Morgunblaðið - 12.12.1997, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 12.12.1997, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Við pössum á meðan foreldrarnir góðiv kostir d eyrinni Afyreiðslutími í desember fyrir utan hefðbundinn opnunartíma agöÐÐ Laugard. A K U 13. des. R E V R 1 10-18 10-18 Sunnud. 14. des. 13-18 13-18 Fimmtud. 18. des. 08-20 12-20 Föstud. 19. des. 08-20 10-20 Laugard. 20. des. 10-20 10-20 Sunnud. 21. des. 13-18 13-18 Mánud. 22. des. 08-21 10-21 I’riðjud. 23. des. 08-23 10-23 Miðvikud. 24. des. 08-12 09-12 Miðvikud. 31. des. 08-12 09-12 & Reutei*s Kosið í Chile AUGUSTO Pinochet, hershöfðingi og yfirmaður chileanska heraflans, heilsar yfirmanni kjörstjórnar í Santiago í gær er hann neytti at- kvæðisréttar síns í þingkosningum sem fram fóru í landinu. Kosið var til neðri deildar og hluta efri deild- ar þingsins og átti kjörstjórn í mestu erfiðleikum með að fá nægi- lega marga til starfa í kosningun- um. Bar fólk við veikindum, ólæsi og beitti öðrum brögðum til að komast hjá því að starfa fyrir kjör- stjórnina. Ekki var hægt að opna allar kjördeildir þar sem starfs- menn vantaði, t.d. gat innanrikisráð- herra landsins ekki kosið þar sem kjördeild í hverfi hans var lokuð. Á þeim kjördeildum sem opnar eru, er hægt að skylda fyrstu þrjá sem kjósa til að taka sæti í kjörstjórn nema þeir hafi gildar ástæður til að neita. Ekki er ljóst hvers vegna starfið er svo óvinsælt en í Chile er það skylda að neyta atkvæðisréttar. Hefur því verið spáð að allt að þriðj- ungur kjósenda muni skila auðu í kosningunum vegna þess. Forseti Suður-Kóreu biðst enn einu sinni afsökunar á efnahagsvanda ríkisins Sagður eiga einskis úrkosti Scoul. Reuters. FORSETI Suður-Kóreu, Kim Young-sam, axlaði í gær ábyrgð- ina á efnahagskreppunni í land- inu. „Mig skortir orð til þess að biðjast afsökunar," sagði forset- inn í sjónvarpsávarpi til þjóðar- innar. „Öll ábyrgð á þeiiri kreppu sem við erum nú í liggur hjá mér sem forseta. Ég hýði mig á hverj- um degi og hugsa um örvæntingu framkvæmdamanna sem hafa ekki getað greitt af lánum og feðra sem hafa misst vinnuna." Fjárhagsvandi ríkisins varð til þess að stjórnvöld sömdu við AI- þjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF) um efnahagsaðstoð sem svarar rúm- lega fjögur þúsund milljörðum ís- lenskra króna. Þetta er mesta að- stoð sem IMF hefur gengist fyrir til handa nokkru ríki. Gengi s-kóreska wonsins gagn- vart Bandaríkjadollara lækkaði í gær þrátt fyrir ávarp Kims, og segja fjármálaskýrendur að for- setinn geti lítið gert. Kosningar verða í landinu eftir viku, og for- setinn á einungis tvo mánuði eftir af kjörtímabilinu. „Hafi markað- imir vænst einhvers af Kim þá urðu þeir fyrir vonbrigðum," sagði fjái-málaskýrandi við Reuters. Forsetinn bar fram svipaða af- sökunarbeiðni 22. nóvember, daginn efth- að stjórnvöld til- kynntu að þau hefðu falast eftir aðstoð IMF. Þá álasaði Kim framkvæmdastjórum og launþeg- um fyrir „síngimi“ sem kæmi niður á samkeppnishæfni lands- ins á alþjóðamarkaði. í gær, líkt og í síðasta mánuði, hvatti forset- inn þjóðina til að breyta núver- andi ástandi með því að takast á Reuters Á STÆRSTU lestarstöðinni í Seoul hlýddi fólk á sjónvarpsávarp forsetans f gær. við grundvallarforsendur efna- hagsvandans. Kim sagði að ekki væri hægt að halda áfram á sömu braut, og myndu stjórnvöld taka þátt í sparnaðaraðgerðum með niðurskurði í ríkisumsvifum. Fréttaskýrendur sögðú að orð Kims skorti áþreifanlega gmnn- þætti sem myndu hjálpa þjóðinni að endurheimta traust sem hefði glatast. „Öll þjóðin geldur þess að hvergi er að fá skýra stefnumót- un,“ sagði Lee Hahn-koo, fram- kvæmdastjóri rannsóknarmið- stöðvar Daewoo. Veikindi Jeltsíns Rússlandsforseta Uppreisn gegn Blair vegna nið- urskurðar Eng’in ástæða til ótta Moskva. Reuters. TALSMENN Borísar Jeltsíns Rúss- landsforseta vísuðu því á bug í gær að forsetinn hefði fengið hjartaáfall. Eftir að forsetinn var lagður inn á heilsuhæli í gær vegna alvarlegi-ar veirusýkingar í öndunarfærum, hef- ur orðrómur verið á kreiki um að hjartveiki hans hafi tekið sig upp. Nærvera Renat Aktsjúrín, sem leiddi lið lækna sem framkvæmdu á honum hjartaaðgerð í nóvember á síðasta ári, hefur ýtt undir vanga- veltur þessa efnis. Aktsjúrín hefur hins vegar sagt að engin tengsl séu á milli aðgerðarinnar og veikinda for- setans og að engin ástæða sé til að hafa áhyggjur af heilsu hans. Jeltsín, sem er sagður hafa 37,3 stiga hita og finna fyrir nokkrum óþægindum, frestaði í gær, að lækn- isráði, upptöku á ávarpi sem átti að útvarpa í dag í tilefni af stjórnar- skrárdegi Rússa. Honum hefur einnig verið ráðlagt að halda sig inn- andyra og heimsókn Peters Stoja- nov, forseta Búlgaríu, 18.-20. des- ember, hefur verið frestað fram í febrúar eða mars á næsta ári. London. Reuters. ÞAÐ þótti táknrænt fyrir stöðu Tony Blairs, forsætisráðherra Bret- lands að hægrisinnuð dagblöð skyldu í gær koma honum til varnar eftir uppreisn í flokki hans vegna fyrirhug- aðs niðurskurðar á bótum til ein- stæðra mæðra. Ráðherra í Skotlandsmála- ráðuneytinu sagði í fyrradag aí sér í rnót- Tony Blair mælaskyni við niðurskurðinn og 47 þingmenn Verkamannaflokksins gi-eiddu at: kvæði gegn frumvarpinu á þingi. I uppsagnarbréfi sínu sagði ráðherr- ann, Malcolm Chisholm, að niður- skurðurinn væri „árás á sumar af fátækustu konunum í samfélaginu“. Lét engan bilbug á sér finna Áætlun stjórnarinnar er að skera niður aðstoð til einstæðra foreldra um sem svarar rúmlega 1.100 kr á viku og hvetja þá til að fara út á vinnumarkaðinn fremur en reiða sig á opinbera aðstoð. Þá er ætlun stjórnvalda að koma á fót sam- komustöðum þar sem börn geta dvalið eftir að skóla lýkur á daginn. Blair lét engan bilbug á sér finna og sagði fulltrúi hans að þótt honum væri eftirsjá í góðum ráðherra myndi hann hvergi hvika. Hafa dagblöð á hægri væng stjórn- arinnar lýst ánægju með framgöngu Blairs, og þá sér í lagi götublöðin. I leiðara Daily Mail segir til dæmis að Blair hafi boðið fleiri þingmönnum birginn en búist hafi verið við og að hann hafi „líkst leiðtoga sem gæti búið yfír þeim eiginleikum sem þarf til að stöðva bullið". í The Sun var Blair líkt við íyrir- rennara sinn, John Major, sem stríddi við stöðugar uppreisnir inn- an flokks síns, íhaldsflokksins. Lagði blaðið áherslu á að uppreisn- argjarnir þingmenn mættu ekki stjórna Verkamannaflokknum eins og raunin hefði orðið hjá Major. Vinstriblöðin og The Daily Tele- graph voru hins vegar ekki eins hrifin. „Verkamannaflokkurinn ætti einnig að líta lengra en á þingið, til fólksins sem kaus hann vegna þess að það átti von á meiru. Það er gi’unnur flokksins og í dag hefur það orðið fyiár miklum vonbrigð- um,“ sagði í leiðara síðarnefnda blaðsins. Spáir það því að deilurnar vegna niðurskurðarins kunni vel að vera upphafið að „löngu borgara- stríði". Reuters BORIS Jeltsín Rússlandsforseti tekur á móti yfirmanni starfsmanna- halds síns á Barvikha-heilsuhælinu utan við Moskvu í gær.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.