Morgunblaðið - 16.12.1997, Page 26
AUK / SlA 1(826-38
26 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
210 g, 83 klst. biðtími, 3,5 klst. taltími
E R I C S S O N
trúlega gott
jólatilboð
Innifaliö í veröi hvers
síma er stofngjald
ásamt hleöslutæki
í bílkveikjara
og leðurtaska,
samtals aö
verömæti
um 7.400 kr.
r.
160 g, 41 klst. biðtími, 2,5 klst. taltími
It
Háfæknj
Ármúla 26 • sími 588 5000
Hafðu samband!
LÍÚ kannar tekjur yfirmanna á fiskiskipum
Meðallaun skipstjóra
um milljón á mánuði <
MEÐALLAUN skipstjóra á stærstu
og öflugustu fiskiskipum flotans
nema 10,2 milljónum króna miðað
við fullt úthald, sem eru 300 dagar.
Þetta þýðir að skipstjórar eru með
um eina milljón kr. í laun þann tíma,
sem þeir eru á sjó, samkvæmt könn-
un, sem Landssamband íslenskra
útvegsmanna hefur gert á kjörum
yfirmanna á 45 skipum með aðalvél
stærri en 1500 kW. Það er rúmlega
helmingur þeirra skipa, sem lagt
verður komi til verkfalls vélstjóra
2. janúar nk.
Meðalárslaun fyrstu stýrimanna
reyndust skv. könnuninni vera 6,9
milljónir kr. og annarra stýrimanna
5,8 milljónir kr. Samkvæmt þessu
er fyrsti stýrimaður með 690 þús-
und kr. á mánuði og annar stýri-
maður með 580 þúsund kr. á mán-
Tekjuhæsti skip-
stjórinn með 18
milljónir króna
í árstekjur
uði miðað við 300 daga úthald á ári.
Tekjuhæsti skipstjórinn, skv.
launakönnuninni, verður með ríflega
18 milljóna króna árstekjur í ár, en
sá hefur verið í fullu úthaldi á árinu
eða í 10 mánuði.
„Þetta sýnir aðeins þá tekju-
möguleika, sem þessir menn hafa.
Við skiljum ekki af hvetju mennirn-
ir eru að fara í verkfall. Guðjón A.
Kristjánsson, formaður Farmanna-
og fiskimannasambandsins, hefur
látið þau orð falla að þeir séu að
treysta stöðu sína, en við skiljum
ekki hvaða stöðu þeir eru að treysta
í ljósi niðurstöðunnar," sagði Sveinn
Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur
LIÚ, í samtali við Morgunblaðið.
Launakönnunin var framkvæmd
þannig að spurningalistar voru
sendir út til þeirra útgerða, sem
gera stærstu og öflugustu skip flot-
ans út. Hún leiðir í ljós að skipstjór- t
ar fá að meðaltali eina milljón á
mánuði á meðan þeir eru á sjó.
Vélstjórar eru með sama hlut og |
stýrimenn, en krefjast nú aukins
skiptahlutar á stærstu skipunum í
komandi kjarasamningum. Sam-
kvæmt hlutaskiptakerfínu, er skip-
stjóri nú með tvo hluti, 1. stýrimað-
ur og yfírvélstjóri með einn og hálf-
an hlut, 2. stýrimaður og annar
vélstjóri með einn og kvarthlut.
SSÍ kannar nú lögmæti1
verkbannsboðunar LIU
LÖGFRÆÐINGAR Sjómannasam-
bands íslands eru nú að skoða hvort
rétt hafí verið staðið að verkbanns-
boðun Landssambands íslenskra út-
vegsmanna sem samþykkt var af
stjóm og samninganefnd LÍÚ í síð-
ustu viku á 79 fiskiskip með aðalvél
stærri en 1500 kW. Eins og fram
hefur komið í fréttum, hafa vélstjór-
ar boðað verkfall frá og með 2. jan-
úar nk. Verkbanninu er því ætlað
að ná til allra annarra en vélstjóra.
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambandsins, telur að það
sama hljóti að eiga við um atkvæða-
greiðslu vegna verkbannsboðunar
LÍÚ og verkfallsboðunar vélstjóra-
félaganna í haust, en þá hafi for-
svarsmenn LÍÚ dregið lögmæti þess
að telja atkvæði félaganna upp úr
einum og sama pottinum mjög í
efa. Sama aðferð hafi verið notuð
við talningu félaga í útvegsmanna-
félögum um land allt. Atkvæði
þeirra hafi verið talinn upp úr sama
pottinum.
Að sögn Sævars reyndi ekki á
þetta fyrir dómi í haust þar sem
vélstjórar ákváðu að endurtaka at-
kvæðagreiðsluna þegar vart varð
efasemda um lögmætið af hálfu við-
semjenda. Von er á niðurstöðu lög-
fræðinga Sjómannasambandsins í
dag um hvort aðferð LÍÚ við verk-
bannsboðunina hafi verið lögmæt
eða ekki. Á meðan hún ekki lægi
fyrir, vildi Sævar sem minnst um
málið segja, en telur lítinn mun
hafa verið á aðferðunum tveimur.
„Við erum að velta nákvæmlega
sömu spurningu upp og viðsemjend-
ur okkar gerðu snemma í haust j
gagnvart vélstjórum, en lögfræðing- i
ar okkar koma til með að skera úr '
um hvað gert verður í þessu.“
Færeyingar fá
minna í Barentshafi
NORÐMENN og Færeyingar
hafa gert samkomulag um
gagnkvæmar fiskveiðiheim-
ildir hvorra innan lögsögu
annarra. Samkomulagið
byggist á jöfnum skiptum
aflaheimilda.
Samkvæmt samkomulaginu
fá norskir línubátar að veiða
5.100 tonn af fiski innan lög-
sögu Færeyja, en það er 50
tonnum minna en á þessu ári.
Þorskkvóti Færeyinga í Bar-
entshafi minnkar úr 3.200
tonnum á þessu ári í 2.600
tonn á því næsta. Ýsukvóti
Færeyinga í Barentshafi
lækkar úr 1.000 tonnum í 550
tonn. Þá verður ufsakvóti
Færeyinga í Norðursjó dreg-
inn saman um 300 tonn og
verður 1.600 tonn á næsta ári.
Makrílkvóti Norðmanna inn- f
an lögsögu Færeyja verður
aukinn í 9.600 tonn, en kvóti
Færeyinga sjálfra verður
3.950 tonn. Kvóti Norðmanna
á kolmunna innan færeysku
lögsögunnar verður 36.000
tonn á næsta ári, en það er
9.000 tonna aukning miðað við
þetta ár. Loks er kvóti Færey-
inga á „bræðslufiski" ýmiss
konar í Norðursjó aukinn og
verður 29.000 tonn á næsta ári.
Færeyingum hefur verið út-
hlutað sildarkvóta í Norðursjó '
á næsta ári upp á 900 tonn og
einnig mega færeysk skip
veiða um 500 tonn af rækju
innan lögsögu Jan Mayen í til-
raunaskyni.
Síapar £ Síeníar
TirmgHniTmrri
sem þú getur raðað saman að uild!
Hirzlan
Auðbrekku 19 • 800 Kðpavogur
Slmi 564 5040 ■ Fax 564 5041
Beyki 61.400,-
Kirsuber 66.700,-
220 x 44 x 183 cm
Beyki 24.900,-
1137x44x87 cm
l
I
I
I
\
I
\