Morgunblaðið - 02.12.1997, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
I
\
I
I
I
Stutt
MaííilÆlHMslö]
I HLAÐVARPANUM
Vesturgötu 3
Ástarsöngvar
í leikhúsinu
Útgáfutónleikar kvartettsins
„Út í vorið“
fim 4/12 kl. 21 laus sæti
„REVÍAN I DEN“
- gullkorn úr gömlu revíunum
fös. 5/12 kl. 21 nokkur sæti laus
fös. 12/12 kl. 21 upppantað
lau. 13/12 kl. 21 laus sæti
Rússibanadansleikur
lau. 6/12 kl. 19.30 laus sæti.
Miðasala opin fim-lau kl. 18—21.
Miðapantanir allan sólarhringinn
í síma 551 9055.
Syrtir í álinn hjá Spencer
Sakaður um fjöl-
lyndi og yfírgang
FRÉTTIR
Undirfötin slógu
hann út af laginu
22 ARA spænskur bflstjóri olli
dauða unglingsstúlku þegar hann
keyrði á hana. Hann bar því við að
risastórt auglýsingaskilti þar sem
auglýst voru kynþokkafull kven-
mannsundirföt hefðu slegið hann út
af laginu.
Tvær af bekkjarsystrum stúlk-
unnar, sem var 13 ára, slösuðust
einnig þegar slysið átti sér stað í
Barcelona á fóstudag. Maðurinn
missti stjórn á bifreiðinni og ók upp
á gangstétt þegar honum varð star-
sýnt á fáklædda konu á auglýsinga-
skiltinu.
Að sögn lögreglu var maðurinn
ekki undir áhrifum áfengis og er lit-
ið á atvikið sem umferðarslys.
Brooks í
bókaútgáfu
►CARL Reiner, sem er 75 ára,
og Mel Brooks, sem er 71 árs,
eru ekki dauðir úr öllum æðum.
Þeir gáfu nýlega út bók og
geisladisk sem þeir nefna „The
2000 Year Old Man in the Year
2000“.
Hugmyndin kviknaði að þeirra
sögn árið 1950 þegar þeir unnu
saman að handriti og Reiner
spurði Brooks upp úr þurru:
„Svo þú þekktir Jesú?“ Brooks
svaraði að bragði með jiddískum
hreim: „Ætli það ekki. Horaður
náungi. Gekk á sandölum. Kom i
verslunina en keypti aldrei
neitt.“
Leikstjórinn Rob Reiner fylgd-
ist með vinnunni við verkefnið.
„Mel er fyndinn jafnvel þegar
honum tekst illa upp,“ segir hann
í samtali við tímaritið People.
„Þegar einhverjum mistekst
trekk í trekk og hann hittir
svo í mark verður það marg-
falt fyndnara fyrir
vikið.“
Enginn dans
á rósum
► LIFIÐ er enginn dans á rósum
hjá ríkasta táningi í heimi. Aþena
Onassis Roussel stillir sér hér upp
með föður sínum, Thierry Roussel,
og sænskri eiginkonu hans,
Mariönnu „Gaby“ Landhage, á fjöl-
skyldusetri þeirra í Lussy-sur-Mor-
ges við Luasaime. Roussel og eigin-
kona hans sögðust búa við stöðugar
áhyggjur af öryggi og velferð
Aþenu Onassis, en nýlega var kom-
ið upp um meint ráðabrugg um að
ræna henni. Aþena var þriggja ára
þegar móðir hennar, Christina, lést
37 ára árið 1988 og arfleiddi liana
að þremur milljörðum Bandaríkja-
dala, sem afi hennar, gríski skipa-
jöfurinn Aristotle Onassis, hafði
sankað að sér.
10 þúsund flík-
ur á uppboð
► ROKKSTJARNAN Elton John
hefur sjálfur viðurkennt að hann sé
„búðarápsfíkill". Hann ætlar að
setja á uppboð fjölda jakka úr
fjölskrúðugum
fataskáp si'num
og 10 þúsund
aðrar flíkur.
Markmiðið er að
safna 500 þús-
und pundum sem
renna eiga til
baráttunnar
gegn alnæmi.
Morgunblaðið/Kristinn
SYSTKINABÖRNIN Oystein Orre Eskeland og Ivar Eskeland með
Halldóru Eldjárn, fyrrv. forsetafrú.
Afmælisveisla í
Norræna húsinu
NORÐMAÐURINN Ivar Eskeland
er Islendingum að góðu kunnur,
enda var hann fyrsti framkvæmda-
stjóri Norræna hússins í Reykjavík.
Hann kom til landsins með eigin-
konu sinni Aaase Eskeland til að
halda upp á sjötugsafmæli sitt síð-
astliðinn sunnudag og var veislan
haldin í Norræna húsinu með tón-
leikum og öllu tilheyrandi. Með í fór
var 25 manna hópur vina og ætt-
ingja frá Noregi sem vildi samfagna
honum á þessum merkisdegi. Vinir
hans á Islandi fjölmenntu einnig í
Norræna húsið og Bárd einkasonur
þeirra hjóna var líka á staðnum, en
hann stundar um þessar mundir
nám í Háskóla íslands.
JÓHANN Már Nardean, Sturla Friðriksson og Birgir Þór Hansson.
VIKTORÍA Spencer brosir á
leið í réttarsalinn.
sjónvarpsstöðina að flosnað hefði
upp úr hjónabandi sínu vegna þess
að hún hefði staðið í framhjáhaldi
með Spencer jarli. Hún virðist hafa
gengið í lið með Viktoríu og gekk
með henni í réttarsalinn í Cape
Town. Báðar eru þær fyrrverandi
fyrirsætur.
Collopy sagði í viðtalinu á Sky að
Spencer hefði verið henni einstak-
lega góður og beðið hennar
nokkrum sinnum. „En rétt áður en
ég skildi fékk hann bakþanka og
sagðist ekki geta lofað mér neinni
framtíð. Við rifumst um börnin mín
og hann sagði: „Ég verð að láta þig
vita að ég tek aldrei við uppeldi
barna þinna.“ Ég svaraði: „Við eig-
um okkur þá enga framtíð og ég er
á förum ... það voru endalokin."
Hún segir að þau hafí hist í hófí í
Englandi í júlí árið 1994. Samband-
ið hafi blómstrað eftir að Spencer
hjónin fluttu til Suður-Afríku ári
síðar með fjórum börnum sínum
undir því yfirskini að þau væru að
flýja ágang fjölmiðla.
„Allt í einu stóð ég uppi ein og
yfirgefm ... ég gerði mér grein
fyrir því að ég yrði að hjálpa þess-
ari konu [lafði Spencer]. Ég vissi
nákvæmlega hvað hún væri að
ganga í gegnum,“ sagði Collopy
ennfremur í viðtalinu.
Hún lét ekki þar við sitja heldur
afhenti slúðurblaðinu Sun bréf frá
Spencer jarli frá árinu 1995 þar
sem hann kallar hjónaband sitt
„hræðileg mistök". „Vandamálið,"
skrifar Spencer, „hefur verið að
eiga barnalega eiginkonu sem er
ófær um að standa í sambandi við
eiginmann með sterka skapgerð,
nema með því að fara í hungur-
verkfall, á fyllirý eða halla sér að
eiturlyfjum."
Spencer varð frægur um allan
heim í september þegar hann flutti
ræðu við jarðarför Díönu þar sem
hann ásakaði fjölmiðla um harð-
neskjulegan eltingarleik við Díönu.
Einnig hét hann þvi að Spencer
fjölskyldan myndi ganga úr skugga
um að synir Díönu hlytu eðlilegt
uppeldi.
EKKI verður annað sagt en að
réttarhöld vegna skilnaðar iafði
Viktoríu Spencer og jarlsins
Charles Spencers, sem fara fram í
Suður-Afríku, vindi upp á sig dag
frá degi. Málaferlin eiga að
hnykkja á um það hvort hin eigin-
legu skilnaðarréttai-höld verði
haldin í Suður-Afríku eða hvort
farið verði að kröfu lafði Spencer
um að flytja þau til Bretlands.
Lögfræðingar Viktoríu Spencer
hafa ásakað Charles Spencer um
„raðframhjáhöld" og yfirgang.
Lögfræðingar hans hafa ítrekað
neitað þessum ásökunum og
sagt að engin leið væri að
sýna fram að þær eigi við
rök að styðjast.
Síðasta útspil Viktor-
íu er vitnisburður
Chantal Collopy sem
sagði í viðtali við Sky-
Máimr'
ífgj! ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sViSiS kt. 20.00:
GRANDAVEGUR 7 - Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir.
11. sýn. fim. 4/12 nokkur sæti laus — 12. sýn. fös. 5/12 uppselt — sun. 7/12 laus sæti,
síðasta sýning fyrir jól.
FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Hamick
Lau. 6/12 uppselt — fös. 2/1 laus sæti.
SmiSaóerkstœðiS kt. 20.00:
KRABBASVALIRNAR - Marianne Goldman
Fös. 5/12, síðasta sýning. Ath. sýningin er ekki við hæfi bama.
Sýnt i Loftkastalanum kt. 20.00:
LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza
Fös. 5/12, síöasta sýning fyrir jól — lau. 3/1.
Miðasalan eropin mán.-þri. 13—18, mið.-sun. 13—20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
Fostudagur 5/12 kl. 20
Síðustu sýningar fyrir jól.
„Snilldarlegir komiskir taktar leikaranna.
Þau voru satt að segja morðfyndin."(SA.DV)
Osóttar pantamr seldar daglega.
í BORGARLEIKHUS
vcitncuv^ miöapantarnir í s. 568
ggft ALLTAF FYRIR OG EFTIR LEIKHÚS
J a,——1» i MAT EÐA DRYKK j LIFANDI TÓNLIST ÖLL KVÖLD
KRINGLUKRÁIN
- á góðri stund
tflstflÖNM
LISTAVERKIÐ
Sýning Þjóðleikhússins
fös. 5. des. kl. 20
VEÐMÁLIÐ
Næstu sýningar milli jóla og nýárs.
Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI
sun. 7. des. kl. 20
lau. 13. des. kl. 20
Ath. aðeins örfáar sýningar.
Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775
Miðasala opin 10—18, helgar 13—18
Ath. Ekki er hleypt inn ísal eftir að
sýning er hafin.
LEIKLISTARSKÓLI ÍSLANDS
LINDARBÆ húsið
Sími 552 1971
Börn Sólarinnar
eftir Maxim Gorki.
5. sýn. miðv. 3/12.
6. sýn. fös. 5/12. örfá sæti laus
7. sýn. lau. 6/12
Sýningar hefjast kl. 20.
Takmarkaður sýningarfjöldi fyrir jól.