Morgunblaðið - 02.12.1997, Síða 8

Morgunblaðið - 02.12.1997, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1997 FRETTIR MORGUNB LAÐIÐ Hæstvirtur forseti,. ÆÐSTA stofnun kjósenda er orðin illa mannheld, æ fleiri þingmenn sleppa út og ganga lausir . . . STRÆTISVAGNAR Reykjavíkur hafa óskað eftir heimild til að semja við danska fyrirtaekið AFA JC Decaux um að setja upp allt að 120 biðskýli í borginni. Tonleikar í Háskólabíói fimmtudaginn 4. desember kl. 20:00 Hljómsveitarstjóri: Einleikari: Sidney Harth Gubmundur Kristmundsson jón Leifs: Trilogia piccola Béla Bartók: Vílólukonsert Pyotr Tchaikovsky: Sinfónía nr. 3 R 8 Starfsárið nn j fi 11 uu in n ia ö [j Sinfóníuhljómsveit íslands Háskólabíói vib Hagatorg Sími: 562 2255 Fax: 562 4475 Veffang: www.sinfonia.is Miöasala á skrifstofu hljómsveitarinnar og vib innganginn Strætisvagnar Reykjavíkur Tillaga um ný strætis- vagnaskýli TILLAGA hefur verið lögð fram í borgarráði um að heimila Strætis- vögnum Reykjavíkur að ganga til samninga við danska fyrirtækið AFA JC Decaux um uppsetningu og þjónustu á allt að 120 biðskýlum og 30 upplýsinga- og auglýsingastönd- um í borginni. Að sögn Lilju Ólafsdóttur, for- stjóra SVR, hefur danska fyrirtækið þegar gert sams konar samning við á annað þúsund borgir víðsvegar í Evr- ópu, þar sem sett hafa verið upp bið- skýli á þeirra vegum. Fyrirtækið fjár- magnar skýlin með þvi að selja aug- lýsingar í skýlin en þau eru úr hertu gleri og eru auglýsingar á öðrum gaflinum. Biðskýlin yrðu því sett upp borg- inni að kostnaðarlausu. Sagði Lilja að fyrirtækið legði metnað sinn í að lag- fær og þrífa skýlin ef þau yrðu fyrir einhverju hnjaski. Það sama ætti við um upplýsinga- og auglýsinga- standana, sem víða mætti koma fyrir eins og t.d. við sundlaugar borgarinn- ar með upplýsingum um opnunartíma og leiðarkerfi SVR, eða við Borgar- leikhúsið með upplýsingum um starf- semina sem þar fer fram. -------------- í varðhald út desember ÞRÍR menn, sem réðust á mann á heimiii hans á Kleppsvegi í Reykja- vík í síðasta mánuði, hafa allir verið úrskurðaðir í framlengt gæsluvarð- hald og nú út desember. Mennimir þrír réðust inn á heimili mannsins um miðnætti kvöld eitt í nóvember, stálu verðmætum af heim- ili hans, veittu honum áverka og skildu hann eftir bundinn. Tóku þeir jafnframt af honum súrefniskút sem hann var háður. Gat maðurinn losað sig og kallað eftir hjálp. Mennimir voru handteknir daginn eftir og hafa nú verið úrskurðaðir í varðhald til áramóta. Heimahlynning tíu ára Bryndís Konráðsdóttir ►Bryndís Konráðsdóttir fædd- ist í Reykjavík árið 1952. Hún lauk Kvennaskólaprófi árið 1969 ojj prófi frá Hjúkrunar- skóla Islands árið 1974. Árið 1979-80 stundaði hún fram- haldsnám í hjúkrun á hand- Iæknis- og lyflæknissviði við Nýja hjúkrunarskólann. Bryn- dís starfaði sem deildarstjóri á Landakoti 1980-86 og sérhæfði sig síðan að því búnu í umönn- un deyjandi. Hún hefur sótt námskeið í tengslum við sér- menntun sína í Bretlandi, Kanada og á Norðurlöndum. Umönnun heima auðveldar oft sorgarferlið Heimahlynn- ING Krabbameins- félags íslands var stofnuð formlega hinn 1. mars 1987 og varð því tíu ára fyrr á árinu. Bryndís Konráðsdóttir hjúkrunar- fræðingur er ein stofnenda Heimahlynningarinnar og segir að stefnt hafí verið að því frá upphafi að setja á fót líknarheimili. I ágúst gaf Oddfellow-reglan stofnfé til þess að opna líknardeild þar sem hægt er að vista sjúklinga og veita dag- og göngudeildar- þjónustu. Verður hún starfrækt í hluta húsnæðis sem áður tilheyrði Kópa- vogshæli og opnuð á næsta ári. - Hvaða starfsemi á að fara fram á deildinni? „Þar á að verða líknardeild fyr- ir 10-14 sjúklinga, dagdeild fyrir 4-6 og væntanlega göngudeild. Síðan verður rekin heimahlynn- ing út frá henni. Markmiðið er að safna kröftum sem unnið hafa að líknarmálum á einn stað og starf- rækja nokkurs konar miðstöð. Þessi umönnun er almennt ætluð sjúklingum með langt genginn ólæknandi sjúkdóm og eru ekki í læknandi meðferð. Slíkir sjúk- lingar hafa oft mikil einkenni, um m /3 tveirþriðju krabbameins- sjúklinga hafa verki, hluti þeirra glímir við alls kyns meltingaró- þægindi og einnig fylgir oft þreyta og slappleiki, lystarleysi og fleira." - Hvað þurfa margir á þessari umönnun að haida árlega? „Það er álitið að þetta húsnæði verði nægilega stórt til þess að anna Stór-Reykjavíkursvæðinu en viðmiðunin er sú að þurfi tíu rúm fyrir hverja hundrað þúsund íbúa. Þessi deild er því talin full- nægja þeirri þörf. Auk þess er all- stór hópur sjúklinga sem fær um- önnun heima.“ - Hvernig hefur starfsemi Heimahlynningarinnar þróast? Þáverandi forstjóri Krabba- meinsfélagsins, Snorri Ingimars- son læknir, réði mig og Hjördísi Jóhannsdóttur til starfa árið 1986 til þess að koma á fót einhverri þjónustu fyrir þá sem ekki lækn- uðust og vildu vera heima. Hjör- dís hætti reyndar ári síðar en er komin til okkar aftur. Upphaflega vorum við bara tvær og einvörð- ungu í dagvinnu en Sigurður Árnason læknir kom fljótlega til liðs við okkur. Það kom hins veg- ar fljótt í ljós að ekki var hægt að reka neina þjónustu af viti með því móti og Rauði krossinn kom til móts við okkur svo hægt væri að koma á fót sólarhringsþjón- ustu. Þá voru ráðnir fleiri hjúkr- unarfræðingar, þannig að þeir urðu fimm, ásamt Valgerði Sig- urðardóttur lækni. Þannig var manna- haldið þar til í sumar þegar tveir hjúkrunar- fræðingar voru ráðnir í hálft starf til viðbótar. Hjúkrunarfræðingamir eru því orðnir sjö, fimm í fullu starfi og tveir í hálfu, og þriði læknirinn, Guðlaug Þórsdóttir, kom fyrir ári. Þá hefur bæst við ritari og við höfum jafnframt á okkar snærum félagsráðgjafa, presta og sérfræðinga á öðrum sviðum sem við getum leitað til.“ - Hvernig hefur starfsemin breyst á þessum tíu árum að öðru leyti? Sjúklingafjöldinn fer til dæmis stöðugt vaxandi. Við byrjuðum á „4-500 deyja árlega úr krabbameini“ að sinna 10-15 sjúkiingum á ári en þeir eru orðnir um 150 árlega. Fjöldi þeirra sem deyr heima hef- ur líka aukist ár frá ári. Það virð- ist vera ósk mjög margra þegar ljóst verður að ekki er hægt að bjóða frekari meðferð til lækning- ar. A sjúkrahúsum er oft mikið álag og mikill hraði og ekki víst að viðkomandi fái að vera í ein- rúmi. Flestir vilja því vera hjá sínum nánustu ef þess er nokkur kostur. Ættingjum er það líka oft mikils virði og sýnt hefur verið fram á að þeir sem taka virkan þátt í um- önnun hins deyjandi gengur bet- ur í sorgarferlinu. Einnig er það léttara fyrir marga aðstandendur því það getur verið heilmikið álag fylgjandi því að vera á spítalanum löngum stundum og mörg börn vilja alls ekki koma þangað inn. Við höfum reynt að laga þjónust- una að þessum þörfum og á seinni árum verið með miklu veikari sjúklinga með flóknari vandamál. A hverju áii greinast um 8-900 manns með krabbamein og 4-500 deyja árlega af sama sjúkdómi. Færni okkar og kunnátta til þess að sinna þessu fólki hefur líka aukist og hópurinn orðinn mjög samhentur og þjálfaður eftir allan þennan tíma sarnan." - Hvers konar þjónustu getur sjúklingurinn fengið? Hann getur fengið alla hjúkrunar- og læknis- þjónustu sem þarf. Við ____ erum ekki með viðveru en heimsækjum fólk að minnsta kosti einu sinni í viku og allt upp í tvisvar á dag. Þá erum við með sólarhringsþjónustu, sem veitir visst öryggi, því einn læknir og einn hjúkrunarfræðingur eru ávallt á bakvakt og geta brugðist skjótt við. Það geta allir leitað til okkar og ekki nauðsynlegt að hafa beiðni frá lækni, þótt samráð sé auðvitað æskilegt. Einnig sinn- um við mörgum tímabundið, til dæmis végna erfiðra einkenna eða aðstæðna."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.