Morgunblaðið - 16.12.1997, Síða 1

Morgunblaðið - 16.12.1997, Síða 1
112 SÍÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 287. TBL. 85. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS 85 manns fórust með Tupolev-vél frá Tadsjíkistan í Sameinuðu arabísku furstadæmunum Aðeins emn lifði slysið af Sharjah, Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Reuters. EINN maður lifði af er Tupolev- þota tadsjíska ríkisflugfélagsins fórst í Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum í gær. Alls voru 86 manns um borð, 77 farþegar og níu manna áhöfn. Ekki er vitað hvað olli slysinu en sjónarvottar sögðu þotuna hafa sprungið á flugi og hlutana hrapað niður í eyðimörkina. Vélin fórst um þrettán kílómetra frá flugvellinum í Sharjah en hún var í aðflugi að vellinum. Hún var á leið frá borginni Khudzhand í Tad- sjíkistan. Að sögn fulltrúa tadsjíska flugfélagsins voru allir um borð Tadsjíkar og höfðu þeir leigt vélina til að fara í verslunar- og viðskiptaferð til Sameinuðu ar- abísku furstadæmanna. Loftferðaeftirlitið þar í landi sagði tvo hafa lifað slysið af en ann- ar hefði látist á leiðinni á sjúkra- hús. Sá sem lifði af var flugþjónn um borð í vélinni. Fjölda fólks dreif að slysstaðn- um og varð lögregla að hafa sig aOa við til að halda fólki frá. Að sögn fréttamanna sem sáu flakið, var það illa brunnið og hlutar úr því, svo og eigur fólks, höfðu dreifst um stórt svæði. Svarti kassinn fannst í gærkvöldi. Þriðja slysið á þessu ári Þetta er þriðja Tupolev-vélin sem ferst á þessu ári. 64 fórust með Tupolev-vél víetnamska flug- félagsins sem brotlenti við flugvöll- inn í Phnom Penh í september og tíu dögum síðar fórst 21 þegar Tupolev-vél í eigu þýska flughers- ins lenti í árekstri við flutningavél Bandaríkjahers undan ströndum Afríku. Reuters BJORGUNARMENN skoða flak tadsjfsku Tupolev-154 vélarinnar sem fórst nokkrum mínútum fyrir lendingu skammt frá Sharjah-flugvelli í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. ASEAN kallar á alþjóðlega aðstoð Kuala Lumpur. Reuters Reuters Kuldinn bítur í Moskvu MIKILL kuldi hefur gert Rússum erfitt fyrir undanfarna daga. Fór kuldinn í Moskvu niður í 27,3 gráður í gær og gert var ráð fyr- ir að frostið yrði allt að 32 gráð- um í nótt. Nyrst í Rússlandi fór frostið niður í 45 gráður. Þessir útigangsmenn reyndu að festa svefn í skafli í höftið- borginni í gær en vetrarhörkurn- ar hafa nú þegar kostað fjóra úti- gangsmenn lífið. -------------- Viðbit lækkar kólesteról Helsinki. Reuters. SMJÖRLÍKI sem unnið er úr furu- kjörnum, lækkar kólesteról í blóði þriðjungs þeirra hjartasjúklinga sem neyta þess, að því er fram kem- ur í finnskri rannsókn. Hefur viðbitið svo góð áhrif á suma neytendur að þeir geta hætt að taka lyf til að lækka kólesteról- magnið. Smjörlíkið, Benecol, nýtur svo mikilla vinsælda að verslanir þurftu að skammta það fyrstu vik- urnar. LEIÐTOGAR níu Suðaustur-Asíu- ríkja, ASEAN, tilkynntu í Kuala Lumpur í gær að þeir hygðust stuðla að aukinni verslun innan svæðisins til þess að draga úr áhrif- um efnahagskreppunnar sem geng- ið hefur yfir álfuna að undanfórnu. Mahathir Mohamad, forsætisráð- herra Malasíu, lagði þó ríka áherslu á að þetta væri gert af nauðsyn en ekki einokunarstefnu eða fordóm- um. Leiðtogamir hvöttu einnig Bandaríkin, Evrópusambandið og Japan til þess að eiga frumkvæðið að alþjóðlegri viðleitni til þess að draga úr kreppunni. Þetta er í fyrsta skipti sem ASEAN kallar Jólasveinn- inn skelfir New York. The Daily Telegraph. ÞAÐ reynist mörgum bömum mikið áfall að vera skellt í fang jólasveins og slíkt athæf! er ill meðferð á börnum, að mati bandarísks sálfræðings. Jim Hoot sálfræðingur segir að börn sem ei’u eins og hálfs árs eða yngri hræðist aðskiln- aðinn við foreldrana. Þá verði mörg börn rugluð í ríminu því það stangist algerlega á við bann foreldra við því að tala við ókunnuga þegar þau séu sett í kjöltu ókunnugs manns. Leggur Hoot til að foreldr- amir setjist einnig á hné jóla- sveinsins, séu börnin of ung til að átta sig á hver hann er. eftir hjálp frá ríkjum utan sam- bandsins en í yfirlýsingu leiðtog- anna kemur fram að þó að Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn, IMF, hafi veitt stórfelld lán til einstakra ríkja á svæðinu hafi efnahagsástand álf- unnar haldið áfram að versna. Hyggjast sameina banka Þriggja daga leiðtogafundur ASEAN, Kína, Japan og Suður- Kóreu hófst í Kuala Lumpur í Malasíu á sunnudag. Meðal þess sem rætt hefur verið á fundinum em möguleikar á samruna banka í Suðaustur- og Austur-Asíu. Þá var ákveðið í gær að þjónustu- fyrirtæki ASEAN-landanna fengju, RICHARD Butler, yfirmaður vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna (SÞ), sagði í gær að viðræður sínar við írösk stjómvöld um eyðingu gjöreyðingarvopna íraka hefðu lít- inn árangur borið. Butler ræddi við Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráð- herra Iraks, sem hafnaði því að eft- irlitsmenn fengju aðgang að höllum Saddams Husseins, forseta íraks, en gmnur leikur á því að þar séu framleidd efnavopn. Butler hafði krafist óhefts að- gangs að öllum stöðum sem taldir eru kunna að geyma efnavopn en Aziz sagði að vopnaeftirlitið fengi með nokkmm undantekningum, óheftan aðgang að öðrum mörkuð- um sambandsins frá 31. mars næst- komandi. Leiðtogamir stefna nú að því að hraða áætlunum um að svæð- ið verði allt gert að einu verslunar- svæði en áður hafði verið stefnt að því að það yrði fýrir árið 2003. Leiðtogar ASEAN ákváðu einnig að kannaðir yrðu möguleikar á stofnun svæðisbundins sjóðs til að aðstoða ríki á svæðinu við að koma sér upp gjaldeyrisforða og koma í veg fyrir fjármálaörðugleika. Einnig fóru þeir fram á að kannaðir yrðu möguleikar á því að dregið yrði úr mikilvægi Bandaríkjadollars á alþjóðamörkuðum. „aldrei“ aðgang að höllum forset- ans. Þá kvaðst Butler hafa orðið fyrir vonbrigðum með þær upplýs- ingar sem Irakar hefðu látið í té um lífefna- og efnavopnaframleiðslu sína en þeir höfðu lofað nýjum upp- lýsingum um hvort tveggja. Eini árangurinn sem náðist í við- ræðunum, að sögn Charles Duelfer, næstráðanda Butlers, var skilgrein- ing á þeim stöðum sem SÞ hafa gert kröfu um aðgang að. Sagði Duelfer að írakar hefðu lofað því að vera sveigjanlegri hvað varðaði aðgang skoðunarmanna að öðrum stöðum en forsetahöllunum. Reuters Carlos í hlutverki verjanda HERMDARVERKAMAÐURINN „Sjakalinn Carlos" tók við hlutverki lögfræðinga sinna fyrir rétti í París í gær eftir að þeir hættu að verja hann í mótmælaskyni við þá ákvörð- un dómarans að hafna beiðni um að réttarhöldunum yfir honum yrði hætt á þeirri forsendu að Carlos hefði verið handtekinn með ólögleg- um hætti í Súdan fyrir þremur árum. Carlos hefur verið ákærður fyrir morð á tveimur frönskum leyniþjón- ustumönnum og hbönskum upp- ljóstrara í París árið 1975 og lög- fræðingar hans sökuðu yfirvöld um að hafa leynt skjölum um málið til að vernda ríkisleyndarmál. Carlos lýsti réttarhöldunum sem „réttar- hneyksli". Þessi Polaroid-mynd var tekin af Carlos í fangelsi í París nýlega. Hann sendi fóður sínum í Venezuela myndina með handskrifaðri kveðju. Faðirinn segir að myndin hafi verið tekin í fangaklefa Carlosar, sem er klæddur eins og hann sé á leið í hanastélsveislu. A bak við hann er landslagsmynd sem máluð á dúk. ■ Verjendurnir gengu út/33 Viðræður fraka og vopnaeftirlits SÞ Neitað um aðgang að forsetahöllum Baghdad. Reuters.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.