Morgunblaðið - 24.10.1997, Síða 51

Morgunblaðið - 24.10.1997, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1997 51 BRÉF TIL BLAÐSINS Ovönduð fréttamennska á Stöð 2 Frá Þórði Sigurðssyni: ÞAÐ stakk augu og eyru mín veru- lega er ég varð vitni að mjög slakri fréttamennsku hinn 4.10.97. Fréttin kom frá fréttastofu Stöðvar 2 og var um samtök í Bandaríkjunum sem kalla sig Promise Keppers. Fréttin fjallaði um fund sem samtökin héldu og mörg hundruð þúsund karlmenn víðs vegar að sóttu. í fréttinni á Stöð 2 var ítrekað nokkrum sinnum af fréttamanni að um væri að ræða sértrúarsöfnuð og vakti það furðu mína og fannst mér slíkt orðaval með afbrigðum óábyrgt og einkenn- ast af mikilli vanþekkingu. Því það vill svo til, að ég hef heyrt og lesið þó nokkuð um þessi sam- tök. Þarna er í fyrsta lagi ekki um að ræða neinn einn söfnuð. Samtök- in eru samkirkjuleg og í þeim eru karlmenn úr flestöllum kirkjudeild- um í Bandaríkjunum, baptistar, met- hodistar, lútherskir, kaþólikkar, hvítasunnumenn og hinar ýmsu frí- kirkjudeildir. í öðru lagi eru samtök- in mjög virt í Bandaríkjunum og þau talin sannkristin sem sést meðal annars á því að aðildaraðilar eru úr langflestum kirkjudeildum Banda- ríkjanna. Þarna finnst mér frétta- stofan hafa brugðist hlutverki sínu, auk þess sem það var rangt með farið að samtökin berðust gegn jafn- rétti kvenna. Annað hvort er þetta vegna van- þekkingar Stöðvar 2 manna, vegna þess að þeir flytja frétt á ákveðinn hátt, um eitthvað sem þeir vita nán- ast ekkert um. Eða þá að Stöðvar 2 menn líta á kristna trú sem sértrú sem þó kall- ast þjóðtrú okkar íslendinga a.m.k. á alþjóðavettvangi, hver svo sem sannleikurinn er. Eða þá að Stöðvar 2 menn hafa tekið eigin afstöðu gagnvart þeim málefnum sem Promise Keepers betjast fyrir og vilja sýna íslensku þjóðinni hversiags sértrúarpakk þeir eru sem ekki eru sammála Stöð 2. Hver svo sem ástæðan er þá finnst mér að Stöðvar 2 menn ættu að vanda fréttaflutning sinn betur. Þeir hafa gert margt gott, verið með fjöl- breyttan fréttaflutning o.s.frv. Eg hef sjálfur hingað til verið frekar hlynntur einkavæðingu sjón- vaipsstöðva en ef fréttaflutningur þeirra kemur til með að einkennast af svona vanþekkingu, fordómum eða hlutdrægni efast ég um að einkavæðing sé til góðs. Ég sá frétt um þennan sama fund hjá þessum samtökum í fréttum Rík- issjónvarpsins og fannst mér hún til mikillar fyrirmyndar, hlutlaus útskýr- ing atburða sem leyfði áhorfandanum að draga sínar eigin ályktanir. Ef Stöðvar 2 menn ætla að vera með hlutlausan, ábyrgan og trúverð- ugan fréttaflutning sem íslenska þjóðin á að geta virt verða þeir að gera miklu betur en þetta. ÞÓRÐUR SIGURÐSSON, Karlagötu 17, Reykjavík. I I I Málþing í Þjóðarbókhlöðu Almenn íslensk orðabók, staða og stefnumið Á málþingi í Þjóðarbókhlöðunni laugardaginn 25. október eru orðabókarmál á dagskrá og verður fjallað um almenna íslenska orðabók frá ýmsum sjónarhornum. Islensk orðabók Árna Böðv- arssonar kom fýrst út árið 1963 og önnur útgáfa, aukin og bætt, árið 1983. Nú er í undirbúningi þriðja útgáfa þeirrar orðabók- ar. Islensk orðabók verður undirstaða umræðunnar á málþinginu, en jafnffamt fjallað um þörfina fyrir íslensk-íslenska orðabók og hlutverk slíkrar bókar á okkar tímum. Ymis álitaefni verða rædd, bæði fræðilegar forsendur almennrar íslenskrar orðabók- ar, þáttur hennar í íslenskri málstefnu og kröfur notenda í upp- lýsingasamfélagi nýrrar aldar. DAGSKRA MALÞINGSINS: 13.00-13.15 Setning. j* 13.15- 13.35 Mörður Árnason, íslenskufræðingur á Máli og menningu: Endurútgáfa Jslenskrar oröa- bókar“. Stefna - staða - horfur. 13.35- 13.55 Guðrún Kvaran, forstöðumaður Oröabókar Háskólans: Uppruni orðaforöans í „íslenskri f oröabók". 13.55- 14.15 Jón Hilmar Jónsson, ritstjóri á Oröabók Há- skólans: Glíman viö oröasamböndin. 14.15- 14.35 Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla íslands: Málfræði í oröabókum. Hvernig og til hvers? 14.35- 14.55 Kristín Bjarnadóttir, sérfræöingur við Orða- bók Háskólans: Um skýringarorðaforðann. 14.55- 15.25 Kaffihlé. 15.25- 15.45 Döra Hafsteinsdóttir, ritstjóri orðabanka íslenskrar málstöövar: Fagoröaforöinn. 15.45-16.05 Ásta Svavarsdóttir, ritstjóri á Orðabók Há- skólans: Orðavai og notkunarleiöbeiningar. Hvaö á aö gera viö tökuorð og slettur? 16.05-16.25 Ari Páll Kristinsson, forstöðumaður ís- lenskrar málstöövar: Málræktarhlutverk ís- lenskrar oröabókar. 16.25- 16.45 Umræður og ráöstefnuslit. Fundarstjóri verður Gunnlaugur Ingólfsson, ritstjóri á Orðabók Háskólans. Aðgangur er ókeypis og öllum heinrill. Mál og menning Oröabók Háskólans Orömennt, félag áhugamanna um orðabókarfræði Þroska- þjálfar í verkfall — hvað þá? Frá Þórunni Böðvarsdóttur, Árna Má Björnssyni og Ernu Einarsdótt- ur: ÞROSKAÞJÁLFAFÉLAG íslands hefur undanfarna mánuði staðið í samningaviðræðum um launakjör sín. Þessar viðræður hafa enn sem komið er engum árangri skilað. Félagsmenn greiddu atkvæði um boðun verkfalls og þar voru 99,5% félagsmanna í fylgjandi því að boða til verkfalls hinn 3. nóvember nk. hafi samningar þá ekki tekist. í ljósi þessarar ákvörðunar þroskaþjálfa viljum við benda á þau áhrif sem verkfall hefur á starfsemi þriggja stórra dagstofnana hjá Styrktarfélagi vangefinna. Styrktarfélag vangefinna rekur meðal annars þijár dagstofnanir, Bjarkarás, Lækjarás og Lyngás. Ábyrgð á þroskaþjálfun og umsjón með annarri þjónustu er í höndum þroskaþjálfa. Lyngás veitir þjón- ustu alvarlega fötluðum bötnum og unglingum. Lækjarás er þjálfunar- staður fyrir fullorðna alvarlega þroskahefta einstaklinga og fjöl- fatlaða og Bjarkarás er hæfíngar- stöð fyrir fullorðið þroskaheft fólk og fjölfatlað. Á þessum stöðum er veitt einstaklingsmiðuð og mjög sérhæfð þjónusta fyrir 132 fatlaða einstaklinga. Ef til verkfalls kemur mun það hafa mjög alvarlegar afleiðingar fyrir þetta fólk. Dagstofnunum verður lokað og þá missa þessir einstaklingar alla dagþjónustu sem þeir eiga rétt á. Um helmingur þeirra býr í foreldrahúsum og skap- ast þar strax mikið álag á alla fjöl- skylduna. Aðrir búa til dæmis á sambýlum eða vistheimilum barna og þangað mun þurfa að kalla inn starfsfólk til að sinna þeim sem annars væru í burtu á daginn. Kjarni málsins er sá að fatlaðir missa þjónustu sem þeir eiga rétt á og geta ekki barist fyrir sjálfir og aukið álag og kostnaður flyst yfir á heimili þeirra. Við viljum því skora á stjórnvöld að leysa þessa deilu hið bráðasta og forðast með því mikla erfíðleika sem af verk- falli þroskaþjálfa hljótast. ÞÓRUNN BÖÐVARSDÓTTIR, forstöðumaður Lyngáss, ÁRNIMÁR BJÖRNSSON, forstöðumaður Bjarkaráss, ERNA EINARSDÓTTIR, forstöðumaður Lækjaráss. Stöndum vörð um Ríkisút- varpið Frá Kristni Breiðfjörð: ÉG VIL þakka Bergþóru Sigurðar- dóttur, lækni, kærlega bréf hennar til blaðsins, sem birtist í dag, 17. okt., um Ríkisútvarpið og pistla Elsu B. Valsdóttur, sem er með sífelldar árásir á Ríkisútvarpið og virðist vera með það í sínum huga sem óvin nr. 1. Ég tek undir skrif Berþóru, sem eru eins og úr mínu hjarta. Við eigum -*■ að standa vörð um Ríkisútvarp og Sjónvarp og við ætlumst til þess af Utvarpsráði að það og aðrir stjórn- endur þar á bæ standi vörð um það og menntamálaráðherra hætti að standa gegn öllu sem gæti orðið því til hagsbóta, m.a. ætti hann að veita leyfi til að Sjónvarpið flytji í Útvarps- húsið, það er alltaf verið að tala um hagræðingu, því ekki að nota þetta tækifæri til að hagræða og spara, en þessi aðgerð myndi skila sér fljótt, eins og sýnt hefur verið fram á. Bestu kveðjur til Bergþóru. KRISTINN BREIÐFJÖRÐ, Fremristekk 11, Reykjavík. Viö styöjum Prófkjör sjdlfstœöismanna 24.-25. október Ari Edwald aðstoðarmaöur sjávarútvegsráðherra Auður Finnbogadóttlr viöskiptafræðingur Ásbjörn Jónsson nemi Ásdís Halla Bragadóttir formaöur SUS Ásgeir Jónsson teiknari Áshildur Bragadóttir stjómmálafræöingur Björn Ársæll Pétursson verkfræöingur Davið Stefánsson stjórnmálafræöingur Eyþór Þóröarson eldri borgari Guðrún Pétursdóttir háskólakennari Hallgrímur Óskarsson verkfræöingur Hanna I. Sigurgeirsdóttir verslunarmaöur Heiðrún Hauksdóttir Helga Egla Björnsdóttir ferðafræðingur Hrefna Ingólfsdóttir fyrrv. formaöur Hvatar Illugi Gunnarsson formaður Heimdallar ísól Fanney Ómarsdóttir skrifstofumaður Jóhannes Kr. Kristjánsson starfsmaður Jafningjafræösiunnar Kristbjörg Héðinsdóttir nemi Lísa Karen Yoder lögfræðingur Margrét Ilalldóra Sveinsdóttir fulltrúi og húsmóðir Ottó Örn Pétursson fyrrv. fjármálastjóri Ólöf Sigurgeirsdóttir aðalbókari Páll Örn Líndal sölustjóri Sr. Ragnar Fjalar Lárusson Ragnar Sær Ragnarsson leikskólastjóri Rósa Jónasardóttir viðskiptafræðingur Rúnar Björgvinsson verkamaður Sigríður Hannesdóttir leikkona Sigurpáll Árni Aðalsteinsson íþróttakennari Soffía Kristin Þórðardóttir varaformaður Heimdallar Sveinn Ásgeirsson framkvæmdastjóri Unnur Ágústa Sigurjónsdóttir hjúkrunarfræðingur Valdimar Kristinsson viðskiptafræðingur Valgarður Egilsson læknir Vilhjálmur Jens Árnason heimspekingur Þ. Orri Baldursson skrifstofústjóri Þór Sigfusson hagfræðingur Þórir Kjartansson MBA Unga og öfluga konu í borgarstjórn!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.