Morgunblaðið - 12.12.1997, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Akvörðun um þríðja ofn jámblendiverksmiðju væntanlega tekín í febrúar eða mars
Kostnaður við stækkun
töluvert meui
BJARNI Bjamason, framkvæmdastjóri íslenska jámblendifélagsins
hf. á Gmndartanga, segist ekki gera ráð fyrir að endanleg ákvörð-
un eigenda verksmiðjunnar um að bæta þriðja ofninum við hjá
verksmiðjunni verði tekin fyrr en í febrúar eða mars á næsta ári.
en áætlað var
Morgunblaðið/Gunnlaugur Búi Ólafsson
ísklifur á fossi
Hönnun ofnsins er nú lokið en
komið hefur í ljós að kostnaðurinn
við stækkunina er töluvert hærri
en upphaflegar áætlanir gerðu ráð
fyrir þegar samningurinn um
breytta eignaraðild félagsins var
gerður sl. vor og Elkem eignaðist
51% hlut í félaginu. Endanlegar
kostnaðartölur liggja þó ekki fyrir.
Bjami sagði að í vor hefði eingöngu
legið fyrir gróf áætlun um kostnað,
einskonar beinagrind til að hafa
einhveija kostnaðarviðmiðun um
stærðargráðu verkefnisins.
Tímasetning gangsetningar
breytist ekki
Bjami sagði aðspurður að þrátt
fyrir þessa frestun á endanlegri
ákvörðun um ofninn væri ekki
fyrirsjáanlegt að áætlanir eigenda
um tímasetningu stækkunarinnar
og gangsetningu ofnsins breyttust.
Bjami sagðist telja þá ákvörðun
fulltrúa ríkisins að fresta sölu á
hlutabréfum ríkisins vegna skorts
á upplýsingum, skynsamlega, því
betra væri fyrir væntanlega kaup-
endur að hafa endanlegar upplýs-
ingar um tilhögun stækkunarinn-
ar. „Ég tel að úr því sem komið
er verði hlutur ríkisins ekki seldur
fyrr en endanleg ákvörðun stjómar
um ofninn liggur fyrir,“ sagði
hann.
Hönnun þriðja ofnsins
er lokið
Bjarni sagði að þegar hann tók
við starfi framkvæmdastjóra fé-
lagsins hafí vinna við hönnun
þriðja ofnsins verið skammt á veg
komin. „Það hefur farið gríðarleg
orka í að fullvinna það verk núna
á haustmánuðum. Sérstakur verk-
efnishópur hefur unnið að því en
þetta hefur verið flókið vegna
þess að kísiljárnofnar era ekki
búðarvara. Það hefur ekki verið
byggður nýr ofn innan Elkem til
framleiðslu á jámblendi síðan
kveikt var á síðari ofninum á
Grandartanga árið 1980. Við höf-
um verið að vinna úr þeirri reynslu
í rekstri og tækniframföram sem
orðið hafa á 17 áram og koma
því inn í hönnun á nýjum ofni.
Því verki er nú lokið og liggur
endanleg hönnun á öllum þáttum
ofnsins fyrir. Við teljum okkur
vera með mjög góðan ofn. Ég
geri ráð fyrir að hann verði stærri
en þeir tveir ofnar sem fyrir era
og hagkvæmari, orku- og hráefna-
nýting verði jafn góð eða betri og
minni mannafli á hvert framleitt
tonn,“ sagði hann.
Verður gert með
útboðum
„Hins vegar lítur út fyrir að
kostnaðurinn sé hærri en fyrstu
beinagrindartölur frá í fyrravor
bentu til. Við eram núna á loka-
sprettinum að fá fram endanlegan
kostnað og verður það gert með
útboðum að hluta til. Endanlegur
kostnaður liggur því sennilega ekki
fyrir fyrr en í febrúar,“ sagði
Bjami.
FJÓRIR fræknir félagar í Hjálp-
arsveit skáta á Akureyri fóru
nýlega að fossi í klakaböndum
í Vaðlaheiði austan Akureyrar
og æfðu ísklifur. Þeir Teitur
Arason, Njáll Ómar Pálsson,
Jens Kristinn Gíslason og Gunn-
laugur Búi Ólafsson höfðu með-
ferðis mikið af búnaði til ísklif-
urs, sem er í eigu Hjálparsveit-
arinnar og tóku hraustlega á.
ísinn á fossinum var aðeins far-
inn að bráðna, þar sem hitastig-
ið var rétt ofan frostsmarks er
æfingin fór fram en hún gekk
engu að síður vel.
Landsvírkjun
Góð staða
lóna vegna
hlýinda
HLÝINDI í haust og upphafí vetrar
hafa haft í för með sér að ekki hef-
ur þurft að miðla vatni úr uppistöðu-
lónum Landsvirkjunar til raforku-
framleiðslu fyrr en um miðjan októ-
ber og raunar hækkaði aftur í lónum
í lok nóvember.
„Það kom ekki frost fyrr en seint
þannig að við höfum ekki þurft að
miðla úr lónum okkar fyrr en með
seinna fallinu og staðan er því góð,“
sagði Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar. „A móti
kemur að það er gífurleg aukning
raforkunotkunar í landinu þannig
að það er meira álag á kerfinu."
Þorsteinn kvað hins vegar ekki
ástæðu til að hafa áhyggjur af litlum
snjó á hálendinu og væri alvanalegt
að lítið snjóaði framan af vetri. Yrði
veturinn hins vegar snjóléttur gæti
það leitt til þess að vorflóð yrðu
minni en ella og haft áhrif næsta
vetur.
„Ástæðan er sú að frá og með
vorflóðum og fram á haustið erum
við að safna í sarpinn í okkar lón-
um,“ sagði hann. „Einnig hafa
hlákukaflar að vetrarlagi oft komið
okkur til góða. En það er hins yegar
engin ástæða til að ætla annað en
að horfumar séu góðar."
Sænskir kjúkl-
ingar í Nóatúni
NÓATÚN býður um helgina upp á
sænska kjúklinga sem fluttir eru inn
til landsins í samvinnu við Búr ehf.
Þessi innflutningur er í samræmi við
úthlutun á tollkvótum frá Evrópu-
bandalaginu sem kveða á um að
ákveðið hlutfall af innlendri fram-
leiðslu skuli flutt inn til landsins.
Ekki hafa áður verið fluttir inn
heilir kjúklingar erlendis frá til sölu
í kjörbúðum hérlendis.sUm er að
ræða samtals um 10 tonn sem seld
verða á 399 kr. hvert kíló út úr búð.
Kjúklingarnir eru fluttir inn með
samþykki og undir eftirliti landbún-
aðarráðuneytisins og embættis yfir-
dýralæknis og er fylgt ýtrustu kröf-
um um gæði og heilbrigði, segir í
frétt frá Nóatúni.
Útsal'an hefst í dag og stendur
meðan birgðir endast.
------♦ ♦ ♦------
Fjórir sækja
um stöðu ríkis-
saksóknara
FJÓRIR sækja um embætti ríkissak-
sóknara, en umsóknarfrestur rann
út 10. desember. Hallvarður Ein-
varðsson lætur af embætti ríkissak-
sóknara um áramótin.
Umsækjendurnir fjórir eru Bogi
Nilsson ríkislögreglustjóri, Páll Am-
ór Pálsson hæstaréttarlögmaður,
Sigurður Gizurarson sýslumaður og
Valtýr Sigurðsson héraðsdómari.
Júpíter og Satúmus
sjást vel á landinu
TUNGLIÐ og allar helstu plán-
etumar sjást um þessar mundir
mjög vel á suðlægri breiddar-
gráðu, sunnan íslands, en á ís-
landi sést ágætlega til Júpíters,
Satúmusar og Venus fer einnig
að sjást betur. Þorsteinn Sæ-
mundsson stjömufræðingur
segir að birtumagnið í Reykjavík
sé til vandræða fyrir stjörnuat-
huganir og það verði að fara
út fyrir bæinn til að rýna í
stjömumar.
Þorsteinn segist ekki verða var
við að jólaskreytingar í borginni
auki mikið á vandkvæði stjömu-
athugunarmanna en birtumagn-
ið sé orðið gríðarlega mikið hvort
sem skreytingamar era taldar
með eða ekki.
Sjást oft frá
íslandi
Hann segir að pláneturnar
sjáist í sjálfu sér mjög oft héðan
en misjafnlega vel. Það geti lið-
ið nokkur ár milli þess að að-
stæður séu með besta móti til
að skoða þær. Þorsteinn segir
að plánetumar hafí verið mjög
sunnarlega á himinhvelfingunni
undanfarin ár og því fremur
erfítt að sjá þær. Núna standi
það til bóta.
10-19
Sum fyrirtæki eru opin lengur.
I KRINGMN 1
Hrogn og lifur
í desember
STEINGRÍMUR Ólason er sennilega með fyrstu
fisksölunum á landinu, sem býður upp á hrogn og
Iifur í verslun sinni í vetur.
„Hrogn og lifur eru svo snemma á ferðinni
núna,“ sagði Steingrímur, sem rekur Fiskbúðina
Stigahlíð 24. „Ástæðan er sú að þorskurinn suður
með sjó er mikill og stór.“
Venjulega koma hrogn og lifur í fiskverslanir í
janúar og sagði Steingrímur að ekki væri um neitt
smælki að ræða þótt þessi vara væri nú um þrem-
ur vikum fyrr á ferðinni en venjulega.
Steingrímur kvaðst hafa verið heppinn að ná í
hrogn og lifur í gær, en bjóst við að aðrir fisksal-
ar myndu nú fara á stúfana. Hann keypti um 60
kíló og bjóst ekki við að það myndi endast út dag-
inn.
_ Morgunblaðið/Kristinn
STEINGRIMUR Ólason sýnir ný hrogn og lifur
í Fiskbúðinni Stigahlíð 24 í gær.
Steingrímur opnaði fiskbúðina í Stigahlíð fyrir
tveimur mánuðum, en hafði áður verið i níu ár í
fiskbúð við Sundlaugraveer.