Morgunblaðið - 21.10.1997, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1997
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
FUItHUK HAXSFIV
(JlJWMUMtSSON
í eitt af efstu sætunum
Kosningaskrifstofa
Laugavegi 13,3. hæð
s: 551 3499 fax: 551 3479
Prófk j ö r S j á 1 fstæðis-
flokksins 24. - 25. okt.
SLIM-LINE
S t r e t c h
buxur frá gardeur
JÓunnj,
tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnamesi, sími 561 1680
HAUSTTILBOÐ
Verð aðeins
1.990
Efni: Rúskinn
Þykkt og gott leðurfóður.
Sterkur sóli.
Stærðir: 31-39
póstsendum
samd*9nrs
SKÓUERSLUN
KQPAUOGS
Hamraborg 3, sími 5541754
Kjósum Helgu (
í borgarstjórn
1998-2002
Helga Jóhannsdóttir
hefur reynslu ó sviðum
eftirtalinna viðfangsefna:
- Málefni aldradra
- Málefni fatladra
- Umhverfismál
- Umferclarmál
• Samgöngumál
Engin kosningaskrifstofa, en síminn er 55 31211 frá kl. 17:00-22:00
Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík er dagana 24.-25. október
Brúðhjon
Allur boi ðbtínaður Glæsileg gjafavara Brúöarhjóna listar
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Myndavél í
óskilum
Ofbeldismynd
snemma kvölds
HVAÐ eru þeir menn á
Stöð 2 sem ráða niðurröð-
un á bíómyndum að hugsa?
Eiga þeir ekki böm? Laug-
ardaginn 18. október var
myndin „12 Apar“ auglýst
kl. 9. Hún byijaði reyndar
ekki fyrr en tæplega hálf
tíu. Þetta var ekta tveggja
lúku mynd, ógeðsleg en
góð sem slík. Svo klukkan
hálftólf var sýnd þessi fína
fjölskyldumynd með Aud-
rey Hepbum þegar bömin
eiga að vera komin í hátt-
inn. Væntanlega hafa þau
flest horft á 12 apa vegna
þess að hún var bönnuð.
Það forboðna er alitaf best.
E.I.
Fyrirspurn um
útvarpsþátt
JÓHANNES hafði sam-
band við Velvakanda og
var hann með fyrirspum
til útvarpsstöðvarinnar X-
ins. Hann segir að það
hafi verið þáttur í útvarp-
inu sem hét „Með sítt að
aftan“. Hann segist hafa
haft mjög gaman af þeim
þætti og vill fá að vita
hvort þessi þáttur verði
ekki aftur á dagskrá eða
eitthvað sambærilegt.
HJÁ lögreglunni í
Rangárvallasýslu, Hlíðar-
vegi 16, Hvolsvelli. er í
óskilum myndavél sem
fannst á Emstmm fyrir
skömmu á gönguleið sem
er fjölfarin milli Þórs-
merkur og Landmanna:
lauga, „Laugavegurinn". í
myndavélinni var filma og
fylgja hér tvær Ijósmyndir
af þeirri filmu. Ef einhver
kannast við myndirnar og
myndavélina þá er sá hinn
sami beðinn að hafa sam-
band við lögregluna í
Rangárvallasýslu í síma
487 8227.
Læðan Nóra
ertýnd
NÓRA, rúmlega tveggja
ára gömul læða, skrásett
á Seltjarnamesi (nr. 28),
hvarf að heiman að Skóla-
braut 14 mánudaginn 13.
okt. og hefur ekki sést
síðan. Hún er grá-brún-
röndótt með hvíta bringu
og loppur. Nóra er merkt
með örmerkingu. Vinsam-
legast látið vita í síma
561 1905 ef þið verðið vör
við hana.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp í hol-
lensku deildakeppninni í ár.
Joris Brenninkmeijer
(2.505) var með hvítt og
átti leik, en Liafbern
Riemersma (2.455) hafði
svart.
23. Hxh7! - Kxh7
24. Dh4+ - Kg8
25. Bh6 - Dd6?
(Þar sem skákin
hefur birst hefur
skákskýrendum
yfirsést eini vamar-
möguleiki svarts
sem er: 25. - He6!
26. dxe6 - Dd4+
27. Khl - Dd3! 28.
Hel - fxe6 29.
Dg5 - Kh7 30.
Bxf8 - Hxf8 31.
Dxe5 og svartur á
einhveija mögu-
leika á jafntefli) 26.
Bxf8 - Dxf8 27. Hf3 og
svartur gafst upp. Hann á
enga vöm við þeirri hótun
hvíts að tvöfalda á h línunni
og máta á h8.
Norræna VISA bikarmót-
ið: 12. og næstsíðasta um-
ferðin fer fram í dag á
Grand Hótel Reykjavík.
Taflið hefst kl. 16. Jóhann
hefur hvítt gegn Westerin-
en, Finnlandi og Hannes
hvítt gegn Norðmanninum
Gausel.
HVÍTUR á leik.
HOGNIHREKKVISI
Víkverji skrifar...
VILHJÁLMUR Árnason skrifar
athyglisvert rabb í Lesbók
Morgunblaðsins sl. laugardag. Þar
varpar hann fram eftirfarandi
spurningu: Á að létta mönnum lífið?
Og segir síðan: „Hin ríkjandi
sjúkraþjónustustefna gerir þegnun-
um kleift að lifa eins og þá lystir
og láta síðan gera við sig eða bjarga
sér, þegar heilsan fer að bila. Með
þessum hætti má segja, að heil-
brigðisþjónustan falli eins og flís
við rass að lífsháttum okkar í
neyzlusamfélaginu. Meginlífsreglan
þar virðist vera að fullnægja sem
flestum löngunum og að forðast það
eins og heitan eldinn að takast á
við sársauka og þjáningu ... Eigin-
leg menntun snýst öndverð gegn
þessari hugsun... Góð menntun
getur því af sér virka þjóðfélags-
þegna, sem temja sér gagnrýna
hugsun og vilja rökræða margvísleg
álitamál. Ef vel tekst til þá léttir
slík menntun mönnum ekki lífið
heldur gerir þeim það að mörgu
leyti erfiðara.“
xxx
VÍKVERJI er ekki talsmaður
þess að draga úr heilbrigðis-
þjónustu en hins vegar er það áleit-
in spuming í víðum skilningi,
hversu langt eigi að ganga í því
að létta mönnum lífið. Ekki er
ósennilegt, að flestir eigi það val
einhvem tíma á lífsleiðinni að velja
á milli þess auðvelda og hins erfiða.
Margir velja oft auðveldu leiðina,
en hún er ekki endilega happa-
drýgst, þegar til lengri tíma er lit-
ið. Þess vegna hallast Víkveiji að
því, að oft og kannski oftast sé það
fólki í hag, þegar til lengri tíma er
litið, að velja erfiðari leiðina. Og
þar af leiðandi eigi ekki að leggja
áherzlu á að létta mönnum lífið um
of.
xxx
Ú ER búið að leggja göngu-
brautir víðs vegar um höfuð-
borgarsvæðið og víða liggja þær
nærri íbúðarhúsum. Þeir sem
stunda gönguferðir um þessar
brautir verða þess áþreifanlega var-
ir, að hundaeign er orðin býsna al-
menn. En jafn algengt virðist vera,
að hundar séu ýmist í bandi úti í
görðum fólks eða gangi þar lausir
innan girðingar að vísu.
Hundar em skemmtilegar skepn-
ur og mynda sterk tengsl við eigend-
ur sína en það breytir engu um það,
að þeir sem stunda gönguferðir um
áðumefndar brautir verða fyrir
margvíslegu ónæði af hundum. Var
forsendan fyrir hundahaldinu ekki
einmitt sú, að aðrir borgarar yrðu
ekki fyrir ónæði af þeim sökum?