Morgunblaðið - 21.10.1997, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.10.1997, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997 MIIVINIIUGAR MORGUNBLAÐIÐ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, NÍELS ELÍS KARLSSON blikksmiður, Furugrund 56, Kópavogi, lést sunnudaginn 19. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðrún Jóna Árnadóttir, Björk Níelsdóttir, Steinn H. Gunnarsson, Karl Níelsson, Sigurbjörg Níelsdóttir, Árni Níelsson, Margrét Eysteinsdóttir, Jens Níelsson, Elísabet María Jónsdóttir, María Níelsdóttir, Auðunn Jónsson og barnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, sonur og bróðir, SKAPTI GÍSLASON, Stekkjarkinn 17, Hafnarfirði, lést á heimili sínu sunnudaginn 19. október. G. Kolbrún Sigurðardóttir, Erla María Skaptadóttir, Sólrún Linda Skaptadóttir, Kolbrún Karen Sigurðardóttir, Sigríður Vilhjálmsdóttir og systkini. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, KRISTMANN HREINN JÓNSSON frá Efra Hóli í Staðarsveit, Höfðagötu 27, Stykkishólmi, lést á St. Fransiskuspítalanum, Stykkishólmi, föstudaginn 17. október. Árný M. Guðmundsdóttir, Edda Sóley Kristmannsdóttir, Jón Ingi P. Hjaltalín, Kristján Viktor Auðunsson, Hildur K. Vésteinsdóttir, Þröstur Ingi Auðunsson, Wioletta Maszota, Arna Dögg J. Hjaltalín, Alfreð Már J. Hjaltalín. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, MAGNEA INGVARSDÓTTIR, Snorrabraut 56, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 23. október kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Karitas-samtökin eða Krabbameinsfélagið. Magnús Jónsson, Kristbjörg Kristjánsdóttir, Agnar Guðlaugsson, Magnús Björn Magnússon, Svala Hafsteinsdóttir, Ingibjörg Herta Magnúsdóttir, Halldór Kristjánsson, Magnea, Agnes, Hafsteinn, Sólveig og Magnús. + Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, FRIÐJÓN SIGURÐSSON fyrrv. skrifstofustjóri Alþingis, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtu- daginn 23. október nk. og hefst athöfnin kl. 13.30. Áslaug Siggeirsdóttir, Kolfinna Gunnarsdóttir, Sigurður H. Friðjónsson, Jón G. Friðjónsson, Herdís Svavarsdóttir, Ingólfur Friðjónsson, Sigrún Benediktsdóttir, Friðjón Örn Friðjónsson, Margrét Sigurðardóttir og barnabörn. HALLVARÐUR KRISTJÁNSSON + Hallvarður Kristjánsson, bóndi að Þingvöll- um í Helgafells- sveit, fæddist á Þingvöllum í Helga- fellssveit 18. sept- ember 1928. Hann lést á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi 14. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin María M. Kristjánsdóttir húsfreyja, f. 10. ág- úst 1898, d. 15. des- ember 1987, og Krislján Jóhannson bóndi á Þigvöllum, f. 7. maí 1891, d. 3. ágúst 1984. Systkini hans eru þijú, Krislján, f. 1919, Ingi- björg, f. 1922, og Unnur, f. 1923. Hallvarður kvæntist 31. des- ember 1954 eftirlifandi eigin- konu sinni, Sigurlín Gunnars- dóttur, f. 17. maí 1936. Foreldr- ar hennar voru Lilja Elísdóttir f. 1907, d. 1964, og Gunnar Stefánsson, f. 1903, d. 1980. Hallvarður og Sigurlín eignuð- ust fjögur börn: 1) Kristín Mar- ía lyfjatæknir, f. 2.júní 1956, búsett í Reykjavík. Börn: Hall- varður Guðni, f. 1982, og Alda Rún, f. 1991. 2) Hilmar, raf- virkjameistari, f. 10. júlí 1957, kvæntur Hönnu Jónsdóttur Kvaddur er í dag elskulegur tengdafaðir minn, Hallvarður Guðni Kristjánsson. Fyrstu fund- um okkar bar saman haustið 1986, ég var þá aðeins 19 ára mennta- skólastelpa úr Reykjavík komin til að heimsækja foreldra kærasta míns Kristjáns, yngsta sonar þeirra hjóna á Þingvöllum. Mér er það í fersku minni er við ókum niður Lönguborgina í yndislegu nóvemb- erveðri hversu fagurt bæjarstæðið var, alveg niður við sjó þar sem fegurð Breiðafjarðar blasti við mér ásamt mikilfengi fjallasýnar Ljósu- fjalla og Drápuhlíðarfjalls. Snyrti- mennska á bænum var einstök,og veit ég að þau hjónin lögðu mikinn metnað sinn í að allt væri í röð og reglu, hvert sem litið var, í smíða- húsið, íjósið jafnvel hjallann. í mörg fjósin hefi ég komið en aldr- ei minnist ég þess að geta gengið á sokkaleistunum inn eftir gangin- um, slíkt var hreinlætið. Móttökur þeirra Sillu og Halla mun ávallt verða mér minnisstæðar, hlýjan og gestrisnin var með eindæmum og fann ég strax hversu vel mér leið innan um þau. Á þeirri stundu grunaði mig ekki hversu miklum tíma ég átti eftir að veija inni á heimili þessa góða fólks en næstu fjögur sumur stunduðum við Krist- ján grásleppuveiðar, fórum á skak og línuveiðar frá bænum jafnframt því að við tókum virkan þátt í al- mennum sveitastörfum. Ég held að honum Halla hafi nú ekki bein- línis litist á blikuna er við stungum uppá því við þau hjónin að ég myndi fara á sjóinn með honum Kristjáni en smátt og smátt vann ég traust hans. Ég man hversu mikið kapp ég lagði á að sýna honum að ég gæti þetta alveg, dró netin uppúr netakassanum með miklu offorsi en hann leit á mig og kímdi. Hann hafði kímnigáfu sem mér féll vel í geð og spilaði ég óspart á hana. Þessi kafli lífs míns er án efa einn sá gjöfulasti og dýrmætasti í reynslusafn lífs míns og þar átti Hallvarður tengdapabbi stóran hlut að máli. Líf Hallvarðar lá á mörkum tveggja tíma, þar sem hann stund- aði búskap á þeim tima er búnaðar- hættir eru á okkar tíma taldir frumstæðir, hann var virkur þátt- takandi í þróun og var fljótur að tileinka sér nýja tækni. Þetta sá ég, er hann var með fyrstu bænd- um til að hefja hirðingu heyja með rúllubaggavél í stað hinna hefð- þroskaþjálfa, f. 18. mars 1958, þau eru búsett í Stykkis- hóhni. Börn: Kári, f. 1983, og ísak, f. 1988. 3) Hrafnhild- ur uppeldisfræð- ingur og kennari, f. J8. júní 1963, gift Sumarliða Ásgeirs- syni matreiðslu- meistara, þau eru búsett í Stykkis- hólmi. Börn: Björn Ásgeir, f. 1985, Sig- urlín, f. 1989, og Fanney, f. 1991. 4) Kristján, rafmagnsverkfræð- ingur, f. 4. maí 1967, kvæntur Elinu Sigurgeirsdóttur tann- iækni, f. 9. febrúar 1967, þau eru búsett í Bandarríkjunum. Börn: Halia f. 1992 og Katla f. 1994. Um 25 ára aldur fluttist Hall- varður úr foreldrahúsum til Grundarfjarðar þar sem hann stundaði sjó ásamt öðrum verka- mannastörfum þar til hann fluttist aftur til Þingvalla ásamt konu sinni og hóf búskap i sam- vinnu við foreldra sína. Jafn- framt bústörfum gegndi hann mörgum trúnaðarstörfum fyrir svejt sína allt til dauðadags. Útför Hallvarðs fer fram frá Stykkishólmskirkju i dag og hefst athöfnin klukkan 14. bundnu heybagga og hvarf þar með að mestu leyti hið líkamlega erfiði er þeir kröfðust. Þetta gerði honum kleift að sjá um heyskap að miklu leyti þetta siðasta sumar er hann lifði þótt þungt væri hald- inn af þeim sjúkdómi sem dró hann til dauða. Jafnframt þvi sem hann sinnti störfum sínum til sjós og lands lagði hann gjörva hönd á tré og járn þar sem hvert það verkefni er hann leysti endurspeglaði vand- virkni hans og samviskusemi, enda bar Þingvallaheimilið þess ljósan vott. Halli var hafsjór af fróðleik og sögum frá þeim tíma er hann var sjómaður frá Grundarfirði, sagna- gáfa var honum í blóð borin og var þreyttist hann seint á sögusögnum. Minnist ég margra góðra bjartra nátta er við sátum tvö við eldhús- borðið yfir kaffibolla þar sem ég gat lifað mig inní sögurnar hans af mikilli ánægju. Snemma á árinu 1990 fór Hallvarður að kenna þess meins er núna, sjö árum seinna, varð honum að aldurtila. Raunar var á þeim tima ómögulegt að gera sér í hugalund að hann myndi nokkurntíma yfirbugast, hann barðist fram á það síðasta með ótrúlegri seiglu en tók því sem að höndum bar með æðruleysi. Minn- isstætt er um þetta leyti á síðasta ári er við hvöttum þau Sillu og Halla að koma og heimsækja okkur til Norður-Karólínu. Útlitið var svart allan septembermánuð þar sem hann lá þungt haldinn á sjúkrahúsi, ég man að ég talaði við hann í síma og kvaðst hann ákveðinn í að koma, hvað sem það kostaði. Og það stóð heima, um miðjan október sóttum við þau til Baltimore og voru það miklir fagn- aðarfundir, við áttum indælar þijár vikur saman. Hann naut þess að vera þarna í hlýindunum og veður- blíðunni, innan um sonardætur sín- ar sem kunnu vel að meta athygli frá ömmu og afa. Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir og þungbærir þar sem veikindin náðu yfirhöndinni, hann vissi sjálfur jafnvel og aðrir að hveiju dró og leitaðist hann við að undirbúa brottför sína eftir því er kraftar hans leyfðu, hann sá meðal annars til þess að koma öll- um vélum fyrir í hús, og ganga frá því sem honum frekast var unnt. Efst er í huga mér þakklæti fyrir að hafa getað átt samleið með svo stórbrotnum manni, sem hann Halli var, þakklæti fyrir að dætur okkar hafi geta notið samvista með honum á Þingvöllum í sumar þótt allt of stuttur tími hafi gefist okk- ur síðustu tvö árin sökum fjarvista okkar erlendis. Elsku Silla mín, ég bið góðan guð að styrka þig í þinni miklu sorg, missirinn er mikill fyr- ir okkur öll en minningin um hann Hallvarð mun ávallt standa okkur ofarlega í huga og verma okkur þegar söknuðurinn og sorgin sækja á. Farðu sæll til herrans heima hreina, góða sterka sál. þínir niðjar þér ei gleyma, þar til tæmist lífsins skál. Þegar lýjumst vér að verki vilji birta þrek og trú. þá sé oss þín minning merki meir og betur stríddir þú. (M. Jochumson.) Elín Sigurgeirsdóttir. í dag er til moldar borinn á Helgafelli Hallvarður Kristjánsson bóndi á Þingvöllum. Leiðir okkar Hallvarðar hafa óhjákvæmilega legið saman síðasta áratuginn þar sem hún Elín dóttir mín varð þeirr- ar gæfu aðnjótandi að sameinast fjölskyldu þeirra Þingvallahjóna. Enda þótt skuggi þess sjúkdóms sem nú hefur runnið sitt skeið hafi síðustu árin hvílt yfir heimilinu hef- ur æðruleysi þeirra verið undravert. Persónuleika Hallvarðar verður einna best lýst með orðum gengins vinar okkar beggja, Þóris Kr. Þórð- arsonar, sem taldi hann helst minna á enskan aðalsmann. Hann var vel máli farinn, sögu- maður góður og hafði greinilega af að miðla ríkulegum sjóði þekk- ingar og reynslu sem fáum er léð. Hann elst upp á tímum breytinga í þjóðlífinu og skynjaði manna best þær hræringar sem urðu á atvinnu- vegum okkar jafnt til lands og sjáv- ar og tók virkan þátt í uppbygg- ingu með hliðsjón af þeim breyting- um. Hvar svo sem hjálpar var þörf varði hann starfskröftum sínum til vinnu utan heimilisins, byggingar, smíðar og raflagnir, allt lék þetta í höndum hans enda ber ásýnd Þingvallaheimilisins ljósan vott hagleiks jafnt til huga og handar þess eljumanns sem nú er horfinn okkur sjónum. Minnisstæð er ferð okkar um blómlegar byggðir Skot- lands fyrir sjö árum, hér hafði fag- maður næmt auga fyrir hleðslum og öðrum mannanna verkum sem byggja á reynslu og þekkingu lið- inna kynslóða og prýða blómlegar sveitir þeás lands. Éinnig ferðuð- umst við saman um víðar lendur Karolinafylkis í Bandaríkjunum. Hér voru einnig landkostir að hans skapi þó frábrugðnir væru þeir okkar heimabyggðum. Við gengum saman á Helgafell fyrir nokkrum misserum og við blöstu byggðir Breiðaijarðar. Hér var ríki Hall- varðar, hér þekkti hann hveija eyju, hólma og tanga svo langt sem augað eygði. Að leiðarlokum þökkum við hjón- in samfylgdina og vottum Sigurlín og fjölskyldunni okkar dýpstu sam- úð. Sigurgeir Kjartansson. í dag kveðjum við tengdaföður minn, Hallvarð Kristjánsson. Ör- þreyttur og slitinn leggst hann nú til hinstu hvíldar. Þótt svo við kannski búumst við dauðanum, þá virðist sem við séum aldrei honum viðbúin. Það er margs að minnast nú, þegar litið er til baka, og margt að jiakka. Ég kveð að leiðarlokum góðan vin, tengdaföður og afa minna drengja með einlægri þökk fyrir allt. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Hanna Jónsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.