Morgunblaðið - 11.01.1998, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 4/1 -10/1
► ÍSLENSKA Magnesíum-
félagið hefur sdtt um starfs-
leyfi fyrir 50 þúsund tonna
magnesíumverksmiðju til
Hollustuverndar rfkisins.
► SAMKVÆMT bráða-
birgðaupplýsingum Hag-
stofu var algengast á ný-
liðnu ári að börnum væru
gefin nöfnin Jdn og Anna.
Næst í vinsældaröðinni hjá
drengjum vom nöfnin Aron
og Daníel og hjá stúlkum
Helga og Margrét.
Sérfræðingar segja
upp samningum
í BYRJUN vikunnar höfðu 112 sér-
fræðilæknar sagt upp samningi við
Tryggingastofnun og er það þriðjung-
ur þeirra sem starfa fyrir stofnunina.
Sérfræðingarnir krefjast hækkunar á
gjaldskrá. Formaður samninganefnd-
ar læknanna sagði að líklega myndu
margir í viðbót segja upp í lok mánað-
arins.
Engin þörf fyrir Evr-
ópusambandsaðild
► VIÐRÆÐUR hafa farið
fram um flutning Bústaða-
safns Borgarbdkasafns í
Borgarleikhúsið. Leigu-
samningur Bústaðasafns í
Bústaðakirkju rennur út í
lok næsta árs.
► EVRÓPU S AMBANDIÐ
hefur bannað sölu á fersk-
um Nílarkarfa úr Viktorfu-
vatni vegna kdlerufaraldurs
í Uganda. SH hefur sinnt
sölu karfans og vonast for-
svarsmenn fyrirtækisins til
þess að banninu verði fljdt,-
lega aflétt.
► VERÐ á mjdlkurvörum
hækkaði um 3-5% um ára-
mdtin og hafa hækkanir á
undanförnum mánuðum
verið meiri en á verðlagi að
meðaltali.
► SÖLUMIÐSTÖÐ hrað-
frystihúsanna seldi í fyrra
133.700 tonn af afurðum að
verðmæti 29 milljarðar
krdna samkvæmt bráða-
birgðatölum. Það er 4%
aukning frá árinu 1996 sem
var metár hvað varðar
magn og það næstbesta í
verðmætum.
DAVID Steel, fyrrverandi leiðtogi
Frjálslynda flokksins í Bretlandi,
sagði í heimsókn sinni til Islands í vik-
unni, að engin knýjandi þörf væri á
því fyrir íslendinga að ganga í Evr-
ópusambandið. Hins vegar væri það
Bretum pólitísk nauðsyn.
Fjögur útgerðar-
fyrirtæki sameinast
Borgey hf.
STJÓRNIR fjögurra smærri útgerð-
arfyrirtækja samþykktu að sameinast
Borgey hf. á Höfn í Homafirði og fá
eigendur þeirra í skiptum hlutabréf í
Borgey. Veiðiheimildir fyrirtækisins
verða með sameiningunni 6.400
þorskígildistonn.
Sjómenn samþykkja
verkfallsboðun
MIKILL meirihluti þeirra sjómanna
innan aðildarfélaga Sjómannasam-
bands íslands sem atkvæði greiddu
samþykktu að fara í verkfall 2. febrú-
ar ef samningar hefðu ekki náðst. Tvö
lítil félög felldu boðunina. Sjö af átta
félögum skipstjóra og stýrimanna í
Farmanna- og fiskimannasambandinu
samþykktu einnig verkfallsboðun.
Öll spjót standa
á Benjamin
Netanyahu
ÖLL spjót standa nú á Benjamin Net-
anyahu, forsætisráðherra ísraels, sem
hefur reynt að draga úr spennu í sam-
skiptum sínum við Yitzhak Mordechai,
vamarmálaráðherra
landsins, og banda-
rísk stjórnvöld. Mor-
dechai hefur hótað af-
sögn standi ísraelska
stjómin ekld við gefin
loforð um eftirgjöf
landsvæða til Palest-
ínumanna og Banda-
ríkjamenn eru ósáttir
við þá ákvörðun
stjómar Netanyahus
að stækka landnemabyggðir gyðinga.
Stjórn Netanyahus stendur tæpt eft-
ir að David Levy utanríkisráðherra
sagði af sér um síðustu helgi. Stjómin
stóðst þó fyrstu eldraunina á mánudag
þegar þingið samþykkti fjárlög næsta
árs.
Nyrup lét engan
bilbug á sér fínna
í Færeyjum
POUL Nymp Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, lét engan bil-
bug á sér finna meðan á dvöl hans í
Færeyjum stóð á þriðjudag og mið-
vikudag. Tveir af sjö ráðhermm
Færeyja kusu að vera ekki viðstaddir
fund með forsætisráðherranum í mót-
mælaskyni við að hann skyldi leggja
leið sína til eyjanna níu dögum áður
en skýrsla rannsóknar á færeysku
bankakreppunni liggur fyrir. Nyrap
sagði að danska stjórnin hefði sýnt
full heilindi í málinu.
Óánægðir Færeyingar efndu til
mótmælafundar þegar Nymp kom til
Þórshafnar og kröfðust þess að
Færeyingar fengju að semja sína eig-
in stjórnarskrá.
Bcnjamin
Netanyahu
► EVRÓPUSAMBANDIÐ
hefur ákveðið að senda full-
trúa til Alsírs til að kynna
sér ástandið í landinu eftir
hrinu ofbeldisverka sem
hefur kostað um 1.000 AI-
sírbúa lifið á tíu dögum.
Fólkið var ýmist brennt
inni, skorið á háls eða háls-
höggvið.
► P.W. Botha, fyrrverandi
forseti Suður-Afríku, verð-
ur sóttur til saka fyrir að
neita að koma fyrir Sann-
leiksnefndina svokölluðu og
virða stefnur hennar að
vettugi. Botha á allt að
tveggja ára fangelsisdóm
yfir höfði sér.
► STJÓRNVÖLD á Ítalíu
hafa sætt harðri gagnrýni
aðildarlanda Schengen-sam-
komulags Evrópusambands-
ins fyrir að segja kúrdíska
flóttamenn velkomna til
landsins. Um 1.200 Kúrdar,
fiestir frá Tyrklandi, hafa
farið á bátum til Ítalíu.
► MOHAMMAD Khatami,
forseti írans, sagði í viðtali
við CNN á miðvikudag að
Iranar vildu efla tengsl sín
við Bandaríkin en kvaðst
hins vegar ekki sjá neinn
flöt á því að svo stöddu að
ríkisstjórnir landanna tækju
upp bein samskipti.
► VALDAS Adamkus var
kjörinn forseti Litháens á
sunnudag en sigur hans var
naumur því munurinn á
fylgi frambjóðendanna
tveggja var aðeins 0,6%.
Adamkus er 71 árs og flutti
búferlum til landsins frá
Bandaríkjunum í fyrra.
ttKfiHllt
Hugmyndir um flutning Bústaðasafns
Kirkjan verður af
1.400 þúsundum
króna í leigutekjur
Viðbygging
við Melaskóla
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við
viðbyggingu við Melaskólann í
Reykjavík. Nýja byggingin mun
hýsa 12 almennar kennslustofur,
en auk þess verður þar rými til
raungreina- og sérkennslu svo og
vinnuaðstöðu kennara.
Viðbyggingin verður samtals um
1.400 fermetrar að stærð, reist á
tveimur hæðum og því einni hæð
Iægri en gamla skólahúsið, en svip-
aðrar hæðar og nærliggjandi íbúð-
arhús. Allar kennslustofur munu
snúa í vesturátt meðfram Furumel,
en stigahús og miðrými snúa til
austurs út að leiksvæðum í Gamla
porti.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
tölvumynd, sem unnin var á vinnu-
stofu Ögmundar Skarphéðinssonar
arkitekts hússins, tekur form ný-
byggingarinnar mið af lögun nú-
verandi skólahúss og verður sveigð
í boga meðfram Furumelnum.
Gamla skólahúsið var tekið í
notkun 1946 þegar Melaskólinn tók
til starfa. Þá var byggð að rísa og
risin á Melunum og þörf á skóla-
byggingu brýn. Skólabyggingin
var gerð eftir uppdráttum Einars
Sveinssonar arkitekts.
BÚSTAÐAKIRKJUSÓKN verður
af tæplega 1.400 þúsund króna
leigutekjum árlega ef útibú Borg-
arbókasafns í kjallara kirkjunnar
flytur í Borgai'leikhúsið.
Umræður um ílutning safnsins,
sem sagt var frá í Morgunblaðinu
sl. fóstudag, hafa farið fram milli
yfirmanna Borgarbókasafns og
Borgarleikhúss, en Ögmundur
Kristinsson, formaður sóknar-
nefndar Bústaðakirkju, segir að
ekkert formlegt erindi hafi borist
varðandi málið. Leigusamningur
safnsins og kirkjunnar rennur út í
lok næsta árs.
„Ég veit ekki hversu þungt
leigutekjurnar vega nú,“ segir Ög-
mundur. ,Auðvitað hafa þær verið
Bústaðakirkju drjúgar í gegnum
árin, sérstaklega fyrst eftir að
byggingu hennar var lokið.“
Anna Torfadóttir yfirbókavörður
Borgarbókasafns segir að núver-
andi aðstaða Bústaðasaftis sé of lít-
il og óhentug. Húsnæðið er rúmir
þrjú hundmð fermetrar að stærð,
en óskað hefur verið eftir tæplega
þúsund fermetmm undir safnið ef
það flytur til Borgarleikhússins. Að
einhverju leyti verður húsrými
samnýtt með leikhúsinu.
Ánægja hjá Leikfélaginu
Þórhildur Þorleifsdóttir, leikhús-
stjóri, og Þórhallur Gunnarsson,
formaður leikhúsráðs lýsa bæði
mikilli ánægju með hugmyndir um
það að fá Bústaðasafnið til Borgar-
leikhússins.
Samstarfssamningur heilbrigðisráðuneytisins
og SÁÁ um forvarnaverkefni undirritað
13 milljónir til for- j
varna næstu 2 árin
INGIBJÖRG Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra og Þórarinn Tyrf-
ingsson, formaður SÁÁ, undirrit-
uðu á föstudag samstarfssamning
ráðuneytisins og SÁA um for-
vamaverkefni í sveitarfélögum
víða um land til næstu tveggja ára.
Verkefnið miðar að því að samhæfa
krafta allra lykilaðila sem koma að
forvömum í hverju sveitarfélagi,
svo sem starfsmanna skóla, for-
eldrafélaga, lögreglu, íþróttahreyf-
ingar og heilsugæslu.
Samhliða sveitarfélagaverkefn-
inu verður unnið að kynningar- og
fræðsluverkefni gagnvart starfs-
fólki innan heilbrigðisþjónustunn-
ar, með það að markmiði að fræða
heilbrigðisstarfsmenn um hvemig
greina eigi óhóflega áfengisneyslu
og ólöglega vímuefnaneyslu skjól-
stæðinga þeirra og hvernig gripið
verði til viðeigandi ráðstafana.
Heilbrigðisráðuneytið leggur
fram til verkefnanna 13 milljónir
króna, sem verða greiddar með
jöfnum greiðslum ársfjórðungslega
á tveggja ára tímabili. SÁA mun
leggja fram sérhæft starfsfólk,
þekkingu og afnot af fræðslu- og
kynningarefni, auk þess sem sam-
starfsaðilar í sveitarfélögunum
munu leggja fram vinnu, aðstöðu
og fjármagn eftir nánara sam-
komulagi. Á miðju tímabilinu verð-
ur staldrað við, skoðað hvað áunn-
ist hefur og haldin námsstefna um
stöðu verkefnanna, framgang
þeirra og árangur.
Aðdragandi verkefnisins er sá
að á árinu 1996 fékk SÁÁ 1,5 millj-
óna króna styrk úr forvamasjóði
til þess að undirbúa víðtækt for-
vamastarf í nokkmm sveitarfélög-
um, í samvinnu við sveitarstjórnir
og þá sem að forvörnum starfa á
hverjum stað. Verkefnið fór af stað
í fimm sveitarfélögum á síðastliðnu
ári og fékk þá aftur 1,5 milljón
króna í styrk úr forvamasjóði.
Sveitarfélögin marki sér
stefnu í forvörnum
Að sögn Einars Gylfa Jónsson-
ar; deildarstjóra forvarnadeildar
SAÁ, er verkefnið nú komið á góð-
an skrið og hafa ýmsir hnökrar
verið sniðnir af því og sveitarfélög-
in hafi gert sér skýrari grein fyrir
skyldum sínum. Hann segir
reynsluna yfirleitt góða, sérstak-
lega á þeim stöðum þar sem náðst
hafi breið samstaða innan sveitar-
félagsins um vinnu að verkefninu.
Nú er ætlunin að taka upp sam-
starf við nokkur sveitarfélög til ,
viðbótar og fjölga þeim smátt og
smátt.
Einar Gylfi segir meginhug- ,
myndina vera þá að sveitarfélögin
marki sér stefnu í forvömum og
hver og einn skilgreini sitt hlut-
verk. Framlag SÁA verði fyrst og
fremst faglegs eðlis, þ.e. að fræða
lykilaðila í forvörnum, þar með
talda foreldra, því það séu þeir sem
þurfi að koma skilaboðunum áfram
til barnanna og unglinganna. Vinna j
sem þessi verði aldrei eingöngu
unnin af utanaðkomandi fagaðilum
eins og SÁÁ, heldur hljóti ábyrgðin
að liggja hjá íbúunum sjálfum,
unglingunum og þeim sem þjóna
þeim og vinna með þeim að þeima
hugðarefnum.
Hjá Þórarni Tyrfingssyni og
Ingibjörgu Pálmadóttur kom fram
sú vissa að þegar saman færi
markviss samvinna og samhæfing
krafta sveitarfélaganna og lykilað- í
ila innan þeirra, og fagleg leiðsögn j
og fræðsla SÁÁ sem hefur mikla
reynslu af forvömum gegn neyslu
áfengis og annarra vímuefna, hlyti
það að skila góðum árangri.