Morgunblaðið - 11.01.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.01.1998, Blaðsíða 2
2 SUNN UDAGUR 11. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Hátíðahöld vegna V mlandsfundar Grænlend- ingar ráða starfsmann FERÐAMÁLARÁÐ Græn- lands hefur ráðið Benedikte Thorsteinsson til að vinna að undirbúningi fyrir hátíðahöld af tilefni þúsund ára afmælis fundar Ameríku árið 2000. Benedikte, sem er fyrrver- andi atvinnu- og félagsmála- ráðherra Grænlands, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hún hefði tekið við starfmu og kæmi til íslands í lok þess- arar viku til að ræða við þá, sem eru að undirbúa hátíða- höld í tilefni af Vínlandsfundi Leifs heppna hér á landi. „Það er mikilvægt fyrir Grænlendinga að taka þátt í þessu,“ sagði Benedikte. „Við erum hluti af heiminum og kall- aði Leifur heppni sig ekki Grænlending?" Sagði hún að menn gerðu sér einnig vonir um að straumur ferðamanna til suðurhluta Grænlands myndi aukast. Grænlendingar eru þegar byrjaðir að endurreisa Þjóð- hildarkirkju og reisa skála í Bröttuhlíð. Færeyingar og ís- lendingar hafa tekið þátt í því verkefni með Grænlendingum. Benedikte er gift íslenskum manni, Guðmundi Þorsteins- syni, og hún var ráðherra frá því í apríl 1995 til september 1997. Suðurskautslandið Jeppamenn komnir á borstað JEPPAMENNIRNIR Freyr Jónsson og Jón Svanþórsson eru komnir ásamt félögum sín- um á borstað SWEDARP-leið- angursins á Suðurskautsland- inu, staðurinn er á 76°S og 8°03 W. Ferðin frá Svea gekk ekki áfallalaust, drif brotnaði í snjó- bíl og voru tæki og búnaður úr honum sett í jeppana sem komu öllu á áfangastað. Búið er að setja upp bortjald og geymsluaðstöðu fyrir ískjama. Annar jeppinn hefur verið not- aður til íssjármælinga nálægt borstaðnum og hinn sem bæki- stöð fyrir mælitæki og búnað. íslensku jöklajeppai-nir hafa reynst mjög vel og er þeim þakkað að leiðangursmenn eru tvo daga á undan áætlun; „menn eru orðnir háðir jeppun- um,“ skrifa þeir félagar. Suðurpols- farnir bíða enn AÐSTANDENDUR Suður- pólsfarana þriggja, Ólafs Arnar Haraldssonar, Haralds Arnar Ólafssonar og Ingþórs Bjarna- sonar, biðu í gær frétta af þeim. Mennirnir, sem hafa verið veðurtepptir á Patriot Hills frá því 5. janúar síðastliðinn, sögðu aðstandendum sínum fyrir nokkrum dögum að þeir byggjust við því að veðrinu færi að slota. Þeir munu þá halda áleiðis til Chile, fljúga þaðan til Bandaríkjanna og síð- an til íslands. FRÉTTIR Morgunblaðið/RAX ÁÆTLAÐ er að 1.200-1.400 efnisnámur séu í notkun hér á landi. Mest er um malarnám en einnig er töluvert flutt út af gosefnum. Malarnáman, sem sést á myndinni, er í grennd við Heklu. U mh verfislöggj öf í endurskoðun ÁÆTLAÐ er að um 1.200-1.400 efnisnámur séu í notkun hér á landi og 600-800 námur sem hætt er að nýta. Umgengni er víða ábótavant og þykir yfirvöldum náttúruvernd- armála löngu tímabært að gengið verði frá aflögðum efnistökustöð- um. Til að fylgja slíkum málum eft- ir hefur yfirvöld skort úrræði. Margir helstu lagabálkar sem lúta að umgengni þjóðarinnar við landið eru í endurskoðun eða hafa þegar verið endurskoðaðir. Um síð- ustu áramót gengu í gildi ný skipu- lags- og byggingarlög og fýrir ára- mótin var lagt fram frumvarp til laga um eignarhald og nýtingu á auðlindum í jörðu. Unnið er að endurskoðun nátt- úruvemdarlaga og einnig að endur- skoðun á lögum um mat á umhverf- isáhrifum. Gert er ráð fyrir að í frumvarpi til nýrra náttúmvernd- arlaga verði sérstakur kafli um efn- isnám, m.a. að áður en vinnsla hefst verði lögð fram áætlun um nýtingu efnisnámu og frágang að vinnslu lokinni, eins að lögð verði fram trygging fyrir frágangi námu. Stefnt er að því að frumvarp verði til fyrir vorið og frumvarp til laga um mat á umhverfísáhrifum í haust. ■ Sárin í landinu/Bl Ný hreinsistöð fyrir skolp tekin formlega í notkun á morg’un Skolp frá 120 þús. íbú- um hreinsað í stöðinni HREINSISTÖÐ fyrir skolp við Ánanaust verður formlega tekin í notkun á morgun mánudag, en þegar fram í sækir er gert ráð fyrir að skolp frá 120 þúsund íbúum verði hreinsað í stöðinni, auk skolps sem fellur til í iðnaði. Kostn- aður við byggingu stöðvarinnar er í kringum 800 miUjónir króna, sam- kvæmt upplýsingum Sigurðar Skarphéðinssonar, gatnamála- stjóra. Allt skolp úr Breiðholti, Árbæ, Selási, Fossvogi og úr hluta Vest- urbæjarins fer um stöðina, auk skolps frá Seltjarnarnesi. Á næstu mánuðum er einnig gert ráð fyrir að skolp úr Kópavogi og Garðabæ að mestu leyti verði einnig hreins- að í stöðinni, en stöðin er sameigin- lega í eigu þessara sveitarfélaga. Að sögn Sigurðar er stöðin eins fullkomin og þær gerast erlendis. Stöðin getur annað 2,3 tonnum af skolpi á sekúndu. Það skolp sem til fellur er hreinsað í stöðinni með flóknum aðferðum og því dælt 4,1 kílómetra út í Faxaflóann, þar sem það sem eftir er brotnar niður á 30-35 metra dýpi. Sigurður sagði að ítarlegar rannsóknir hefðu farið fram á und- anfómum árum á lífríkinu og hafs- botninum þar sem skolpið mun fara í hafið. í leyfum vegna starfs- rækslu stöðvarinnar sé áskilið að fylgst verði með þessum umhverf- isþáttum áfram og hvaða áhrif los- un skolpsins hafi á umhverfið. Ef einhver skaðleg áhrif komi fram sé hægt að hreinsa skolpið enn frek- : SÉgfei , Morgunblaðið/Golli Unnið var af kappi við frágang stöðvarinnar í gærmorgun. ar, en það sé að vísu mjög kostnað- arsamt. Önnur stöð við Héðinsgötu Hafist verður handa við bygg- ingu annarrar hreinsistöðvar við Héðinsgötu þegar á þessu ári og í fjáhagsáætlun Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir að 250 milljónum króna verði varið til þess verkefnis í ár. Sú stöð verður ívið stærri en stöðin við Ánanaust. Gert er ráð fyrir að hún kosti um einn milljarð króna fullbúin og komist í gagnið árið 2000. Þar með verður allt skolp sem til fellur á höfúðborgar- svæðinu hreinsað áður en því er dælt í hafið. Kveikt í jólatrjám SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var kallað út átta sinnum að- faranótt laugardags vegna þess að kveikt hafði verið í jólatrjám á götum úti. Ekki var um mikinn eld að ræða í þessum tOfellum og var hann yfirleitt slokknaður þegar slökkvilið bar að. Kveikt var í jólatrjám, sem fólk hefur sett fyrir utan hús sín að loknum hátíðum. ► 1-56 Bjargræði eða bjarnargreiði ►Almenningur dregur sjaldnast í efa að bágstöddum sé rétt hjálpar- hönd í óeigingjömum tilgangi en til eru sorgleg dæmi um annað. /10 Dómsdagsspárnar sem rættust ekki ►The Economist gagnrýnir ýkjur í málflutningi um yfirvofandi um- hverfishættur. /12 Skammdegis- þungiyndi ►Orsakanna víðar að leita en ætlað var í upphafi. /26 Dýrara tóbak dregur úrreykingum ►Kannanir sýna að hátt tóbaks- verð er öflugasta vopnið gegn reykingum. /24 Neysluvenjur breytast mjög hratt ►í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Georg Ottós- son, garðyrkjubónda og formann Sölufélagsgarðyrkjumanna. /26 B ► 1-24 Sárin í landinu ► Víða stinga í augun ör og opin sár í íslenskri náttúru. /1&10-13 Ekki lengur stikkf rí ►Rætt við leikstjórann Ara Krist- insson um böm og kvikmyndaleik og síaukna fagmennsku í kvik- myndagerðinni. /6 Menningarmiðstöð í Edinborgarhúsi ►Vestfirðingar snúa vöm í sókn með opnun glæsilegrar menning- armiðstöðvar sem tekin var í notk- un á ísafirði síðasta haust. /14 C FERÐALOG ► 1-4 Hawaii ►Húladans á hvítum sandi. /2 Borgarferðir Flugleiða ►Sértilboð til einstakra áfanga- staða. /2 D BILAR ► 1-4 Suzuki Wagon R+ ►Þessi litli og lipri fjölnotabíll er kominn til landsins og er skoðunar hjá umboðinu. /2 Reynsluakstur ►Sparneytnari Carisma með strokkinnsprautun. /3 E ATVINNA/ RAÐ/SMÁ ► 1-20 Átak Tæknisjóðs Rannsóknarráðs ►Ýtt undir ráðningu sérmennt- aðra starfskrafta. /1 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Stjömuspá 42 Leiðari 28 Skák 42 Helgispjall 28 Fólk í fréttum 46 Reykjavíkurbréf 28 Útv./sjónv. 44,54 Minningar 32 Dagbók/veður 55 Myndasögur 40 Skoðun 30 Bréf til blaðsins 40 Dægurtónl. 14b fdag 42 Mannlífsstr. 16b Brids 42 INNLENDARFI ÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.