Morgunblaðið - 21.10.1997, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997
MORGUNELAÐIÐ
FRÉTTIR
Framkvæmdir vegna 200 kílóvolta Búrfellslínu hafnar á Hengilssvæðinu
Línuvegnr
liggur um
hverasvæði
Landsvirlqun er að láta leggja veg á Heng-
ilssvæðinu vegna Búrfellslínu. Þessa dagana
eru þungavinnuvélar á vegum Landsvirkjun-
ar að ryðja slóða, sem liggur m.a. í gegnum
hverasvæðið á Ölkelduhálsi. Pétur Gunn-
arsson kynnti sér málið.
Vegargerðin byggist á
samþykki sem gefið var
með skipulagi frá árinu
1991, áður en lög um
mat á umhverfisáhrifum tóku
gildi árið 1993. Samkvæmt skipu-
laginu var Landsvirkjun heimiít
að leggja 220 kílóvolta lína milli
Búrfellsvirkjunar og Reykjavíkur.
Landsvirkjun sótti síðan nýlega
um að fá að leggja 400 kV línu
í stað 220 kV línu á þessari leið.
Umhverfisráðherra kvað upp
þann úrskurð nýlega að skylt
væri að láta fara fram mat á
umhverfisáhrifum áður en sam-
þykki fengist fyrir lagningu 400
kV línu.
Meðal þeirra aðila sem mót-
mælt hafa því að Landsvirkjun
hefjist handa við framkvæmdir
áður en niðurstaða mats á um-
hverfisáhrifum liggur fyrir eru
Náttúruverndarsamtök íslands.
Að sögn Þorsteins Hilmarssonar,
upplýsingafulltrúa Landsvirkjun-
ar, getur mat á umhverfisáhrifum
vegna 400 kV línu hins vegar
ekki hnekkt leyfi Landsvirkjunar
til þess að leggja 220 kV línuna
á sama stað.
Hið sama hefur komið fram hjá
Magnúsi Jóhannessyni, ráðuneyt-
isstjóra í umhverfisráðuneyti.
„Þær framkvæmdir sem búið var
að veita leyfi fyrir áður en lögin
um mat á umhverfisáhrifum tóku
gildi eru ekki matsskyldar. Það
er því þarna ótvírætt leyfi fyrir
220 kV línu en það er ekki leyfi
fyrir 400 kV línu án þess að hún
fari í mat á umhverfisáhrifum,"
var haft eftir Magnúsi í Morgun-
blaðinu 9. þessa mánaðar.
Hverasvæði á borð við
Námaskarð og Krýsuvík
Árni B. Stefánsson, augnlækn-
ir í'Reykjavík, ér einn þéirra-sem
mótmælt hefur vegargérðinni.
Hann hefur m.a. sent umhverfis-
ráðherra kæru vegna fram-
kvæmdanna og hyggst ganga á
fund iðnaðarráðherra og um-
hverfisráðherra vegna þeirra.
Mótmælin beinast að lagningu
línunnar á 20 km kafla frá Búr-
felli í Grímsnesi að Orrustuhól á
Hellisheiði en einkum og sér í
lagi að 5 km svæði milli Kyllis-
fells í Grafningi og Orrustuhóls á
Hellisheiði. Þar fer línan í gegnum
hverasvæðið við Ölkelduháls, auk
þess sem Árni segir línuna mun
bera við himin á kafla frá Hellis-
heiði.
Árni B. Stefánsson fer hörðum
orðum um vinnubrögð Lands-
virkjunar: „Landsvirkjun er að
fara inn í þessa framkvæmd á
vægast sagt hæpnum forsendum
og ætlar að keyra málið í gegn
út á það að þeir fái síðan leyfi
fyrir miklu stærri línu. Það er
ekki raunhæft að byggja 220 kíló-
volta línu. Þannig að ef þeir fá
ekki leyfi fyrir 400 kV línunni eru
þeir að fara djúpt ofan í vasa
skattborgaranna með vafasamar
framkvæmdir. Þeir ætla að ryðja
sér þarna braut með offorsi til
þess að vera komnir svo langt að
ekki verði aftur snúið þegar loks-
ins eitthvað verður gert í málinu.
Hofuðverk Gunnars Gunnarssonar
Fjallkirkjan
Sagnabálkurinn um
Ugga Greipsson er eitt af
meistaraverkum íslenskra
nútímabókmennta.
Þetta er ný útgáfa í sígildri
þýðingu Halldórs Laxness,
prýdd myndum eftir
Gunnar Gunnarsson yngri.
iMllSHL
muAmmmm
MN 09 mennlng
Laugavegi 18 • Sfmi 515 2500 • Síöumúla 7 * Sími 510 2500
Ljósmynd/Árni B. Stefánsson
JARÐÝTA ryður vegarslóða á hverasvæðinu í Ölkelduhálsi. Árni B. Stefánsson tók myndina á föstu-
dag en nú er unnið að framkvæmdum á svæðinu milli Ölkelduhnjúks og Álftatjarnar.
Þetta eru mjög sérkennileg vinnu-
brögð.“
Arni segir að þarna eigi að
leggja línuveg yfir hverasvæði
sem standist samanburð við
hverasvæðin í Námaskarði og
Krýsuvík. Þarna sé vinsælt úti-
vistarsvæði með stikuðum göngu-
leiðum fyrir almenning.
Þá bendir hann á að raforka sé
flutt til borgarinnar með fjórum
stórum línum sem liggja sunnan
Hveragerðis og yfir Hellisheiði og
segist telja að nær hefði verið að
láta Búrfellslínu fylgja þeirri leið.
Samráð við umhverfis- og
iðnaðarráðuneyti
Þorsteinn Hilmarsson segir að
um leið og úrskurður um að um-
hverfisáhrif 400 kV línunnar
skyldu metin lá fyrir nýlega hafi
stjórn Landsvirkjunar samþykkt
að freista þess að fá samþykki
fyrir 400 kV línunni og jafnframt
að halda opnum öllum möguleikum
til að byggja þá 220 kV línu sem
samþykki er fyrir. „Við þurfum
að hafa línu á þessari leið næsta
haust til að tryggja viðunandi ör-
yggi í raforkuflytningi til suð-
vesturhornsins," segir Þorsteinn.
Hann segir að samráð hafi verið
haft við iðnaðar- og umhverfis-
ráðuneyti áður en framkvæmdir
við slóðann hófust.
400 kV lína hefur nær fjórfalda
flutningsgetu á við 220 kV línu
og Þorsteinn segir nú ljóst að
smærri línan verði fullnýtt fljót-
Iega eftir að hún verður tekin í
notkun vegna nýrra stóriðjufram-
kvæmda. Til þess að geta fullnægt
eftirspurn umfram þau verkefni,
sem nú liggja á borðinu, þurfi því
að auka flutningsgetuna.
Ekki óskaleið
Landsvirkj unar
Þorsteinn segir að línuleiðin,
sem samþykkt var fyrir 220 kV
og er nú til umfjöllunar varðandi
400 kV línu, sé ekki sú sem Lands-
virkjun hefði helst kosið.
„Línan átti að liggja nálægt
Hveragerði; um háls norðan í Ing-
ólfsfjalli og síðan austan og norðan
við Hveragerði og þar upp í Hellis-
heiðina. Það komu fram andmæli
heimamanna og landeigenda, sem
töldu þetta þrengja óeðlilega að
Hveragerði því það eru háspennu-
línur sunnan við þjóðveginn líka.
Náttúruvemdarráð taldi línuna
bera við himin og vera of áber-
andi. Þannig að það er niðurstaða
skipulagsvinnunnar á sínum tíma
að finna þessa lausn og færa lín-
una norðar inn á Hengilssvæðið.“
Þorsteinn sagði að ekki hefði verið
talið að heimamenn felldú sig við
að byggja upp línuna sunnan við
þjóðveginn, líkt og Árni B. Stef-
ánsson ræðir um.
Þorsteinn segir að samkvæmt
skipulagi sé gert ráð fyrir því að
orka jarðhitasvæðisins á Ölkeldu-
hálsi verði nýtt í framtíðinni auk
þess sem gert er ráð fyrir útivist
á svæðinu. Öll þau sveitarfélög
sem Búrfellslína liggur um hafa
veitt samþykki sitt. Hann segir
samninga við landeigendur vel á
veg komna en ljóst sé að á ein-
hveijum stöðum þurfi að taka land
eignarnámi. Ekki er fullljóst hver
er eigandi hverasvæðisins á Öl-
kelduhálsi. Það svæði telja bæði
Hitaveita Reykjavíkur og ríkis-
sjóður sér til eignar.
Nýtt bókhaldskerfi tekið upp hjá Reykjavíkurborg
Bókhaldið til sjö
borgarstofnana
SAMKVÆMT samþykkt borgar-
ráðs og borgarstjórnar hafa sjö
borgarstofnanir tekið yfir eigið
bókhald, vistun skjala og eftirlit
með_ greiðslum. Að sögn Óskars
G. Óskarssonar borgarbókara er
markmiðið að flýta fyrir og bæta
upplýsingagjöf en allt eftirlit fer
nú frám hjá stofnunum sem sjá
um eigin íjárveitingar. Þær stofn-
anir, sem um er að ræða, eru
FræðslumiðstÖðin, íþróttá- og
tómstundaráð, Félagsmálastofnun,
Dagvist barna, embætti borgarg-
verkfræðings, Ráðhúsið og Vatns-
veitan.
Óskar sagði að bókhaldskerfið
væri frá árinu 1971 og þætti bams
síns tíma og að eftir úttekt sem
gerð var á rekstri borgarinnar þeg-
ar Reykjavíkurlistinn tók við hafi
fljótlega verið ákveðið samkvæmt
ábendingu endurskoðenda að taka
upp nýtt kerfi. „Það var búið að
margtala um að þetta gengi ekki
lengur. Bókhaldið yrði að fara út
í stofnanirnar til að auka upplýs-
ingahraðann," sagði hann. „Állar
stofnanir eru áhugasamir um að
fá bókhaldið til sín þannig að öll
skráning fari þar fram ásamt vist-
un skjala og eftirliti. Það hefur
verið stefnan að færa störfin út
enda býður nýja tölvuöldin upp á
það.“
Breytingar í mótun
Óskar sagði að þessar breyting-
ar væru í mótun og erfitt að segja
til um hver kostnaðurinn yrði. All-
ar breytingar væru kostnaðarsam-
ar hvort sem væri vinnuafl eða ný
tæki. Sagði hann að eitthvað væri
að vísu um tilflutning í starfi og
að fjórir fyrrum starfsmenn bók-
haldsdeildarinnar í Ráðhúsinu
væru komnir til starfa hjá stofnun-
um enda hefði dregið verulega úr
álagi í Ráðhúsinu. „Þetta er að
mótast og ég þori ekki á þessari
stundu að segja til um hvort breyt-
ingin mun hafa í för með sér auk-
inn kostnað, aukastörf eða sparn-
að,“ sagði hann. „Þetta er ákvörð-
un sem var tekin og segja má að
þarna sé farin sú leið að ná í betra
upplýsingakerfi þó að það kosti
kannski meira.“
Eftir sem áður mun bókhalds-
deildin í Ráðhúsinu sjá um bókhald
annarra minni stofnana svo sem í
menningarmálum, fyrir slökkvilið-
ið o.fl. auk þess sem deildin mun
halda utan um nýja kerfið, gefa
út ársreikninga og aðrar upplýs-
ingar.