Morgunblaðið - 11.01.1998, Side 16
16 SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Valaá
góðu róli
VALA Flosadóttir, heims-
methafí unglinga í stangar-
stökki úr ÍR, er óðum að
jafna sig eftir slæm meiðsli í
baki sem settu stórt strik í
reikninginn hjá henni á síð-
ari hluta liðins árs. Hún hef-
ur æft af kostgæfni síðustu
vikur og á miðvikudaginn
stökk hún 4,05 m á æfíngu
eftir því sem fram kemur í
fréttatilkynningu frá frjáls-
íþróttadeild ÍR í gær. Þessi
árangur lofar góðu fyrir
Völu sem verður á fijáls-í-
þróttamóti ÍR eftir rúmar
tvær vikur. Þar fær hún
verðuga keppni þar sem
fyrrum Evrópu- og heims-
methafí, Daniela Bartova frá
Tókklandi, mætir til leiks í
stangarstökki. Vala setti
heimsmet sitt, 4,20 m, á Af-
mælismóti ÍR í Laugardals-
höll í lok janúar í fyrra.
Seles ekki
með í Ástralíu
BANDARÍSKA tenniskonan
Monica Seles tilkynnti í gær
að vegna persónulegra að-
stæðna yrði hún ekki með á
Opna ástralska meistara-
mótinu sem hefst 19. janúar.
Seles, sem er í fímmta sæti á
heimslistanum, hefur fjórum
sinnum keppt á þessu móti
ogalltaf sigrað, síðast 1996.
Hún var þá nýkomin á temi-
isvöllinn á ný eftir 27 mán-
aða hvfld eftir að hún var
stungin með hm'fí á móti í
Þýskalandi árið 1993.
Reuters
WAYNE Gretzky til vinstri og Brian Leetch, fyrirliði NY Rangers, eru samherjar í New York og voru báðir valdir i úrvalslið heímamanna
á móti úrvalsliði útlendinga í Stjörnuleik NHL. Gretzky var á föstudaginn útnefndur besti íshokkíleikmaður sögunnar af sérfræðingum .
Urvalslið heimamanna í íshokkí á móti útlendingunum
Wayne Gretzky í
Stjömuleik í 17.
WAYNE Gretzky var valinn í stjörnulið heimamanna (Kanada
og Bandaríkjanna) sem mætir stjörnuliði erlendra leikmanna
í NHL-íshokkídeildinni 18. janúar. Þetta verður í 17. sinn
sem Gretzky spilar Stjörnuleik en aðeins Gordie Howe hefur
leikið fleiri leiki - hann var með í 23 leikjum.
Til þessa hefur úrvalslið Austur-
deildar mætt úrvalsliði Vestur-
deildar í Stjömuleiknum en nú var
valið lið heimamanna á móti liði út-
lendinga til að byggja upp spennu
fyrir íshokkíkeppnina á Vetrar-
ólympíuleikunum í Nagano í Japan
í febrúar en þá verða leikmenn úr
NHL-deildinni með í fyrsta sinn á
Ólympíuleikum.
Almenningur kaus byrjunarliðin
en síðan var 15 leikmönnum bætt í
hvom hóp. í byrjunarliði heima-
manna em markvörðurinn Patrick
Roy hjá Colorado. Vamarmenn-
irnir Brian Leetch hjá Rangers og
Ray Bourque hjá Boston, en hann
hefur leikið 15. Stjömuleiki. Kant-
mennimir John LeClair hjá Phila-
delphia og Brendan Shanahan hjá
Detroit og miðherjinn Eric
Lindros hjá Philadelphia.
Gretzky hefur gert fleiri mörk í
Stjömuleik en nokkur annar leik-
maður, 12 samtals, en stig hans
(mörk og stoðsendingar) í leikjun-
um til þessa em 20. Mario Lemi-
eux náði líka 20 stigum en hann er
hættur.
í hópnum em 14 Kanadamenn
og sjö Bandaríkjamenn en athygli
vekur að Paul Kariya hjá Anaheim
var ekld valinn. Hann hefur misst
úr marga leiki á tímabilinu vegna
samningamála en verður í liði
Kanada á Ólympíuleikunum.
Sjö Rússar í hópnum
Rússar eiga sjö leikmenn í út-
lendingahópnum en reyndar að-
eins einn í byrjunarliðinu. Fjórir
Svíar eru í hópnum, þrír Finnar,
þrír Tékkar og þar af tveir í byrj-
unarliðinu, tveir Slóvakar, einn
Letti og einn Þjóðverji.
Tékkneski markvörðurinn Dom-
inik Hasek hjá Buffalo Centers var
valinn í byrjunarliðið. Aðrir leik-
menn era vamarmennirnir Sandis
Ozolinsh frá Lettlandi, sem leikur
með Colorado, og Rússinn Slava
Fetisov hjá Detroit, kantmennim-
ir Jaromir Jagr hjá Pittsburgh og
Teemu Selanne hjá Anaheim og
sænski miðherjinn Peter Forsberg
hjá Colorado.
Finninn Selanne er markahæst-
ur í deildinni, en í hópnum era
kunnir skorarar, Rússinn Pavel
Bure hjá Vancouver, sem er þriðji
markahæsti leikmaður deildarinn-
ar, og Slóvakinn Peter Bondra hjá
Washington, sem er í fjórða sæti.
Eftirtaldir leikmenn vora valdir
(nafn, heimaland, félag):
Heimamenn
Miðherjar
• Eric Lindros, Kanada Philadelphia Way-
ne Gretzky, Kanada NY Rangers Mike
Modano, Bandar. Dallas Joe Sakic, Kanada
Colorado Doug Weight, Bandar. Edmonton
Kantmenn
• John LeClair, Bandar. Philadelphia
• Brendan Shanahan, Kanada Detroit
Keith Tkachuk, Bandar. Phoenix Tony
Amonte, Bandar. Chicago Shayne Corson,
Kanada Montreal Theoren Fleury, Kanada
Calgary Mark Recchi, Kanada Montreal
Varnarmenn
• Ray Bourque, Kanada Boston • Brian
I.eetch. Bandar. NY Rangers Chris Chelios,
Bandar. Chicago Scott Niedermayer,
Kanada New Jersey Scott Stevens, Kanada
New Jersey Darryl Sydor, Kanada Dallas
Markverðir
• Patrick Roy, Kanada Colorado Martin
Brodeur, Kanada New Jersey Ed Belfour,
Kanada Dallas@millifs: Utlendingar
Miðherjar
• Peter Forsberg, Svíþjóð Colorado Saku
Koivu, Finnl. Montreal Mats Sundin, Sví-
þjóð Toronto Bobby Holik, Tékkl. New
Jersey
Kantmenn
• Jaromir Jagr, Tékkl. Pittsburgh
• Teemu Selanne, Finnl. Anaheim Pavel
Bure, Rússl. Vancouver Peter Bondra,
Slóvakiu Washington Daniel Alfredsson,
Svíþjóð Ottawa Valeri Kamensky, Rússl.
Colorado Zigmund Palffy, Slóvakíu NY Is-
landers Jere Lehtinen, Finnl. Dallas
Varnarmenn
• Sandis Ozolinsh, Lettl. Colorado • Slava
Fetisov, Rússl. Detroit Nicklas Lidstrom,
Svíþjóð Detroit Igor Kravchuk, Rússl.
Ottawa Dmitri Mironov, Rússl. Anaheim
Sergei Zubov, Rússl. Dallas
Markverðir
• Dominik Hasek, Tékkl. Buffalo Nikolai
Khabibulin, Rússl. Phoenix Olaf Kolzig,
Þýskal. Washington • í bytjunarliði.
Backley
æfir með
Zelezny
BRETINN Steve Backley,
fremsti spjótkastari þjóðar
sinnar og silfurverðlauna-
hafi á síðasta heimsmeist-
aramóti er á leið til S-Af-
ríku þar sem hann ætlar að
æfa með heimsmethafan-
um Jan Zelezny. Backley,
sem leggur kapp á að
halda Evrópumeistaratitl-
inum og Samveldistitlinum
í spjótkasti í sumar, segist
hafa hringt í Zelezny
meira í gamni en alvöru til
þess að athuga hvort
möguleiki væri á að heims-
methafinn vildi leyfa sér
að æfa með sér og gefa sér
góð ráð. „Mér til fúrðu
sagði hann strax já,“ segir
Backley.
Zelezny hefur lengst
kastað 98,48 m sem er um
sex metrum lengra en sá
sem næstlengst hefur
kastað, en Backley á best
91,46 m. Bretinn telur að á
Evrópumótinu í Búdapest í
sumar standi keppnin á
milli sín og Boris Henry
frá Þýskalandi.
Kelly Holmes fremsti
miUivegahlaupari Breta í
kvennaflokki æfír einnig í
S-Afríku um þessar mund-
ir og býr sig undir átök
sumarsins, en sl. ár var
henni vonbrigði er hún
meiddist í 1.500 m hlaupi á
heimsmeistaramótinu í
Aþenu. Holmes segist hafa
náð sér að fullu af meiðsl-
unum.
Andy Hunt með Austurriki?
ANDY Hunt miöheiji WBA, sem er borinn og barnfæddur á
Englandi, er tilbúinn að leika fyrir Austurríki ef kallið kemur.
Hunt, sem er 27 ára og markakóngur WBA, er löglegur i
austurríska landsliðið vegna þess að amma hans er frá Austurríki.
Hunt, sem hefur gert 12 mörk fyrir WBA á tímabilinu, sagði í
gær að WBA hefði tiikynnt Knattspyrnusambandi Austurríkis að
hann mætti spila fyrir Austuirfld en enn hefðu engin viðbrögð
borist þaðan og því vildi hann ekki gera of mikið úr þessum
möguleika. „Ef tækifærið gefst væri gaman að láta á það reyna,“
sagði miðherjinn, sem WBA keypti frá Newcastle fyrir 100.000
pund 1993 en hann gerði 11 mörk í 43 deildarleikjum með
Newcastle.