Morgunblaðið - 12.12.1997, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMIIMGAR
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 53
BJÖRGVIN
JÓNSSON
bræðranna á Grettisgötu 6. Þar
hófu þau Palli búskap og sonurinn
Björgvin fæddist þar árið 1955.
Asta varð snemma ímynd fegurð-
ar og glaðværðar, enda kunni hún
sannarlega að umgangast fólk
með hlýju og jákvæðni.
Mér er minnisstætt hve henni
var lagið að örva og hvetja okkur
sem yngri vorum og hæla á þann
hátt að gleðin fyllti hugann.
Með nýbyggingu við Fífu-
hvammsveg urðu Palli og Ásta ein
af frumbyggjum almennrar
byggðar í Kópavogi og bjuggu þar
öll sín búskaparár. Dóttirin Mar-
gréý fæddist þar árið 1959.
Ásta var mikilvirk í bæjarmál-
um og virtist hafa tíma til marg-
háttaðra félagsstarfa auk mynd-
arlegra húsmóðurstarfa. Heimili
þeirra var hið glæsilegasta og
gleðin og gestrisnin mætti öllum
sem þangað komu. Það var alltaf
tilhlökkunarefni að heimsækja
fjölskylduna á Fífuhvammsvegin-
um.
Ásta lagði mikla rækt við fjöl-
skyldu sína og ættingja og er
hennar minnst sem fyrirmyndar-
manneskju á því sviði. Þessir
mannkostir Ástu áttu eftir að
nýtast henni í starfi fyrir aldraða
og margur samferðamaður hennar
til sólarlanda gat henni hið besta
orð fyrir fararstjórn sem ávallt
mótaðist af elsku og umhyggju.
Við andlát Palla árið 1986 urðu
mikil umskipti tilverunnar, en
samheldni barna og barnabarna
gerðu lífið auðveldara._
Þegar ég talaði ti! Ástu í sex-
tugsafmæli hennar óraði mig ekki
fyrir þvi hve skammur tími fram-
tíðarinnar henni var ætlaður með
okkur, en veikindin gerðu ekki boð
á undan sér.
Þessi fátæklegu orð eru fyrst
og fremst þakkir til Ástu fyrir
ánægjulega og trausta samfylgd
um leið og ég fyrir hönd föður
míns og fjölskyldu votta vini henn-
ar Ásgeiri, börnum hennar og
barnabörnum einlæga samúð.
Minningin um góða konu mun
lifa.
Gunnar Þorláksson.
Það var dimmt yfir götunni
okkar á Seltjarnarnesi í janúar
síðastliðinn j>egar nágranni okkar
og vinur Ásthildur Pétursdóttir
veiktist. Það birti aftur er voraði
bæði á himni og í hugum. Við
báðum góðan Guð að gefa Ást-
hildi heilsu aftur til þess að gleði,
bros og hlátur myndi fylla um-
hverfið um leið og sólin sendi hlýju
sumarsins til okkar. Það virtist
um stund sem birtan myndi ná
yfirhöndinni, líka í húsinu á Mela-
braut 50 þar sem Ásgeir og Ást-
hildur höfðu átt svo góða daga.
Ég vil halda því fram að trúin
flytji fjöll, alveg sama hversu stór
þau eru. En stundum nær eitthvað
annað yfirhöndinni og það gerðist
í þetta sinn. Einhvers staðar ann-
ars staðar er mikil þörf fyrir þá
gleði og orku sem geislar frá Ást-
hildi, það er eina skýringin á því
að hún er kölluð burtu í blóma
1 lífsins. í minningunni lifa svo ótal
margar stundir sem við höfum átt
með Ásthildi bæði frá samstarfinu
á Samvinnuferðum-Landsýn og
síðar sem okkar besta nágranna.
Við vitum að henni leið vel í litla
húsinu við hliðina á okkur, við
hefðum bara viljað hafa hana svo
miklu lengur. Alltaf var hún bros-
andi og lífsglöð þessi kona. Meira
að segja þegar bíllinn minn lenti
; inni í garðinum hennar og stöðv-
aðist í runnunum við húshornið
þá kom Ásthildur í dyragættina
og sagði: Nei, en heppilegt, ég
ætlaði einmitt að biðja þig um far
í vinnuna. Svona var hún alltaf,
glöð og hlý, maður varð ríkari af
að fá að umgangast svona per-
sónu.
Við biðjum algóðan Guð að
styrkja Ásgeir, Margréti og Björg-
vin og þeirra ijölskyldur í þessum
| mikla missi. Æðruleysi Ásthildar
á allan hátt, glaðlega brosið henn-
ar og hlátur mun verða efst í
huga okkar.
Kveðja frá Hildi, Simma, Rikka
og Jóni Teiti.
Hildur Jónsdóttir.
Mig langar til að minnast Ást-
hildar, móður æskuvinkonu
minnar, Margrétar. Ásthildur opn-
aði heimili sitt fyrir mér þegar ég
var barn og unglingur. Á hennar
heimili var alltaf gott að koma.
Húsmóðirin létt og kát. Maður var
velkominn hvort sem var í mat
eða kaffi, stutta dvöl eða nætur-
gistingu. Þar var notalegt að vera.
Það var gott að spjalla við Ást-
hildi eða bara horfa á hana við
heimilisstörfin. Baka, strauja eða
jafnvel sauma út nöfn í sérstakan
„gestabókadúk“. Það var dúkur
sem gestir höfðu ritað nafn sitt á
og Ásthildur saumaði síðan nöfnin
út. _
Ásthildur var sérstakt jólabarn.
Hún naut jólastússins vel, matbúa,
föndra, skreyta, spila, syngja,
skrifa jólakort, og bjóða heim fólki.
Ég sem unglingur var svo heppin
að fá að dvelja á hennar heimili
um jól. Það voru góð jól, eins og
jól eiga að vera, friður og kærleik-
ur. Nokkur áramót átti ég með
Ásthildi og hennar góðu fjölskyldu.
Þá eins og alltaf leið mér vel með
þeim. Þegar ég held mín jól og
áramót minnist ég ætíð þessara
hátíðisdaga á heimili Ásthildar og
fjölskyldu hennar. Sumir siðir
fylgja mér enn. Það er ekki lítils
virði að eiga á sínum æskuárum
innhlaup á gott og traust heimili
og geta sótt sér fyrirmyndir þar.
Guð blessi afkomendur og vini
Ásthildar.
Valgerður Garðarsdóttir.
„Til þess að geta glatt aðra verð-
ur maður að vera glaður sjálfur,"
var viðkvæði Ásthildar Pétursdótt-
ur samstarfsmanns okkar til fjölda
ára. Þetta viðhorf hennar gekk
eins og rauður þráður í gegnum
líf hennar og smitaði út frá sér
alls staðar þar sem hún kom. Það
er því ekki að undra, að þessi
glæsilega kona, alltaf smekklega
tilhöfð og brosandi, hefði góð og
mannbætandi áhrif sem við erum
öll þakklát fyrir að hafa fengið að
njóta.
Það er raunar með ólíkindum
hversu mikið Ásthildur hafði að
gefa öðrum og það gerði hún með
gleði og af umhyggju fyrir með-
bræðrum sínum. Starf í ferðaþjón-
ustu getur verið afar erilsamt og
reynir á þjónustulund og lipurð og
þar var Ásthildur okkur hinum
besta fyrirmynd sem við gátum
fengið.
Ásthildur starfaði sem farar-
stjóri í hartnær 20 ár og brautryðj-
andastarf hennar eru ferðir fyrir
eldri borgara erlendis. Hún vildi
alls ekki kalla þessar ferðir „Orlof
aldraðra“ heldur gaf þeim heitið
„Kátir cjagar - Kátt fólk“ - enda
sagði hún oft, að þessi „yngri“
hefðu ekki roð við þessum hressu
ferðafélögum sínum. Umhyggja
hennar fyrir þeim sem henni var
treyst til þess að leiðbeina á ferðum
erlendis var orðlögð og langt um-
fram það, sem venjulega gerist.
Þar sem starfmenn Samvinnu-
ferða-Landsýnar komu saman á
mannamót var Ásthildur oftar en
ekki í forsvari og bjargaði heiðri
okkar margsinnis. Á hugann leita
einnig minningar úr stórkostlegum
samkvæmum sem hún hélt sam-
starfsfólki sínu bæði á Fífu-
hvammsveginum og úti á Nesi af
slíkum rausnarskap að ógleyman-
legt er.
Það rifjast upp lítil saga sem
segir kannski allt sem segja þarf:
Ein samstarfskona Ásthildar hitti
hana á fömum vegi og hafði orð
á því hvað hún væri með fallega
nælu. „Já, og veistu hvað ég ætla
að gera við hana?“ Nei, var svarið.
„Gefa þér hana,“ sagði Ásthildur
og nældi nælunni í jakka sam-
starfskonunnar.
Um leið og við kveðjum Ásthildi
með miklum söknuði og þakklæti
sendum við Ásgeir og íjölskyldu
Ásthildar okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Starfsfólk
Samvinnuferða-
Landsýnar.
Ásthildur Pétursdóttir er látin
63 ára, hún sem geislaði af lífs-
orku, naut þess að vera til og hafði
ánægju af starfí sínu sem farar-
sjóri í sólarlandaferðum aldraðra.
Á árunum sem ég kynntist Ást-
hildi var hún í stjórn sjálfstæðis-
kvennafélagsins Eddu í Kópavogi
og bæjarstjómarfulltrúi. Ásthildur
var mikil félagsmálakona og koma
víða við á þeim vettvangi. Hún var
formaður Eddu í 6 ár frá 1974 til
1980. Starfið í Eddu blómstraði á
hennar formannsárum, hún kom
með nýjar hugmyndir og fram-
kvæmdi þær. Hún hafði lag á að
hafa gott andrúmsloft í kringum
sig og var glaðlynd og góður vin-
ur. Hún hafði hæfileika til að
stjórna og hreif aðra með sér. Hún
var m.a. formaður Kvenfélagsa-
sambands Kópavogs, varaformað-
ur Landssambands sjálfstæðis-
kvenna, varaformaður kjördæmis-
ráð sjálfstæðisflokksins í Reykja-
neskjördæmi. Hún sat í fjölmörg-
um nefndum fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í Kópavogi. Ásthildur var
brautryðjandi í að koma á starfi
fyrir aldraða í Kópavogi og var
forstöðumaður þess í mörg ár.
Meðal þess fólks var hún vinsæl
og vel metin. Hún kunni að láta
fólki líða vel og umgekkst það af
varfærni og elskulegheitum. Við
hjónin leigðum um árabil húsnæði
í eigu þeirra hjóna, fyrir fyrirtæki
okkar og var það samstarf eins
og best var á kosið. Þau hjón gerðu
allt til að okkur liði vel og þau
voru sanngjörn í viðskiptum. Éig-
inmaður Ásthildar var Páll Þor-
láksson en hann lést langt fyrir
aldur fram árið 1986. Þau voru
elskuleg og glæisleg hjón, góð
heim að sækja. Sjálfstæðiskvenna-
félagið Edda þakkar þeim þá miklu
góðvild sem þau sýndu félaginu
og verður skráð á spjöld sögunnar
um ókomna tíð. Við vottum vini
hennar Ásgeiri Nikulássyni, börn-
unum Margréti og Björgvin,
tengdabömum og barnabömum,
okkar dýpstu samúð. Eddukonur
þakka þér Ásthildur, fyrir liðnar
samverustundir og biðjum þér
Guðs blessunar.
F.h. Sjálfstæðiskvennafélagsins
Eddu,
Þorgerður Aðalsteindóttir,
formaður.
í dag kveðjum við vinkonu okk-
ar, Ásthildi Pétursdóttur. Það var
fyrir um sjö árum að við kynnt-
umst henni vegna fasteignavið-
skipta.
Þetta var upphafið af vináttu
sem við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að njóta með henni og síðar
vini hennar, Ásgeiri Nikulássyni.
Kemur þar margt upp í hugann
svo sem útivistarferðir af ýmsu
tagi, innanlands og utan, svo og
skemmtilegar stundir í heimahús-
um.
Eftir heimkomu úr okkar síðustu
sameiginlegu ferð fór Ásthildur að
kenna lasleika sem þjáð hefur hana
til hinstu stundar. í gegnum öll
veikindi Ásthildar stóð Ásgeir
henni við hlið sem klettur.
Ásthildur var röggsamur stjórn-
andi sem berlega kom fram í starfi
hennar sem fararstjóri. Þá áttu
glaðværð og mannblendi stóran
hlut í ævi hennar og í mannfögnuð-
um var hún oftast hrókur alls fagn-
aðar.
Við erum þér þakklát, Ásthild-
ur, fyrir allar þær gleðistundir sem
við áttum saman með þér. Þín verð-
ur saknað.
Ástvinum hennar sendum við
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Björn og Hekla.
+ Björgvin Jónsson fæddist á
Hofi á Eyrarbakka 15. nóv-
ember 1925. Hann lést á Kan-
aríeyjum 23. nóvember síðast-
liðinn og fór útför hans fram
frá Hallgrímskirkju 9. desem-
ber.
Okkur langar að minnast með
nokkurm orðum Björgvins Jónsson-
ar vinar og félaga í mörg ár. Við
hjónin vorum stödd á suðrænum
slóðum er við fréttum lát þitt, en
það kom okkur á óvart því þú hafð-
ir verið svo hress stuttu áður. Það
er margs að minnast úr löngu sam-
starfi og óteljandi atvik koma upp
í huganum, núna þegar þú ert fall-
inn frá. Við hófum með þér útgerð
í ársbyrjun 1973, en kynni okkar
höfðu þá staðið í nokkur ár. Útgerð
okkar byijaði farsællega, því við
vorum þátttakendur í að flytja Vest-
mannaeyinga til Þorlákshafnar, er
gosið hófst í Eyjum. Samvinna okk-
ar stóð óslitin í 22 ár eða þar til
þú ákvaðst að draga þig í hlé vegna
lasleika og til þess að njóta ellinnar
með Ólínu þinni.
í útgerð skiptast á skin og skúr- *
ir, og hjá okkur var það ekkert
öðruvísi, en þó voru björtu hliðarnar
miklu fleiri. Undir styrkti stjórn
þinni dafnaði fyrirtækið og stóð í
blóma þegar þú hættir. Margar
góðar minningar eru ofarlega í
huganum, til dæmis fróðleg og
skemmtileg samtöl okkar á skrif-
stofunni í Austurstræti. Heimboð á
ykkar fallega og hlýja heimili í
Kópavoginum, eða þegar við hjónin
vorum stödd í Póllandi með ykkur,
en þar áttum við margar ógleyman-
legar stundir. Margar skemmtilegar
ferðir á útimarkaði í Gdansk,
gönguferðir um Hansahverfið og
margt annað.
En nú er kallið komið sem við
öll verðum að hlýða að lokum. Við
hjónin viljum þakka þér, Björgvin,
fyrir traust og gott samstarf, og
alla þá góðvild sem þú sýndir okkur
og börnum okkar alla tíð, góður
guð blessi þig.
Kæra Ólína, við vottum þér og
ijölskyldunni okkar dýpstu samúð.
Hákon, Rósa og fjölskylda.
t
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
SVAVA GREENFIELD ZOÉGA,
(Bankastræti 14),
90 Galley Lane,
Barnet,
sem lést mánudaginn 1. desember sl., verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánu-
daginn 15. desember kl. 13.30.
Jóna Sparey,
Elizabeth Frau, Sebastian Frau,
Anita Page, Geoffrey Page,
George Greenfield, Alison Greenfield,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
EINARS JÓNS JÓNSSONAR,
Háholti 16,
áður Stekkjarhvammi 15,
Hafnarfirði,
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á
Landspítalanum og Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Margrét Guðrún Kristjánsdóttir,
Einar M. Einarsson,
Sólveig Einarsdóttir,
Jón Benedikt Einarsson,
Þóra Kr. Einarsdóttir,
Halldóra Sigr. Einarsdóttir,
Sigrún Einarsdóttir,
Þórdis Stefánsdóttir,
Hallgrímur Sigurðsson,
Guðmundína Hermannsdóttir,
Áskell Bjami Fannberg,
Ingimar Arndal Árnason,
Gunnar Herbertsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Við þökkum af alhug samúð og hlýju við and-
lát og útför móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
ÞÓRUNNAR ÁGÚSTU ÁRNADÓTTUR.
Kolbrún Haraldsdóttir, Hafsteinn Sölvason,
Ema G. Ámadóttir, Eiríkur Baldursson,
Sigurður Ámason. Helga Erlendsdóttir
og barnaböm.
Lokað
Lokað í dag, föstudaginn 12. desember, vegna jarðarfarar
VILHJÁLMS B. HJÖRLEIFSSONAR.
Hárprýði-Fataprýði,
Álfheimum 74, Giæsibæ.