Morgunblaðið - 16.12.1997, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Óeirðir í
London-
derry
London. Daily Telegraph.
YFIRMENN lögreglunnar á Norð-
ur-írlandi sögðu í gær að hinn
ólöglegi írski lýðveldisher, IRA,
hefði „skipulagt, stjórnað og sam-
ræmt aðgerðir“ í óeirðum í Lon-
donderry um helgina. Eru það
mestu óeirðir í landinu í hálft ár
eða frá því IRA lýsti á ný yfir
vopnahléi í hemaði sínum gegn
breskum yfirráðum.
Ofbeldið braust út eftir göngu
mótmælenda í Londonderry þar
sem minnst var umsáturs um
Derry árið 1689. Um eitt þúsund
kaþólikkar höfðu safnast saman í
nágrenni gönguleiðarinnar en
hundmð lögreglumanna héldu
þeim fjarri göngunni.
Að göngunni lokinni lét hópur
kaþólskra til skarar skríða og varp-
aði eldsprengjum á hús og bíla.
Grímuklæddir menn réðust að lög-
reglunni sem reyndi að verja
mannvirki. Um 13 óróaseggir voru
handteknir.
Áttu fótum fjör
að launa
Almennir borgarar í innkaupum
til jóla áttu fótum sínum fjör að
launa er lýðurinn reif upp gang-
stéttarhellur og múrsteina og kast-
aði að Iögreglumönnum sem stóðu
vörð við verslunarhús og aðrar
byggingar. Óku óeirðaseggimir
vöru- og sendibílum, sem þeir
höfðu rænt, inn í miðborgina og
kveiktu í þeim. Réðust þeir síðan
að slökkviliðsmönnum sem reyndu
að slökkva eldana. Linnti ekki
óeirðunum fýrr en snemma á
sunnudagsmorgni.
Reuters
Ofbeldið fékk ekki
stöðvað íþróttirnar
TVEIR danskir íþróttaunnendur
frá Helsingjaeyri voru myrtir á
laugardag á áhorfendabekkjum í
Max-Schmeling íþróttahöllinni í
Berlín í Þýskalandi er þeir fylgd-
ust með undanúrslitaleik í heims-
meistaramótinu í kvennahand-
bolta. 48 ára Þjóðverji, sem sagð-
ur er hafa framið verknaðinn í
ölæði, situr í fangelsi og hefur
verið kærður fyrir morðin
sjónarvottar segja að eftir orða-
hnippingar í stúkunni hafi hann
dregið fram hníf og gengið ber-
serksgang áður en hann var yfir-
bugaður. Blóm og borðar voru
lagðir á morðstaðinn í íþrótta-
höllinni á sunnudag er Noregur
og Danmörk léku til úrslita um
heimsmeistaratitilinn eins og sjá
má á stærri myndinni, en á þeirri
í. f u
en innfelldu er morðinginn. í upp-
hafi leiks var mínútuþögn í minn-
ingu hinna látnu. Dönsku stúlk-
urnar hétu því fyrir leikinn að
leggja sig fram af öllu hjarta í
minningu fórnarlambanna og
léku leik lífs síns; fóru með sigur
af hólmi. Paul Nyrup Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerkur,
var viðstaddur leikinn og sagðist
því feginn, að „ofbeldið hefði
ekki fengið stöðvað íþróttirnar".
Ófriður á heimili
Netanyahus
DEILUR um meintan skapofsa og
hroka Söru Netanyahu, eiginkonu
Benjamins Netanyahus forsætisráð-
herra ísraels, hafa enn á ný komist
í sviðsljósið í ísrael eftir að Yediot
Ahtonot, stærsta dagblað landsins,
birti grein um hegðun hennar í lok
síðustu viku. Þetta kom fram í The
Jerusalem Post á föstudag .
í greininni kemur m.a. fram að
Sara hafi krafist þess að fá einka-
skrifstofu f nágrenni við skrifstofu
eiginmannsins og fengið bæði skrif-
stofuna og tvo ritara á kostnað rík-
isins.
Á meðal þeirra sem vitnað er í í
greininni er Rachel Yaakov sem í
þtjá áratugi vann á heimilum forsæt-
isráðherra landsins en hefur nú látið
Full búð
AF SÓFUM
Margs konar áklæði; til dærnis
leður, alcantara og microvin.
Suðurlandsbraut 54 (Bláu húsin), slmi 568 9511.
af störfum. Segir
hún Söru hafa
hent í sig fullum
poka af nýpússuð-
um ítölskum skóm
með þeim orðum
að ef forsætisráð-
herrann sæi
hvernig hún hefði
farið með skóna
Sara skæri hann hana
Netanyahu á hálg
Auk þess sem frú Netanyahu er
sögð illskeytt í samskiptum við
starfsfólk sitt er hún sögð yfirmáta
afbrýðissöm, mikið fyrir dýrar snyr-
tivörur og fatnað en fram úr hófi
sparsöm. Hún á t.d. að hafa farið
fram á að snyrtisérfræðingur Estee
Lauder fyrirtækisins skildi eftir
vinnutösku sína með snyrtivörum
að andvirði hundruð þúsunda króna
er hann var eitt sinn sendur á heim-
ili hennar.
Fyrirlitleg
áróðursherferð
Forsætisráðherraembættið sendi
frá sér yfirlýsingu þar sem umfjöllun
dagblaðsins er fordæmd sem árás á
einkalíf hjónanna og Benjamin Net-
anyahu sagði hana fyrirlitlega áróð-
ursherferð. Naomi Igus, fyrrum rit-
ari frú Netanyahu sem var rekin
fyrir tveimur vikum, segir sögurnar
hins vegar mun meira en tilbúning
andstæðinga forsætisráðherrans.
Forsvarsmenn Yediot Ahtonot
svara því til að hegðun hennar komi
landsmönnum við þar sem hún skapi
ofsafullt og stormasamt andrúmsloft
í kringum forsætisráðherrann og
hafí því óneitanlega áhrif á örlög
þjóðarinnar.
Solana
hrósar
Frökkum
JAVIER Solana, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins
(NATO), blandaði sér í gær í
harðnandi deilu um aðgerðar-
leysi franskra hermanna sem
hefðu látið undir höfuð leggjast
að handtaka meinta stríðs-
glæpamenn í Bosníu. í yfirlýs-
ingu frá Solana hrósaði hann
frönskum hermönnum fyrir
„afburða gott starf“ í Bosníu.
Á sunnudag sakaði Louise
Arbour, saksóknari Alþjóða-
glæpadómstólsins, Frakkana
um aðgerðarleysi eftir að
frönsk sjónvarpsstöð sýndi
meintan, bosníu-serbneskan
stríðsglæpamann á krá á Iand-
svæði sem Frakkar sjá um.
Tveir foringjar í friðargæslu-
sveitum NATO sáust á verönd
kráarinnar.
34 myrtir
í Alsír
ÞRJÁTÍU og fjórir óbreyttir
borgar;ar, þ.ám. þriggja ára
barn og barnshafandi kona,
voru myrtir í árásum víga-
manna í Alsír um helgina, að
því er alsírsk blöð greindu frá
á mánudag. Flest var fólkið
skorið á háls, en sumt var skot-
ið. Enginn hefur lýst ábyrgð á
morðunum á hendur sér.
Dodi hvatti til
hraðaksturs
DODI Fayed fyrirskipaði bíl-
stjóra sínum að aka hratt til
þess að losna við ljósmyndara
sem fylgdu eftir bíl Dodis og
Díönu prinsessu þar til bíllinn
rakst á steinvegg, að því er líf-
vörður hans, Trevor Rees-
Jones, sagði lögreglu í Frakk-
landi. Rees-Jones, sem einn
lifði af áreksturinn, hefur
þjáðst af minnisleysi.
60 drukkna
AÐ MINNSTA kosti 60 flótta-
menn, flestir konur og börn,
fórust er báti sem þeir voru á
hvolfdi á fljóti á landamærum
Sierra Leone og Líberíu. Var
fólkið að flýja átök í Sierra
Leone. Þrettán komust lífs af.
Fá frí á
jóladag
FÍDEL Castro, forseti Kúbu,
hefur ákveðið að jóladagur
verði almennur frídagur í land-
inu í ár. Er þetta gert til heið-
urs Jóhannesi Páli páfa, sem
kemur í heimsókn til Kúbu í
janúar. í yfirlýsingu frá Vatík-
aninu í gær var ákvörðun for-
setans fagnað og látin í ljósi
sú von að þessi siður komist á
á Kúbu.
Vegið að
Robinson
GEOFFREY Robinson, ráð-
herra í bresku ríkisstjórninn,
liggur nú undir ámæli vegna
meints fjármálamisferlis í
tengslum við fyrirtæki fjöl-
skyldu hans. Aðstoðarforsætis-
ráðherra sagði í gær að svo
gæti virst sem Robinson hefði
„sagt eitt og gert annað". Pet-
er Lilley, skuggafjármálaráð-
herra, sagði Robinson ótrú-
verðugan og honum bæri að
segja af sér.