Morgunblaðið - 12.12.1997, Side 32

Morgunblaðið - 12.12.1997, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dreifing: Bár, heildverslnn. Iðnbúð 5, sími 565 8299. 4.990 RH SKOR Kringlunni 12, sími 568 6062, Skemmuvegi 32L, sími. 557 5777 / — Sýning á tillögum í ÁSMUNDARSAL I Freyjugötú 41 11.-18. desemberkL14/l8. AUirvelkomnir! Landsvirkjun um útilistaverk við LISTIR MÓTETTUKÓR Hallgrímskirkju. Jólaplata frá Mótettukór Hallgrímskirkju Að endurvekja stemmningn Sýning nemenda Kvikmynda- skólans NÝLOKIÐ er tveggja mánaða námskeiði í kvikmyndagerð í Kvik- myndaskóla íslands sem starf- ræktur hefur verið frá árinu 1992. Af því tilefni verður efnt til sýning- ar á tveimur stuttmyndum eftir nemendur skólans. Sýning mynd- anna fer fram í Tjarnarbíói föstu- daginn 12. desember kl. 18. Markmið Kvikmyndaskóla Is- lands með þessum námskeiðum er að kynna nemendum alla helstu þætti kvikmyndagerðar með verk- legri og bóklegri kennslu. Námið er þannig upp byggt að fyrri mán- uð námskeiðsins kenna leiðbein- endur allar helstu undirstöðugrein- ar kvikmyndagerðar, en seinni mánuðurinn er að mestu helgaður því að búa til stuttmyndir. Leiðbeinendur og fyrirlesarar eru allir starfandi kvikmynda- gerðarmenn. ----♦ ♦ ♦ Frændkórinn í Hveragerðis- kirkju FRÆNDKÓRINN, afkomendur Jóns Gíslasonar og Þórunnar Páls- dóttur frá Norðurhjáleigu í Álfta- veri, heldur jólatónleika í Hvera- gerðiskirkju föstudaginn 12. des- ember kl. 20.30. Kórfélagar eru 25 og búa á Suðurlandi, frá Lan- deyjum til Reykjavíkur og ná- grennis. í efnisskránni eru íslensk og erlend lög sem tilheyra jólum og aðventu. Auk kórsöngs munu Eyr- ún Jónsdóttir og Helga Guðlaugs- dóttir syngja einsöng og börn úr þriðja ættlið leika á ýmis hljóð- færi. Undirleikari á tónleikunum er Anna Magnúsdóttir og stjórn- andi Eyrún Jónasdóttir. ----♦—♦-■♦-:- Myndlistarsýn- ing hjá Ófeigi NÚ stendur yfir sýning Páls S. Pálssonar myndlistarmanns hjá Ófeigi, listmunahúsi, Skólavörðu- stíg 5 og er þetta hans 17. einka- sýning. Páll sýndi síðast á íslandi árið 1990 en hann hefur unnið að list sinni í Noregi. í myndum sínum fjallar hann aðallega um mann- eskjuna og hennar nánasta um- hverfi og eru myndirnar unnar með blandaðri tækni. Sýningin er sölusýning og verð- ur opin á almennum verslunartíma í desembermánuði. „ÞESSARI geislaplötu er ætlað að skila til áheyrenda stemmningunni í Hallgrímskirkju á jólum. Markmið- ið er ekki að koma fólki á óvart, heldur að endurvekja stemmningu sem það hefur upplifað,“ segir Hörð- ur Áskelsson um geislaplötuna Jól í Hallgrímskirkju, þar sem fram koma Mótettukór Hallgrímskirkju, hljóm- skálakvintettinn, Douglas A. Brotc- hie organisti og Daði Kolbeinsson óbóleikari, auk Harðar, sem stjórnar og leikur á orgel. Að sögn kórstjórans hefur staðið til í áratug að gefa út jólaplötu með söng Mótettukórsins. Af ýmsum ástæðum, aðallega vegna anna, hef- ur því hins vegar ekki verið komið við, fyrr en nú. „Aðspurður um jóla- plötuna hef ég alltaf sagt að hún komi um næstu jól og nú var svo komið að okkur fannst við ekki geta ýtt þessu frá okkur lengur.“ Segir Hörður að platan sé upp- taktur fyrir fleiri plötur. „Þegar ég fór að huga að þessari útgáfu gerði ég mér fljótlega grein fyrir því að efnið sem átti að passa inn í þennan ramma var of mikið. Platan hrein- lega „sprakk"! Ég ákvað því að tak- marka efnið og freista þess að gefa út fleiri plötur síðar.“ Á Jól í Hallgrímskirkju er að mestu leyti að finna útsetningar á jólasálmum frá 17. öld en Hörður segir „rómantísku jólin“, það er músík frá 19. öldinni, og íslensku jólalögin, bíða betri tíma. Reyndar eru tvö íslensk verk á plötunni en annað þeirra, lag Sig- valda Kaldalóns, Nóttin var sú ágæt ein, er „viljandi eða óviljandi samið í pastorale-takti og 17. aldar stíl“, svo sem Hörður kemst að orði. Flest verkanna á Jól í Hallgríms- kirkju eru í útsetningum sem fólk ætti að kannast við en Hörður kveðst þó hafa dregið fram fáeinar nýjar raddsetningar, sem kórinn hefur ekki sungið áður, til að auka á fersk- leikann. Eins og helgistund Platan er byggð upp eins og helgi- stund, í þeim skilningi að klukkur kirkjunnar hringja hana inn og út, orgelið hefur stóru hlutverki að gegna, að ekki sé minnst á Mótettu- kórinn. Þá segir Hörður að ekki hafi verið hægt að gera plötuna án Hljómskálakvintettsins en hefð er fyrir því að hann leiki á undan aftan- söng í Hallgrímskirkju að kveldi aðfangadags. Ennfremur vekur sú nýbreytni athygli að Hörður spilar á klukkur kirkjunnar í einu verki, Canzon du- odecimi toni eftir Gabrieli. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem leikið er á kirkjuklukkur í tónverki hér á landi en Hörður telur ekki ólíklegt að það eigi eftir að gerast oftar. „Það er alltaf gaman að fínna nýja fleti á tónlistinni.“ Platan er öll tekin upp í Hallgríms- kirkju enda segir Hörður lykilatriði að fólk „upplifi" kirkjuna þegar það hlýðir á plötuna. „Við eftirvinnsluna leituðum við því að hljómnum, eins og hann er í kirkjunni, en ekki eins og hann getur verið. Fólki á að finnast það vera statt í Hallgríms- kirkju þegar það setur plötuna í geislaspilarann - og það finnst mér hafa tekist. Sveinn Kjartansson upp- tökustjóri á því hrós skilið fyrir tæknivinnuna." Þess má geta að hluti efnisins á plötunni verður fluttur á jólatónleik- um Mótettukórsins og Kristjáns Jó- hannssonar tenórsöngvara í Hall- grímskirkju og Akureyrarkirkju næstu daga. Mun Kristján meðal annars syngja Nóttin er sú ágæt ein og Það aldin út er sprungið með kómum. r u ’ODQDQfflP Dofel Dúkka sem labbar, drekkurog pissar. Kr. Miímínhiís Kr. 4500 SniírustyrJur brunabál Kr. 3150 Frábaftvi árval af ■ ABA 'íKspssKr. æ/(°J hvergi lægra verð en í Kolaporlinu Ár , *. Leikföng -JU Fatnaður ^ Skartgripir Geisladiskar Antikmunir Gjafavara Matvæli Sælgæti Bækur Skór ..og margt fleira Opið alla daga til jafl * IOLA Jmarkaður. ^KOLAPORTIÐ^ Helgar kl. 11-17 - Virka daga kl. 12-18 J

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.