Morgunblaðið - 02.12.1997, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 02.12.1997, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1997 FRÉTTIR MORGUNB LADIÐ Lögmaður norskrar konu sem vann forræð- ismál í Tyrklandi Aðalatriðið hvað barn- inu er fyrir bestu „í MÁLI Sophiu Hansen hefur all- an tímann verið lögð megináhersla á mismunandi trúarbrögð og menningu, andstæðurnar ísland - Tyrkland, íslam - kristindóm- ur, o.s.frv. I máli skjólstæðings míns, Mette Sollihagen Hauge, reyndum við allan tímann að kom ■ ast hjá þessum spumingum. Aðal- atriðið er jú hvað baminu er fyrir bestu,“ segir Murat Bulat, tyrk- neskur lögmaður norskrar konu sem vann sl. fimmtudag mál fyrir tyrkneskum dómstól gegn fyrr- verandi eiginmanni konunnar, en hann rændi dóttur þeirra sumarið 1996. Norska konan og lögmaðurinn nutu dyggrar aðstoðar Olafs Egils- sonar sendiherra, sem gaf þeim góð ráð og miðlaði af reynslunni í máli Sophiu. Bulat segir Ólaf hafa verið þeim til afar mikillar hjálpar og veitt þeim mikilsverðar upplýs- ingar. Mismunandi menning og trúarbrögð aukaatriði Lögmaðurinn kveðst ekki telja það siðferðilega rétt að hann tjái sig frekar um mál Sophiu en legg- ur áherslu á að mál sem þessi séu fyrst og fremst fjölskyldumál, þar sem meginmáli skipti hvar bamið sé best komið. Hann hafi allan tím- ann haldið því til streitu og neitað að svara spumingum lögmanns fyrrum eiginmanns Mette Solli- hagen Hauge sem snertu mismun- andi trúarlegan og menningarleg- an bakgmnn, þar sem það væri aukaatriði. -----^44------ Fullveldishátíð stúdenta í Háskóla íslands Vanræksla stjórnvalda í menntamálum gagnrýnd STÚDENTAR við Háskóla íslands héldu fullveldisdag íslendinga há- tíðlegan í gær, 1. desember. í há- tíðarræðu sem Þorvaldur Gylfason prófessor flutti kom fram harðorð gagnrýni á langvarandi vanrækslu stjómvalda í menntamálum. Dagskrá full- veldisdagsins hófst með messu í Há- skólakapellunni, þar sem sr. Jón Helgi Þórarins- son þjónaði fyr- ir altari og Elín- borg Gísladóttir guðfræðinemi prédikaði. í kirkjugarðinum við Suðurgötu flutti Andri Snær Magnason skáld minni Jóns Sig- urðssonar. Mikill hagvöxtur skapar skil- yrði til betri menntunar Yfirskrift hátíðardagskrárinnar, sem fram fór í hátíðarsal Háskóla íslands, var „Hefur íslenska þjóðin ekki efhi á því að eiga góðan há- skóla?“ Hátíðina setti Haraldur Guðni Eiðsson, formaður Stúdenta- ráðs, þá ávarpaði Páll Skúlason há- skólarektor hátíðargesti og Þor- valdur Gylfason flutti hátíðarræðu. Auk þeirra fluttu ávörp rithöfund- arnir Steinunn Sigurðardóttir og Einar Már Guðmundsson og Há- skólakórinn söng undir stjóm Egils Gunnarssonar. Þorvaldur Gylfason minntist í ræðu sinni m.a. Jóns Sigurðssonar og sagði að reynsla heimsins síðan um daga Jóns hefði sýnt að skoðun hans á samhengi menntunar, hag- vaxtar og viðskipta hefði verið rétt. „Þær þjóðir, sem mesta rækt hafa lagt við menntun bama sinna á öll- um skólastigum og mesta alúð við fijáls viðskipti innan lands og utan, hafa yfirleitt náð mestum hagvexti til langs tíma litið. Hér haldast or- sök og afleiðing í hendur, því að mikill hagvöxtur skapar að sínu leyti skilyrði til meiri og betri menntunar. Á hinn bóginn getur liðið langur tími á milli orsakar og afleiðingar: vanræksla í mennta- málum getur dregið dilk á eftir sér í mörg ár og marga áratugi aftur í tímann." Þá vitnaði Þorvaldur til nýrra upplýsinga frá Seðlabanka íslands, þar sem fram kemur að bankar og fjárfestingasjóðir hafi þurft að af- skrifa 67 milljarða króna, eða eina milljón á hverja fjögurra manna fjölskyldu í landinu. Þorvaldur sagði stjórnmálaflokkana bera höf- uðábyrgð á þessum afskriftum. „Ætla má að stjórnmálasjónarmið hafi ráðið nokkru um það, hverjum hefur verið hlíft við að standa í skil- um og hverjum ekki. Það er eftir- tektarvert í þessu viðfangi, að þrátt fyrir þessar gríðarlegu afskriftir og útlánatöp og þrátt fyrir mikla til- færslu almannafjár til útvegsfyrir- tækja í skjóli gjafakvótakerfísins síðan 1984, eru skuldir útvegsins nú meiri en nokkru sinni fyrr, eða næstum 120 milljarðar króna, sam- kvæmt upplýsingum Þjóðhags- stofnunar. Þessar skuldir nema nú um 9 milljónum króna á hvem vinnandi mann í sjávarútvegi, veið- um og vinnslu. Á sama tíma er stærsta og fjölmennasta fyrirtæki landsins, Háskóli íslands, á heljar- þröm - og ekki aðeins háskólinn, heldur allt skólakerfið og heilbrigð- isþjónustan." Þorvaldur Gylfason Eldur í þaki fjölbýlishúss í Alfheimum Nýr meirihluti hefur tekið við völdum í Isafjarðarbæ Athuga möguleika á núverandi skólalóð ALLT lið Slökkviliðsins í Reykja- vík var sent að fjölbýlishúsi við Álf- heima kl. 13.25 í gær þegar til- kynnt hafði verið að eldur logaði þar út um glugga og uppá þak. Slökkvistarf gekk vel og engin slys urðu. Ákveðið var strax að senda allt tiltækt lið, þrjá dælubíla, tvo körfubíla og tvo sjúkrabíla. Slökkviliðsmenn fóru upp stiga og að upptökum eldsins sem reyndist í þakrými fjölbýlishússins. Fljótt og vel gekk að ráða niðurlögum eldsins, engin slys urðu og tjón er talið í lágmarki. VIÐ myndun nýs meirihlutasam- starfs í bæjarstjóm ísafjarðarbæj- ar staðfestist klofningur bæjar- stjómarflokks sjálfstæðismanna. Tveir af fimm bæjarfulltrúum flokksins standa að meirihlutasam- starfinu, auk tveggja fulltrúa F- lista sem Alþýðubandalag, Kvennalisti og óháðir bám fram og bæjarfulltrúar Framsóknarflokks og Alþýðuflokks. Þrír bæjarfulltrú- ar Sjálfstæðisflokks og tveir af Fönk-listanum skipa minnihlutann. Fyrri meirihluti var skipaður fimm fulltrúum Sjálfstæðisflokks og fulltrúa Alþýðuflokks. Sam- starfið sprakk á deilum um hugs- anleg kaup á húsum sem vora í eigu Hraðfrystihússins Norður- tangans til að leysa úr aðsteðjandi vanda í húsnæðismálum grann- skólans. Þrír fulltrúar D-listans slitu samstarfinu formlega eftir að samstarfsmenn þeirra í meirihlut- anum, Jónas Ólafsson og Kolbrún Halldórsdóttir, af D-lista, og Sig- urður R. Ólafsson, af A-lista, höfðu staðið að og samþykkt tillögu í bæjarstjórn um að ekki kæmi til greina að kaupa Norðurtangahúsin þrátt íyrir að starfsmenn bæjarfé- lagsins og sérfræðingar teldu það ódýrastu og bestu leiðina við að leysa húsnæðismál skólans. Nefnd skoðar möguleika Meginverkefni nýs meirihluta verður að finna lausn á húsnæðis- vanda grannskólans á Isafirði og þeim vanda sem blasir við í innra starfi grunnskólanna. Kristinn Jón Jónsson, verðandi forseti bæjar- stjómar, segir að sett verði nefnd í að skoða hvaða möguleikar era til byggja á núverandi skólalóð. Segir hann að menn geri sér grein fyrir ákveðnum erfiðleikum á því og ef sú verði niðurstaðan muni verða byggt nýtt hús fyrir efstu bekld grann- skólans á íþróttasvæðinu á Torfnesi. Jaínframt verði gert ráð fyrir því að þar verði aðstaða til að byggja yfir allan skólann í framtíðinni. Fulltrú- ar nýja meirihlutans telja að unnt verði að semja við íþróttafélögin um að byggja upp nýtt íþróttasvæði á Skeiði, innar í Skutulsfirði. Leitað að bæjarstjóra Þorsteinn Jóhannesson, oddviti sjálfstæðismanna í bæjarstjóm og fráfarandi formaður bæjarráðs, kveðst vona að nýja meirihlutanum taldst ætlunarverk sitt í skólamál- um. Hann neitar því staðfastlega að Sjálfstæðisflokkurinn í ísafjarðarbæ sé klofinn. Fulltrúaráð flokksins standi á bak við þá stefnu sem bæj- arfulltrúamir þrír hafi fylgt. Bæjar- stjómarflokkurinn sé hins vegar klofinn en þeir einstaklingar sem standi að nýjum meirihluta hafi ekki til þess stuðning innan flokksins. Kristinn Jón, sem er fulltrúi Framsóknarflokks, verður forseti bæjarstjórnar og Smári Haralds- son, oddviti F-lista, verður fyrsti varaforseti og formaður fræðslu- nefndar sem fjalla mun um skóla- byggingarmálin. Jónas Ólafsson, af D-lista, verður formaður bæjar- ráðs og Sigurður R. Ólafsson, full- trúi Alþýðuflokks, varafonnaður. Reikna fulltrúar nýja meirihlutans með því að taka við völdum á bæj- arstjórnarfundi næstkomandi fímmtudag. Þar verður flutt til- laga um að leysa núverandi for- seta og bæjarráðsmenn frá störf- um og kjósa nýja. Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri ísafjarðarbæjar, sagði starfi sínu lausu vegna ágreinings við viðtakandi meirihluta um skóla- málin og hefur óskað eftir að losna sem fyrst. Búist er við að það geti orðið um næstu helgi. Verið er að leita að nýjum bæjarstjóra og von- ast Kristinn Jón til þess að hann verði fundinn fyrir bæjarstjórnar- fundinn á fimmtudag. Tveir aðrir yfirmenn á bæjarskrifstofunum hafa sagt upp störfum vegna þessa máls. I málefnasamningi nýja meirihlutans er ákvæði um að ráðinn verði bæjarritari. <s ^ 10-18:30 KRINGMN F 4 ■ •í
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.