Morgunblaðið - 02.12.1997, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1997 11
FRÉTTIR
Framkvæmdum við Hágöngumiðlun frestað til vors
Morgunblaðið/Helgi Jónatansson
ÞAÐ voru ekki margar rúður heilar í rútunum í búðum virkjanamanna við Hágöngumiðlun eftir aftaka-
veður sem skall á í nóvember.
Tjón í aftakaveðri
við Hágöngumiðlun
FRAMKVÆMDUM við Há-
göngumiðlun var frestað í byrjun
nóvember og hefjast þær að nýju
næsta vor. Talsverðar skemmdir
urðu á bílum og vinnubúðum í
aftakaveðri skömmu áður en
framkvæmdum var hætt.
Syðri-Háganga er í 1.284
metra hæð en vinnubúðimar em
í 840 metra hæð. Unnið er að
gerð stíflu og nær uppistöðulónið
yfir 20-30 ferkílómetra svæði
þegar stíflumannvirki verða full-
gerð. Áætlað er að framkvæmd-
um ljúki næsta haust. Heildar-
ALLUR snjór fauk af svæðinu en nokkru sunnar var snjórinn svo
mikill að „búkollurnar" sátu fastar.
kostnaður við verkið er um 540
milljónir kr.
Nær snjólaust og alls
ekkert vetrarríki
Að sögn Stefáns Guðjónssonar
hjá Veli hf., sem ásamt Islensk-
um aðalverktökum myndar félag-
ið ísafl sem vinnur að fram-
kvæmdunum, er snjólaust á þess-
um slóðum og alls ekkert vetrar-
ríki. Hins vegar snjóaði lítillega á
svæðinu þegar í ágúst. Þegai-
vika var liðin af nóvember gerði
svo aftakaveður í búðunum og öll-
um snjó feykti brott. Sandrokið
var slíkt, að rúður brotnuðu í bfl-
um á svæðinu og vinnuskúrar
fylltust af sandi. Stefán segir að
talsverðar skemmdir hafí orðið á
bílum, bæði lakkskemmdir og á
rúðum.
í kjölfarið var ákveðið að
stöðva framkvæmdir fram á
næsta vor og flytja vinnuvélar til
byggða. Fjórum stórum malar-
flutningabflum, sem nefndir eru
búkollur, var ekið í hóp og ákveð-
ið að fara gömlu Sprengisands-
leiðina, að sögn Helga Jónatans-
sonar, eins bflstjóranna. A leið-
inni var svo mikill snjór, að tveir
bílanna sátu fastir, þótt þeir séu
með læsanlegu aldrifí og hjólin
séu næwi mannhæðarhá. Helgi
sagði að það hefði tekið iungann
úr degi að losa bílana.
Má segja að það hafi verið mis-
tök að liætta svo snemma
Stefán Guðjónsson var við Há-
göngumiðlun þegar Morgunblað-
ið náði tali af honum. Hann sagði
að snjólaust væri á þessum slóð-
um. „Við erum meira en hálfnaðir
með verkið. Botnrásin er langt
komin en segja má að það hafi
verið mesta vandaverkið. Annað
er jarðvinna," sagði Stefán.
Hann segir að miðað við upp-
haflegar áætlanir hafi verið unnið
mánuði lengur en til stóð. Talið
var að ekki reyndist unnt að
halda uppi vinnu lengur en fram í
september en veturinn hafi verið
góður.
„Við gætum verið enn að vinna
hérna. Það má segja að það hafi
verið mistök að hætta svona
snemma," sagði Stefán.
Átak lög-
reglu gegn
ölvunarakstri
LÖGREGLULIÐ á Suðvesturlandi
mun í desembermánuði beina athygli
sinni að fyrirbyggjandi aðgerðum
vegna ölvunarakstmrs.
I fréttatilkynningu segir að árlega
séu á þessu svæði stöðvaðir yfii'
1.000 ökumenn fyrir ölvun við akst-
ur. Sumh- þeh-ra séu það heppnir að
vera stöðvaðh’ áður en þeir valdi
sjálfum sér eða öðrum tjóni. Lög-
reglan vill dusta á ný rykið af gömlu
slagorðunum, að „eftir einn ei aki
neinn“ og hvetja ökumenn til að hafa
það hugfast að sé það ætlun þehra
að neyta áfengis þá sé einnig reiknað
með þeim útgjaldalið að greiða fyrh’
leigubifreið eða strætisvagn heim.
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
Sjö þátttak-
endur í
prófkjöri
SJÖ hafa ákveðið að gefa kost á sér í
prófkjöri Reykjavíkurlistans á veg-
um Alþýðubandalagsins. Tillögur
uppstillinganefndar um frambjóð-
endur munu liggja fyrh’ 5. desember
og kjördæmisráð Alþýðubandalags-
ins mun taka endanlega ákvörðun
hinn 9. desember.
Þau sem gefa kost á sér eru Árni
Þór Sigurðsson borgarfulltrúi, Ein-
ar Valur Ingimundarsson umhverf-
isverkfræðingur, Guðrún Ágústs-
dóttir, forseti borgarstjórnar, Guð-
rún Kr. Óladóttir, varaformaður
Sóknar, Helgi Hjöi-var, fram-
kvæmdastjóri Blindrafélagsins, Kol-
beinn Óttarsson Proppé háskóla-
nemi og Sigrún Elsa Smáradóttir
matvælafræðingur.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
LÍTIL sem engin meiðsli urðu á fólki er jeppi valt á Kringlumýrar-
braut á sunnudagsmorgni.
Fjórir á slysadeild
Hvnt stetiir í aíletnn
heimahJÉkniHr
Málstofa BSRB
Miðvikudaginn 3. desember 1997,
kl. 17-19 að Grettisgötu 89.
Frummælendur:
• Hrefna Pétursdóttir sjúkraliði
• Jón Snædal Öldrunarráði
• Kristín Jónsdóttir Öryrkjabandalaginu
• Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra
Pallborðsumræður með fyrirspurnum úr sal
FJÓRIR voru fluttir á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavflcur eftir
árekstur tveggja bfla á mótum
Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar í Reykjavík klukkan rúm-
lega fjögur sl. sunnudagsmorgun.
Annar ökumaðurinn er grunaður
um að hafa ekið undir áhrifum
áfengis. Við áreksturinn kastaðist
annar bíllinn á götuvita og skemmdi
hann en bæði ökutækin voni fjar-
lægð af vettvangi með kranabíl. Þá
valt bfll á sunnudagsmorgni syðst á
Kringlumýrarbraut, á móts við
Nesti í Fossvogi, en þar urðu aðeins
lítils háttar meiðsli.
Fundarstjóri: Björg Eva Erlendsdóttir, fréttamaður
Fundurinn er opinn öllum.
BSRB