Morgunblaðið - 11.01.1998, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
UMUVERFISVERNDARSINNAR hafa spáð því að fbúaQöldinn aukist hraðar en matvælaframleiðslan í
heiminum en framleiðslan á hvert mannsbarn hefur aukist um 20% frá 1961.
dómsdagsspámanna. Birtar voru
uggvekjandi fréttir af mikilli hnign-
un skóga í Þýskalandi, sagt var að
helmingur trjánna væri í hættu.
Sameinuðu þjóðimar skýrðu frá því
árið 1986 að 23% allra trjáa í Evr-
ópu hefðu orðið fyrir verulegum eða
alvarlegum skaða vegna súrs regns.
Hvað gerðist? Þau náðu sér. Líf-
þyngd evrópskra skóga jókst í
reynd á síðasta áratug. Skaðinn
varð næstum að engu. Skógunum
hnignaði ekki, þeir þrifust vel.
Svipuð gjá milli skynjunar og
raunveruleika kom fram í Banda-
ríkjunum. Græningjar kepptust um
að lýsa því yfir að skógar Norður-
Ameríku væru að súrna og deyja.
„Engar vísbendingar eru um altæka
eða óvenjulega hnignun skóga í
Bandaríkjunum eða Kanada vegna
súrs regns,“ var niðurstaða skýrslu
um tíu ára rannsókn, sem kostaði
700 milljónir dala, andvirði 50 millj-
arða króna.
Þegar einn skýrsluhöfundanna
var spurður hvort lagt hefði verið
að honum að vera bjartsýnn sagði
hann að það hefði verið þveröfugt.
„Jú, það var pólitískur þrýstingur...
Súrt regn varð að vera umhverfís-
stórslys, mönnum var sama hvað
staðreyndimar sýndu.“
Gróðurhúsagrýlan
Nú em loftslagsbreytingar í
heiminum móðir allra umhverfis-
grýlna. í þvi máli hefur dómur ekki
enn verið kveðinn upp, þótt Bill
Clinton Bandaríkjaforseti telji að
flestir hafí komist að sameiginlegri
niðurstöðu. En áður en menn flýta
sér að fallast á það álit ættu þeir að
bera saman tvær tilvitnanir.
Sú íyrri er úr Newsweek frá
1975: „Veðurfræðingar deila um or-
sök og umfang kólnunarinnar... En
þeir eru næstum á einu máli um að
þessi þróun muni draga úr landbún-
aðarframleiðslunni það sem eftir er
af öldinni."
Hin tilvitnunin kemur frá A1
Gore, varaforseta Bandaríkjanna,
og er frá 1992: „Vísindamenn
komust að þeir niðurstöðu - næst-
um einróma - að upphitun loft-
hjúpsins sé raunvemleg og grípa
þurfí til aðgerða strax.“ (Letur-
breytingin er okkar.)
Hættumar era margar
Ákafír svartsýnismenn hafa
margt annað til að gera sér grýlu út
af nú þegar aldamótin nálgast. Út-
rýming fíla, hættan sem stafar af
kúariðu, útbreiðsla Ebola-veirannar
og efni sem líkjast kynhormónum,
allt er þetta í tísku. Þessar hættur
era þó af öðram toga en fyrrnefnd-
ar grýlur. Þróunin í öllum þessum
málum er vissulega ekki til góðs, en
hún er ýkt.
Sameinuðu þjóðirnar staðhæfðu
árið 1984 að eyðimerkur gleyptu 21
milljón hektara lands á hverju ári.
Þeirri staðhæfingu hefur gjörsam-
lega verið kollvarpað. Eyðimerk-
urnar hafa alls ekki stækkað og era
Gore hélt því fram árið 1992 að
20% Amazon-skóganna hefðu eyðst
og að 80 milljónir hektara eyddust á
hverju ári. Menn era nú sammála
um að rétta talan sé 9% og eyðing
skóganna hafí numið 21 milijón
hektara þegar hún náði hámarki á
síðasta áratug, en hún hafí nú
minnkað í 10 milljónir hektara.
Aðeins ein grýla umhverfísvernd-
arsinna síðustu 30 árin hefur stað-
fest svartsýnustu spárnar á þeim
tíma: áhrif skordýraeyðisins DDT á
ránfugla, otra og fleiri rándýr. Allar
aðrar viðvaranir umhverfísvemdar-
sinna hafa annaðhvort reynst rang-
ar eða stórlega ýktar. Ætla menn að
trúa þeirri næstu?
Fyrirsjáanleg umíjöllun
Grýlusögumar era orðnar svo
fyrirsjáanlegar að við getum lýst
þræðinum í megindráttum. Fyrsta
árið er ár vísindamannsins, sem
uppgötvar einhverja hugsanlega
hættu. Annað árið er ár blaða-
mannsins, sem einfaldar og ýkir
hlutina. Það er ekki fyrr en þriðja
árið sem umhverfisvemdarsinnar
slást í hópinn (græningjar hafa því
sem næst aldrei átt upptökin að
grænu grýlunum). Þeir kljúfa menn
í andstæðar fylkingar í málinu.
Annaðhvort fallast menn á að
heimsendir sé í nánd og fyllast rétt-
látri reiði eða era úthrópaðir sem
launaðir skósveinar stórfyrirtækja.
Fjórða árið er ár skriffinnans.
Rökrætt er um ráðstefnu, sem kem-
ur opinberam embættismönnum í
sviðsljósið og tryggir þeim ferðir á
íyrsta farrými. Þetta beinir rökræð-
unni frá vísindum til reglugerða.
„Tótem-markmið“ er þar aðalatrið-
ið: 30% minnkun brennisteinslosun-
ar; gróðurhúsalofttegundum haldið
í sama horfí og var árið 1990;
140.000 heilbrigðum kúm slátrað við
helgiathöfn í Bretlandi.
Fimmta árið er tímabært að finna
skálkana og gera aðsúg að þeim.
Þeir eru yfirleitt Bandaríkjamenn
(loftslagsbreytingar) eða Bretar
(súrt regn), en Rússar (kolflúor-
kolefni og ósonlagið) eða Brasilíu-
menn (eyðing skóga) hafa þegar
fengið sinn skammt.
Hljóðlát sinnaskipti
Sjötta árið er ár efasemdamanns-
ins, sem segir að hættan sé ýkt. Það
verður til þess að græningjar fá hof-
móðug reiðisköst. „Hvernig dirfíst
þið að upphefja öfgaskoðanir?"
hrópar þetta fólk að ritstjóram
blaðanna.
Nú snúast visindamennirnir, sem
vöktu íýrst máls á hættunni, oft á
sveif með efasemdamönnunum.
Roger Revelle, uppnefndur „Dr.
Gróðurhús", sem tendraði trúna á
loftslagsbreytingarnar í A1 Gore,
skrifaði skömmu áður en hann lést
árið 1991: „Vísindalegur grannur
loftslagsbreytinga af völdum gróð-
urhúsaáhrifa er of óviss til að rétt-
læta róttækar aðgerðir á þessari
stundu.“
Sjöunda árið er ár hljóðlátra
sinnaskipta. Opinbera matið breyt-
ist og dregið er í land um umfang
vandamálsins svo lítið ber á. An
þess að nokkur tæki eftir því varð
þannig „mannfjölgunarsprenging-
in“ að aðfelluferli sem náði hámarki
í aðeins 15 milljörðum; þetta mat
var lækkað niður í 12 milljarða, síð-
an í tæpa 10 milljarða. Það merkir
að mannfjöldinn mun aldrei tvöfald-
ast aftur.
Upphitun lofthjúpsins af völdum
gróðurhúsaáhrifanna var í fyrstu
sögð verða „gegndarlaus". Síðan
var hún sögð verða 2,5-4 stig á öld.
Seinna varð hún 1,5-3 stig (að sögn
Sameinuðu þjóðanna). A tveimur
árum breyttust fílar í dýr í bráðri
útrýmingarhættu í dýr sem þurfa á
getnaðarvömum að halda (stað-
reyndirnar breyttust ekki, aðeins
umfjöllunin).
Skaðlegar goðsagnir
Er það ekki af hinu góða að ýkja
hugsanleg umhverfisvandamál sem
heimsbyggðin stendur frammi fyrir
frekar en að gera of lítið úr þeim?
Ekki endilega.
í nýrri bók, sem Melissa Leach
og Robin Meams við Sussex-há-
skóla ritstýrðu („The Lie of the
Land“) er fjallað um hversu skaðleg
goðsögnin um eyðingu skóga og
mannfjölgun hefur verið íyrir hluta
Sahel í Vestur-Afríku. Vesturlanda-
búar hafa neytt óviðunandi aðgerðir
upp á íbúa svæðisins í því skyni að
verða við óskum umhverfisvemdar-
sinna, sem hafa myndað sér skoðan-
ENSKA ER OKKAR MAL
NÁMSKEIÐIN HEFJAST I4.JANÚAR
INNRITUN STENDURYFIR
Julie Ingham fll IÁRIR
skólastjóri Hj FULLORÐNA
SÉR
NÁMSKEIÐ
Almenn enskunámskeið
Samræðuhópar
Málfræði og rituð enska
Viðskiptaenska
FYRIR
BÖRN
Leikskóli 5-6 ára
Enskunámskeið 7-12 ára
Unglinganámskeið 13-15 ára
Stuðningsnámskeið fyrir 10. bekk
Sérnámskeið, hámark 4 í bekk
TOEFL/GMAT (mat og námskeið)
FYRIRTÆKI Bjóðum upp á sérhæfð
námskeið fyrir starfsmenn fyrirtækja.
ENSKUSKÓLINN
FAXAFENI 10 •
HRINGDU í SÍMA
588 0303/588 0305
OG KANNAÐU MÁLIÐ
ir fyrirfram á umhverfisbreyting-
um.
Goðsögnin um að olía og jarðgas
séu að ganga til þurrðar, ásamt
áhyggjum af gróðurhúsaáhrifunum,
eiga sök á því að forljót vindorkubú,
sem njóta ríkisstyrkja og stuðla því
að lokum að atvinnuleysi, hafa söls-
að undir sig villta náttúra í Wales
og Danmörku. Skólabækur ýta und-
ir örvæntingu og sektarkennd (sjá
„Environmental Education", sem
Institute of Economic Affairs gaf
út), gefa enga von um sigur í stríð-
inu við hungursneyð, sjúkdóma og
mengun og hvetja þannig til for-
lagatrúar frekar en staðfestu.
Mannhatur og
frelsisskerðing
Ýkjur um mannfjölgunarspreng-
ingu leiða íyrst og fremst til mann-
haturs sem jaðrar ískyggilega við
fasisma. Fyrrnefndur Ehrlich
skammast sín ekki fyrir þá skoðun
sína að nauðsynlegt sé að takmarka
fjölskyldustærð með þvingunarað-
gerðum. Annar kennifaðir í um-
hverfismálum, Garrett Hardin, hef-
ur látið þau orð falla að „frelsið til
að auka kyn sitt sé óþolandi".
Telji menn að mannfjölgunin sé
„stjórnlaus" kynnu þeir að fallast á
svo harkalega frelsisskerðingu. Viti
menn hins vegar að farið er að
draga úr fólksfjölguninni kynnu
þeir að mynda sér umburðarlyndari
skoðanir á meðbræðram sínum.
Menn geta verið hliðhollir um-
hverfinu án þessa að vera svartsýn-
ismenn. Það ætti að vera svigrúm í
umhverfisverndarhreyfingunum
fýrir þá sem telja að tækniframfarir
og efnahagslegt frelsi geri heiminn
hreinni og dragi einnig úr hættunni
á útrýmingu dýrategunda.
Slíkir bjartsýnismenn eru hins
vegar enn óvelkomnir meðal um-
hverfisvemdarsinna. Ehrlich hefur
oft lýst hagvexti sem trúarjátningu
krabbameinsframunnar. Hann er
ekki einn um það. Breski embættis-
maðurinn Sir Crispin Tickell hefur
látið þau orð falla að hagfræðingar
séu „vangefnir frekar en ömurleg-
ir“.
Umhverfisvemdarsinnar era
fljótir að saka andstæðinga sína í
atvinnulífinu um að þjóna eigin-
hagsmunum. En tekjur þeirra
sjálfra, upphefð, frægð og tilvist
þeirra getur verið undir því komin
að þeir styðji uggvænlegustu útgáf-
umar af umhverfisgrýlunum.
„Markmiðið í hagnýtum stjóm-
vísindum," sagði bandaríski gagn-
rýnandinn og blaðamaðurinn H.L.
Mencken, „er að halda almúganum
hræddum - og því háværum í kröf-
um um að verða leiddur í öryggið -
með því að hræða hann á endalaus-
um sögum af púkum, sem allir era
ímyndaðir." Að minnsta kosti virð-
ist spá Menckens hafa verið rétt.
The Economist
ALHLIÐA TOLVUKERFI
HUGBUNAÐUR
FYRIRWINDOWS
Yfir 1200 notendur
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun