Morgunblaðið - 24.10.1997, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Jafnréttisnefnd
Yigdís Finn-
bogadóttir
á fundi
JAFNRÉTTISNEFND Akur-
eyrar verður með opinn fund
í Deiglunni í kvöld, föstudags-
kvöldið 24. október á degi
Sameinuðu þjóðanna. Gestur
fundarins er Vigdís Finnboga-
dóttir, fyrsta konan sem var
þjóðkjörin forseti sem á sínum
tíma vakti mikla athygli. Hún
sat á forsetastóli frá 1980 til
1996 og kynntist á þeim tíma
mörgum góðum konum víða
um heima og ýmsum kvenna-
málum. Vigdís mun m.a.
segja frá því sem hún fæst
við þessa dagana.
Helga Bryndís Magnús-
dóttir píanóleikari og Rósa
Kristín Baldursdóttir söng-
kona sjá um tónlistina. Allir
eru velkomnir meðan húsrúm
leyfir en dagskráin hefst kl.
20.30.
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Harður árekstur
TVEIR fólksbílar rákust harkalega saman á horni Ham-
arstígs og Þórunnarstrætis á Akureyri snemma í gær-
morgun, með þeim afleiðingum að annar bíllinn kastað-
ist yfir steinvegg og hafnaði hálfur inni í húsgarði.
Annar ökumaðurinn var fluttur á slysadeild FSA til
skoðunar en meiðsli hans voru ekki talin alvarleg. Báð-
ir bílarnir skemmdust mikið og þurfti að fjarlægja þá
með kranabíl af vettvangi.
Bóndinn í Hvammi hefur hross í vörslu sinni sem gengu í heimalandi hans
Hrossabeit mikil en
ástand landsins slæmt
Sam-
keppni
um minja-
grípi
AKUREYRARBÆR efnir til al-
mennrar samkeppni um hönnun
og framleiðslu muna og minjagripa
til tækifærisgjafa.
Um langt skeið hefur bærinn
gefið gjafír við ýmis tækifæri, ein-
staklingum, hópum, sveitarfélög-
um, fyrirtækjum og fleirum og
ráðamenn hafa haft með sér gjafir
i opinberum ferðum og heimsókn-
um, bæði innan lands og utan til
að afhenda á góðri stundu. Hefur
nokkuð þótt skorta á fjölbreytni í
gjafaúrvali bæjarins og ímynd
hans og sérkenni lítt komið í ljós.
Var því talið æskilegt að bæta úr
með því að leita til hins stóra hóps
sem hefur á undanförnum árum
verið að hanna og framleiða marg-
víslega hluti, sem m.a. hafa verið
sýndir á handverkssýningum á
Hrafnagili undanfarin ár.
Með samkeppninni er vonast til
að ferskar, fallegar, frumlegar og
viðeigandi hugmyndir komi fram.
Skila þarf inn tillögum til trúnaðar-
manns keppninnar á bæjarskrif-
stofunni fyrir 15. febrúar næst-
komandi. Miðað er við að munirnir
verði gerðir í þremur verðflokkum,
undir 500 krónum, undir 3.000
krónum og munir sem eru að ver-
mæti allt að 10 þúsund krónur.
Veitt verða þrenn verðlaun í hveij-
um flokki.
♦ ♦ ♦
Óskað eftir úrskurði sýslumanns
um réttmæti aðgerðarinnar
HÖRÐUR Snorrason, bóndi í
Hvammi í Eyjafjarðarsveit, hefur
17 hross í vörslu sinni sem gengið
hafa í afrétti í heimalandi hans á
Ytra-Fjalli. Hrossabeit í afréttinum
hefur stóraukist síðustu tvö ár en
hann er í slæmu ástandi og þolir
ekki svo mikla beit. Hefur Hörður
óskað eftir því að sýslumaður Eyja-
fjarðarsýslu kveði upp úr með hvort
honum er heimilt að taka hrossin
úr heimalandi sínu og í framhaldinu
láta bera kennsl á þau þannig að
þau verði fjarlægð úr landi hans.
Á Ytra-Fjalli liggja saman afrétt-
ur Akureyrar og Eyjafjarðarsveitar
og er landið ógirt. Hörður segir að
allt fram til þessa hafi því verið
haldið fram að óheimilt væri að
sleppa hrossum á afrétt Akur-
eyringa sunnan Glerár og þar ættu
ekki að vera hross. Nú hafi önnur
staða komið upp og hugsanlegt sé
að tvö býli í landi Akureyrar, Brún
og Hamrar, eigi upprekstur á þetta
svæði. Vitað er að níu hrossanna í
vörslu Harðar eru frá Hömrum.
Víða slæmt ástand
Hörður segir að hrossum í afrétt-
inum hafi fjölgað mjög á undan-
förnum árum, en landið þoli ekki
þessa miklu beit. Talið er að allt
að 200 hross hafi verið í afréttinum
síðasta haust en þau eru nokkru
færri nú. Á liðnu vori fóru fulltrúar
í gróðurverndarnefnd Eyjaíjarðar-
sýslu um afréttinn og var niðurstað-
an sú að landið væri illa fallið til
beitar stórgripa og það væri í raun
víða í mjög slæmu ástandi.
„Ég vil fá úr því skorið hver rétt-
ur minn er í þessu máli og úrskurð-
ur sýslumanns snýst um það hvort
mér sé heimilt að taka hrossin úr
mínu heimalandi, láta bera kennsl
á þau og fjarlæga þau úr afréttinum
í kjölfarið,“ sagði Hörður. „Hrossa-
beit á þessu svæði hefur stóraukist
á síðustu tveimur árum og þarna
eru ekki bara hross sem eru í eigu
bænda sem eiga upprekstrarrétt á
þennan afrétt.“
Aðkomuhross í afréttinum
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar
setti þá reglu síðastliðið vor að land-
eigendur megi ekki taka í haga-
göngu utanaðkomandi hross nema
fá til þess sérstakt upprekstrar-
leyfi. Nú eru að sögn Harðar mun
fleiri hross í afréttinum en landeig-
endur eiga. Hörður og fleiri bændur
hafa óskað eftir því við sveitar-
stjórn að málið verði tekið til gagn-
gerrar endurskoðunar í samráði við
bæjarstjórn Akureyrar. Benda þeir
á að hægt sé að setja algert bann
við upprekstri í afréttinn eða að
hann verði heimilaður að uppfyllt-
um ákveðnum skilyrðum.
Átti Hörður von á að niðurstaða
sýslumanns myndi liggja fyrir í
dag, föstudag. Hann sagði að ef
niðurstaða sýslumanns yrði sú að
hann væri réttlaus í málinu yrði
hann að sleppa hrossunum, en í
kjölfarið myndi hann grípa til þess
ráðs að girða heimaland sitt og loka
þar með fyrir umferð um það til
að veija það. Töluvert hefur verið
um að hestamenn hafi farið þar um
á leið sinni fram í Eyjafjörð.
„Ég vil fyrst og fremst fá botn
í þetta mál og vita hver réttur minn
er,“ sagði Hörður.
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkju-
skóli í Svalbarðskirkju kl. 11 á
laugardag, 25. október. Kyrrðar-
og bænastund kl. 21 næstkomandi
mánudagskvöld, 27. október. (Ath.
breytta dagsetningu.) Kirkjuskóli
verður í Grenivíkurkirkju laugar-
daginn 25. október kl. 13.30.
MÖÐRUVALLAPRESTA-
KALL: Barnastarf Möðruvalla-
prestakalls heldur áfram næsta
sunnudag, 26. október, í Möðru-
vallakirkju kl. 11. Umsjón annast
Bertha Bruvík ásamt sóknarpresti.
Sara Helgadóttir leikur á gítar og
leiðir söng. Fermingarbörn að-
stoða. Foreldrar/aðstandendur eru
hvattir til að mæta með börnum
sínum. Verið velkomin.
GÖFGAR OG DÝPKAR SAMSKIPTIN
Sönn augnablik elskenda eiga sér ekki stað í rúminu eingöngu, heldur í öllum samskiptum alla daga lífsins. Barbara De Angelis er
þekktur bandarískur doktor í sálfræði, New York Times metsöluhöfundur og hefur sem sérfræðingur í samskiptum fólks veitt ráðgjöf í
gegnum námskeið og eigin útvarps- og sjónvarpsþætti í Bandaríkjunum. Kynntu þér sannreyndar leiðir hennar til að dýpka og styrkja
samband þitt. r .
UMMÆLI:
„Snertu, hlustaðú og horfðu og .4 bókinni er að finna grunn að þeirri ómældu vinnu
bókin segir þér hvers vegna.“ ^em felst í þvi að rækta hjonaband. Mæli með
Séra Pálmi Matthíasson bókinni sem sambúðar- eða brúðargjöf til allra.“
Edda Björgvinsdóttir, leikkona.
Fsst í öllum helstu bókaverslunum.
„Ekkert er jafn dýrmætt og kærleiksríkt samband. ÖIl vandamál og
erfiðleika er hægt að yfirstíga með stuðningi og ástúð góðs félaga.
En gleymi menn að rækta ástina getur jafnvel innihaldsríkasta sam
band gufað upp á skömmum tíma. Þessi bók er frábær leiðarvísir
um hvemig á að viðhalda ástinni leiðina á enda...“
Össur Skarphéðinsson og Árný Sveinbjörnsdóttir
hittust fyrir 23 árum og hafa ekki skilið síðan.
„Við mælum eindregið með þessari litlu perlu, sem er ómissandi
fyrir þá sem vilja viðhalda rómantísku, lifandi og kærleiksríku
sambandi/hjónabandi. Hún göfgar og dýpkar samskiptin í erli
dagsins."
Örn Jónsson, sjúkranuddari og Olga Lísa Garðarsdóttir, kennari.
„Bók sem á erindi til allra para. Minnir á góða hluti sem stundum gleymast í
daglega amstrinu."
Agústa Johnson, þolfimikennari.
Tilboð! Ef þú kaupir bókina fyrir 22. nóvember færðu
staðfestingaspjöldin „Sönn augnablik“ frítt með.
Okkar markmið cr...
að hjálpa þér að ná þínu!
LEIÐARUÓS
Skerjabraut 1.170 Seltjarnarnesi
S. 561 3240, fax 561 3241.
Tölvupóstur: leidar@centrum.is