Morgunblaðið - 11.01.1998, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Mismunandi áherzlur forseta, forsætisráðherra og biskups íslands
VITRINGARNIR þrír bjóða ekki allir upp á gull, reykelsi og myrru.
Stakfell ÞH 360 var selt til Færeyja síðastliðið haust.
Norðmenn neita Stakfellinu um veiðar í norskri lögsögu
Salan á togaran-
um gengur til baka
STAKFELLIÐ, sem Hraðfrysti-
stöð Þórshafnar hf. seldi til
Færeyja í haust, kemur aftur til
landsins í dag, sunnudag, þar sem
salan á skipinu hefur gengið til
baka í kjölfar þess að norsk stjórn-
völd hafa bannað því veiðar í
norskri lögsögu.
Að sögn Jóhanns A. Jónssonar,
framkvæmdastjóra Hraðfrysti-
stöðvarinnar, er afstaða norskra
stjórnvalda óhagganleg í þessu
máli í dag, en spurning sé hvemig
það samsvari sér gagnvart heildar-
reglum Norðmanna í þessum efn-
um þar sem önnur fyrrum íslensk
skip séu nú við veiðar í norsku lög-
sögunni.
Jóhann sagði að Hraðfrystistöð-
in hefði ekki beðið tjón af þessu
máli og skipið kæmi einfaldlega
aftur inn á veiðiheimildir Hrað-
frystistöðvarinnar og úreldingu.
Hraðfrystistöð Þórshafnar gekk
frá sölu Stakfells ÞH 360 til
Færeyja síðastliðið haust og var
kaupandinn fyrirtækið Arnbæk í
Suðurey sem Hraðfrystistöðin á
hlut í. Skipið hlaut nafnið Sverrir
Ólafsson og fór til veiða við Sval-
barða og í rússneskri lögsögu í
Barentshafi, en auk þess hafði það
leyfi til veiða á ufsa í Norðursjó.
Um miðjan desember var greint
frá því að Norðmenn ætluðu að aft-
urkalla veiðileyfi skipsins vegna
þess að Stakfellið hefði stundað
veiðar í Smugunni. Byggist afstaða
norskra stjómvalda á reglugerð
um veiðar útlendinga innan
norskrar lögsögu, en samkvæmt
henni má neita þeim skipum og út-
gerðum um veiðileyfi sem tekið
hafa þátt í óheftum veiðum á al-
þjóðlegu hafsvæði svo framarlega
sem veitt hefur verið úr stofni sem
lýtur norskri fiskveiðistjóm.
Færeyingar mótmæltu þessari
ákvörðun norskra stjórnvalda hvað
viðkemur Stakfellinu og blandaði
landstjómin sér í málið, en Jóhann
segir að það hljóti jafnframt að
koma inn í heildarumræður milli ís-
lenskra stjómvalda og norskra um
sjávarútvegsmál.
Ailsherjar
hringavitleysa
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, sagði að afstaða norskra
stjómvalda í þessu máli væri með
endemum. Á síðasta ári hefðu tvö
skip verið seld héðan til Noregs,
Bliki frá Dalvík og Geiri Péturs frá
Húsavík, sem bæði hefðu áður veitt
í Smugunni, og af því að Norðmenn
ættu þar í hlut sem kaupendur
væru skipin ekki undir sama merki
og önnur skip.
„Það er því mismunandi brenni-
merki sem þeir setja á skipin eftir
því hvort kaupendurnir era Norð-
menn eða t.d. Færeyingar. Þetta
er frá venjulegum sjónarhóli orðið
ein allsherjar hringavitleysa.
Þama er um að ræða færeyska út-
gerð sem átti veiðiheimiidir og það
stóð aldrei tii annað en að veiða úr
færeyskri heimild, en mér finnst
með ólíkindum ef Norðmenn ætla
að brennimerkja skipin eftir því
hver kaupir þau en ekki eftir því
hvað þau kunna að hafa gert. Mér
finnst einnig fáránlegt að það sé
eitthvert skip sem líði fyrir þetta,
eitthvert stál, en ekki sú útgerð
sem hlut á að máli. Þetta getur tor-
veldað sölu á íslenskum skipum
sem hafa veitt í Smugunni, nema
þá til Noregs að því er virðist, því
þá líta þeir á stálið einhverjum öðr-
um augum,“ sagði Kristján.
Hlaut nýsköpunarverðlaun
Barnaheimspeki
grunnur
fyrir allt nám
Nýsköpunarverðlaun
forseta íslands voru
veitt síðastliðinn
fimmtudag. Fyrstu verð-
laun hlaut Brynhildur Sig-
urðardóttir fyrir verkefnið
Tengsl heimspeki og nátt-
úrafræðikennslu í grann-
skólum.
„Aðdragandi þess að ég
fór að huga að tengslum
heimspeki og náttúrafræði
er að ég kynntist námsefn-
inu í náttúrafræði þegar ég
starfaði sem kennari og var
ósátt við það að ýmsu leyti.
Fram til þessa hefur að-
búnaður fyrir náttúra-
fræðikennslu verið slakur
og sjaldnast hvetjandi fyrir
kennara til að gera kennsl-
una lifandi. Sú krafa er
lögð fram að kennarar hafi
kennsluna verklega og lif-
andi, fari í vettvangsferðir
og leggi m.a. áherslu á umhverf-
ismennt en síðan er lítið gert til
að þessir möguleikar geti orðið
að veraleika. Það er erfitt að fá
að skipta bekkjum og nauðsynleg
tæki ekki til. Þar að auki hefur
það verið ómótað að miklu leyti
hvemig kennslunni skal háttað,
hversu mikill hluti hennar á að
vera verklegur og svo framvegis.
- Hvernig leggur þú til að
heimspeki og náttúrufræði séu
tengd saman?
„Ég hef töluvert skoðað af
bæði fagtímaritum og bókum um
tengsl heimspeki og náttúra-
fræðikennslu. Oft er heimspeki
og samfélagsfræði fléttað inn í
náttúrafræðina. Heimspekin
leggur til hugmyndir um eðli vís-
inda og viðhorf manna til náttúr-
unnar. Það era í raun stærstu
sviðin sem ég kem áhuga á í
þessu sambandi og tek afstöðu
til.“
Brynhildur segir að nauðsyn-
legt sé að kynna sér hvaða hug-
myndir era í gangi og velja síðan
milli þeirra. „Þetta hefur ekki
verið gert í náttúrafræðikennslu
fram til þessa. Að vísu má geta
þess að nokkur breyting er að
verða á núna við endurskoðun
námskrárinnar. Þar er horft til
heimspekilegra þátta, eins og
hvað heimspekin segir um eðli
vísinda og hvernig vinna má úr
því.“
Brynhildur bendir á að heim-
speki nýtist vel í stefnumótun og
í verkefni sínu segist hún leggja
fram hugmyndir um hvernig
hægt sé að kenna náttúrufræði á
heimspekilegan hátt.
- Hvernig er hægt __________
að kenna náttúrufræði
á heimspekilegan hátt?
„Með því að nota
barnaheimspeki. Hún á
upprana sinn að rekja
til Bandaríkjanna og ““”—
upphafsmaður hennar er Matt-
hew Lipman. Barnaheimspeki
byggist á því að börn taka þátt í
heimspekilegri samræðu. Þau
velja sér viðfangsefni og þeim er
síðan gefin fyrirmynd að því
hvernig hægt er að ræða saman,
með sögum sem síðan geta verið
efniviður í umræðuefni. í gegn-
um svona samræðu þjálfast börn
mjög í að skipuleggja hugsanir
sínar og setja fram eigin skoðan-
ir. Auk þess skerpa samræður
gagnrýna rökhugsun og þjálfa
grandvallarhugarfærni sem nýt-
ist í námi og starfi síðar meir.“
Biynhildur segir að samræð-
Brynhildur Sigurðardóttir
►Brynhildur Sigxirðardóttir er
fædd í Reykjavík árið 1970. Hún
lauk prófi úr Kennaraháskóla
íslands árið 1994 og kenndi að
því loknu í Síðuskóla á Akureyri
í tvö ár. Brynhildur hóf nám í
heimspeki við Háskóla íslands
árið 1996.
Stefnir saman
náttúruvís-
indum og
heimspeki
urnar gefi einnig möguleika á að
taka fyrir erfið hugtök.
- Á hvaða hátt er það gert??
„Oft eiga börn í erfiðleikum
með að ná skilningi á flóknum
hugtökum. Hugtök era oft notuð
á mismunandi hátt eftir aðstæð-
um og samhengi og börn kunna
að ragla þessu saman og jafnvel
gleyma hversdagslegum skilningi
á hugtaki þegar þau heyra það í
vísindalegu samhengi. I samræð-
unni sé ég möguleika á að ná
þessum tengslum, skoða hvernig
hygtakið er notað á ólíkan hátt
og jafnvel hvemig það hefur
breyst með áranum og hvernig
það varð til. Krakkarnir fá líka
tækifæri til að nota sinn orða-
forða og æfa hugtökin á sínu
plani.“
- Nýtist heimspekin fleiri
námsgreinum?
„Já, á því leikur enginn vafi.
Barnaheimspekin er grannur
undir nám, nokkurskonar vinnu-
aðferð og hægt að taka öll við-
fangsefni inn í hana. I mörgum
tilfellum er augljósara hvernig
hægt er að nota hana en í nátt-
úrafræði. Matthew Lipman hefur
lagt fram námsefni í bamaheim-
speki þar sem tekið er á þáttum
s.s. tungumálinu, samfélagsfræði,
ritsmíðum og siðfræði
og einnig hefur hann
prófað sig áfram með
ung börn og náttúru-
fræðinám."
- Mun verkefnið þitt
verða notað við mótun
kennsluefnis?
„Ég veit það ekki. Ég hef próf-
að kennsluefnið í Heimspekiskól-
anum með hjálp Hreins Pálsson-
ar og það gekk ágætlega. Mér
finnst það þurfa endurskoðun og
mun ekki kenna það aftur eins og
það er núna. Á hinn bóginn er
þetta gott hráefni í frekari vinnu
á þessu sviði."
- Kennir þú náttúrufræði
núna?
„Nei, ég stunda núna nám í
heimspeki við Háskóla Islands og
er því ekki að kenna. Væntanlega
fer ég síðan í framhaldsnám í
bamaheimspeki næsta haust.“