Morgunblaðið - 16.12.1997, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997 59
vera að í íslensku lögunum um jafna
stöðu karla og kvenna er ekki kveð-
ið nægjanlega skýrt á um að ákveð-
ið kynjahlutfall skuli vera í nefndum
og ráðum, en það sem er meira um
vert er að hér er þeim síður fram-
fylgt en í Noregi. Það er ekki nægj-
anlegt að lögin séu skýr ef enginn
fer eða þarf að fara eftir þeim. í
Noregi og Svíþjóð er ekki aðeiní
að finna kynjakvóta í jafnréttislög-
unum heldur einnig innan stjórn-
málaflokkanna, sem hafa án efa
haft þau áhrif að fleiri konur hafa
komist þar tit áhrifa en hér á landi.
Viðhorfsbreyting
Lagalegum rétti þarf að fylgja
viðhorfsbreyting hjá þjóðinni. Lög
og kynjakvótar eru aðeins tæki sem
hægt er að beita til að ná ákveðnum
árangri. Lög ein og sér gera lítið
gagn en þau eru staðfesting stjórn-
valda og viðurkenning á því að
bæta þurfí ríkjandi ástand. Þau eru
ákveðinn rammi og marka stefnu.
Meðvitaðar og kerfisbundnar að-
gerðir eins og lagasetningar geta
verið nauðsynlegar í upphafi til að
minnka eða afmá mismun kynjanna
bæði í stjórnmálum og á vinnu-
markaði. Slíkar aðgerðir verða þó
vonandi óþarfar í framtíðinni þegar
konur og karlar verða metin að eig-
in verðleikum en ekki eftir kyn-
ferði. Stórt skref var stigið þegar
forsætisráðherra viðurkenndi að
viss ákvæði í lögum um jafnrétti
hefðu ekki verið virt og nauðsynlegt
væri að árétta við ráðuneytin að
fara eftir þeim. Nú er brýnt að
þrýsta á framkvæmd laganna svo
fleiri konur verði sýnilegri í stjórn-
málum, í nefndum og ráðum. Jafn-
rétti verður þó ekki náð með laga-
setningu einni saman heldur verður
að nota öll tækifæri til að reyna
að breyta viðhorfum fólks sem oft
einkennist af þröngsýni hvað varðar
stöðu kynjanna. Höfum hugfast að
ekkert kemur af sjálfu sér - ekki
heldur jafnrétti.
Höfundur er stjórnmála- og
fjölmiðlafraeðingur.
Dreifing:
Bár, ÍH'ildvt'rsluu-
Iðnbúð 5,
sími 565 8299.
nmmiAjnimii
Islensk list
gjöf og vinsæl
i
Gallerf
MÍÐAR&S
SKART
Skólavörðustíg l6a
Sími 561 4090
Njótið lífsins, notið bílastæðin
Framboðið af bílastæðum í miðborginni er mikið. Valkostimir eru
stöðumælar, sérstök miðastæði og sex glæsileg bílahús.
# Bílahúsin eru þægilegur kostur.
Þú ekur beint inn í vistlegt hús,
sinnir þínum erindum og gengur
að bflnum ávísum, þurrum stað.
í bflahúsinu rennur tíminn ekki út
og þú borgar aðeins fyrir þann
tíma sem þú notar.
# Stöðumælar eru skamm-
tímastæði með leyfilegum
Bílastæðasjóður
hámarkstíma frá 15 mín.
upp í 2 klst.
# Miðastæðin eru víða og
góður kostur. Þú borgar fyrir
þann tíma sem þú ætlar að
nota; korter, hálftíma,
klukkustund eða lengri tíma.
Mundu eftir miðastæðunum.