Morgunblaðið - 02.12.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.12.1997, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Nýjar tillögur um úrvinnslu á afurðum stóriðjufyrirtækj anna Áhersla verði aukiná úrvinnslu léttmálma FINNUR Ingólfsson, iðnaðarráð- herra, hefur ákveðið að beita sér fyrir stofnun formlegs samstarfs- vettvangs þeirra aðila sem mesta þekkingu hafa á léttmálmum og úrvinnslu þeirra. Hlutverk þessa vettvangs sem fengið hefur heitið Málmgarður yrði að safna upplýs- ingum um léttmálma, tillögugerð um menntun á framhaldsskóla- og háskólastigi o.fl. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi iðnaðarráðherra í gær, en þar voru kynntar niðurstöður nefndar sem skipuð var í nóvem- ber 1996 til að skila tillögum um hvernig stjórnvöld gætu stuðlað að aukinni vinnslu úr stóriðjuaf- urðum hér á landi. í skýrslu nefndarinnar segir m.a. að framleiðsla á léttmálmum fari ört vaxandi í mörgum grein- um, meðal annars byggingariðn- aði, skipasmíðum, bílaiðnaði og umbúðaiðnaði auk þess sem notk- un þeirra aukist hröðum skrefum í hvers kyns iðnhönnun. Nefndin telur brýnt að íslendingar gefi þessari þróun gaum og treysti nauðsynlega innviði til þess að úrvinnslufyrirtæki megi dafna. í því skyni verði komið á formleg- um samstarfsvettvangi eða svo- nefndum Málmgarði með aðild fyrirtækja í framleiðslu léttmálma og úrvinnslu úr slíkum málmum, mennta- og rannsóknarstofnana, iðnaðarráðuneytisins og Samtaka iðnaðarins. Aukið fé til rannsókna Nefndin telur einnig að mennt- un á þessu sviði hafi verið ábóta- vant. Þá eigi stjórnvöld að skil- greina úrvinnslu léttmálma sem eitt af áhersluatriðum í atvinnu- rekstri hér á landi og að með samstilltu átaki geti Islendingar látið að sér kveða á þessu sviði. Til þess að svo geti orðið þurfi Jólatllliol BRÆÐURNIR m QRMSSQN Lágmúla 8 • Sími 533 2800 Lavamat Þvottavél 6200 • Öko system sparar 20% sápi 9 Jekur 5 kci • VindingamraSi 1000/700 s • Uks kerfi jafnar tau í tromlu • Ullarvagga • Sérstök vinding fyrir ull og viSkvæmt tau • Sjálfvirk vatnsskömtun • BIO kerfi Hnösverði kr: 69.900T- íttverS (63.100 afb.v.) Favorit Uppþvottavel 6UÖU • tekur 12 manna leirbúnaS • 6 kerfi • HljóSlát aSeins 47 db (rel pw) • hurSarbremsa • 4-falt vatnsöryggiskerfi Hnðsverði stgr. kr: 59.900?" //o im n I " Rúsínan í pitsubotninum. Þú kaupir þvottavél og þú færð einstakt tækifæri á að eignast vandaðan AEG þurrkara á aðeins: 39.900,- ( rétt verð 65.000,-) Morgunblaðið/Ámi Sæberg FINNUR Ingólfsson viðskiptaráðherra kynnti sér starfsemi Málmsteypunnar Hellu í gær í tilefni af nýrri skýrslu um úr- vinnslu á léttmálmum. aukið fé til rannsókna, menntunar og kynningar auk samræmdra aðgerða við leit að fjárfestum og samstarfsaðilum. Nefndin bendir einnig á að þótt úrvinnsla áls sé ekki stunduð í stórum stíl þá séu hér starfandi úrvinnslufyrirtæki sem búi yfir dýrmætri þekkingu og reynslu. Ef hafin verði fram- leiðsla á magnesíum hér á landi, muni möguleikar á úrvinnslu létt- málma stóraukast, þar sem vinnsla þess við verksmiðjudyr sé mjög hagkvæm. Rætt við innkaupa- stjóra VW Fram kom hjá iðnaðarráðherra að hann hefði hugsað sér að Málmgarður yrði fjármagnaður með fjármunum frá Átaki til at- vinnusköpunar. Hins vegar yrði ekki um að ræða sérstaka fjár- veitingu á fjárlögum til Málm- garðsins. Hjálmar Árnason, alþingismað- ur sem gegndi formennsku í nefndinni, greindi m.a. frá því á fundinum í gær að fyrir milli- göngu Ingimundar Sigfússonar, sendiherra íslands í Þýskalandi, hefðu komið hingað til lands þrír Þjóðveijar til viðræðna við nefnd- ina, þ.á m. innkaupastjóri Volkswagen. „Komi til þess að magnesíumverksmiðja rísi hér á landi þá mun það breyta mjög miklu. Það kom fram hjá inn- kaupastjóranum að hagkvæmnin við úrvinnslu á magnesíum sem er ein tegund af léttmálmi, er fólgin í því að vinna úr efninu meðan það er ennþá fljótandi. Það er mjög dýrt að hita það upp aft- ur. Áð auki færist það í vöxt að magnesíum og áli sé biandað sam- an m.a. í bílaiðnaði. Nefndin telur því að sóknarfæri við úrvinnslu á áli séu gífurlega mikil," sagði hann. Trustor hneyksli æ torræðara Stokkhólmi. Reuters. FLÓKIÐ alþjóðlegt hneykslismál sænska fjárfestingarhópsins Trustor hefur orðið enn torræðara en áður í sama mund og viðskipti með hluta- bréf í fyrirtækinu eiga að hefjast á ný. Framkvæmdastjóri Trustors, Bjöm Bjömsson, kvaðst ekki hafa verið tjáð að Moyne lávarður af hinni frægu Guinness bruggaraætt hefði selt meirihluta sinn í félaginu fyrir þrem- ur vikum. Seinna sagði sænskur ríkissak- sóknari í London að hann hefði áminnt fyrrverandi framkvæmda- stjóra Tmstors, Lindsay Smallbone, um að hann sætti rannsókn vegna trúnaðarbrots. Slík áminning getur leitt til handtöku eða ákæru. Saksóknarinn, Bo Skarinder, sagði sænsku fréttastofunni TT að hann hygðist einnig hitta Moyne lávarð að máli. Seldi Moyne hlut sinn? Áður hafði nýr framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sem minnihluti hluthafa kaus til að bjarga málum Tmstors, skýrt frá því að Moyne iávarður hefði selt hlut sinn hollenzku fyrirtæki, þótt hann segðist enn einn hluthafa Trustors. Bjömsson sagði að hollenzka fyrir- tækið Houdstermaatschappij Ketip B.B. hefði tilkynnt Tmstor að það hefði keypt hlut Moynes lávarðar og Lord Moyne Holding AB. „Moyne lávarður hefur hvorki stað- fest þessar upplýsingar né borið þær til baka,“ sagði Bjömsson. Moyne lávarður og Lord Moyne Holding AB láta þó svo sem hann og eignarhalds- félagið eigi enn þessi hlutabréf í Trustor." íslenskar sjávarafurðir hf. Greiddu nokkur hundruð milljónir fyrir Gelmer ÍSLENSKAR sjávarafurðir greiddu nokkur hundruð milljónir króna fyrir franska fyrirtækið Gelmer að því er fram kom í svari Benedikts Sveinssonar, forstjóra fyrirtækisins við fyrirspurn á hlut- hafafundi þess í gær. Á fundinum var stjórn félagsins veitt heimild til að auka hlutafé félagsins um allt að 200 milljónir króna að nafnvirði með áskrift nýrra hiuta. Tillaga þessa efnis var samþykkt ■samhljóða. Heimiidin gildir til árs- ins 2002 og búist er við að um þriðjungur aukningarinnar verði nýttur í náinni framtíð. Sagði Benedikt að ef öll fjárhæðin yrði seld á genginu 3,0 myndi mark- aðsvirði bréfanna duga til að „klára mál“ félagsins gagnvart Gelmer. Forráðamenn félagsins sögðu á fundinum að tími mikillar upp- byggingar og breytinga væri að baki en á næsta ári yrði megin- áherslan lögð á rekstur sjálfrar samstæðunnar og að láta hana skila góðum hagnaði. Eiginfjárstaðan styrkt Hermann Hansson, stjórnarfor- maður ÍS, sagði á fundinum að margt hefði gerst að undanförnu í málefnum félagsins og spennandi tímar væru fram undan. Stjórn félagsins teldi því rétt að styrkja eiginfjárstöðu þess, sérstaklega vegna nýrra fjárfestinga í Frakk- landi og Bandaríkjunum, og gefa fleirum kost á að taka þátt í þess- um verkefnum með félaginu. Benedikt Sveinsson fjallaði um framtíðarstefnu félagsins. Sagði hann að síðustu ár hefðu verið tími stefnumótunar og uppbyggingar sölu- og dreifikerfis og árangnrinn væri sá að afurðir samstæðunnar kæmu nú frá 22 löndum. 1997 hefði verið ár mikilla breytinga hjá samstæðunni og nú, í lok þess, blasti við sú mynd að öflugt dreifi- kerfi kæmi afurðum fljótt og vel til nýrra og fullkominna verk- smiðja austan hafs og vestan, sem gerðu henni kleift að fá betra verð fyrir þær úti á markaðnum en áður. 1998 yrði síðan megináhersl- an lögð á rekstur sjálfrar samstæð- unnar og að láta hana skila góðum hagnaði. Benedikt sagði að stefnt væri að því að velta móðurfélagsins, íslenskra sjávarafurða hf., yrði 18 milljarðar króna á næsta ári. „Þá er áætlað að velta Iceland Seafood verði 8,5 milljarðar og velta Gelm- er, frönsku verksmiðjunnar, nemi 9,8 milljörðum króna. Heildarvelta samstæðunnar gæti orðið rúmir 30 milljarðar á næsta ári. Of snemmt er að spá nokkru um hagn- að einstakra deilda en það er ljóst að það er ekki stefna fyrirtækisins að auka veltuna nema hagnaðurinn aukist einnig." Hvað var greitt fyrir Gelmer? Á fundinum var Benedikt spurð- ur að því af hvaða stærðargráðu kaup IS á franska fyrirtækinu Gelmer hefðu verið. Eins og komið hefur fram var samið um að kaup- verðið væri trúnaðarmál en í svari Benedikts komu þó fram nokkrar vísbendingar. í fyrsta lagi vísaði hann til blaðafregna um að ÍS h^fði borgað 100 milljónir franka fýrir Gelmer eða 1.200 milljónir og sagði þær fjarri sanrrí, kaup- verðið hefði verið mun lægra. Sagði hann síðan að fyrirtækið hefði verið keypt fyrir nokkur hundruð milljónir króna. Að lokum sagði hann að ef sú 200 milljóna króna hlutafjáraukning, sem síðar var samþykkt á fundinum, yrði öll boðin út í einu nálægt genginu 3,0 myndi það fé (600 milljónir) duga ágætlega til að klára mál fyrirtæk- isins í Frakklandi. „Við ætlum okkur samt ekki að demba allri hlutafjáraukningunni út á markað- inn. Ætlunin er sú að nota um þriðjung aukningarinnar núna en annað síðar,“ sagði Benedikt. I I 1 I I I I I í t i í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.