Morgunblaðið - 12.12.1997, Page 69

Morgunblaðið - 12.12.1997, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 69 FRÉTTIR Jólatré frá vinabæjum Hafnar- fjarðar LJÓSIN á jólatrjám frá vinabæjum Hafnarfjarðar verða tendruð á morgun. Dagskráin hefst á Thorsplani kl. 13.15 þar sem Lúðrasveit Hafnar- fjarðar flytur nokkur lög. Sendi- herra Danmerkur Klaus Otto Kapp- el flytur kveðju og tendrar ljósin á jólatré sem er gjöf frá danska vina- i bænum Fredriksberg. Formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, Valgerð- ur Guðmundsdóttir, flytur ávarp. Sr. Sigurður H. Guðmundsson flyt- ur hugvekju og Karlakórinn Þrestir syngja nokkur lög. „Að athöfn lokinni um kl. 14 leið- ir Lúðrasveit Hafnarfjarðar skrúð- göngu á jólaball í íþróttahúsið v/Strandgötu. Hljómsveit Carls Möller leikur og Diddú tekur nokk- ur lög. Auðvitað koma jólasveinarn- 1 ir í heimsókn og gengið verður í kringum jólatréð. Kl. 16.15 hefst leikur Hauka og Stjörnunnar í handknattleik kvenna og er að- gangur ókeypis," segir í fréttatil- kynningu. Flensborgarhöfn kl. 12.30 Sendiherra Þýskalands flytur kveðju og tendrar ljós á jólatré sem er gjöf frá vinabænum Cuxhaven. Söngur leikskólabarna frá Vestur- 1 koti. Már Sveinbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Hafnarfjarðarhafnar i flytur ávarp. Foreldrarölt ber árangur FORELDRAFÉLAG Hagaskóla í Reykjavík skipuleggur í samvinnu I við félagsmiðstöðina Frostaskjól þriðja veturinn í röð rölt foreldra i um Vesturbæinn um helgar til eftir- lits og aðhalds með því að reglur um útivist barna og unglinga séu haldnar. Er það samdóma álit Foreldrafé- lagsins og forráðamanna skóla á svæðinu, KR-inga, Frostaskjóls og hverfislögreglu að nú sé allur annar bragur á útivistarmálum en fyrir , rölt og áberandi sé að landasull meðal unglinga sé miklu minna. 1 Vilja menn þakka foreldraröltinu | þessa bragarbót. Foreldrafélagið kannar nú hvort ekki sé rétt að beina sumum rölturum sínum í miðbæinn til að kanna ástand mála þar um helgar, segir í fréttatilkynn- ingu. Aðalfundur Foreldrafélagsins var haldinn hinn 19. nóvember sl. en á honum á sæti allt fulltrúaráð félags- I ins en það skipa tveir til þrír fulltrú- ar hverrar bekkjardeildar sem nú 1 eru alls 22. Nemendur skólans eru I nú alls 588 í 8.-10. bekk. Er skól- inn því fjölmennasti unglingaskóli landsins. Þá sótti fundinn Einar Magnússon, skólastjóri Hagaskóla, en Foreldrafélagið hefur átt mjög gott samstarf við hann. Skólastarf í Hagaskóla er og með miklum blóma. Foreldrafélagið tel- ur að skólinn standi sterkur hvað j varðar kennslu, reglu og aga í I skólastarfi. Þá er félagslíf í skólan- um til fyrirmyndar. Myndarleg ( sendisveit nemenda skólans vann nýlega hæfileikakeppni grunnskóla Reykjavíkur, Skrekk. Stjórn Foreldrafélagsins skipa nú þau Tryggvi Agnarsson, formaður, Sólveig Guðmundsdóttir, varafor- maður, Sigrún Ása Sturludóttir, röltstjóri, og meðstjórnendur þau Una Hauksdóttir, Margrét Hvann- | berg og Valgerður Hallgrímsdóttir. I A aðalfundinum voru Sveini Snæ- land, fráfarandi formanni Foreldra- ' félagsins, þökkuð mikil og góð störf 1 þágu þess en hann var frumkvöð- ull að endurreisn félagsins fyrir fáum árum. Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson GUÐJÓN Ólafsson, myndlist- armaður með eitt verka sinna. Teikning- um af hús- um á Akranesi Akranesi. Morgunblaðið. GUÐJÓN Ólafsson, myndlistar- maður, hefur opnað sýningu á 70 teikningum af húsum á Akranesi sem hann teiknaði á þessu ári. Myndirnar eru af húsum gömlum og nýjum og eru sum þeirra ekki til lengur og sumum hefur verið breytt nokkuð. Guðjón Ólafsson er 62 ára gam- all Vestmannaeyingur. Hann stundaði nám í Myndlista- og handíðaskólanum veturinn 1955-57. Guðjón hélt sína fyrstu málverkasýningu árið 1975 og aftur var hann með sýningu árið 1995 auk þess sem nú stendur yfir sýning hans á 70 vatnslita- myndum í Akogeshúsinu í Vest- mannaeyjum. Þá hefur hann tekið þátt í nokkrum einkasýningum. Árið 1973 teiknaði hann myndir af húsum í Vestmanneyjum í bók Guðjóns Ármanns Eyjólfsonar, skólastjóra Sjómannaskólans í Reykjavík, sem hét Vestmanna- eyjar, byggð og eldgos. Bókin var metsölubók á sínum tíma. Sýning Guðjóns á Akranesi er í Galieríi Ramma og Mynda að Kirkjubraut 17 og verður hún opin til jóla. Myndirnar eru allar til sölu. Krossgátu- bókin komin út KROSSGÁTUBÓK ársins 1998 er komin út hjá Ó.P.-útgáfunni ehf. Bókin kemur alltaf um miðj- an desember ár hvert. Þetta er fimintánda árið sem bókin kemur út. Krossgátuhöfundar eru þeir Gísli Óskarssonn, Sigtryggur Þórhallsson o.fl. I bókinni eru krossgátur með ýmsum formum svo og talnagátur. Lausnir er að finna aftast í bókinni. Heimsendingaþj ónusta hjá Kringlunni HAFIN er ný þjónusta við við- skiptavini Kringlunnar, heim- sendingarþjónusta, sem við- skiptavinurinn mun greiða fyrir hjá verslunum í Kringl- unni. „Við kaup á vörunni verður boðið upp á þessa þjónustu og er kostnaður við heimsending- una 800 kr. sem leggst ofan á verð vörunnar. Kringlan mun sjá um að koma seðlum til verslananna sem viðskiptavin- urinn svo fyllir út sjálfur í prentstöfum," segir í fréttatil- kynningu. SIGRÚN Jónsdóttir sýnir sr. Gísla Gunnarssyni hökulinn, Hökull í Reynistaðakirkju SIGRÚN Jónsdóttir, kirkju- listakona, hefur afhent sr. Gísla Gunnarssyni, sóknar- presti í Reynistaðakirkju í Skagafirði, hvítan hökul sem hún gerði sérstaklega fyrir þá kirkju. Hökullinn er handofinn og með listsaumuðum táknum á. Hann var gefinn af Hróðmari Magnússyni og Ásdísi Björns- dóttur á Ogmundarstöðum. Um þessar mundir stendur yfir sölusýning Sigrúnar á batíkmunum og fleiru í Ný- höfn við Geirsgötu í Reykjavík og þar er hökullinn til sýnis. Sýnir ljós- myndir frá Afríku SÝNING á ljósmyndum frá Afr- íku stendur nú yfir í húsnæði KFUM og K við Holtaveg 28 í Reykjavík. Myndirnar tók Lárus Páll Birgisson í ferð til Afríku á liðnu sumri. Sýningin á að standa til 20. janúar og hefur hún feng- ið nafnið „Nærmynd Afríka". Sýndar eru 12 myndir sem Lárus Páll tók í kynnisferð sem hann og fleiri tóku þátt í og kynntu sér kristniboðsstarf Sambands íslenskra kristniboðsfélaga í Kenýju í ágúst síðastliðnum. Flestar eru mannlífsmyndir en nokkrar dýramyndir slæddust einnig með. Myndirnar eru til sölu. SÝNING á ljósmyndum eftir Lárus Pál Birgisson stendur nú yfir í húsi KFUM og K við Holtaveg í Reykjavík. Lúsíuhátíð í Norræna húsinu LÚSÍUHÁTÍÐ verður haldin í Nor- ræna húsinu laugardaginn 13. des- ember kl. 14. Dagskráin verður með hefð- bundnu sniði; Lúsía og þernur henn- ar syngja sænsk og íslensk jólalög undir stjórn Mariu Cederborg. Þær koma tvisvar fram um daginn, í byijun dagskrár kl. 14 og aftur kl. 15.30. í kaffistofu Norræna hússins verður boðið upp á „lúsíuketti" (lussekatter) og piparkökur auk safa fyrir börnin og kaffis fyrir fullorðna. Aðgöngumiðar verða seldir í Norræna húsinu dagana fyrir Lúsíu og við innganginn. Miðinn kostar 200 kr. fyrir börn og 400 kr. fyrir fullorðna og eru veitingar innifaldar í verðinu. Það er íslensk-sænska félagið, sænska félagið á íslandi auk Norræna hússins sem standa sameiginlega að Lúsíuhátíðinni. Allir eru velkomnir meðan hús- rúm leyfir. Jólatrés- skemmtun á Eiðistorgi ÁRLEG jólatrésskemmtun fyrir- tækja og verslana við Eiðistorg á Seltjarnarnesi verður haldin laugar- daginn 13. desember. Skemmtunin hefst kl. 14 og mun standa til kl. 16. Hljómsveitin Gleðigjafar flytur jólalög og dægurperlur fyrri ára. Auk þess syngja söngvaramir Helga Möller og André Bachmann jólalög. Jógi trúður dansar á línu- skautum. Kertasníkir og Hurða- skellir ganga í kringum jólatréð með börnunum. Þeir verða án efa með einhvern glaðning fyrir börnin í pokum sínum. Ókeypis bíla- stæði á Tjarnar- bakkanum í JÓLAÖSINNI getur verið gott fyrir borgarbúa að vita um nýju ókeypis bílastæðin í miðbæ Reykja- víkurborgar. Nýjustu stæðin eru á Tjamarbakkanum og á gangstétt- ,v_ inni á milli Safnaðarheimilis Dóm- kirkjunnar og Tjarnarskóla annars vegar og Iðnó hinsvegar, segir í fréttatilkynningu. Hægt er að koma talsverðum fjölda bíla á nýja Tjarnarbakka- stæðið og eru stæðin ókeypis. Kvikmynda- sýningar fyrir börn KVIKMYNDASÝNINGAR fyrir böm eru alla sunnudaga kl. 14 í Norræna húsinu. Sunnudaginn 14. desember verð- ur norska fjölskyldumyndin „Reisen til julestjernen" sýnd. Sjónvarpið flytji ekki í Efstaleiti MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun stjórnar Sam- bands ungra sjálfstæðismanna: „Um leið og stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hvetur menntamálaráðuneytið til að endur- skoða þá ákvörðun sína að veija hundruðum milljóna króna til að flytja Ríkissjónvarpið frá Laugavegi í Efstaleiti, ítrekar hún þá kröfu sína að stofnunin verði seld hið snarasta."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.