Morgunblaðið - 11.01.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1998 23
Eykur verðhækkun
smygl á tóbaki?
ÞEGAR rætt er um umtalsverðar
hækkanir á tóbaki heyrast þær
raddir, að smygl mundi stór-
aukast. Ekki er kunnugt um
neina rannsókn á því hér á landi,
en Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin (WHO) lýsti því yfir á síðasta
ári að röksemdum af þessu tagi
væri haldið á lofti til að hvelja
stjórnvöld til að lækka, eða a.m.k.
ekki hækka, skatta á tóbak. „Á
sama tíma hagnast tóbaksfyrir-
tækin gríðarlega á ólöglegri sölu
á sígarettum. Þau fá venjulegan
hagnað sinn með því að selja
þessar sígarettur til dreifenda
vörunnar. Sígaretturnar fara síð-
an á ólöglegan markað og þar
sem skattar og gjöld hafa ekki
verið greidd af þeim er hægt að
selja þær á lægra verði en aðrar
tegundir, sem jafnframt eykur
eftirspurnina," segir WHO.
WHO segir að yfirvöld séu alls
ekki úrræðalaus gagnvart
smygli. „Sem dæmi má nefna að
mörg lönd hafa tekið upp þá að-
ferð að merkja sígarettupakka
svo skýrt sé að gjöld hafi verið
greidd af þeim, svo greina megi
milli löglegrar og ólöglegrar
vöru. Þegar ólöglega varan er
auðþekkjanlegri verður eftirlit
auðveldara.“
áhrif á framfærsluvísitölu."
í samræmi við þetta var eitt
markmiða heilbrigðisáætlunarinn-
ar: „Verð á tóbaksvörum skal
hækka árlega umfram almennar
verðhækkanir.“
Aætlunin var ekki samþykkt
þetta þingið og lagði ráðherra hana
fram að nýju haustið 1989. Þar var
ofangreint ákvæði óbreytt. Sagan
endurtók sig 1990, en þegar heil-
brigðisáætlun var loks afgreidd frá
Sameinuðu þingi, 19. mars 1991,
hafði ákvæðið um tóbaksverð verið
mildað. Lokaútgáfan var: „Verð á
tóbaksvörum ætti að hækka um-
fram almennar verðhækkanir."
Framkvæmdavaldið hefur ekki
alltaf talið sig bundið í báða skó af
yfirlýsingu þingsins um hvað ætti
að vera svona eða hinsegin. Raunin
hefur þó verið sú, eins og áður er
tíundað, að tóbak heíúr hækkað
umfram almennar hækkanir frá
samþykkt heilbrigðisáætlunar.
Núverandi heilbrigðisráðherra,
Ingibjörg Pálmadóttir, lýsti því yf-
ir í viðtali við Morgunblaðið 25.
október 1995 að hún vildi hækka
verðið til að draga úr tóbaksreyk-
ingum. „Við eigum að hækka verð-
ið umfram almenna verðlagsþróun.
Þessi hækkun getur orðið smám
saman, á 5-10 ára tímabili, en hún
þjónar hins vegar ekki tilgangi sín-
um nema um leið sé lögð mikil
áhersla á að hjálpa fólki, svo það
eigi val. Verð á tóbaki á hins vegar
að vera svo hátt að það komi við
pyngjuna að reykja."
Reykingar og vísitala
í lokaútgáfu heilbrigðisáætlun-
arinnar voru engar hugleiðingar
um að óeðlilegt væri að hækkun tó-
baksverðs hefði áhrif á framfærslu-
vísitölu (nú vísitölu neysluverðs).
Sú tenging hefur farið fyrir brjóst-
ið á þeim sem berjast gegn reyk-
ingum. Þeir benda á, að engin rök
hnígi til þess að reykingar 30%
fullorðinna Islendinga hafi áhrif á
vísitöluna og verðhækk-
un á tóbaki hækki þar
með almennt verðlag.
Þegar frumvarp til
breytinga á tóbakslög-
um, sem varð að lögum
1996, var rætt í heilbrigð-
is- og trygginganefnd Alþingis kom
til álita að hækka verð á tóbaki í
forvarnaskyni, en nefndin taldi það
tæknilega erfitt vegna tengsla tób-
aks við vísitölu neysluverðs. Aður
höfðu þingmenn ítrekað lagt fram
tillögur um afnám þessarar teng-
ingar.
Árið 1994 svaraði Davíð Oddsson
forsætisráðherra fyrirspurn á
þingi, sem laut að því hvaða rök
væru fyrir því að áfengi og tóbak
væru hluti af grunni framfærslu-
vísitölunnar. Fyrirspyrjandi, Björk
Jóhannsdóttir (SK-VF), benti á töl-
ur Hagstofu Islands um að tóbak
vægi 1,6% í vísitölunni og áfengi
sömuleiðis. Hins vegar væru
barnaheimilisútgjöld og húshjálp
aðeins 1,1%, fiskur og fiskvörur
1,1%, Póstur og sími 1,1% og skóla-
ganga 1,4%.
Davíð Oddsson sagði landsmenn
neyta bæði áfengis og tóbaks og
þau væru hluti af heimilis- og
einkaneysluútgjöldum þjóðarinnar.
„Enginn greinarmunm' er gerður á
útgjöldum eftir tilefni þeirra og
engin afstaða tekin til þess hvort
þau eru nauðsynleg eða ónauðsyn-
leg, gagnleg eða gagnslaus, heilsu-
samleg eða heilsuspillandi. I þessu
efni er beitt hliðstæðum aðferðum
og erlendis."
Davíð sagði engar breytingar
fyrirhugaðar á grunni vísitölunnar
aðrar en þær sem kynnu að leiða af
breyttri neyslusamsetningu sam-
kvæmt neyslukönnun. Hann
kvaðst telja eðlilegt að áfengi og
tóbak hafi áhrif á vísitöluna. „Að
fella niður þessa eða aðra liði
neyslunnar við gerð vísitölunnar og
breyta þannig út af meginreglunni
að mælingin taki til allra flokka
vöru og þjónustu sem einstaklingar
neyta væri að gefa ranga mynd af
verðbreytingunni," sagði forsætis-
ráðherra.
Árið 1994 var lögð fram þings-
ályktunartillaga um að samið yrði
frumvarp til laga sem miðaði að því
að reiknuð yrði út sérstök vísitala
framfærslukostnaðar án áfengis og
tóbaks og að sú vísitala yrði notuð
við ákvarðanir um breytingar á
lánskjaravísitölu og öðrum viðmið-
unum. Þessi tillaga, sem Þuríður
Backman (Ab-Al) og Svavar Gests-
son (Ab-Rv) fluttu, hlaut ekki af-
greiðslu.
Fordæmi þriggja
Evrópulanda
Þuríður var enn fyrsti flutnings-
maður tillögu sama efnis árið 1996.
Hún vísaði til þess, að þrjú Evr-
ópulönd, Belgía, Frakkland og
Lúxemborg, hefðu farið þá leið að
reikna sérstaka vísitölu án tóbaks
til að nota við ákvarðanir um láns-
kjör. „Evrópusambandið beinir
þeim tilmælum til aðildarlanda
sinna að fara þessa leið og því hlýt-
ur hún að vera fær ef pólitískur
vilji er fyrir hendi eins og var í
Belgíu, Frakklandi og
Lúxemborg,“ sagði
Þuríður.
Friðrik Sophusson
fjármálaráðheri'a sagði
að vissulega væru rök
fyrir þvi að fara þessa
leið hér á landi. „Ef menn ætluðu
að hækka útsöluverð verulega, þá
kæmi slíkt auðvitað til álita. Eg
ætla ekki að segja neitt eða hafa
álit á því á þessari stundu. Mér
finnst eðlilegt að málið fái skoðun í
nefndinni,“ sagði ráðherra og vís-
aði þar til heilbrigðis- og trygg-
inganefndar Alþingis.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra sagði nauðsynlegt að
kanna hvaða áhrif afnám vísitölu-
tengingar hefði haft í umræddum
þremur Evrópulöndum. „Mér
finnst að við eigum ekki að láta
neins ófreistað til að minnka reyk-
ingar í landinu og ef þetta er sú
leið sem er fær, þá fórum við
hana.“
Málinu var vísað til heilbrigðis-
og trygginganefndar, sem óskaði
umsagna ýmissa aðila. Þeim um-
sögnum var skilað í janúar á síðasta
ári, en málið er enn í nefndjnni.
Tóbaksvarna-
nefnd vildi
hækka pakk-
ann í 500 kr.
Leðursófasett
Áklæðasófasett
Hornsófar, eldhúsborð
og stólar o.m.fl.
Seljum lítið útlitsgölluð
húsgögn með miklum
afslætti
Sími581-2275■ 56&S375m Fax56&-5275
Dúndurver^
Hjá okkur eru sl
Visa- og
Euroraðsamningar I
ávisun á staðgreiðslu
Armúla 8-108 Reykjavík
s
Kf
kl*
Eá
BC
«f
u-
s
«f
*—
9
Z
Z
|
ek
iee
Hý"
Tölvu- og kerfisfræðinámið er tveggja ára nám.
Kennt er tvö kvöld í viku frá kl. 18:00-21:30
og laugardaga frá kl. 8:30-12:00.
Námið er að fullu lánshæft.
g
-sr
so
Stöðumat —
1 ■ Forritun
1
Kerfisfræði
Umsjón og rekstur tölvuneta
u Vefsíðustjórnun
n
n
Nýsköpun
í
tölvuiönaði
Lokaverkefni
Lokaverkefni
rl
Lokaverkefni
- Lokaverkefni
70
g
5'
*>
70
z
i
RAFIÐNAÐARSKÓLINN
Skeifan 11 b • Sími 568 5010
Z
g
c íii viAina nniA i m viAiaa nniA i m vuiaa nniA i m vuiaa nniA