Morgunblaðið - 11.01.1998, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1998 1 9
LISTIR
Hailgerður langbrdk í Listaklúbbnum
Ærið fögur
er mær sjá...
DAGSKRÁ Listaklúbbs Leikhús-
kjallarans mánudaginn 12. janú-
ar nk. verður tileinkuð þeirri
konu sem löngum hefur verið ein
umdeildasta sögupersóna Njálu
- Hallgerði langbrók. Dagskráin
nefnist Ærið fögur er mær sjá...
- Hallgerður langbrók - eigin-
menn og elskhugar.
Samband Hallgerðar
við karlmenn
Jón Böðvarsson og Krislján Jó-
hann Jónsson íslenskufræðingar
Morgunblaðið/Þorkell
JÓN Böðvarsson og Kristján Jóhann Jónsson fjalla m.a. um eiginmenn
og elskhuga Hallgerðar.
tala um Hallgerði og samband
hennar við karlmennina sem
koma við sögu hennar. Leikar-
arnir Sigrún Gylfadóttir og Stef-
án Sturla Sigurjónsson lesa valda
kafla úr Njálu og flytja atriði úr
leikriti Hlínar Agnarsdóttur
Gallerí Njála.
Jón Böðvarsson hefur um ára-
bil stýrt námskeiðum um Njálu
og aðrar íslendingasögur. Krist-
ján Jóhann Jónsson hefur nýlega
sent frá sér viðamikla ritgerð um
Njálu sem ber titilinn Njála í
notkun. Þar fjallar hann m.a. um
Hallgerði langbrók, eiginmenn
hennar og elskhuga.
Dagskráin hefst kl. 20.30 en
húsið er opnað kl. 19.30. Miða-
sala er við innganginn. Ekki eru
tekin frá borð og er fólki bent á
að koma tímanletra.
Matthías í
evrópsku
ljóðaúrvali
ÚTGÁFUFYRIRTÆKIÐ Ammann
Verlag í Zurich í Sviss hefur gefið
út ljóða- og smásagnaúi-val eftir 33
evrópska höfunda, þeirra á meðal
Matthías Johannessen. Bókin nefn-
ist Freundschaft der Dichter en
ljóðin hefur Werner Söllner valið.
Bókin er gefin út í tilefni af tíu
ára afmæli listamannahússins í
Edenkoben í Þýskalandi. Allir höf-
undarnir sem eiga verk í bókinni
hafa dvalið í húsinu eða notið góðs
af starfi þess á einhvern hátt.
Flestir höfundanna sem eiga verk
í bókinni eru þýskumælandi, svo
sem Hans Bender, Elke Erb og
Guntram Vesper en einnig eru þar
fjölmargii- suðurevrópskir höfund-
ar, til dæmis Italinn Antonio Col-
inas, búlgarska skáldkonan Mirela
Iwanowa og Ungverjinn György
Petri. Frá Norðurlöndum eru tvö
skáld, danska skáldkonan Inger
Chistensen og Matthías Johannes-
sen. Ljóð Matthíasar eru þýdd af
Franz Gíslasyni, Uwe Kolbe, Bar-
bara Köhler og Ralf Thenior.
*
Islendinga-
þættir á
spænsku
FIMM íslendingaþættir eru komnir
út á Spáni í þýðingu og með inngangi
eftir José Antonio Fernández
Romero, prófessor 1 málvísindum við
Háskólann í Vigo. Meðal þáttanna
eru Brands þáttur örva, Þormóðar
þáttur og Þorvalds þáttur Tasalda.
Bókin kemur út í flokki rita sem
kennd eru við Iria Flavia, „E1
Extramundi y los papeles de Iria
Flavia", og er 126 síður.
Þættirnir sem eru teknir úr Is-
lendingasögum og Noregskonunga
sögum „opna glugga að heillandi
heimi víkingatímanna og norrænna
rnanna" eins og þýðandinn kemst að
orði í inngangi. Hann hefur áður þýtt
Islendingasögur og birtust tíu þættir
í þýðingu hans 1984. Hann getur
einnig þýðinga Enrique Bernárdez á
Islendingasögum og þáttum, en Ber-
nárdez er ásamt Fernández Romero
meðal helstu þýðenda íslenskra bók-
mennta á Spáni.
José Antonio Fernández Romero
hlaut fyrir nokki-u æðstu verðlaun
spænska ríkisins fyrir þýðingar sín-
ar á ljóðum íslenskra samtímaskálda
sem gefnar voru út í ljóðasafninu
Poesía Nórdica (Norræn ljóð). Nú
eru að koma út tvær íslenskar bæk-
ur í þýðingu hans: skáldsagan Engl-
ar alheimsins eftir Einar Má Guð-
mundsson og Ljóðasafn efth- Jóhann
Hjálmarsson sem Fernández
Romero hefur sjálfur valið.
Sýning-u lýkur
SÝNINGU Haralds Jónssonar í
Ingólfsstræti 8 lýkur í dag.
Discovery Windsor ▼
FULLNAÐAR5IGUR
á íslenskum aðstæðum
fslensk náttúra er mesta ólíkindatól og þeir sem hyggja á
ferðir um fjöll og fimindi þurfa að vera við ýmsu búnir. (slendingar
hafa löngum lagt traust sitt á Land Rover enda hafa bílarnir
reynst þrautgóðir á raunastundu. Land Rover Discovery er
tignarlegur jeppi sem hefur sannað sig í baráttunni við
náttúruöflin víða um heim.
Útivistarfólk hefurtekið Discovery
fagnandi vegna einstakra
aksturseiginleika og frábærs
útsýnis. Discovery státar af
hinni rómuðu Range Rover
fjöðrun sem kemur sér
sérstaklega vel á fjallvegum.
Discovery Windsor - óskabíll íslendinga
Windsor er sérstök útgáfa af Discovery sem er sniðin að
þörfum þeirra sem vilja ferðast um fsland. Windsor jeppamir
eru með álfelgum, brettaköntum, tveimur topplúgum, ABS
bremsukerfi og upphitaðri fram-
rúðu. Windsor er því kjörinn
farkostur fyrir þá sem vilja takast á við ögrandi aðstæður án
þess að slaka á kröfum um þægindi. Windsor hentar þér
hvort sem þú þarft að fást við iðuköst (straumharðri á eða
erilinn í umferðinni. Hafðu samband og fáðu tækifæri til að
kynnast þessum stórkostlega bil.
Discovery: Verð frá 2.860.000 kr.
Discovery Windsor: Verð frá 3.290.000 kr.
B&L ■ Suðurlandsbraut 14 • Sími 575 1200 • Rover söludeild 575 1210 • Fax 588 1205 • Netfang bl@bl.is • Veffang www.bl.is