Morgunblaðið - 12.12.1997, Page 41

Morgunblaðið - 12.12.1997, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 41 léttvín en piltar, en enginn kynja- munur kemur fram á því hvort þau drekka bjór. Ekki kemur heldur fram kynjamunur á því hvort þau drekka sterkt áfengi þegar þau eru 14 og 15 ára, en við 17 ára aldur drekka fleiri piltar en stúlkur sterkt áfengi. Þá kemur ekki á óvart að piltamir drekka miklu meira í hvert skipti af bjór en stúlk- urnar. Piltarnir drekka einnig miklu meira af sterku áfengi en stúlkum- ar. Strax við 15 ára aldur drekkur fjórðungur pilta, sem á annað borð neyta áfengis, 5 glös eða fleiri í senn af sterku áfengi og um þriðj- ungur þeirra drekkur svo mikið við 17 ára aldur, en um Q'órðungur stúlknanna. Sigrún segir að lengi hafi verið vitað um mikla áfengis- neyslu pilta. „Það sem vekur sér- staka athygli er að ein af hveijum fjórum 17 ára stúlkum drekkur 5 eða fleiri glös af sterku áfengi í hvert sinn sem hún drekkur. Það verður að teljast ískyggilega há tala.“ Sum drukkin á fermingaraldri Af þeim sem neytt höfðu áfeng- is hafði um helmingur fundið á sér 14 ára eða yngri, þ.e. rétt um ferm- ingu og um þriðjungur hafði orðið mjög dmkkinn 14 ára eða yngri. Um helmingur unglinganna sagð- ist fyrst hafa orðið mjög dmkkinn 15 ára eða yngri og er þetta hlut- fall komið upp í 80% þegar ungl- ingamir em orðnir 17 ára. Hlut- fallslega fleiri stúlkur en piltar segjast hafa verið yngri þegar þær prófuðu fyrst að drekka, þegar þær fundu fyrst á sér og þegar þær urðu fyrst dmkknar. Hið sama á við um drykkjuna og reykingamar, að merkja má á viðhorfum þess hóps unglinga, sem ekki drekkur 14 ára, hveijir em líklegir til að byija að drekka 15 ára, þar sem andstaða þeirra við áfengisneyslu fólks er minni en hinna, sem byija 16-17 ára eða hafa ekki byijað að drekka við 17 ára aldur. Viðhorf unglinga í sama aldurshópi til áfengisneyslu eru því ólík og telur Sigrún mikilvægt að hugað verði að því í forvarnastarfi hvernig megi ná til ólíkra hópa. Þá segir Sigrún að mikil breidd sé í áfengisneyslu unglinga, þar sem aðgreina megi nokkra neyslu- hópa, þ.e. þá sem aldrei hafa próf- að áfengi, þá sem hafa rétt smakk- að áfengi, þá sem era að byija að drekka og hafa fundið á sér og þá sem drekka reglulega. „Það er ekki ólíklegt að í forvarnastarfi þurfi að taka tillit til allra þessara hópa. Einnig er mikilvægt að gera sér grein fyrir hvaða unglingar em í sérstökum áhættuhópi." Félagslegt umhverfi ungling- anna skiptir máli varðandi drykkju, ekki síður en reykingar. Afengis- neysla unglinga tengist þó ekki stéttarstöðu foreldranna, fremur en reykingar, en þeir unglingar sem eiga nána vini sem drekka oft neyta áfengis oftar en ella. Eins og í tilviki tóbaksreykinga virðist minna samband á milli drykkju unglings og foreldra en á milli drykkju unglings og vina. í niður- stöðum sínum setur Sigrún nokkra varnagla við sannleikgildi þessa. Hún bendir á, að unglingarnir gætu verið kunnugri drykkju vina sinna en foreldra, eða fremur til- búnir til að viðurkenna drykkju vinanna. Fjölskyldugerð skiptir ekki miklu máli um áfengisneyslu ungl- inga, en þó er sami munur meðal stúlkna og í tilviki reykinga, þ.e. hlutfallslega færri sem búa hjá móður og föður drekka en þær sem búa hjá móður og sambýlismanni. Sigrún vísar þar til erlendra rann- sókna, sem sýnt hafa að stúlkur sem eru nánar móður sinni eiga erfitt með að sætta sig við stjúp- föður og gætu tóbaksreykingar og áfengisneysla þeirra verið þáttur í að sýna mótþróa. / grein í blaðinu á morgun verður fjallað um hassreykingar unglinga, neyslu á öðrum ólöglegum vímuefn um og tengsl neyslu ýmissa efna. PCIlímogfúguefiii +: ;íí k lit Stórhöfða 17, við GuUinbrú, sími 567 4844 (ÚehmntQklúf)tílii landsmióadir'skartgripir mc() íslcnslíinn stcimun, ncrlum oo Jcmontum Skólavörðustíg 10 Sími 561 1300 Fax 561 1315 iýi LSM l «3 OfMðf Á GJAFVERÐI <KF-265 Kælir 197 Itr. Frystir 55 Itr. HxBxD l 46.5 x 55 x 60 TILBOÐ Aðeins 54.990,- * Það eru nýjar glæsilegar innréttinqar í öllum 20 gerðum €§MW%ii kæliskápanna. íyrsta flokks frá "«+■ Æonix HÁTÚNI6A REYKJAVfK SÍMI 552 4420 1^8119^1^8^1 HERKULES 6ENCURTIL LIÐS VIÐ ÆSKULÍNUFÉLACA Nú eru skemmtilegir tímar hjá Æskulínufélögum Þeir sem tæma baukinn fá flott verðlaun: Herkúlesar vatnsbrúsa* og Herkúlesar lítabók. NYIR FELAOAR ERU VELKOMNIR Allir krakkar sem vilja gerast Æskulínufélagar geta komið í næsta Búnaðarbanka og lagt inn 1000 kr. á Stjömubók Æskulínunnar. Þeir fá afhentan Herkúlesar bol og sparibaukinn Snæfinn eða Snædísi. BUNAÐARBANKINN -Traustur banki SAMUá 'Meðan birgðir endast. TAKIÐ ÞÁTTÍ HERKÚLESARLEIKNUM. DREGIÐ VERÐUR30. DESEMBER. ÞÁTTTÖKUSEDLAR ERU AFHENTIR í ÖLLUM ÚTIBÚUM BÚNADARBANKANS OC í SAMBÍÓUNUM. 600 vinningar: 5 stórir Pegasus hestar • 25 litlir Pegasus hestar* 300 krakkar fá tvo miöa á Herkúlesarmyndina í Sambíóunum • 200 Herkúlesarmyndateningar • 50 Orkupakkar (Orkulýsi og Orkufjör)* 20 fá aöild aö Æskulínunni. ©Disney YDDA F'00.62ISlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.