Morgunblaðið - 16.12.1997, Qupperneq 60
fift ÞRIÐ.TIJDAGUR 16. DESEMBER 1997
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Breiðbandið - framtíðar-
fjarskiptakerfi landsins
BREIÐBAND Pósts
og síma hf. verður
burðarás í fullkomnu
flarskiptakerfí lands;
manna á næstu öld. í
kerfinu er Ijósleiðari á
öllum aðalflutnings-
leiðum bæði innan bæj-
arfélaga og milli þeirra.
Ljósleiðari er nú þegar
notaður þegar lagt er
inn í fjölbýlishús og
stærri fyrirtæki en í
önnur hús er lagður
kóaxstrengur á síðustu
50 metrunum að með-
altali. Kóaxstrengur er
koparstrengur með
verulega meiri flutn-
ingsgetu en fyrirliggjandi síma-
strengir. Fljótlega verður farið að
leggja ljósleiðara inn í öll ný hús í
byggingu og þar sem götur verða
grafnar upp af öðrum ástæðum.
Þannig er gert ráð fyrir að á næstu
6-8 árum geti allt að 80% heimila
í landinu tengst þessu nýja breið-
bandskerfi. Kerfið sjálft er strax í
upphafi alstafrænt fyrir utan læsi-
búnað og myndlykla fyrir sjónvarp.
Þegar á næsta ári verður hins vegar
byijað að taka í notkun
stafrænan læsibúnað
og á næstu árum verð-
ur einnig byijað að
bæta við gagnvirkni í
kerfið.
Breiðbandsvæðingin
auðveldar heimilum og
einstaklingum að taka
þátt í margmiðlunar-
byltingunni sem mun
valda stórum breyting-
um á lífsháttum á
næstu árum. Það má
kalla það byltingu í
þjóðfélagsháttum þeg-
ar sjónvarpið verður
orðið gagnvirkt, inter-
netnotkunin miklu al-
mennari og íjölbreyttari en nú er
og myndsíminn kominn á hvert
heimili. Á sama tíma eykst stöðugt
annar gagnaflutningur á milli ein-
staklinga og fyrirtækja. Breytt
heimsmynd, sem kalla má öld
margmiðlunar, kallar á öflug flutn-
ingskerfi í fiarskiptum og það er
einmitt þessi næsta kynslóð fjar-
skiptakerfa sem Póstur og sími býr
sig nú undir með lagningu breið-
bands um landið.
Breiðbandið er framtíðarflutn-
ingsleið fyrir íjarskipti í hæsta
gæðaflokki. Það er framtíðin vegna
þess að við lifum í upplýsingaþjóðfé-
lagi og flestir íslendingar ef ekki
allir eru sammála um að koma þarf
upplýsingum og afþreyingu á ódýr-
an hátt inn á hvert einasta heimili
í landinu.
Breiðbandið er framtíð-
arflutningsleið fyrir
fjarskipti í hæsta gæða-
flokki. Jón Þóroddur
Jónsson telur að á
næstu 6-8 árum geti
allt að 80% heimila í
landinu tengst því.
Með Breiðbandinu opnast fyrir
samkeppni á sjónvarpsmarkaði. Hér
eru núna tvær sjónvarpsstöðvar,
Ríkissjónvarp og Stöð 2 sem í dag
eru einu dreifileiðimar fyrir fréttir
og annað sjónvarpsefni heim til
áhorfenda.
í ýmsum fréttum og umræðum á
Alþingi í síðustu viku um breiðband
Pósts og síma var fullyrt að breið-
bandið væri úrelt tækni og betra
að gera hlutina öðruvísi. Þessu eru
tæknimenn Pósts og sfma algjörlega
ósammála og telja þau ummæli á
misskilningi byggð. Ljósleiðari í
jörðu hefur yfirburði fram yfir gervi-
hnattasendingar í verði, gæðum,
áreiðanleika, hraða og breiðum
Barnaskór
Rautt og svart leður, lakk. St. 22—37.
Verð frá kr. 3.995 tll kr. 5.990.
Mikið úrval í st. 22-25.
Smaskor
sérverslun meí barnaskó i bléu húsi viö Fákafen.
Jón Þóroddur
Jónsson
gagnaflutningi. Hér á bæ hafa menn
kynnt sér málið mjög vel og auðvit-
að er heldur ekki verið að loka fyr-
ir þann möguleika að tvinna saman
mismunandi aðferðir og tæki, ef
aðstæður eru þannig að það reynist
hagstæðara.
Breiðbandskerfið um þráð eru
lagnir á stofnleiðum og að heimilum
eða götuskápum. Frá götuskápum
geta verið notaðir kóaxstrengir,
ljósleiðari, símastrengir eða ör-
bylgjudreifing ef því er að skipta.
Hið eiginlega breiðbandskerfi eins
og það er skilgreint um allan heim
er því nákvæmlega það kerfi sem
Póstur og sími byggir nú upp og
erum við íslendingar mjög framar-
lega á því sviði eins og öðrum svið-
um fjarskipta. Þessu til frekari stað-
festingar má benda á niðurstöðu í
ACTS rannsóknaráætlun Evrópu-
sambandsins um fiarskipti en þar
er ofangreind skilgreining á eðli
breiðbandskerfa sett fram sem upp-
hafspunktur.
Engum ætti því að dyljast að
verið er að byggja upp fullkomið
fjarskiptakerfi með breiðbandinu og
sú uppbygging er alveg óháð því
hvaða þjónusta er í boði á hveijum
tíma enda er breiðbandið notað sem
flutningsleið fyrir þær. Sem dæmi
um notendaþjónustu má taka mynd-
símann sem verður hluti af heimil-
isfiarskiptum innan fárra ára.
Gagnvirkt sjónvarp er ekki heldur
til fyrir almenning í dag en verður
auðvelt með tilkomu breiðbandsins.
Sama má segja um stafrænt sjón-
varp ásamt staðlaðri stafrænni
myndlæsingu sem senn verður að
veruleika en er þó hvergi komið í
almenna notkun. Þetta verður allt
sett inn á breiðbandið um leið og
notendur vilja þessar nýju tegundir
af þjónustu og þær reynast kostnað-
arlega hagkvæmar.
Höfundur er framkvæmdastjóri
þjónustusviðs fjarskipta hjá Pósti
ogsima hf.
IBM Apliva E 3D)
ðrfl|8rvi: Intel Pentium 200MHz MMX.
Vinnaluminni: 32MB SDRAM.
Harðdiakur: 4.2GB.
Skjár: 15" IBM.
Skjákort: ATi 30 Hage 11+ með 2 MB SGRAM.
Murgmiðlun: 24 hraða geisladril, hljóökort,
hátalarar og bassabox.
Somakipti. 33.600 baud mótald.
Huflbúnoður: Wlndows 95, Lotus SmartSuite
97, Simply Speaking, IBM Antivirus.
IBM Aptiva S 45)
Aptiva-tölvurnar hafa á aö skipa sérstaklega
öflugum vél- og hugbúnaöi. Þessar einstöku
tölvur eru hannaðar meö þaö i huga aö
vinnslan sé skemmtileg, auöveld og hröö.
Glæsilegt útlit þeirra á sér enga hliðstæðu og
hljóögæöin eru lik því sem þú átt aö venjast í
kvikmyndahúsum.
Láttu drauminn rætast og iestu kaup á IBM
Aptiva - tölvu sem á sér engan líka!
ttrgtirnl: Intet Penttum II 233MHz.
Vinnolumlnni: 32MÐ SDRAM, mó auka i 384.
Horðdioknr: 4.2GÐ.
Skjár: 17" IÐM með Bose hétölurum.
Skjákort: ATi 3D Rage Pro með 2 MB SGRAM.
Margmiðlun: 24 hraða geisladrif,
hljóðkort og bassabox.
Samokipli: 33.600 baud mótald.
Huflbúnaður: Windows 95, Lotus SmartSuite 97
og 28 önnur forrit (h)élparforrit, frœðsla og lelkir.
Skaftahlíö 24 • Simi 569 7700
Slúö: http://www.nyharji.is
3» Netfang: nyhGrjl@nyherji.is
pontlum'