Morgunblaðið - 12.12.1997, Qupperneq 28
28 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Á TÓNLEIKUM Kammersveitar Reykjavíkur á sunnudag verða flutt
verk Telemanns, Geminianis og Bachs.
Qlafur Kjartan Sigurðarson söngnemi
Hlýtur óperuverð-
laun í Skotlandi
„Um lífs-
ins helgi-
dóm“
KAMMERSVEIT Reykjavíkur
heldur jólatónleika í Áskirkju
sunnudaginn 14. desember kl.
17.
Á tónleikunum verða flutt
verk þriggja meistara barokk-
timans, samtimamannanna
Telemanns, Geminianis og
Bachs.
Eftir Georg Philipp Telem-
ann verður fluttir tveir
konsertar, konsert nr. 1 í
D-dúr fyrir trompet og
kammersveit og konsert í
D-dúr fyrir fiðlu, trompet og
kammersveit. Einleikarar í
þessum verkum eru Ásgeir H.
Steingrímsson, trompetleikari
og Unnur María Ingólfsdóttir
fiðluleikari.
Eftir Francesco Geminiani,
sem var nemandi Correllis,
verða flutt tvö Concerti grossi,
hið fyrra í e-moll op. 3, en hið
síðara, í d-moll, samdi Gem-
iniani um hin frægu La Follia
tilbrigði Correlis.
Þekktasta verk efnisskrár-
innar á þessum tónleikum er
Fiðlukonsert í E-dúr eftir Jo-
hann Sebastian Bach. Einleik-
ari er Rut Ingólfsdóttir, fíðlu-
leikari.
Með tónleikum sínum „um
lífsins helgidóm" býður
Kammersveitin tónleikagest-
um sínum að hrífast með tón-
list barokktimans inn í heim
friðar og eftirvæntingar að-
ventunnar, eins og segir m.a. í
kynningu.
Miðasala verður við inn-
ganginn og á tónleikunum
verður geislaplata Kammer-
sveitarinanr „Jólatóneikar" til
sölu á tilborðsverði.
Fær norsku
Ryvarden
verðlaunin
MYNDLISTARKONAN Kristín
Þorkelsdóttir hefur verið valin úr
hópi 18 umsækjenda um Ryvar-
den-verðlaun Sveio bæjar í Vestur-
Noregi. Styrk-
veiting menn-
ingarmiðstöðv-
arinnar Ryvar-
den var fyrst
veitt árið 1993
og er þetta I
fyrsta sinn sem
íslenskur lista-
maður verður
fyrir valinu.
Verðlaunaféð
er 20.000 norskar krónur og auk
þess gefst verðlaunahafanum kost-
ur á að dvelja í 4-6 vikur í gestaí-
búð og vinnustofu Ryvarden menn-
ingarmiðstöðvarinnar og sýning á
verkum listamannsins verður hald-
in vorið 1999. Það var frá Ryvar-
den sem Hrafna-Flóki lagði upp í
för sína til Islands og markmiðið
með verðlaununum er að auka
tengsl staðarins við Island. Kristín
segist hlakka til utanfararinnar,
vesturströnd Noregs sé ákaflega
fallegur og spennandi staðrn- og
dvölin eigi eflaust eftir að vera
ánægjuleg.
--------------
Gallerí Island
í Ósló
NYTT gallerí, Gallerí ísland, verð-
ur opnað í Ósló föstudaginn 12.
desember. Galleríið er til húsa í
gamalli byggingu við Youngstorgið
í hjarta borgarinnar og mun eink-
um verða sýnd list eftir íslenska
listamenn. Eigandi og umsjónar-
maður gallerísins er Hjördís Fig-
enschou.
Opnunarsýningin er á vatnslita-
myndum eftir Hjörleif Sigurðsson.
Við opnunina verður lesið úr nýrri
ljóðabók, Listmálaraþankar, eftir
listamanninn.
Sýningin verður opin til 25. janú-
ar. Galleríið er opið laugardaga kl.
10-16, sunnudaga kl. 12-16,
þriðjudaga og fimmtudaga kl.
16-18.
-kjarnimálsins!
BARÍTONSÖNGVARINN Ólafur
Kjartan Sigurðarson, sem stundar
nám við óperudeild Royal Scottish
Academy of Music and Drama
(RSAMD) í Glasgow, hlaut á dögun-
um óperuverðlaun olíufyrirtækisins
Texaco. Fór afhendingin fram við
hátíðlega athöfn í Duff House í
Banff í Skotlandi.
Ólafur segir verðlaunin koma
þannig til að Texaco hafi frá því á
síðasta ári styrkt óperudeild
RSAMD og hluti af styrk þeirra sé
að veita einum söngvara sem lokið
hefur fyrra ári deildarinnar með
góðum árangri viðurkenningu. Er
þetta í fyrsta sinn sem verðlaunin
eru veitt.
„Eg var svo lánsamur að vera val-
inn úr hópi minna ágætu samnem-
enda eftir síðasta vetur. Stjórnend-
ur deildarinnar sjá um tilnefningar
en þar er tekið tillit til frammistöðu
nemenda á sýningum sem og árang-
urs á prófum. Þá hefur það örugg-
lega ekki spillt fyrir tilnefningu
minni að ég fékk góða dóma í
skosku pressunni fyrir sýningar síð-
asta vetur, sem og í tímaritinu
Opera, sem er virt óperutímarit á
heimsvísu."
Ólafur kveðst líta á það sem mik-
inn heiður að vera valinn úr hópi
söngvara sem hann metur mikils og
hefur haft mikla ánægju af að vinna
með.
Draumur og brúðkaup
Ólafur hefur í mörg hom að líta
þessa dagana. í skólanum era hafn-
ar æfingar á Draumi á Jónsmessu-
nótt eftir Britten, þar sem hann fer
með hlutverk Bottoms. Segir hann
hlutverkið leggjast vel í sig og vel
gangi að „koma óperunni saman“.
„Búningurinn verður örugglega erf-
iðasti hluti rullunnar en hann krefst
talsvert meiri líkamlegrar afhjúp-
unar en ég er vanur! Það er svosem
ágætur undirbúningur fyrir líf „nú-
tímasöngvara“.“ Sýningar verða í
lok janúar.
Undirbúningur Brúðkaups Fíg-
arós eftir Mozart er einnig hafinn í
RSAMD en þar mun Ólafur fara
með aðalhlutverkið. Sýningar verða
í byrjun maí í Glasgow og Edin-
borg.
Olafur er einnig störfum hlaðinn
utan skólans. Þannig mun hann
taka þátt í flutningi á Messíasi í
Islenskar
ljósmyndir í
Þýskalandi
SÝNING á verkum Emils Þórs Sig-
urðssonar ljósmyndara stendur nú
yfir í ráðhúsinu í Abstatt í Suður-
Þýskalandi. Á sýningunni eru 42
landslagsmyndir frá Islandi, sumar
hverjar teknar úr lofti.
Sýningin var sett upp í september
síðastliðnum að frumkvæði Rúnars
Emilssonar, skólastjóra tónlistar-
skólans í Abstatt, sem er um fjögur
þúsund manna byggðarlag, ekki
langt frá Stuttgart. Mun hún standa
fram yfir áramót.
Þetta er fyrsta sýning Emils Þórs
á erlendri grundu. Segir hann sér
hafa verið vel tekið í Abstatt og
áhugi á íslandi sé augljóslega mikill
þar um slóðir. „Að kvöldi opnunar-
dagsins efndi heimamaður nokkur
til sýningar á litskyggnum frá ís-
landi í ráðhúsinu. Spurði hann við
það tækifæri hve margir viðstaddra
hefðu komið til íslands og rétti á að
giska þriðjungur upp höndina.
Þama voru á milli áttatíu og níutíu
manns,“ segir Emil Þór.
Rúnar Emilsson tekur í sama
streng - sýningin hafi gengið von-
um framar. „Hér er mikill áhugi á
íslandi eins og almennt í Þýskalandi
leyfi ég mér að fullyrða."
1.1 '
Ww, ■ ýflii
; \ r
f
Ljósmynd/Bill W. Bain
ÓLAFUR Kjartan Sigurðarson
(t.h.) tekur við verðlaununum úr
hendi Joe Gascas hjá Texaco.
fimmta sinn á þessu hausti í Aber-
deen á þriðjudag. Gert er ráð fyrir
um 1.200 áheyrendum.
Þá mun söngvarinn koma fram á
Opera Gala-tónleikum með Royal
Scottish National Orchestra að
kveldi nýársdags. Verða tónleikam-
ir í Royal Concert Hall í Glasgow.
„Undirbúningur fyrir tónleikana
gengur vel og æfingar með hljóm-
sveitinni verða milli jóla og nýárs
sem kemur, því miður, í veg fyrir að
ég komist heim til íslands um jólin.
íslenskur jólamatur er hins vegar
kominn á sinn stað í frystinum svo
okkur er ekkert að vanbúnaði að
halda skosk-íslensk jól að þessu
sinni.“
Ólafur mun Ijúka prófi frá
RSAMD næsta sumar. Er hann
þegar farinn að undirbúa prufu-
söng, aðallega í Þýskalandi, auk
þess sem hann er að kanna mögu-
leika á að komast til kennara á ítal-
íu þegar náminu í Skotlandi lýkur.
Gangi það eftir hyggst hann nýta
þann tíma til frekari prufusöngs í
Evrópu.
„Þrátt fyrir að ég reyni að gera
áætlanir fram í tímann og undirbúa
hlutina vel þá má ekki gleyma því
að tækifærin geta skotið upp kollin-
um með skömmum fyrirvara. Fram-
tíðin er spennandi og ég sé enga
ástæðu til að hafa áhyggjur. Þetta
er vissulega erfiður „bransi“ að
komast inn í en ef maður er tilbúinn
þegar tækifærin gefast er leiðin
greið.“
EMIL Þór Sigurðsson ásamt frú
Hartmann, frv. ræðismanni ís-
lands í Stuttgart.
Rúnar kveðst vera að vinna í því
að fá sýningu Emils Þórs flutta í
banka í Stuttgart eftir áramót og
jafnvel víðar.
Sýningin var sett upp í tengslum
við tónleikaröð sem Rúnar hrinti af
stokkunum í haust. Er fyrirhugað að
hún verði árviss viðburður í framtíð-
inni og hefur tveimur íslendingum
verið boðið til Abstatt á næsta ári:
Gunnari Kvaran sellóleikara, sem
halda mun tónleika í febrúar, og Ás-
geiri Smára myndlistarmanni, sem
setja mun upp sýningu næsta haust.
Hluti verkanna á sýningu Emils
Þórs í Abstatt hanga uppi í verslun
Hans Petersens í Austurveri.
Kristín
Þorkelsdóttir