Morgunblaðið - 12.12.1997, Qupperneq 70

Morgunblaðið - 12.12.1997, Qupperneq 70
70 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Grettir * i s JSjLOJbfivrv PoJLj, frrvj ÁxotMUM'? HOU) DOES 5HE KNOWIFTHE LETTER 5HE 60T WA5 YOURLA5T LETTER? ANPIF 5HE DOEðN'T 6ET THI5 LETTER.HOW lOILL 5HE KNOU) YOU A5KED HER IF 5HE 60T YOUR LA5T LETTER? PP i i 'í Kæra pennavin- kona. Fékkstu síðasta bréfið mitt? Hvernig veit hún hvort að bréfið sem hún fékk var síðasta brj^ið frá þér? Og ef hún fær ekki þetta bréf, hvernig á hún þá að vita að þú spurðir hana hvort hún hafi feng- ið síðasta bréfið frá þér? BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329 Yeitingastaðir ogkrár Frá Albert Jensen: SÍÐAN glæsilegir og rúmgóðir dansstaðir viku fyrir reykmettuðm og þröngum krám, sem orðið er yfirþyrmandi mikið af, sýnist nokkuð ljóst að ráðsmenn þessara staða eru ekki þeir hugmyndaauð- ugustu. Undarlegt að menn skuli hafa tekið svo ólánlegri breytingu. Kannski veldur nokkru, að fólk kemst án greiðslu yfir þröskuld kránna, þar sem okrið tekur því svo opnum örmum. Einn staður selur reyndar inn. Það er Vegas. Þar gefst mönnum að sjá ungmeyj- ar pússa stálsúlur með nöktum líkömum sínum. Slíkt segja gest- irnir vel borganlega upplyftingu. Sjálfir vita þeir ekki hvort það er fyrir sálina, eða eitthvað annað. Ljóst er að staðarhaldarar Vegas vilja enga bijóstahaldara, eða ann- að í þeim dúr fyrir starfsstúlkur sínar. Stálsúlustúlkurnar sjá um að engin kyrrstaða sé á andrúm- inu. Veitinga- og matsölustaðirnir, þar er annað upp á teningnum. Lofsverður metnaður að mörgu leyti. Öfugt við loftþungar og fárra kosta krárnar á fólk þar mikið val. Hvað er þá svona merkilegt við krárnar? Eru það þrengslin og óloftið? Eða ýta þær undir með- fætt flökkueðli íslendingsins? Það er, að um leið og þeir eru komnir inn, langar þá út. Einskonar sálar- flakk í eyðimörkinni. Einmanaleik- inn er ekki góður fylginautur og afvegaleiðir marga. Víða er nú þrengt að reykinga- fólki. Af sem áður var, þegar það gat púað hvar sem var, framan í hvern sem var. Eða hvað? Er ekki allt sem sýnist? Sjáðu nú. Ef þú vilt fara á veitingastað sem býður þér hreint loft, þá er hann ekki til. En það er reynt að blekkja. Nokkrir staðir banna reykingar meðan borðað er. Svo ekki söguna meir. Þeir sem ekki þola reyk verða að fara. Reykmettaður búnaður staðar gerir hann ókræsilegan fyr- ir þá sem ekki reykja og óþolandi fyrir fjölda manns með veik lungu. Einn vinur minn, sem stríðir við asma, finnur sig einangrast því nú sé svo komið að hann þolir ekki reykjarlykt, hvað þá reyk. Hann getur ekki komið á veitingastaði, hvað þá krár. Alls staðar er reykt. Þetta misrétti er hægt að leiðrétta án skaða fyrir staðareigendur. Fyrir það fyrsta hafa reykingar minnkað. Og þá segir sig sjálft, að þeim sem ekki reykja fjölgar. Öllu því fólki líður betur þar sem ekki er reykt. Staðarhaldarar, leyf- ið ykkur þann munað, svona til tilbreytingar, að hugsa. í von um það og í ljósi þessa alls, skora ég á einn stað eða fleiri að loka alveg fyrir reykingar. Þar verði alls ekki reykt. Á engum tíma. Starfsfólk ekki undanskilið. Látið það berast og sjáið hvað gerist. Þar munu verða fordæmisgefandi staðir, eig- endum til sóma og hagsældar. Á þá staði mun ekki vanta fólk. Allir munu gera það gott. Reykingafólk mun hafa nóg að bíta og brenna á öllum hinum stöðunum. Og fyrst þið eruð byijuð að leysa vanda- mál; hvemig væri að allir nætur- staðir kæmu sér saman um mis- munandi lokunartíma? Skiptust á ákveðnum tímum. Slíkt mundi jafna keyrslu leigubíla, fækka slys- um, ofbeldi og gera mannleysum þeim sem selja eiturlyf erfiðara um vik. Kannski er þetta til of mikils mælst. Of mikið á ykkur lagt. En, hugsið og þá held ég að þið sjáið að hagsmunir ykkar verða ekki minni við að taka tillit til meirihlut- ans. Eiginlega takið þið þannig tillit til allra. ALBERT JENSEN, Háaleitisbraut 129, Reykjavík. Stutt athugasemd við ritdóm Frá Auðuni Braga Sveinssyni: VENJULEGA mun ritdómum ekki vera svarað. Má því teljast í meira lagi óvenjulegt, að ég dirfist að gera smá athugasemd við dóm um bók mína „í fjórum línum 111“, eft- ir Siguijón Björnsson, fyiTum pró- fessor, er birtist í Morgunblaðinu 5. desember sl. Margt er þarna sjálfsagt rétt sagt, og verður því sjálfsagt ekki hnekkt. Þar er ekki að neinu marki fundið að vísna- og ljóðagerðinni, að því er skilst, heldur vikið að ýmsum frágangs- atriðum, sem auðvitað geta verið tekin til athugunar, sjái fjórða bindi safnsins dagsins Ijós síðar. En það er eitt í þessum ritdómi Siguijóns, sem ég get ekki látið hjá líða að mótmæla. Hér er ekki um Ijóðaúrval að ræða, heldur safn vísna og ljóða, svona fremur af betra taginu. Ætti ég að gera úrval úr þremur bindum vísna- og ljóðasafns míns, gæti hugsast, að fyndust eitt hundrað ágæt erindi í fjórum línum. Höfundarnir eru margir - og mis- jafnir - að vonum. Þetta vildi ég nú segja. Bókin mín flytur margar frambærilegar vísur og erindi, þó að fæst þeirra séu listaverk. En ljóð eru samt sem áður oft skemmtandi og mannbætandi. Hagyrðingar góðir! Þökk væri mér á að fá góð erindi í fjórum lín- um frá ykkur í næsta bindi vísna- og ljóðasafns míns. Með þökk fyrir birtinguna. AUÐUNN BRAGISVEINSSON, Hjarðarhaga 28, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.