Morgunblaðið - 24.10.1997, Blaðsíða 50
50 FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Hvaðan koma
Israelsmenn?
Frá Benjamín HJ. Eiríkssyni:
ÁRIÐ 1993 sendi hinn nýkjömi bisk-
up, séra Karl Sigurbjömsson, frá sér
bók um lífið og dauðann: Hvað tek-
ur við þegar ég dey? í bókinni legg-
ur séra Karl áherzlu á það, að menn
sem deyi endurfæðist ekki hér á
jörð. En kirkjan lofar hinum trúuðu
eilífu lífi. í ritdómi sem ég fékk birt-
an í Pressunni hinn 2. 12. s.á. sýndi
ég fram á það, að Biblían boðaði
endurfæðingu mannsins til nýrrar
jarðvistar, ennfremur að þetta væri
skoðun fræðimanna Gyðinga. Guð-
fræðinemamir virðast hættir að lesa
Biblíuna, nema þá valda kafla. Þeir
virðast því ekki vita þetta, enda
ekki kennt það. Þó segir Jesús: „Ég
lifi og þér munuð lifa.“ Hann sagð-
ist myndi neyta með þeim af ávexti
vínviðarins í guðsríki. Ekki er vitað
til þess að hann vaxi annarsstaðar
en hér á jörð (Matt. 26;29.)
En það er þetta með Gyðingana.
Þeir þyrpast til hins endurreista ísra-
elsríkis, í samræmi við spádóma
Biblíunnar. En hvaðan koma þeir?
Svörin em víða í Biblíunni. Ég ætla
að vitna í fáein orð í Spádómsbók
Esekíels.
í 37. kapítula er hin fræga saga
af dauðu beinunum. Guð skipar spá-
manninum að mæla af guðmóði yfir
beinunum. Beinin em „allir ísraels-
menn.“ Þannig lætur Guð lífsanda
í ísraelsmennina.
„Mæl því í guðmóði og seg við
þá: Svo segir Drottinn Guð: Sjá, ég
vil opna grafír yðar, og láta yður
rísa upp úr gröfum yðar, þjóð mín,
og flytja yður inn í ísraelsland, til
þess að þér viðurkennið að ég er
Drottinn, þegar ég opna grafir yðar
og læt yður rísa upp úr gröfum
yðar, þjóð mín. Ég hefi talað það,
og mun framkvæma það, segir
Drottinn."
Þá vitum vér það: ísraelsmenn
koma úr gröfunum. Þeir hafa því
áður verið jarðaðir hér á jörð; ef að
líkum lætur lifað hér áður. Þessa
dagana era þeir því að rísa upp hér
á jörð, þvert ofan í orð nýkjöma
biskupsins, en samkvæmt orði Guðs.
„í því - ísraelslandi - skulu þeir
búa og börn þeirra og bamabörn til
eilífðar, og þjónn minn Davíð skal
vera höfðingi þeirra eilíflega." - Svo
að Davíð verður að endurfæðast
aftur og aftur.
„Og bústaður minn skal vera hjá
þeim og ég skal vera þeirra Guð og
þeir skulu vera mín þjóð - og helgi-
dómur minn verður meðal þeirra
eilíflega."
Hvemig fara menn að því að sjá
svona furðulega hluti gerast, til
dæmis endurfæðingu Ísraelsríkis?
Jú! Það gera menn með því að
opna augun fyrir atburðum sam-
tímans - og opna biblíuna - og lesa.
BENJAMÍN H.J. EIRÍKSSON
Ljóska
Ferdinand
tif&nrjfaL-, öncSL- XoU \ DROPPEP) (rat^) N0W, Y0U HAVET0 5AV, ''ONCE A6AIN I TAKE PEN IN HANP, BUT I PR0PPED IT..50 0NCEM0RE I TAKE PEN IN UAND.."
( N ó )
'isn't there
S0METHIN6 ELSE
YOU COULP
BE D0IN6 ?
( iw J ( c j K
Kæri pennavinur, einu Þú misstir hann.
sinni enn tek ég mér penna Árans!
í hönd.
Nú verðurðu að segja: Er ekki eitthvað annað
„Einu sinni enn tek ég mér sem þú getur gert?
penna í hönd en ég missti
hann .. .svo að einu sinni
enn tek ég mér penna í
hönd...
Alþingismenn - Afnemið
misréttið
Frá Jóni Hafsteini Jónssyni:
ÉG KVARTA ekki undan því að
borga þau opinbem gjöld, sem á mig
em lögð, en mér finnst óhæfa að fá
ekki að njóta sömu réttinda og þeir,
sem aðhyllast trúarbrögð og fá svo-
nefnd sóknargjöld yfírfærð til klúbb-
starfsemi sinnar. Það era meðal ann-
arra ásatrúarmenn, bahaiar, múslím-
ar, en fyrst og síðast þó meðlimir
þjóðkirkjunnar. Hvers eiga hinir að
gjalda, þ.e. þeir sem aðhyllast engin
trúarbrögð? Hér skortir sannarlega á
jafnrétti þegnanna.
Ég hlustaði eitt sinn á umræðu
um aðskilnað ríkis og kirkju, þar sem
talsmenn ýmissa trúfélaga skýrðu
viðhorf sín til sambands ríkis og trú-
arbragða. Það vakti athygli mína, að
talsmaður þjóðkirkjunnar (sr. Jakob
Hjálmarsson), lagði sérstaka áherslu
á að, þótt ríki og kirkja yrðu aðskil-
in, mætti enginn sleppa við sóknar-
gjöldin með því að taka sér stöðu
utan trúfélaga, en fulltrúar hinna
trúfélaganna höfðu engar áhyggjur
af því, að þeirra liðsmenn flykktust
úr söfnuðunum til að spara sér þess-
ar krónur. Það er siðblinda þegar
atvinnutrúarmennimir í þjóðkirkj-
unni hreykja sér af, að þeirra söfn-
uði tilheyri meir en 90% þjóðarinnar,
og láta sér vel líka að þeir fari með
ráðstöfunarréttinn á sóknargjöldum
okkar, sem stöndum utan trúfélaga.
Þeir skipa meirihlutann í Siðfræði-
stofnun Háskóla íslands, sem ráð-
stafar sóknargjöldum okkar.
Nú er af fjárhagsástæðum talið
nauðsynlegt að skerða heilbrigðis-
þjónustuna, en þó heldur íslenska rík-
ið úti heilli stétt manna til að rausa
um handanheiminn, sem þessir at-
vinnupredikarar þekkja þó ekki betur
en hver annar, og nægir peningar
vom á sínum tíma til að skipa i
embætti Evrópuprests til að breiða
yfir ósættið í þjóðkirkjunni.
Ég hef þegar beint hógværum
spumingum varðandi sóknargjöld
mín til umboðsmanns alþingis,
menntamálaráðherra, forseta Sið-
fræðistofnunar HÍ og fleiri án þess
þó að fá önnur svör en þau að lögin
séu ótvíræð. Ég verð að taka það
trúanlegt, en lög em ekki alltaf full-
komin, og þau þarf stundum að laga,
svo sem löggjafinn hefur viðurkennt
eftir lyktir frægra mála, þeirra Þor-
geirs Þorgeirssonar og Jóns Kristins-
sonar. Þetta mál snýst ekki um laga-
bókstaf, heldur um htit, hvort þeir,
sem hafna hinum viðteknu trúar-
brögðum eigi að njóta sömu mann-
réttinda og „trúarhetjurnar", varð-
andi ráðstöfunarrétt á hluta af skött-
um sínum til félagsmála að eigin vali.
Mér er ekki ljúft að fara niðrandi
orðum um lífsviðhorf annars fólks,
en hvað þarf að gera til að fá fram
málefnaleg viðbrögð við kröfunni um
að trúleysingjar njóti sömu réttinda
og aðrir, þ.e. að Siðfræðistofnun HÍ
sé ekki fremur á þeirra framfæri en
annarra. Krafan um aðskilnað ríkis
og kirkju er góðra gjalda verð. Hún
er nú þegar studd af meirihluta þjóð-
arinnar og sem betur fer í sókn. En
SARK (þ.e. Samtök um aðskilnað
ríkis og kirkju) þurfa að setja á odd-
inn kröfu um að ekki megi láta hóp
fólks með sérstök viðhorf til trúmála
taka á sig fjárhagslegar byrðar, sem
í eðli sínu em þjóðfélagsins alls.
JÓN HAFSTEINN JÓNSSON,
fv. menntaskólakennari.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.