapur og raunveruleiki
yrði ekki sýnd þar. Hvers vegna
spyr fólk?
„Kiss the Girls“ fjallar um
sakamálahöfundinn Alex Cross
(Morgan Feeman) sem fer að
rannsaka röð morða á ungum
stúlkum betrar frænka hans
hverfur frá háskóla i Norður-Kar-
ólínu. íbúar í Spotsylvania County
í Virginíu vildu ekki fá kvikmynd-
ina í bíó nálægt sér vegna þess að
þijár stúlkur á aldrinum 12-16
hurfu frá heimilum sínum í
Spotsylvaniu í maí síðastliðinn.
Lík þeirra fundust síðar á víða-
vangi.
„Kiss the Girls“ er byggð á
metsölubók James Patterson en
hann fékk hugmyndina að sög-
unni þegar hann sá auglýst eftir
fjdrum ungum konum í Chapel
Hill í Norður-Karólínu, sem er að-
setur háskóia fylkisins. „Kiss the
Girls“ er ekki fyrsta myndin sem
fær að vfkja úr kvikmyndahúsum
á þessu ári vegna þess að atburða-
rásin minnir á raunverulega at-
burði. Dreifingu á hryllingsmynd-
inni „Scream" var frestað í Japan
vegna morðmáls sem tengdist
ungu fólki og vakti mikinn óhug
meðal almennings.