Morgunblaðið - 21.10.1997, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997
23
Nýr innanríkis-
ráðherra
í Danmörku
Kaupmannahöfn. Morgunbladið.
TORKILD Simonsen borgarstjóri
Árósa var í gær útnefndur innan-
ríkisráðherra Dana. Birte Weiss,
sem verið hefur innanrikis- og
heilbrigðisráðherra, mun að eigin
ósk láta af störfum innanríkisráð-
herra, en verður áfram heilbrigð-
isráðherra. Poul Nyrup Rasmuss-
en forsætisráðherra tilkynnti um
breytinguna í gær, sem sam-
stundis tók gildi. Ráðstöfunin er
talin marka aðhaldssamari stefnu
í málefnum útlendinga.
í Árósum eru einstök hverfi
með háu hlutfalli innílytjenda og
atvinnuleysingja og Simonsen
hefur margsinnis hvatt stjórnina
til að takmarka aðflutning útlend-
inga og freista þess að dreifa
þeim víðar en nú er. Simonsen
er jafnaðarmaður og hefur verið
firna vinsæll sem borgarstjóri, en
búist var við að hann færi að
draga sig í hlé frá stjórnmálum
eftir langan feril.
Samkvæmt skoðanakönnunum
undanfarið hefur Danski þjóðar-
flokkurinn rakað til sín fylgi, ekki
síst frá Jafnaðarmannaflokknum.
Þjóðarflokkurinn hefur nú fjóra
þingmenn, en ef skoðanakannanir
gengju eftir fengi hann 21 og
yrði fjórði stærsti flokkurinn. Það
eru þessar hræringar, sem Nyrup
Rasmussen ætlar vísast að
stemma stigu við með tilnefningu
hins vinsæla og aðhaldssama
Simonsens.
D/ELUR
SKEIFUNNI 3E-F
SÍMI 581 2333 ■ FAX 568 0215
lilLEÍMT
Astandið í Brazzaville sagt vera að færast í eðlilegt horf
Lissouba flúinn til
Burkina Faso
París, Kinshasa, Ouagadougou. Reuters.
PASCAL Lissouba forseti Kongó,
sem beið ósigur fyrir uppreisnar-
sveitum Denis Sassou Nguessos
í síðustu viku, er flúinn til Burk-
ina Faso, að sögn blaðsins Obser-
verteur Paalga. Af opinberri hálfu
hefur ekki verið staðfest að Lisso-
uba hafi sótt um hæli í Ouagado-
ugou en blaðið bar fyrir sig ónafn-
greinda háttsetta embættismenn
og sagði að fjöldi fólks hefði ver-
ið í fylgdarliði Lissouba.
Jacques Rummelhardt, tals-
maður franska utanríkisráðu-
neytisins, sagði í gær, að ástand-
ið væri að færast í eðlilegt horf
í kongósku höfuðborginni,
Brazzaville, og einnig í olíuborg-
inni Pointe Noire. Á báðum stöð-
um gengu sveitir uppreisnar-
manna rænandi og ruplandi um
götur og tóku angólskar sveitir,
sem komu til hjálpar sveitum
Sassous, virkan þátt í því í Pointe
Noire.
Fólk sem flúði um helgina frá
Brazzaville til Kinshasa, handan
Kongóárinnar, skýrði frá mikils-
háttar ránsferðum hermanna í
borginni og sagði upplausnará-
stand þar ríkjandi. Rummelhardt
hafði aðra sögu að segja í gær.
„Ástandið er að breytast til betri
vegar, verslanir hafa verið opnað-
ar á ný og fyrirtæki hafið starf-
semi og almennar flugsamgöngur
eru hafnar aftur. Við höfum og
móttekið yfirlýsingu frá Denis
Sassou Nguesso um vilja hans til
að mynda nýja stjórn sátta og
einingar í landinu," sagði hann.
PALLALVFTUR
ÞÓR HF
Reykjavfk - Akurayrí
Reykjavík: Ármúla 11 -sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070
VARIST EFTIRLÍKINGAR!
íslenskt Sjómannaalmanak Fiskifélags Islands byggir á áratuga reynslu.
Almanakið er í stöðugri endurskoðun að ábendingum
þeirra er best þekkja til.
Fiskifélag íslands biður viðskiptavini sína að ganga úr skugga um við kaup
á auglýsingum hvort ekki er örugglega um að ræða
Islenskt Sjómannaalmanak Fiskifélags Islands.
Fiskifélagið mun áfram gegna skyldum sínum við íslenska sjómenn með
því að gefa út Islenskt Sjómannaalmanak - hið eina sanna.
Auglýsingasími 568 4411, fax 568 4414
FISKIFELAG ISLANDS
Fiskifélagsútgáfan
í Sjómannaalmanakinu er m.a. íslensk skipaskrá með myndum, ítarlegur
lagakafli sem skylda er að hafa um borð í hverju skipi, nýjustu flóðatöflur
og vitaskrár auk annarra upplýsinga um hafnir og
margt fleira sem sjófarendum gagnast.
HIÐ EINA SANNA
JÓMAN NAALM ANA
/ rúm 70 ár hefur aðeins verið til eitt íslenskt Sjómannaalmanak, gefið út
af Fiskifélagi Islands. Á næstu vikum kemur það út í 73. sinn.